Morgunblaðið - 09.04.1991, Page 23
MORGÚNBLAÐIÐ ÞRIÐJÚDAGUR 9. APRÍL 1991
23
Verðbólga er enn á
fjármagnsmarkaði
eftirEggert
Haukdal
Það vakti að vonum mikla at-
hygli þegar forsætisráðherra lýsti
því yfir á Alþingi að svarbréf Seðla-
bankans til ríkisstjórnarinnar um
vaxtamál væri hneyksli. Reyndar
gekk flánnálaráðherra enn lengra
við sama tækifæri er hann kvað
skrif og skýrslur bankans mark-
leysu.
Minna þarf til erlendis að seðla-
bankastjóri segi af sér. Jafnvel eitt
styggðaryrði dugar. En formaður
bankastjórnar Seðlabankans, sem
er valdamestur þar á bæ, situr sem
fastast. Það gerir hann í skjóli við-
skiptaráðherra Jóns Sigurðssonar
eins og vikið verður að síðar í þess-
ari grein.
Of háir raunvextir
Málið snýst um raunvexti. Víst
eru þeir hærri hér en í öðrum lönd-
um. Hið sama gildir um nafnvexti.
Nægir að vísa til yfirlits, sem birt-
ist í tímaritinu Economist í febrúar
sl. og tekur til tíu landa í Evrópu
og N-Ameríku. Raunvextir á íslandi
eru liðlega tveim prósentustigum
hærri en meðaltal landanna og
nafnvextir fjórum prósentustigum
hærri. Raunvextir á íslandi eru allt
að ijórfalt (400%) hærri en í sumum
þessara landa, svo sem Bandaríkj-
unum, Svíþjóð og Sviss. Að neita
þessu er að beija höfðinu við stein-
inn. Það gerir Seðlabankinn. Því
þarf engan að undra orð fjármála-
ráðherra, sem vitnað var til hér að
framan.
íhlutunar þörf
í 2. mgr. 9. gr. seðlabankal'ág-
anna segir: „Seðlabankinn getur að
fengnu samþykki ráðherra bundið
vaxtaákvarðanir innlánsstofnana
takmörkunum til að tryggja að
raunvextir útlána innlánsstofnana
verði hóflegir og eigi hærri en þeir
eru að jafnaði í helztu viðskipta-
löndum íslendinga."
Þetta orðalag er ótvírætt. Bank-
„Ef stjórnvöld taka
ekki í taumana mun
hagkerfið ganga úr
skorðum síðari hluta
ársins. Þá er of seint
að spyrna við fæti.“
inn hefir heimild og vald til að grípa
í taumana. Það skiptir ekki mál
hvers vegna raunvextir eru hærri
hér en í viðskiptalöndum okkar. Það
eitt, að þeir eru hærri, nægir til
íhlutunar. Varla hefir staðið á sam-
þykki ráðherra bankamála, því að
ríkisstjórnin öll bað Seðlabankann
skriflega um að beita sér fyrir lækk-
un raunvaxta.
Ráðherra klórar í bakkann
Hins vegar er Jón Sigurðsson
ekki heill í þessu máli. Hann sagði
í nýlegri umræðu á Alþingi að frum-
varp mitt um lánskjör og ávöxtun
spariijár að hann teldi eðlilegt að
líta á 9. gr. seðlabankalaganna
„sem varúðar- og aðhaldsákvæði
meðan samkeppni er ónóg á hinum
íslenzka fjármagnsmarkaði“. Þessi
túlkun er vissulega haldlaus og á
sér ekki stoð. Ráðherrann er þarna
einfaldlega að klóra í bakkann. Auk
þess er samkeppni engin milli hinna
fáu viðskiptabanka hérlendis. Allar
ákvarðanir þeirra hafa verið teknar
með handauppréttingu bankaráðs-
manna, þ.e. með handafli þeirra
sjálfra, en ekki annarra. Sannleik-
urinn er sá að „vaxtafrelsi" og
„markaðslögmál" sem fijálshyggju-
menn þrástagast á gilda ekki á ís-
landi. Það tal er bull eitt til þess
ætlað að afsaka og réttlæta vaxta-
okur. í öllum vestrænum ríkjum,
bæði Evrópu og N-Ameríku, er
vöxtum miðstýrt með samhæfðri
peningastjórn ríkisvalds og Seðla-
banka — og beinum tilskipunum ef
önnur ráð eru ekki tiltæk. Hér
skortir slíka samvinnu, og því eru
laudsmál öll í ólestri.
Davíð Oddsson:
Hið opinbera
umbuni góðum
starfsmönnum
DAVIÐ Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins telur að breyta þyrfti
launakerfi opinberra starfsmanna þannig að hægt væri að umbuna
góðum starfsmönnum hins opinbera. „Eg tei að það væri hægt að stokka
upp launakerfið, þannig að samið væri á hverjum stað fyrir sig og
síðan hefðu forsvarsmenn fyrirtækjanna ákveðið svigrúm til þess að
kaupa að og umbuna góðum starfsmönnum," sagði Davíð í samtali við
Morgunblaðið í gær, er hann var spurður út í þetta álit sitt, sem hann
reifaði í sjónvarpsþætti á sunnudaginn.
Aðspurður um hversu mikið svigr-
úm hann teldi að forsvarsmenn opin-
berra fyrirtækja ættu að hafa til
þess að keppa um hæfa starfskrafta
við einkageirann sagði Davíð: „Svigr-
úmið yrði að vera töluvert, allt upp
í 50 til 60% álag til starfsmanna sem
bæru af. Við hjá borginni finnum
verulega fyrir því að það er alltaf
hætta á að einkaaðilar kaupi frá
okkur góða starfskrafta. Við höfum
sem betur fer fjölmarga góða starfs-
menn hjá borginni sem tapa fjármun-
um við að vera hjá okkur.“
Davíð segist telja að hið opinbera
verði að vera samkeppnisfært með
Sparnaður ekki aukist
að stofni
Seðlabankinn sakar stjórnvöld
um hallarekstur ríkissjóðs er ýti
undir hækkun raunvaxta sem 'rétt
er. Sjálfur er Seðlabankinn hvergi
nærri syndlaus. Hann hefir lánað
ríkissjóði milljarða króna beint og
nú síðast lagt mikið fé í húsbréfa-
kerfið. Þetta nýja fé margfaldast í
lánaþenslu viðskiptabankanna.
Eitt furðulegasta tiltæki banka-
kerfisins er síbyljan um aukinn
sparnað í kjölfar vaxtaskrúfunnar.
Skv. þeirra eigin gögnum, Hag-
Eggert Haukdal
tölum mánaðarins o.fl., hefir sparn-
aður ekki aukizt að stofni. Bundin
spariinnlán hafa aukizt minna en
nemur viðbættum vöxtum. Þegar
þessir menn tala um sparnað hljóta
þeir að eiga við önnur innlán, velti-
innlán, viðskiptabækur o.s.frv. sem
endurspegla útlánaþensluna.
Hafa brugðist þjóðarsáttinni
Launþegasamtökin, sér í lagi
verkalýðsfélög, hafa sætt sig við
óbreytt kjör. Fyrirtæki í iðnaði og
verzlun hafa að mestu haldið að sér
höndum í verðlagningu. Bankakerf-
ið og ríkisstjórnin hafa brugðist
þjóðarsáttinni. Vextir eru of háir
og veikja samkeppnisstöðu okkar
út á við. Á verðbréfamarkaði við-
gengst meira eða minna skattfijálst
vaxtaokur í formi affalla, verðbóta-
þáttar og raunvaxta — meðan vinn-
ulaun á fátæktarmörkum eru skatt-
lögð hartnær 40%. Ef stjórnvöld
taka ekki í taumana mun hagkerfið
ganga úr skorðum síðari hluta árs-
ins. Þá er of seint að spyrna
við fæti.
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi.
eðlilegum hætti við einkamarkaðinn.
„Eg tel að það væri raunhæf leið til
að fækka opinberum starfsmönnum,
ef það væri hægt að umbuna góðum
starfsmönnum á kostnað hinna sem
lakari væru,“ sagði Davíð. Hann
sagðist telja að slíkt launakerfi hjá
hinu opinbera yrði mjög hvetjandi
og myndi skapa ákveðna samkeppni,
sem væri af hinu góða auk þess sem
hér væri um mikið sanngirnismál að
ræða. „Eg geri mér grein fyrir því
að þetta er hægara sagt en gert og
flókið í framkvæmd, en ég er sann-
færður um að þetta er framkvæman-
legt,“ sagði Davíð.
ÞYSKUR
GÆÐAVAGN
VOLKSWAGEN
JETTA
KOSTAR NÚ AÐEINS FRÁ KR
1J05&000
® Aflstýri ^j) 6601 farangursrými
® Samlæsing á hurðum Sjálfskipting/handskipting
® Ryðvörn í sérflokki ® Afar Ijúfur í akstri
© Lág bilanatíðni © Þriggja ára ábyrgð
SÍGILDUR 5 MANNA FJÖLSKYLDUBÍLL
HEKLA
LAUGAVEGI 174
SÍMI 695500