Morgunblaðið - 09.04.1991, Page 27
Umbætur boðaðar í Kúveit:
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991
27
Fermingargjöf- með tramtíðina í hnga
FERMINGARTILBOÐ Verö er miðað við staðgreiðslu.
Ik llir vilja gefa góða fermingargjöf, en i«það er enginn leikur að hitta á einu VICTOR VPCIIc 30 VGA kr. 109.000,-
VICTOR V86p 20 MB ferðatölva kr, 129.000,-
réttu gjöfina. Það er hins vegar auðvelt VICTOR V286M 40 VGA kr. 169.000,-
að finna gjöf sem sameinar ótrúlegt Mannesmann Tally MT 81 prentari kr. 16.900,-
notagildi, þroskar einstaklinginn og hef- TA 100 Gabriele skólaritvél kr. 19.800,-
ur jákvæð áhrif á nám og starf um alla LetterPerfect ritvinnsluforrit kr. 16.900,-
framtíð. Og það sem meira er - ótrúlega DrawPerfect teikniforrit kr. 29.900,-
mörg fermingarbörn langar einmitt að fá Microsoft Entertánment Pack kr. 4.900,-
slíka gjöf! Windows 3.0 uppfærsla kr. 9.800,-
Victor VPC töfva - Mannesmann Tally prentari - TA Gabriel 100 skólaritvél.
Vandaður búnaður frá viðurkenndum framleiðendum. Gjafir sem fylgja fermingar-
barninu langt, langt inn í framtíðina.
Fermingartitbod sem vert er að kynna sér!
EinarJ. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 686933
Furstiiui heitir kosn-
iiignm á næsta ári
Stj órnarandstæðingar vilja ákveða kjördag strax
Kúveit-borg. Reuter.
SHEIKH Jaber al-Ahmed al-Sabah, fursti af Kúveit, flutti á sunnu-
dag fyrsta ávarp sitt til þjóðarinnar eftir heimkomu sína að loknum
ósigri Iraka. Hann hét lýðræðislegum og frjálsum kosningum á
næsta ári. Stjórnarandstæðingar fagna yfirleitt boðskapnum en eru
þó varkárir og vilja að stjórnvöld nefni ákveðna dagsetningu fyrir
kosningarnar. Kosið var til löggjafarsamkomu í landinu fyrir tveim
árum en stjórnarandstaðan hundsaði þá kosningarnar. Einn af ráð-
herrum landsins, Abdul Rahman al-Awadi, sagði í gær að kosningarn-
ar yrðu að líkindum haldnar í ágúst eða september 1992.
Furstinn leysti ráðgefandi þing
upp 1986 eftir að það hafði starfað
í nokkur ár. Þingmenn voru þá farn-
ir að krefjast aukinna áhrifa. „Þetta
er mjög gott; þetta er í fyrsta sinn
í sex ár sem við heyrum minnst á
fijálsar kosningar," sagði Isa al-
Sarraf, talsmaður einnar hreyfingar
stjórnarandstæðinga. „En hvað
gerist ef hann kemur eftir sex
mánuði og segir að enn sé við erfið-
leika að glíma og réttlætir síðan
að kosningum verði frestað?“ Önnur
hreyfing hefur krafíst þess að kjör-
dagur verði ákveðinn í janúar nk.
Jaber fursti sagði ekkert um það
hvort ný ríkisstjórn yrði mynduð
en stjórn undir forystu krónprinsins
sagði af sér fyrir skömmu. Sabah-
ættin hefur verið einráð í landinu
í 250 ár.
Athygli vakti að furstinn hrósaði
kúveiskum konum fyrir frammi-
stöðuna á tíma hernáms liðsmanna
Saddams Husseins og gaf í skyn
að þær fengju ef til vill kosninga-
rétt og kjörgengi. Hann sagði lands-
menn enn óttast árás af hálfu
„harðstjórnas í Bagdad" og fór
fram á að bandamenn drægju ekki
allan herafla sinn frá Kúveit. Ge-
orge Bush Bandaríkjaforseti hefur
sagt að bandaríska liðið verði flutt
heim eins fljótt og unnt er. Frétta-
menn _sem voru á ferð við landa-
mæri Iraks og Kúveits á sunnudag
sögðust sjá merki um að sumar
herdeildir væru að tygja sig á brott
en írakar hafa fallist á vopnahlés-
skilmála bandamanna. Jaber fursti
sagði að hann treysti því ekki að
Saddam stæði við vopnahlésskil-
málana og lét í ljós áhyggjur af
örgygismálum Kúveita. „Harðstjór-
inn í Bagdad er allra manna fljótast-
ur að undirrita samninga en einnig
fljótastur að hliðra sér hjá þeim og
bijóta þá,“ sagði furstinn.
Eftir frelsunina ofsóttu Kúveitar
Palestínumenn og ýmsa aðra araba,
búsetta í landinu, fyrir að hafa átt
samstarf við íraska hernámsliðið.
Sagt er að þúsundir manna hafa
verið hnepptar í varðhald en yfir-
völd neita því að tugir hafi veéið
teknir af lífi. Þúsundir íraka hafa
einnig flúið. til Kúveits síðustu vik-
urnar. Furstinn sagði Saddam
líklegan til að beita „fimmtu her-
deild útsendara sinna mitt á meðal
vor til að skaða öiyggi og stöðug-
leika. Ég tel að ekki sé búið að
koma upp um þá alla og við verðum
að vera mjög á varðbergi“. Hann
Þýskaland:
Kohl fær blendnar mót-
tökur í austurhlutanum
Landsbergis til Bandaríkjanna
Vilnius. Dicna.
VYTAUTAS Landsbergis, forseti Litháens, fer í hcimsókn til
Bandaríkjanna 6.-16. maí næstkomandi, samkvæmt upplýsingum
Stasis Lozoraitis, sendifulltrúa Litháens í Washington.
í ferðinni er ráðgert að Lands-
bergis taki við heiðursdoktors-
nafnbót við Loyola-háskólann í
Chicago. Mun það eiga sér stað
við athöfn í skólanum 11. maí.
Ennfremur mun hann eiga fundi
með bandarískum borgurum sem
er af lithásku bergi brotnir. Hann
mun einnig taka þátt í alþjóðlegri
ráðstefnu um samstarf Eystra-
saltsríkjanna, sovéskra lýðvelda
og vestrænna ríkja, sem einka-
stofnun í Vermont-ríki stendur
fyrir. Gediminas Vagnorius, fo-
ræsitsráðherra Litháens og hátt-
settum fulltrúum Eistlands og
Lettlands hefur jafnframt verið
boðin þátttaka í Vermont-ráð-
stefnunni.
Erfurt. Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari
Þýskalands, hóf um helgina
fyrstu ferð sína um austur-
hluta Þýskalands frá því
skömmu eftir sameiningu
Austur- og Vestur-Þýska-
lands í fyrra. Ætlar hann að
heimsækja öll nýju sam-
bandslýðveldin fimm á næstu
dögum. Hundruðir manna
fögnuðu kanslaranum og
hrópuðu „Helmut, Helmut"
er hann gekk um hinn gamla
miðbæ borgarinnar Erfurt,
höfuðborgar sambandslýð-
veldisins Thiiringen, á
sunnudag.
Kohl hefur sætt vaxandi
gagnrýni í austurhluta Þýska-
lands á undanförnum vikum
vegna hins hörmulega efna-
hagsástands þar. Telja margir
fyrrum Austur-Þjóðverjar að
kanslarinn hafi svikið þá þar
sem hann hafi fyrir síðustu
kosningar lofað hraðari efna-
hagsbata en raun hefur orðið
á. Kohl sagði blaðamönnum að
honum þætti mjög vænt um þær
hlýlegu móttökur sem hann
hefði fengið í Erfurt og að brátt
myndi fara að glæðna yfir efna-
hagslífi í austurhluta landsins
Móttökurnar sem kanslarinn
fékk í Erfurt voru hins vegar
ekki að öllu leyti vinalegar. Er
hann var að taka á móti blómum
frá nokkrum borgarbúum á
tröppum stjórnarbyggingar
ruddust um hundrað ungmenni
sagði þó koma til greina að bæta
stöðu kúveiskra borgara af erlend-
um uppruna en þeir hafa ekki notið
fullra réttinda. Skilyrðið væri að
þeir hefðu sýnt landinu hollustu.
Reuter
Furstinn af Kúveit, Sheikh Jaber al-Ahmed al-Sabah, ávarpar þjóð
sina á sunnudag.
Reuter.
íbúar borgarinnar Erfurt
fagna Helmut Kohl kanslara
er hann hóf ferð sína um aust-
urhluta Þýskalands á sunnu-
dag.
fram og köstuðu eggjum að
Kohl og eiginkonu hans Hanne-
lore. Ekkert eggjanna hæfði
kanslarahjónin og var þeim í
skyndingu komið inn í bygging-
una af öryggisvörðum. Voru
þessar aðgerðir ungmennanna
skipulagðar af Græningjum.
augljós