Morgunblaðið - 09.04.1991, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991
Söguleg skipting-
arspil í úrslita-
leik íslandsmóts
Brids
GuðmundurSv. Hermannsson
SPILIN héldu mönnum svo sannarlega við efnið í úrslitakeppni
íslandsmótsins í sveitakeppni um páskana. Sömu spil voru spiluð
við öll borð og þeir sagnglöðu fengu úr nógu að moða: 7 til 8-lit-
um, 6-5 og 7-5 skiptingum og einn 10-litur skaut upp kollinum.
En stundum fengu menn harða refsingu fyrir glannaskapinn
þegar ólegan sagði til sín. Þá flugu doblmiðarnir eins og
skæðadrífa yfir borðið, jafnvel margir í einu eins og vikið verður
að síðar. Síðasta umferð mótsins mótsins var öðrum lík hvað
þetta snerti, og eins og oftast áður voru skiptingarspilin söguleg.
í síðustu umferðinni var hreinn
úrslitaleikur milli sveita Lands-
bréfa og Verðbréfamarkaðar Is-
landsbanka. Landsbréf stóðu þó
mun betur að vígi og þoldi að
tapa leiknum 21-9 eða með 40
impa mun. VÍB byijaði vel og
skoraði 23 fyrstu impana en
Landsbréfamenn náðu að jafna
leikinn aftur. Þá kom þetta spil.
A/Allir
Norður
♦ 5
¥Á
♦ KG8754
+ KD1094
Vestur Austur
♦ Á 4 DG8764
+ KDG8742 ¥-
♦ 963 ♦ ÁD10
+ 62 +ÁG74
Suður
♦ K10932
¥ 109653
♦ 2
+ 83
Þetta er spil þar sem sagnhafa-
sætið verður talsvert heitt, hvar
sem það er og þótt norður eigi
6-5 skiptingu ætti hann að heyra
í viðvörunarbjöllum um vonda
samlegu þegar austur opnar á
spaða og vestur svarar í hjarta.
En í umræddum leik virtust norð-
urspilararnir kæra sig kollótta.
Við annað borðið sátu liðsmenn
Landsbréfa, Sigurður Vilhjálms-
son og Rúnar Magnússon NS og
liðsmenn VÍB, Sævar Þorbjörns-
son og Karl Sigurhjartarson AV.
Vestur Norður Austur Suður
KS SB SÞ RM
-- — 1 spaði pass
2 hjörtu 3 hjörtu dobl pass
4 hjörtu a.pass.
Sigurður sagði 3 hjörtu til út-
tektar og Sævar meinti doblið sem
sektarboð á láglitasamning. Karl
taldi hins vegar að Sævar væri
að sýna eitthvað í hjarta, og sagði
því 4 hjörtu sem fóru 2 niður, 200
til NS.
Við hitt borðið sátu Aðalsteinn
Jörgensen og Jón Baldursson AV
og Guðlaugur R. Jóhannsson og
Örn Arnþórsson NS.
Vestur Nordur Austur Suður
JB GRJ AJ ÖA
— — 1 spaði pass
2 tíglar dobl pass pass
4 hjörtu 4 grönd dobl 5 lauf
dobl pass dobl(?)
_ Morgunblaðið/Arnór.
Frá Islandsmótinu í sveitakeppni. Guðmundur Arnarson og Þorlákur Jónsson spila við siglfirsku
bræðurna Ólaf og Steinar Jónssyni.
2 tíglar Jóns var yfirfærsla í 2
hjörtu og þegar Aðalsteinn pass-
aði doblið lýsti hann yfír áhuga-
leysi á hjartasamning. Jón stökk
samt í 4 hjörtu en Guðlaugur kom
honum til bjargar með því að segja
4 grönd.
Satt að segja er ótrúlegt að
jafn reyndur spilari og Guðlaugur
skyldi gefa þessa sögn, enda
doblaði Aðalsteinn að bragði,
harla feginn. Svo feginn raunar,
að hann doblaði einnig 5 lauf og
skildi ekkert í að aðrir við borðið
fóru að hlæja að honum, fyrr en
hann sá að Jón hafði einnig lagt
rauðan doblmiða á borðið. Slík
tvídobl eru ekki leyfileg og sam-
kvæmt bridslögunum voru bæði
doblin felld niður. Niðurstaðan var
því 5 lauf ódobluð, 5 niður en
sveit Landsbréfa fékk samt 12
impa. Jón sæmdi hins vegar Aðal-
stein nafnbótinni aðaldoblari fyrir
vikið.
í hálfleik var sveit Landsbréfa
19 impum yfir, en í upphafi síðari
hálfleiksins skoruðu liðsmenn VÍB
jafnt og þétt og eftir 22 spil voru
þeir komnir 14 impum yfír. En
þá kom þetta spil:
S/AHir Norður
♦ D64
y Á97
♦ ÁK872
Vestur * ^5 Austur
+ ÁK92 ♦ 5
¥654 ¥ KDG1082
♦ G10943 ♦ D5
+ 3 Suður +DG76
♦ G10873
¥3
♦ 6
♦ Á109842
Við annað borðið enduðu Guð-
laugur og Öm í 4 spöðum, sem
Magnús Olafsson doblaði í vestur
og uppskar 500. Við hitt borðið
opnaði Aðalsteinn Jörgensen á 2
spöðum í suður, veikt með spaða
og láglit, og eftir pass vesturs
hækkaði Jón Baldursson í 4 spaða.
Eftir tvö pöss kom aftur að Guð-
mundi Páli Arnarsyni í vestur og
hann doblaði. Þetta var greinilega
sektardobl því Guðmundur gat
úttektardoblað 2 spaða, en í hita
leiksins fór það fram hjá Þorláki
Jónssyni í austur. Hann tók út í
5 hjörtu, var doblaður og fór 800
niður, Landsbréf græddi 16 impa
nánast upp úr þurru og tryggði
sér íslandsbikarinn um leið.
*♦ + ♦*♦ + ♦
¥ + ¥♦¥♦¥ +
Styðja verkefni í Gambíu
í ÞESSUM mánuði verður Ung-
mennahreyfing Rauða kross Is-
lands (URKÍ) með flóamarkað til
styrktar Gambíu í Vestur-Afríku.
Ungmennahreyfingin er um
þessar mundir að hefja samstarf
við Rauða krossinn þar í landi.
Samvinnan verður margþætt, en
þó sniðin eftir þörfum og óskum
gambíska Rauða krossins. í haust
verða svo fyrstu tveir sjálfboðalið-
arnir sendir til starfa í 6 mánuði.
Undirbúningsvinna er þegar haf-
in af hálfu alþjóðahóps Ungmenna-
hreyfingarinnar, svo sem námskeið,
fræðsla og ýmiskonar verkefna-
vinna. Fjáröflun er einn liður í verk-
efnavinnu og því verður Ung-
mennahreyfingin með flóamarkað
13. þessa mánaðar til styrktar
Gambíuverkefninu. Tekið verður á
móti fatnaði í Þingholtsstræti
þriðjudag og miðvikudag frá kl.
20.00-22.00.
Dæmi um lítið þróunarverkefni
sem framkvæmt var með góðum
árangri án mikils kostnaðar í
Uganda.
RAD/A UGL YSINGAR
SJÁLFSTAEDISFLOKKURINN
F F I. A (i S S T A R F
Dalvíkingar - Svarfdælar
Sjálfstæðisflokkurinn hefur opnað kosningaskrifstofu í Bergþórs-
hvoli. Opið alla virka daga frá kl. 20.00-22.00, laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 15.00-18.00. Komið og takið þátt í kosningabaráttunni.
Kaffiveitingar. Síminn á skrifstofunni er 63185.
Hella
D-listinn á Suðurlandi boðar til almenns
stjórnmálafundar í Hellubíói í dag, þriðju-
daginn 9. apríl, kl. 21.00.
Á fundinn mæta frambjóðendur Sjálfstæð-
isflokksins þau Þorsteinn Pálsson, Árni
Johnsen, Eggert Haukdal, Drífa Hjartardótt-
ir, Baldur Þórhallsson og Kjartan Björns-
son.
Stuðningsmenn D-listans eru hvattir til að
fjölmenna.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Stjórnarfundur SUS
Stjórnarmenn takið eftir! Næsti stjórnar-
fundur SUS verður haldinn laugardaginn
13. apríl ki. 14.00 í Valhöll.
Dagskrá:
1. Gestur fundarins, Friðrik Sófusson,
varaformaður Sjálfstæðísflokksins, mun
ræða kosningabaráttuna.
2. Kosningabaráttan - lokaátak.
3. Önnur mál.
Stjórnarmenn tilkynniö forföll. Trúnaðar-
menn tilkynnið þátttöku.
FÉLAGSLÍF
□ SINDRI 5991947 - 1 FR
I.O.O.F. Rb. 1 = 140498 - 9.I.
□ EDDA 5991947 - 1
□ HELGAFELL 5991497 VI 2
□ HAMAR 5991497-Frl.Tónl.
FERÐAFELAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19531
Myndakvöld F.í.
Ferðafélagið efnir til myndasýn-
ingar miðvikudaginn 10. apríl, í
Sóknarsalnum, Skipholti 50a.
Sýningin hefst stundvíslega kl.
20.30.
Efni: Bergþóra Sigurðardóttir
sýnir myndir og segir frá ferðum
slnum i Borgarfjörð eystri,
Lónsöræfi og víðar á Norðaust-
urlandi. (Ferðir nr. 9, 10 og 14
í áætlun 91).
Eftir kaffihló verða sýndar mynd-
ir frá Reykjanes-Langjökulsgos-
beltinu tengdar raðgöngu
Ferðafélagsins, sem hefst
sunnudaginn 14. apríl.
Komið, fræðist og skemmtið
ykkur á myndakvöldi hjá Ferða-
félaginu. Veglegar kaffiveitingar.
Allir velkomnir, félagar og aörir.
Aðgangur kr. 500,- (kaffi og
meðlæti innifalið).
Munið Ferðafélagsspilin.
Ferðaáætlun 1991 liggurframmi
- fjölbreytnin er mikil í inn^n-
landsferöum F.i.
Myndatökur með myndbandi.
Nokkur pláss laus á námskeiði
þann 11. og 13. apríl. Áhersla
lögð á ferðamyndatökur.
Fundur í kvöld kl. 20.30 í Langa-
gerði 1. Ester og Guðni Gunn-
arsson sjá um fundinn. Athugið!
Framhaldsaðalfundur verður
16. april kl. 20 á Háaleitisbraut
58. Allar konur velkomnar.