Morgunblaðið - 12.04.1991, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRIL 1991
Ijósastofa
Til sölu eða leigu mjög gott og vel staðsett húsnæði
t.d. fyrir-ljósastofu og gufubað eða skyldan rekstur.
Húsnæðið er á jarðhæð í nýju, stóru húsi fyrir eldri
borgara við Skúlagötu í Reykjavík.
Húsnæðið er til afhendingar nú þegar.
Allar nánari upplýsingar gefur:
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA ?
Borgartuni31 Logír. Petur Þ Sigurðsson hdl.
62 42 50
Hilm.ir OsW.irsso"
Stfinþnr Ol.itsson
Skúlagata 40
Hárgreidslustofa
- sjúkranudd
Til sölu eða leigu húsnæði t.d. fyrir læknastofu, hár-
greiðslustofu, rakarastofu, sjúkranudd eða aðra þjón-
ustu í nýju stóru 65-íbúða fjölbýlishúsi fyrir eldri borg-
ara við Skúlagötu í Reykjavík.
Húsnæðið er til afhendingar nú þegar, tilbúið undir
tréverk eða fullbúið.
Teikningar og tillögur að skipulagi ásamt nánari upplýs-
ingum gefur:
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA"
Ú
Borgartuni 31 Logfr Petur Þ Sigurðsson hdl.
6212 50
/Stmitþnr OLifsson
%
Anna Þóra Karlsdóttir
Myndlist
EiríkurÞorláksson
Vinnsla ullar er sennilega með
fyrstu handverkum sem maður-
inn þróaði. Eftir að hafa gengið
í skinnum í árþúsundir, lærðist
honum smám saman að kemba,
þæfa, spinna þráð og loks að
vinna dúka; á öllum þessum stig-
um var efnið notað í fatnað,
teppi, mottur, og fyrstu hýbýlin
sem voru gerð af manna höndum,
tjöldin. Hin frumstæðu vinnu-
brögð eru enn stunduð hjá þeim
fáu þjóðflokkum sem lifa beint
af húsdýrum sínum, eins og t.d.
hjá hirðingjum í Mið-Asíu.
Það er vert að rifja upp þenn-
an grunn, vegna þess að öll ve-
flist byggir á honum, og nú
stendur yfir sýning í Ásmundar-
sal við Freyjugötu, þar sem lista-
konan Anna Þóra Karlsdóttir
hefur snúið aftur til þessa uppr-
una. Hún sýnir hér myndverk úr
ull, þar sem hin frumstæðu
vinnubrögð eru notuð í nýju sam-
hengi. Ullin hefur aðeins verið
kembd áður en listakonan tekur
við henni; síðan leggur hún ullina
á undirlag þar til hún er ánægð
með þykktina, og setur þá annað
lag ofan á og rúllar fletinum
upp. Þannig er ullin þæfð í breið-
ur, sem siðan eru litaðar með því
að nota ullarliti og vax; loks er
efnið skorið til eða yfirborð þess
unnið á annan hátt til að mynda
þau verk, sem hér getur að líta.
Hráefnið og vinnsla þess
skipta meginmáli í list Önnu
Þóru, og hún hefur lagt sig eftir
að kynnast sem flestum vinnuað-
ferðum við myndvefnað. Hún
stundaði nám i Myndlista- og
handiðaskólanum á sjöunda ára-
tugnum, og var svo um tima við
framhaldsnám í Konstfackskolan
í Stokkhólmi. Hún hefur um langt
skeið tekið þátt í samsýningum
veflistafólks hér á landi og á
Norðurlöndunum, en þetta mun
aðeins vera önnur einkasýning
hennar.
Listakonan hefur kosið að
vinna með mjög knöpp form,
AnnaÞóraJKarlsdóttir: „Drýli.
þannig að efnið og vinnsla þess
nýtur mestrar athygli gesta. Hún
vinnur mest með ferninga og
hringi, og minnir þetta þrönga
val nokkuð á formheim minimal-
isma í höggmyndagerð, þar sem
frumformin ein ráða ríkjum. En
Anna Þóra setur efnið saman á
fjölbreytilegan hátt, þannig að
litbrigði og lögun vinna vel sam-
an og mynda heilsteypt verk, sem
í sumum tilvikum eru nánast
höggmyndir; því er vel við hæfi
að kalla þetta myndverk úr ull,
og láta þrengri skilgreiningar
liggja milli hluta.
Verkin á sýningunni eru ekki
mörg, en eru öll myndræn og
sjálfstæð. Titlarnir eru greinilega
hugsaðir sem hluti verkanna, þar
sem þeir hæfa þeim vel, ýmsir í
samhljómi eða þannig að verk
og titill víkka svið hvors annars.
„Hringfari (nr. 1) sýnirvel hvern-
ig verkin eru unnin, og hvað
möguleikar eru til mótunar og
samsetningar með þessum að-
ferðum. „Uppspuni (nr. 2) og
„Síbrot (nr. 4) eru dæmi um
hvernig hægt er að skera efnið
til og láta mismunandi litun þess
vinna saman til að mynda heild-
stæð verk; einkum er fyrra verk-
ið skemmtilegt í markvissu sam-
spili þykktar og lita, sem þróast
samhliða frá einum enda til ann-
ars. Áhugaverðasta verkið af
þessu tagi er þó „Drýli (nr. 7),
sem minnir jafnvel á dropasteina
í hinni litríku samsetningu og því
spennta sambandi, sem formin
mynda.
Sýning Önnu Þóru Karlsdóttur
er áhugaverð vegna þeirra efnis-
taka, sem þar er að finna. Hér
er um að ræða afar náttúrulegan
feril, sem er í eðli sínu einfaldur,
en um leið erfiður í framkvæmd,
ef markmiðið er að skapa lista-
verk, sem eru annað og meira
en minnismerki um ákveðnar
vinnsluaðferðir. Það tekst með
ágætum hér.
Sýning Önnu Þóru Karlsdóttur
í Ásmundarsal við Freyjugötu
stendur til sunnudagsins 14.
apríl.
I
I
I
I
Þú greiðir ekkert innlausnargjald
af Einingabréfum,
ef tilkynnt er um innlausn
með 60 daga fyrirvara.
Kaupþing hefur enn á ný komið til móts við
sparifjáreigendur sem velja örugga ávöxtun í
Einingabréfum 1, 2 og 3.
Innlausnargjald af Einingabréfum 1 og 3 er 1,8%
og af Einingabréfum 2 0,5% sé innleyst án fyrir-
vara. Innlausnargjald af Einingabréfum 1 og 3
lækkar niður í 0,9% ef tilkynnt er um innlausn með
30 daga fyrirvara.
Innlausnargjald af Einingabréfum 1, 2 og 3 er fellt
niður með öllu sé tilkynnt um innlausn með 60
daga fyrirvara.
Gengi Einingabréfa 12. apríl 1991.
Einingabréf 1 5.500
Einingabréf 2 2.968
Einingabréf 3 3.607
Skammtímabréf 1.841
Sölustaðir Einingabréfa
eru: Kaupþing hf.,
Kaupþing Norðurlands
hf., Akureyri,
Sparisjóðimir og
Búnaðarbanki Islands.
KAUPÞING HF
Kringluntii 5, sími 689080