Morgunblaðið - 12.04.1991, Side 13

Morgunblaðið - 12.04.1991, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991 Breyttar aðstæður og ör- yggishagsmunir Islendinga eftir Albert Jónsson Svo kann að virðast að vegna allra þeirra jákvæðu breytinga sem eru að verða í Evrópu og samskipt- um austurs og vesturs, sé ekki þörf á að velta fyrir sér öryggishagsmun- um íslendinga. En einmitt við slíkar aðstæður þarf að skilgreina hveijir séu hagsmunir íslendinga í þessum efnum, óháð breytingunum sem nú eiga sér stað. Þetta er nauðsynlegt til að gera sér grein fyrir hvað skipti áfram máli og hveiju megi breyta. Ekkert bendir til að íslendingar hætti þátttöku í NATO eða segi upp vamarsamningnum við Bandaríkin. Því er miðað við að íslendingar verði áfram þátttakendur í samstarfi vestrænna ríkja um hervarnir. NATO og leiðin yfir hafið Einhliða fækkun í herafla Sovét- manna í Austur-Evrópu og endalok Varsjárbandalagsins þýða að líkur á skyndiárás á NATO ríkin eru eng- ar og Sovétríkin gætu ekki hafíð hemaðaraðgerðir nema með miklu lengri fyrirvara en áður. CFE-samn- ingurinn um niðurskurð hefðbund- inna heija í Evrópu, frá Atlantshafi til Úralfjalla bitnar einkum á so- véska hemum og lengir fyrirvarann enn frekar. Eftir framkvæmd samn- ingsins og brottflutning sovéskra hersveita frá austurhluta Þýska- lands og Póllandi er talið að hernað- arlegur fyrirvari NATO verði allt að tvö ár frá þvi vísbendingar bær- ust um að Sovétmenn hefðu hafið undirbúning að árás á Vestur-Evr- ópu. Ferðir sovéskra kafbáta út á Atl- antshaf hafa orðið sjaldgæfar. AI- menn umsvif sovéska Norðurflotans utan heimahafa hafa einnig minnk- að mikið frá því sem áður var, þeg- ar sovéski flotinn var einnig að hluta til rekinn sem úthafsfloti. Ennfrem- ur fara æfingar Norðurflotans nú allar fram í Barentshafi. Ferðum sovéskra flugvéla og kafbáta hefur fækkað mikið í nágrenni íslands. í fyrra flugu orrustuþotur frá Kefla- víkurstöðinni í veg fyrir aðeins 45 sovéskar herflugvélar í stað 65 árið 1989 og 120 árið þar á undan. Hámarkið var árið 1985, þegar flog- ið var í veg fyrir 170 sovéskar vélar. Sovéski Norðurflotinn er enn öflugur. Þótt búast megi við örri fækkun í honum á næstu áratugum vegna úreldingar og minni nýsmíði er verið að endurnýja hann á flestum sviðum. En sovéski flotinn er ekki sjálfstæð ógn við NATO. Stefna Sovétmanna á úthöfunum ræðst ekki af flotastyrk þeirra, heldur stefnu þeirra á landi. Breytt flota- stefna með aðaláherslu á umsvif í og við sovésk heimahöf er rökrétt afleiðing af breyttum aðstæðum á meginlandinu. Sovétríkin eru land- veldi og markmið þeirra á hafsvæð- um við Evrópu ráðast af hagsmun- um þeirra og stefnu á landi í álf- unni á hveijum tíma en ekki öfugt. í og við heimahöf hafa Sovétmenn hins vegar varanlega hagsmuni, sem lúta að öryggi sovéskra eld- flaugakafbáta og öryggi Sovétríkj- anna óháð breyttum aðstæðum í Evrópu. Þær miklu pólitísku og hernaðar- legu breytingar sem hafa orðið og eru að verða i Evrópu og nærliggj- andi hafsvæðum leyfa breyttar áherslur NATO-ríkjanna. í stað þess að láta áætlanir ráðast af tiltekinni ógnun í tíma og rúmi, tiltekinni at- burðarás sem gæti gerst skyndilega, gefst nú í auknum mæli svigrúm til að byggja þær á mati á því hvaða áhættu megi taka almennt varðandi grundvallarhagsmuni og þannig að unnt verði að treysta varnir þeirra í tæka tíð ef á þarf að halda. Þrátt fyrir breyttar hernaðarlegar forsendur í Evrópu verður einn af hornsteinum hernaðaráætlana NATO að geta varið leiðina yfir Ur flokki greina háskólamanna þar sem reifuð eru þjóðmálnú þegar kosningar fara íhönd. hafíð. Svo lengi sem NATO hvílir á veru bandarískra hersveita í Evrópu og skuldbindingum Bandaríkja- manna um liðsauka þangað breytist þetta ekki í grundvallaratriðum. Miklu minni hernaðarógnun frá Sov- étríkjunum, fjárlagahalli í Banda- ríkjunum og aukin áhersla á hernað- arlegan viðbúnað annarsstaðar í heiminum valda því að veruleg fækkun verður i bandarískum her- sveitum í Evrópu á næstu árum. Það eykur mikilvægi liðsflutninga fyrir NATO yfír Norður-Atlantshaf frá Ameríku til Evrópu. Þetta á við heildarmyndina og heildarhagsmuni NATO og breytir ekki áætlunum um að draga úr flotastyrk og við- búnaði bandalagsins á hafinu. Einn- ig gæfist auðvitað miklu lengri tími en áður til að koma bandarískum liðsstyrk aftur til Evrópu. Hver hernaðarleg þýðing leiðarinnar yfir hafið yrði nákvæmlega við hinar ýmsu aðstæður yrði háð því hvernig liðsaukaáætlunum Bandaríkja- manna verður breytt með tilliti til breyttra aðstæðna. Varanlegir öryggishagsmunir Islendinga Á fyrstu árum nítjándu aldar var bundinn endi á velgengni Danaveld- is í alþjóðamálum, en á taflborði þeirra höfðu Danir notið nokkurrar virðingar vegna flotaveldis síns. Í Napóleonsstríðunum reyndu Danir að halda fram hlutleysisstefnu, en tókst ekki betur til en svo að þeir lentu upp á kant við Breta og gengu í bandalag með Frökkum. í tveimur herferðum breska flotans til Kaup- mannahafnar 1801 og 1807 var flotaveldi Dana að engu gert. Vegna þátttöku Dana í Napóleonsstríðun- um-færðu Bretar út hafnbann sitt norður um Færeyjar og ísland og allt til Grænlands. Tengsl íslands og danska ríkisins höfðu rofnað sakir þess að Danir höfðu gengið í lið með meginlandsveldi í andstöðu við flotaveldið Bretland. Til að tryggja aðdrætti til landsins urðu þegnar Danakonungs á íslandi að leita á náðir Breta. í fyrri heimsstyijöld urðu íslend- ingar aftur að stöðva að mestu verslun við meginlandið og reiða sig á þá sem réðu Atlantshafi. Bretar keyptu vörur af íslendingum og tryggðu þeim ýmsar helstu nauð- synjar. Þó fór að bera á vöruskorti í landinu eftir því sem Þjóðveijum varð betur ágengt í kafbátahernaði á Austur-Atlantshafi. Verðbólga fylgdi í kjölfarið. Svo mikill skortur varð á kolum og salti þegar kom fram á árið 1917 að það átti stóran þátt í því að íslendingar seldu hluta af togaraflota sínum til Frakklands. Eftir að Bandaríkjamenn hófu þátt- töku í styijöldinni árið 1917 sáu þeir Islendingum einnig fyrir ýms- um nauðsynjum. Tilurð vélskipa og kafbáta leiddi til þess að í fyrri heimsstyijöld hafði ísland öðlast hernaðargildi í átökum um Atlantshaf. í fyrsta sinn var meginlandsveldi kleift að sækja út á hafið. Það var einungis sú stefna þýska flotans að halda sig í heima- höfum og ósigur hans þegar dró til úrslita milli hans og breska flotans sem olli því að átökin á hafinu af- mörkuðust við Norðursjó og svæði nálægt Bretlandseyjum. Á fyrstu mánuðum síðari heimsstyijaldar færðu Þjóðveijar átökin á hafinu langt vestur á Atlantshaf og hags- munum íslendinga og Atlantshafs- veldanna, Bretlands og Bandaríkj- anna, var ógnað. Manntjón íslend- inga vegna átakanna á hafinu í síð- ari heimsstyijöld varð gífurlegt. Talið er að allt að 300 íslenskir sjó- menn hafí verið drepnir í styijöld- inni. Ýmist var um að ræða árásir þýskra kafbáta eða flugvéla eða að íslensk skip rákust á tundurdufl. Til dæmis misstu Bandaríkjamenn- 325.000 manns á öllum vígstöðvum, sem var litlu meira hlutfallslega en manntjón íslendinga. Hafa ber í huga að allir íslendingarnir sem fórust í styijöldinni voru óbreyttir borgarar. Þessi saga sýnir að öryggi íslend- inga stafar bein ógn af stórvelda- styijöld í Evrópu. Einnig kemur í ljós að einungis Atlantshafsveldin gátu tryggt íslendingum nauðsynjar og útflutningsmarkaði og herstöðv- ar þeirra á Islandi styrktu verulega stöðu þeirra á hafinu í síðari heims- styijöld. Ef Atlantshafsveldin lytu í lægra haldi fyrir stórveldi á meginl- andinu væri öryggi íslendinga bein- línis ógnað. Næsta skref yrði lang- varandi styrjöld milli meginlands- veldisins og Bandaríkjanna á hafínu. Henni mundu fylgja bein hernaðará- tök um ísland. Fyrirkomulag varna NATO-ríkj- anna er í endurskoðun vegna breyttra aðstæðna, sem á eftir að ná til áætlana og umsvifa NATO á hafinu og þar með áætlana og við- búnaðar sem snerta ísland og Kefla- víkurstöðina. Þótt ekkert liggi fyrir um að fækka eigi í Keflavíkurstöð- inni er slíkt ekki útilokað vegna Albert Jónsson breyttra aðstæðna. Fækkun í Kefla- vík gæti komið til í sparnaðarskyni eingöngu en einnig vegna meiri áherslu Bandaríkjahers á viðbúnað vegna spennu og átaka í þriðja heiminum. Persaflóadeilan leiddi til þess að bandarískar ratsjárþotur voru fluttar, tímabundið að því að sagt er, frá Keflavík. íslendingar þurfa að taka virkan þátt í endur- skoðun hernaðaráætlana NATO og hafa í þeim efnum náið samráð við Bandaríkin til að tryggja að vörnum landsins verði þannig fyrir komið sem íslendingar vilja. Ekki er nóg að slíkt samráð sé formlega tryggt í vamarsamningnum. Ákvörðunar- taka í Bandaríkjunum er flókin og fylgjast þarf vel með málum til að koma í veg fyrir að hún ráði ein ferðinni um íslensk öryggismál. Verulegar líkur era á að Bandaríkin vilji áfram vera í bandalagi við ís- lendinga og hafa hernaðaraðstöðu á íslandi. Island er og verður óhjá- kvæmilega mikilvægur staður á leið hugsanlegra andstæðinga í lofti og á legi til Vesturheims og í átökum við Bandaríkin á Atlantshafí og mikilvægur staður fyrir Bandaríkin á leiðinni til Evrópu. Ráðstefnan um öryggi og sam- vinnu í Evrópu (RÖSE) getur skipt miklu varðandi frekari samninga um afvopnun og traustvekjandi að- gerðir í Evrópu og vegna pólitísks samráðs um öryggi álfunnar al- mennt og á hættutímum. Að þessu leyti fellur RÖSE vel að þeim hags- munum íslendinga að treysta stöð- ugleika á meginlandinu. Hér er átt við stöðugleika í þeirri merkingu að ekki sé hætta á stórveldastyijöld í Evrópu, sem óhjákvæmilega mundi leiða til átaka á Atlantshafi milli 13 meginlandsvelda og Atlantshafs- veldanna. í öðru lagi er átt við stöð- ugleika í þeirri merkingu að ekki verði vígbúnaðarkapphlaup í Evrópu sem óhjákvæmilega leiddi til víg- búnaðarkapphlaups og aukinna hernaðarumsvifa á hafinu í ná- grenni íslands. í RÖSE hafa íslendingar mesta möguleika til áhrifa með þátttöku í stefnumótun innan NATO. Miklu minni ógn frá Sovétríkjunum mun hins vegar þegar á líður draga úr vægi NATO, en auka pólitísk áhrif EB á þróun öryggismála í Evrópu. Vægi þeirra Evrópuríkja NATO sem ekki tilheyrðu EB, það er íslands og Noregs, gæti hæglega minnkað af þessum sökum serh og möguleik- ar þeirra til áhrifa á þróun mála í Evrópu. NATO er sá vettvangur sem tengir bæði löndin við öryggisstefnu Evrópuríkja, sem þar að auki hafa skuldbindingar í NATO gagnvart íslendingum og Norðmönnum. Enn er ekki á dagskrá að leggja NATO niður. Reyndar hafa ríki í Mið- og Austur-Evrópu gengið svo langt að viðra þá hugmynd að þau fái eins- konar aukaaðild að NÁTO. Ekki er líklegt að af því verði. Þessum ríkj- um virðist mjög í mun að tengjast Vestur-Evrópuríkjum nánari bönd- um í öryggismálum en hægt er í RÖSE, en einnig að tryggja áfram- ' haldandi beina þátttöku Bandaríkja- manna í öryggismálum Evrópu. Lik- ur eru á að NATO-ríkin vilji halda bandalaginu áfram, að minnsta kosti svo lengi sem núverandi óvissa ríkir um þróun mála í Evrópu, en einkum Sovétríkjunum. Hins vegar má vænta breyttrar verkaskiptingar milli EB-ríkja NATO og Bandaríkj- anna með auknu og formlegu sam- starfi þeirra fyrrnefndu í varnarmál- um. Það mundi leiða til þess að ákvarðanir á vettvangi NATO yrðu í vaxandi mæli niðurstaða samráðs í svonefndu Vestur-Evrópusam- bandi EB-ríkja í NATO, og milli þess annars vegar og Bandaríkjanna hins vegar; ef til vill með Breta í reynd einhversstaðar þarna á milli. Komi ekki til þess að íslendingar gangi í EB er rökrétt að standa gegn öllu sem getur veikt NATO og þar með stöðu Bandaríkjamanna í Evrópu. Um leið er íslendingum í hag til að tryggja áhrif sín í NATO að efla samráð og samvinnu við Bandaríkjamenn og Breta svo og Norðmenn, ef þeir verða áfram utan EB. Fari svo að NATO verði lagt niður í framtíðinni þurfa íslendingar að hafa sem fyrr nána samvinnu við Atlantshafsveldin, jafnvel þótt þeir gengju í EB eða fengju á ann- an hátt aðild að vamarsamstarfi EB-ríkja. Hinn kosturinn er að treysta á meginlandsveldi til að tryggja öryggi íslands, sem gengi þvert á sögulega reynslu íslendinga allar götur frá því í Napóleonsstríð- unum. Höfundurer framkvæmdasijóri öryggismálanefndar og stundakennari í alþjóðastjórnmálum við Háskóla Islands. Framkvæmdasjóður aldraðra: Vestfirðir og Austurland hafa fengið mest VESTFIRÐIR og Austurland hafa fengið stærsta hluta þess fjár- magns, sem Framkvæmdasjóður aldraðra hefur haft til umráða á undanförnum árum, að sögn Hrafns Pálssonar ritara sjóðsins. Á sama tíma hefur framlag sjóðsins til Reykjavíkurborgar verið á bilinu 26% til 32% af ráðstöfunarfé sjóðsins á hverjum tíma, mest til B-álmu Borgarspítalans. Á þessu ári hefur sjóðurinn um 250 millj. kr. til ráðstöfunar en hafði 195 millj. kr. á síðasta ári og um 160 millj. kr. árin tvö þar á undan. Fé til sjóðsins er aflað með nefskatti á alla landsmcnn á aldrinum 16 ára til starfsloka um sjö- tugt. Af þeim skatti hefur sjóðurinn fengið um tvo þriðju undanfar- in ár. Davíð Oddsson borgarstjóri segir það vera staðreynd að Reykjavíkur- borg hafí verið mjög afskipt í fram- lögum úr Framkvæmdasjóði aldr- aðra. Hann sagði að hlutur Reykja- víkurborgar í úthlutun úr sjóðnum á undanförnum árum hefði verið afskaplega rýr, bæði miðað við þarfir Reykjavíkurborgar og hlut- fall. „Sýnu verstur og erfiðastur í þessum efnum hefur Guðmundur Bjamason, núverandi heilbrigðis- ráðherra, verið,“ sagði Davíð Odds- son. Hrafn Pálsson sagði, að sækja þyrfti sérstaklega um framlag úr sjóðnum auk þess sem samþykki þjónustuhóps aldraðra á hveiju svæðinu þyrfti til áður en veiting færi fram. Ef um dagvist er að ræða er hún styrkt með ákveðnum daggjöldum, en sá er hennar nýtur greiðir sjálfur 500 kr. á dag. Þá styrkir sjóðurinn eftir getu hjúkr- unarhúsnæði allt að 40%, verndað- ar þjónustuíbúðir eða dvalarheim- ili, allt að 35% og þjónustukjarna allt að 20%. Sagði hann, að stjórnvöld á hvetjum tíma réðu hversu mikið rynni árlega til hans af nefskattin- um. í ár fær sjóðurinn um 370 millj. kr., og er 250 millj. kr. veitt til uppbygginga en 120 millj. kr. er veitt til að koma af stað rekstri ýmissa stofnana fram að næstu fjárlögum og á það við um þær byggingar sem lokið er við á miðju ári. A undanförnum árum hafa hjúkrunarheimili haft forgang og síðan lokið var við B-álmu Borg- arspítalans, hafí umönnunar- og hjúkrunarheimilið Skjól fengið mest úr sjóðnum eða um 40 millj. á þessu ári. „Mest hefur verið veitt til hjúkrunar- og dvalarheimila, þar sem þörfin er brýn og þá á ég við heimili ætluð einstæðu fólki sem ekki getur séð um sig sjálft og svo til heimaþjónustunnar," sagði Hrafn. „Hlutfallslega hefur minnst komið í hlut Reykjavíkur og er það vegna þess hvað sveitarfélagið er stöndugt og hefur þá ekki fengið eins mikla náð fyrir augum nefnd- armanna. Einnig vegna þess að Reykjavík hefur einbeitt sér að íbúðabyggingum fyrir aldraða og þjónustukjörnum."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.