Morgunblaðið - 12.04.1991, Side 34
-34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991
->
Knattspyrnufélagið Haukar 60 ára í dag:
Byggjum á sterkum
grunni og lítum björt-
um augum til framtíðar
- segir Steinþór Einarsson, formaður Hauka
KNATTSPYRNUFELAGIÐ
Haukar fagnar 60 ára afmæli
sínu í dag. Tímamótanna verð-
ur minnst með margvíslegum
hætti, en segja má að afmælis-
hátíðin hafi byrjað í nóvember
s.l. með útgáfu glæsilegrar af-
mælissögu félagsins, sem Lúð-
vík Geirsson skráði. Að sögn
Steinþórs Einarssonar, form-
anns Hauka, er mikill uppgang-
ur í félaginu og fyrir skömmu
undirrituðu Haukar og Hafnar-
fjarðarbær fjögurra ára verk-
samning, þar sem gert er ráð
fyrir að bærinn leggi fram um
80 milljónir á næstu fjórum
árum vegna framkvæmda og
uppbyggingar á Asvöllum,
framtíðar íþrótta- og útivistar-
svæði Hauka. „Við byggjum á
mjög sterkum gi'unni og lítum
björtum augum til framtíðar.
Hafnarfjarðarbær er í örum
vexti og útivistarsvæðið verður
í hjarta bæjarins, þegar fram
líða stundir," sagði formaður-
inn við Morgunblaðið.
Samningurinn tekur til bygg-
ingar gervigrasvallar, grasæfing-
asvæðis, búningsaðstöðu ásamt
frágangi á svæðinu frá norður-
mörkum þess inn að miðju, þar
sem fyrirhugað er að reisa
íþróttahús í næsta verkáfanga.
Kostnaðarhlutur bæjarins af
heildarkostnaði vegna fram-
kvæmdanna er 80%, en hlutur
Hauka er 20%.
Rúmum 20 milljónum hefur
verið varið til hönnunar og jarð-
vegsvinnu á svæðinu. I nýsam-
þykktri fjárhagsáætlun bæjarins
er gert ráð fyrir 14 milljónum til
framkvæmda á umræddu svæði
og auk þess er heimild fyrir sex
milljónum til viðbótar, ef ákveðið
verður að ráðast í byggingu gervi-
grasvallar á árinu, en útboð verða
auglýst í dag.
Eitthvað fyrir alla
Steinþór sagði að hugmyndin
væri að gera Ásvelli að samastað
fyrir alla árið um kring. Þar yrði
aðstaða til sumar- og vetrar-
íþrótta, en meginmarkmiðið væri
að svæðið yrði lifandi, mann-
eskjulegt og skemmtilegt fyrir
alla, en ekki einblínt á það sem
keppnissvæði.
„Því miður miðast íþróttasvæði
yfirleitt við keppni, en við viljum
að Ásvellir verði samastaður fyrir
þá, sem vilja njóta útivistar í
fögru og vinalegu umhverfi."
12. apríl 1931 stofnuðu 13
strákar, 10 til 17 ára, Knatt-
spyrnufélagið Hauka í KFUM-
húsinu við Hverfisgötu í Hafnar-
firði og var þegar mikil áhersla
lögð á öflugt félagsmálastarf. Því
hefur verið viðhaldið og það rækt-
að allar götur síðan og sagði
Steinþór að Haukar væru ekki
aðeins stærsta félag bæjarins
heldur félagslega það sterkasta.
„í Hafnarfirði er ÍSÍ-bikarinn
veittur því íþróttafélagi eða
íþróttadeild, sem skarar fram úr
Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri, og Steinþór Einarsson,
formaður Hauka, undirrita samstarfssamninginn.
í félags- eða íþróttastarfí, og mér
þykir mjög vænt um að Haukar
fengu bikarinn í síðasta mánuði
fyrir öflugt og þróttmikið starf í
öllum deildum á síðasta ári.“
Áhersla á uppbygginguna
Skráðir félagsmenn eru um
1.600 til 2.000 í fimm deildum;
knattspyrnudeild, handknatt-
leiksdeild, körfuknattleiksdeild,
karatedeild og skíðadeild. Form-
aðurinn sagði að alls staðar væri
lögð rík áhersla á uppbygginguna
og nefndi sérstaklega unglinga-
starfið í körfuknat.tleiksdeildinni,
sem væri til fyrirmyndar. Mikill
RAX
Steinþór Einarsson, formaður Hauka, á íþrótta- og útivistarsvæðinu á Ásvöllum, sem verður væntan-
lega að hluta til formlega tekið í notkun í sumar.
efniviður væri í handknattleiks-
deildinni og væri ekki óraunhæft
að stefna að íslandsmeistaratitli
í 1. deild karla innan fárra ára.
„Sprenging" hefði orðið í knatt-
spyrnudeildinni undanfarin ár og
hefði keppnisflokkum fjölgað úr
ijórum í 14 á síðustu þremur
árum, en á sama tíma hefði meist-
araflokkur unnið sig upp úr 4.
deild í 2. deild. 14 félagar hefðu.
stofnað karatedeildina í fyrra, en
nú væru félagar um 50 og hefði
þeim gengið mjög vel í keppni —
unnið til verðlauna á hveiju mót-
inu af öðru. Skíðadeildin hefði
einnig verið stofnuð í fyrra fyrst
og fremst með því markmiði að
sameina • fjölskylduna í íþrótta-
starfínu, en stofnfélagar voru
150.
„Það hefur sýnt sig að það var
rétt ákvörðun að fjölga deiídum
og í raun er annað óeðlilegt. Því
sé ég fram á fleiri deildir enda
er ekkert félagsstarf nema það
sé á uppleið," sagði Steinþór.
Fjölbreytt dagskrá
Afmælishátíðin verður með
fjölbreyttu sniði. Klukkan 14 í
dag verður minningarskjöldur um
stofnun félagsins afhjúpaður á
húsi KFUM við Hverfisgötu. í
kvöld kl. 20 verður afmælishóf í
Haukahúsinu, sem er opið öllum
velunnurum, og á morgun verður
sérstök barna- og unglingadag-
skrá kl. 17 til 19, en dansleikur
fyrir 18 ára og eldri um kvöldið.
Deildirnar verða með sérstakar
uppákomur síðar á árinu. Há-
punkturinn verður vígsla íþrótta-
og útivistarsvæðisins á Ásvöllum,
en stefnt er að því að gervigra-
svöllurinn verði tekin í notkun í
sumar og er þá áformað að halda
' mikla útihátíð á svæðinu.
STEG.
Konur tvær í Köben
Kvikmyndir
Arrtaldur Indriðason
Nútímakona („Dagens Donna“).
Sýnd í Háskólabíói. Leikstjóri:
Stefan Henszelman. Aðalhlut-
verk: Birgitte Simonsen, Hanne
Windfeld Lund, Ole Lemmeke,
Jesper Christensen, Jens Arentz-
en. Danmörk. 1990.
Nútímakona eftir Stefan Hensz-
elman fjallar um konur í Kaup-
mannahöfn nútímans. Aðalpersón-
urnar eru vinkonur tvær sem hafa
ólík viðhorf til lífsins. Önnur óttast
að binda sig og vill lifa fijáls og
óháð en hina dreymir um börn og
"íjölskyldulíf og öryggið sem hjóna-
bandinu fylgir.
Þær standa báðar á krossgötum
í lífinu. Onnur þeirra, sem er dágóð-
ur ljósmyndari, hefur hitt drauma-
prinsinn, skemmtilegan sprellikarl
sem þó tekur ástina sérlega alvar-
lega og vill meira en aðeins skyndi-
kynni. Hin vinkonan, sem er kenn-
ari og hatar starfið, kynnist vel
stæðum giftum manni og verður
ólétt.
Ef flokka á Nútímakonuna fellur
hún sjálfsagt undir þann hvimleiða
stimpil kvennamynd. Hún lýsir á
lifandi og skemmtilegan hátt veru-
leik og gildum kvenna-en aðalper-
sónurnar eru fulltúar ólíkra við-
horfa. Konur eru alltof sjaldan við-
fangseíiii bíómynda og þessi býður
uppá skondna innsýn í hugarheim
þeirra og líf í gegnum hinn einfalda
hversdagsleika; hún er um karl-
mennina í lífum þeirra, starfið, vin-
ina, vináttu þeirra, ástina, skemmt-
analífið, nútímann. Hver og eirin
getur fundið sig í persónunum en
víst er að konurnar sem voru í yfir-
gnæfandi meirihluta í sýningarsaln-
um skemmtu sér afar vel undir
sýningunni.
í samfloti er líka hinn ljúfi danski
húmor sem sprettur af lifandi og
skemmtilegri persónugerð og
spaugilegum kringumstæðum í
bland við alvöru lífsins. Leikurinn
er allur fyrsta flokks og standa þar
fremstar Birgitte Simonsen og
Hanne Windfeld Lund í hlutverkum
Nútímakona á danskri viku.
vinkonanna en Ole Lemmeke er
bráðhress í hlutverki vonbiðils ljós-
myndarans, sem veldur honum svo
miklu hugarangri því hún kýs að
lifa fijáls. Handritið er sérlega vei
gert, bragðmikið og brakandi ekta
í persónulýsingum og samtölum.
Danir eru góðir sögumenn í kvik-
myndum. Um það er engin spurn-
ing. En það er annað og meira sem
veldur því að myndir þeirra höfða
til okkar og víðar og eru jafn aðlað-
andi og raun ber vitni. Það er við-
fangsefni þeirra og mannleg efnis-
tök. Danir gera ekki mikið til að
þóknast alþjóðlega skemmtimynda-
markaðnum. Þeir fjalla um hvers-
dagleikann, hið daglega líf, ástina
og þrána á broslegan og ljúfsáran
hátt og Nútímakona er sérlega gott
dæmi um það.
Sýningar í dag: Veröld Bust-
ers, Jeppi á fjalli, Nútímakona
og Isbjarnadans.
Stykkishólmur:
Fjölmennt
afmæli
Stykkishólmi.
JÓN Jónsson frá Kóngsbakka,
einn af mörguni Kóngsbakka-
systkinum, átti 80 ára afmæli 6.
apríl. Jón hélt upp á afmæli sitt á
Dvalarheimilinu í Stykkishólmi
þann dag og dreif að fjöldi vina
hans og var það stór stund í lífi
hans.
Meðal þeirra sem heimsóttu Jón
voru vinir hans sem höfðu verið í
sveit á Kóngsbakka hér áður, þeir
Bjarni Jónsson, listmálari, Magnús
Ólafsson, stjórnandi _MS og Jafet
Ólafsson', útibússtjóri íslandsbanka í
Lækjargötu. Jón hefur ekki gert víð-
reist um dagana, haldið sér við sveit-
ina sína og síðustu árin á dvalarheim-
ilinu í Hóiminum, fróður, minnugur
og alla tíð verið ákveðinn bindindis-
maður og ekki farið dult með áhyggj-
ur sínar af þróun vímuefnaneyslu
landsmanna, sem eins og hann seg-
ir, leiðir aðeins til bölvunar. _
- Árni