Morgunblaðið - 12.04.1991, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 12.04.1991, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FOSTUDAGUR 12. APRÍL 1991 KORFUKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNI URVALSDEILDAR „Litli bródir“ var of stór fyrir Keflvíkinga „VIÐ ætluðum okkur meistara- titilinn og baráttan var í sam- ræmi við það. Ég get viður- kennt að tvívegis í leiknum kom í mig skrekkur, fyrst þegar ísak Tómasson meiddist og á loka- mínútunum þegar munurinn var aðeins tvö stig. í bæði skiptin náðum við að halda okkar striki og það var stór- kostleg tilfinning sem hríslað- ist um mann þegar sigurinn var í höfn,“ sagði Friðrik Rúnars- son þjálfari Njarðvíkinga, sem er aðeins 23 ára, eftir að lið hans hafði sigraði Keflvíkinga 84:75 í æsispennandi úrslita- leik f „Ljónagryfjunni" í Njarðvík í gærkvöldi og tryggðu sér þar með íslandsmeistara- titilinn íkörfuknattleik. Þetta varfimmta viðureign liðanna í úrslitakeppninni og hreinn úr- slitaleikur. Uppselt var á leikinn og stemm- ingin var gríðarleg. Njarðvík- ingar voru óöruggir í byrjun og það tók þá þijár mínútur að finna leið- ina í körfuna. Þá Björn voru Keflvíkingar Blöndal komnir í 4:0 og var skriíarfrá þag j ejna skiptið sem þeir höfðu for- Keflavík Gunnar Örlygsson: Erfítlyen þreytan gleymist „ÉG kom óþreyttur inn á en aðrir voru orðnir dauð- þreyttir. Keflvíkingarnir léku svæðisvörn, Friðrik Ragnars „dældi“ boltanum á mig og ég fékk nógan tíma til að skjóta. Skotin fóru ofaní að þessu sinni — sem betur fer,“ sagði Gunnar Örlygs- son, hetja Njarðvíkinga, við Morgunblaðið eftir leikinn. Gunnar kom inn á er ísak Tomasson meiddist, eftir aðeins fjóra og hálfa mínútu, og lék frábærlega í fyrri hálf- leik. Skoraði þá 19 stig og átti stóran þátt í að leggja grunninn að sigri liðsins. „Þetta var rosalega erfítt, en maður gleymir þreytunni. Þetta voru síðustu 40 mínútur keppn- istímabilsins og við gáfum allt í leikinn sem við áttum. Teitur barðist eins og hundur og Rond- ey var mikilvægur undir körf- unni. Allt liðið var frábært. Og við gátum ekki fengið verðugri andstæðing í úrslitakeppninni," sagði Gunnar. Morgunblaðið/RAX Bræðurnir Gunnar og Teitur Örlygssynir fagna mikilvægu stigi á sinn sérstæða hátt; slá hausunum saman. Litlu mátti muna að Gunnar næði ekki að taka síðara vítaskotið eftir skelli stóra bróður. ystuna. Þegar 5 mínútur voru liðnar af leiknum og staðan 5:4 fyrir Njarðvík meiddist ísak Tómasson. Hann varð að fara af leikvelli og kom ekki meira við sögu. Þetta var geysilegt áfall fyrir Njarðvíkinga því að Isak er þeirra aðalleikstjórn- andi og lykilmaður í vörninni. Stöðu ísaks tók ungur og vaxandi leik- maður Gunnar Örlygsson — yngri bróðir Teits — og að öðrum ólöstuð-. um var hann maður þessa leiks. Gunnar tók sig til og skoraði hveija körfuna á eftir annarri og þegar upp var staðið hafði hann skorað 27 stig þar af fimm 3ja stiga körf- ur o g var stigahæsti maður leiksins. Leikurinn þróaðist líkt og fyrri leikir þessara liða í úrslitakeppn- inni. Njarðvíkingar höfðu þetta 5-13 stiga forystu en Keflvíkingar voru aldrei langt undan. I hálfleik var munurinn 9 stig 41:32 og góð byijun Njarðvíkinga í upphafi síðari háfleiks færði þeim 13 stiga forystu 63:50. En þá kom afleitur kafli hjá Njarðvíkingum sem skoruðu ekki stig í 5 mínútur og áður en varði hafði Keflvíkingum tekist að minnka muninn í 5 stig 65:60 og síðan í 2 stig 71:69 og 73:71 þegar rúm mínúta var til leiksloka. En Njarðvíkingar gáfu hvergi eftir; þeir sýndu mikið öryggi í lokin og verðskulduðu sigur og íslands- meistaratitilinn að launum. Sár vonbrigði „Það voru vissulega sár von- brigði að tapa leiknum en ég vil óska Njarðvíkingum til hamingju með titilinn," sagði Jón Kr. Gíslason þjálfari og leikmaður með liði ÍBK. „Leikurinn þróaðist eins og ég átti von á en okkur skorti hersiumuninn að þessu sinni. Þeir náðu að skora á mikilvægum augnablikum á með- an gæfan sneri við okkur baki.“ „Það kom í mig skrekkur þegar ísak varð að fara af leikvelli. en ég róaðist strax og ég sá að Gunn- ar var tilbúinn og hann var hreint út sagt frábær. Þetta var líka all rosalegt á síðustu mínútunum en þegar mest á reið náðum við að skora,“ sagði Friðrik Rúnarsson. „Þetta var erfiður leikur að dæma en jafnframt skemmtilegur. Við ákváðum í upphafi að lofa leikn- um að ganga og ég held að það hafi tekist nokkuð vel,“ sagði Jón Otti Ólafsson dómari. Svefntaflan góða... „ÞAÐ er gaman að sigra í hvaða móti sem er; allir sigrar eru mikils virði, en þessi er auðvitað mjög sérstakur. Bæ- irnir liggja saman og allir fylgj- ast með,“ sagði Rondey Robin- son, Bandaríkjamaðurinn íliði Njarðvíkur. Ronday sagðist telja lið Njarðvíkur það besta. „í vetur UMFN Skot Fráköst vö/só Bolta tapað Bolta náð Stoð- send Innan teigs Utan teigs 3ja stiga Víti Nýt % Gunnar Örlygsson 3/2 6/3 7/6 2/2 67 2/1 1 2 Friðrik Ragnarsson 3/1 4/1 3/0 3/1 23 3/0 1 2 7 Kristinn Einarsson 4/2 4/2 4/4 67 4/0 3 2 5 Teitur Örlygsson 4/2 1/1 3/2 4/3 67 6/0 7 3 7 Hreiðar Hreiðarsson 3/2 3/2 67 2/1 1 1 Ronday Robinson 8/6 4/1 1/0 5/3 56 17/6 2 3 4 ísak Tðmasson 1/0 0 Ástþór Ingason 2/2 100 1 1 RúnarJónsson Danícl Valvez vorum við stundum bestir, stundum döluðum við, en þegar við leikum eins og við getum best getur ekk- ert lið hér á landi unnið okkur.“ Rondey sagðist hafa verið hræddur fyrir alla leikina gegn Keflvíkingum. „Ég hafði til dæmis aldrei leikið gegn Tyrone [Thorn- ton, Bandaríkjamanninum hjá ÍBK]. Hann kom það seint, til þeirra í vetur, að ég spilaði ekki gegn honum í deildinni. Ég hef varla sofið nokkuð síðan við slógnm Grindvíkingana út úr keppninni og ekkert síðustu nóttina fyrir leikina. Enda hef ég hitt illa og verið þreytt- ur í leikjunum — þangað til í kvöld. Ég tók það til bragðs í gærkvöldi að taka svefntöflu í fyrsta skipti, og svaf mjög vel. Enda var ég án- ægður með mig í leiknum í kvöld,“ sagði Rondey Robinson. ÍBK Skot Fráköst vö/só Bolta tapað Bolta náð Stoð- send Innan teigs Utan teigs 3ja stiga Víti Nýt % Falur Harðarson 3/1 4/1 2/2 44 2/0 3 1 1 Sig. Ingimundarson 3/3 9/0 1/0 1/0 21 3/2 1 2 Júlíus Friðriksson 2/1 50 1/0 1 Albeit Óskarsson 6/2 2/0 4/4 50 1/2 2 2 1 Guðjón Skúlason 2/1 4/3 5/2 3/2 57 3/1 1 4 Tairone Thornton 5/2 19/8 7/5 48 13/3 1 1 Jón Kr. Gíslason 2/2 1/1 3/1 2/2 75 5/0 2 2 8 Egill Viðarsson - Kristinn Friðriksson HjörturHarðarson Hvað sögðu þeir? Þetta var ótrúiega gaman og ég er virkilega stoltur af litla bróð- ur. Eg var að deyja úr stressi en hann veit ekki hvað það er. Það var fra- bært að hafa hann í þessu stuði," sagði Teitur Örlygsson. „Við höfum sýnt að við erum með mikla breidd og allir hafa átt frábæra leiki. Það sem skipti þó mestu máli í þessum leik er að við náðum góðum forskoti og neyddum þá til að fara í þriggja stiga skotin," sagði Teitur. „Langurdagur“ „Það var gífurleg taugaspenna í leikjunum, sérstaklega þessum og þetta er búinn að vera langur dagur,“ sagði Kristinn Einarsson. „Við höfum æft mjög vel og andinn í liðinu er frá- bær. Keflvíkingar eru með gott lið og sterkasta hlið þeirra er langskotin. Við náðum að stoppa það síðast og líka núna og það skipti mestu máli,“ sagði Kristinn. „Skjálfti i lokin“ „Ég hafði það á tilflnningunni að við myndum vinna en ég get ekki neitað því að að það var svolítill skjálfti í lokin,“ sagði Friðrik Ragnars- son, sem tók við stöðu leikstjóra er ísak Tómasson meiddist. „Ég hef tek- ið við af honum nokkram sinnum og vissi því hvað ég var að gera. En í lokin munaði bara því að okkur lang- aði meira í titilinn. Það er fínt að fá hann heim.“ ÍÞfénrn FOLK ■ RONDAY Robinson, Banda- ríkjamaðurinn hjá Njarðvík, sagði miklar líkur á að hann yrði áfram með liðinu næsta vetur. „80-90% líkur/ sagði hann. ■ ISAK Tómasson, leikstjórn- andi UMFN, meiddist á ökkla eftir aðeins fjóra og hálfa mínútu. Hann var drifinn á sjúkrahús og kom ekki aftur í húsið fyrr en ein mín. var eftir. „Mér leið hræðilega. Ég vissi lítið hvað var að gerast — heyrði ekki lýsinguna, en var sagt annað/Iagið hvernig staðan var,“ sagði ísak við Morgunblaðið. ■ TEITUR og Gunnar Örlygs- synir eiga það til að skalla hvorn annan þegar þeim dettur í hug. Seint í leiknum var Gunnar á vítalínunni, skoraði úr fyrra skotinu og þá kom Teitur; enni þeirra skullu saman, fastar en venjulega. Síðara skotið fór einnig oní, en Gunnar sagði eftir leikinn: „ég var heppinn að liggja ekki eftir. Var hálf vankaður eftir skallann!“ Teit- ur sagðist hinsvegar bara hafa ver- ið að tryggja að síðara skotið rat- aði rétta leið. ■ GUNNAR gerði alls 5 þriggja stiga körfur úr 7 tilraunum í leikn- um. Hann er þekktur fyrir góða hittni; sigraði til dæmis í þriggja stiga skotkeppni á Stjörnukvöldi Samtaka íþróttafréttamanna og KKÍ í Grindavík fyrr í vetur. ■ FYRSTA villan var ekki dæmd í leiknum fyrr en 4,34 mín. voru liðnar. Kristinn Albertsson dæmdi þá tæknivillu á varamenn Keflvík- inga fyrir mótmæli. Hittnin hafði ekki verið upp á það bestu þennan tírna. Staðan var 2:4 fyrir IBK! ■ EFTIR leikinn var hífður upp fáni í húsinu. Þar gat að líta merki UMFN og textann: „íslandsmeist- arar í úivalsdeild 1991.“ ■ „ÁFRAM UMFN. Rondey stay with us [Rondey vertu áfram hjá okkur]“ stóð á skilti sem ungur áhangandi UMFN veifaði í salnum. Auk þess var teikning af Teiti Örlygssyni sem líktist Bart Simp- son — augun voru áberandi. ■ RÍKISSJÓNVARPIÐ sendi all- an leikinn beint yfír í íþróttahúsið i Keflavík, þar sem stórum sjón- varpsskermi hafði verið komið fyr- ir. Um 400 manns borguðu sig þar inn til að horfa á leikinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.