Morgunblaðið - 17.04.1991, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1991
KNATTSPYRNA / ENGLAND
■jí
. >
KNATTSPYRNA
Forráðamenn Derby tilkynntu í gær
að tveir af bestu leikmönnum félags-
ins yrðu seldir eftir keppnistímabilið. Það
er velski landsliðsmiðheijinn Dean
SKIÐl / FLUGLEIÐABIKARINN
Ardiles sagði
Aitken að fara
Sounesstekur
Guðrún stöðvaði sigur
göngu Mogore Tlalka
Ossie Ardiles, framkvæmdastjóri
Newcastle, er þegar byijaður að
gera breytingar á liðinu eftir stutta dvöl
á St. James Park. Hann tilkynnti fyrir-
liða liðsins, Skotanum Roy Aitken, í gær
að það væri ekki not fyrir hann hjá félag-
inu og hann óskaði eftir að Aitkens færi.
Ráðstefna um
grasvelli:
Tímabært
aðhefja
almenna
umræðu
- segirGuðmundur
Þorbjörnsson verk-
fræðingur
Mannvirkjanefnd KSÍ og
íþrótta- og æskulýðsdeild
Menntamálaráðuneytsins standa
fyrir ráðstefnu um gerð og umhirðu
grasvalla á föstudaginn.
„Við höfum orðið varir við áhuga
manna um allt land á að fá fræðslu
um þessi mál. Völlum hefur fjölgað
ört á síðustu árum og kröfur um
sléttleika og ástand þeirra eru að
aukast," sagði Guðmundur Þor-
bjömsson, verkfræðingur, sem sæti
á í mannvirkjanefnd KSÍ, við Morg-
unblaðið.
„Menn eru að vinna að sömu
hlutum, hveijir á sínum stað, með
sömu markmið en nánast engin
umræða hefur farið fram um málin.
Mikið er í húfí því miklum ijármun-
um er eytt í vallarframkvæmdir,
þó mönnum finnist ef til vill aldrei
nóg, að minnsta kosti þeim sem
starfa að þessum málum. Því er enn
frekar ástæða til að það sem kemur
sé nýtt á sem hagkvæmastan hátt.
Því töldum við tímabært að hefja
almenna umræðu," sagði Guð-
mundur.
við Liverpool
„Þetta var gríðarlega erfið ákvörðun," sagði Souness
Saunders og Wright seldir frá Derby
GRAEME Souness, fram-
kvæmdastjóri Glasgow Rang-
ers, hætti störfum hjá félaginu
í gær og tekur við enska meist-
araliðinu Liverpool í sumar.
Souness, sem er 37 ára, lék með
Liverpool á árunum 1978 til
1984 og var fyrirliði liðsins síðustu
árin. Þaðan fór hann til Sampdori?
á Ítalíu áður en hann gerðist leik-
maður og framkvæmdastjóri Rang-
ers fyrir fimm árum.
„Þetta var gríðarlega erfíð
ákvörðun," sagði Souness á blaða-
mannafundi í Glasgow í gær. Hann
er skilinn við konu sínu, sem býr í
Lundúnum ásamt þremur ungum
bömum þeirra. Souness sagðist
vilja eyða meiri tíma með börnum
sínum, og það, að starfa í Eng-
landi, gæfí honum tækifæri til þess.
Það hefði ráðið miklu um að hann
hefði þegið starfið hjá Liverpool.
Hvað knattspymuhliðina varðar
sagðist Souness telja sig vera kom-
inn eins langt og honum yrði gert
kleift með lið Rangers, og því væri
réttur tími til að breyta til nú.
Fjórir leikir eru eftir í skosku
úrvalsdeildinni og hafði Souness
hug á að klára tímabilið hjá Rang-
ers, sem er í efsta sæti deildarinn-
ar. Stjórn félagsins vildi hins vegar
að hann hætti strax og það varð
úr. „Mér fannst að því fyrr sem
málið leystist því betra. Honum er
fijálst að fara til Liverpool," sagði
David Murray, stjórnarformaður
Rangers í gær.
Souness á hlut í Rangers og hef-
ur setið í stjórn félagsins auk þess
að vera framkvæmdastjóri liðsins.
Það hefur þrisvar orðið skoskur
meistari og fjórum sinnum bikar-
-v meistari síðan hann tók við, fyrir
fímm ámm.
Ráðning Souness til Liverpool var
vel tekið þar á bæ. „Ég tel hann
rétta manninn í starfíð... Ég tel
hann verði jafn sigursæll og Kenny
[Dalglishj var,“ sagði Ronnie Mor-
an, sem gegnt hefur stöðu fram-
kvæmdastjóra hjá Liverpool, síðan
Kenny Dalglish hætti óvant í febrú-
ar. Moran verður áfram hjá Liv-
erpool sem yfírþjálfari og aðstoðar-
maður Souness.
Saunders, sem hefur verið orðaður við
Arsenai og enski landsliðsmiðvörðurinn
Mark Wright, sem hefur verið orðaður
við Liverpool.
Morgunblaðið/Rúnar Pór
Guðrún H. Kristjánsdóttir frá Akureyri sigraði í stórsvigi á alþjóðamótinu í Hlíðarfjalli í gær.
Danskur sérfræðingur á þessu
sviði, Martin Petersen, bauðst til
að koma hingað á ráðstefnuna og
hvílir hiti og þungi hennar á hans
herðum. Hann hefur starfað allt frá
nyrstu svæðum Skandinavíu suður
að Miðjarðarhafi og þekkir því vel
allar aðstæður. Hann ræðir um
uppbyggingu og umhirðu valla. Auk
þess fjalla Guðmundur og Hannes
Þorsteinsson, golfvallahönnuður,
um þróun mála í vallargerð hér á
landi.
Ráðstefnan hefst kl. níu á föstu-
dagsmorgun í ráðstefnusal Hótels
Loftleiða. Frestur til að tilkynna
þátttöku er til kl. 17 í dag á skrif-
stofu KSÍ.
ÚRSUT
Flugleiðabikarinn
HlíðaríjaU, Akureyri:
Stórsvig kvenna:
1. Guðrún H. Kristjánsd., Akureyri. 1:58.31
2. Malgorzata M. Tlalka, Frakkl.1:59.77
3. ÁstaHalldórsdóttir, ísafirði.2:00.11
4. María Magnúsdóttir, Akureyri....2:01.18
5. Eva Jónasdóttir, Akureyri...2:02.27
6. Fanney Pálsdóttir, ísafirði.2:05.77
Stórsvig karla:
1. Peter Jurko, Tékkóslóvakíu..2:07.44
2. Stig Sömme, Noregi..........2:08.32
3. Mathias Femström, Svíþjóð...2:08.55
4. Mads Ektvedt, Noregi.........2:08.59
5. Veran Pavlek, Júgóslavíu....2:08.71
6. Atle Hovi, Noregi...........2:08.81
7. Valdemar Valdemarsson, Ak...2:08.91
8. Magnus Karlsson, Svíþjóð....2:09.09
12. Amór Gunnarsson, ísafirði...2:10.74
14. Vilhelm Þorsteinsson, Akureyri ..2:11.76
GUÐRÚN H. Kristjánsdóttirfrá
Akureyri stöðvaði sigurgöngu
frönsku stúlkunnar, Mogore
Tlalka, í stórsviginu á alþjóða-
skíðamótinu í Hlíðarfjalli við
Akureyri í gær. Peter Jurko,
Tékkóslóvakíu, sigraði íkarla-
flokki og var þetta þriðji sigur
hans ífjórum mótum.
Guðrún náði besta tímanum í
fyrri umferð og lagði þar
grunninn að sigrinum. Hún var
rúmlega sekúndu á undan Ástu
Halldórsdóttur, ísafírði, og tveimur
sekúndum á undan Mogore Tlalka.
Franska stúlkan náði hins vegar
besta-tímanum í síðari umferð og
skaust þá uppfyrir Ástu og tryggði
sér annað sætið.
Mogore Tlaka var með í
heimsbikarnum í 6 ár
Malgorzata Mogore Tlalka er
pólsk að uppruna, en er franskur
ríkisborgari. Hún enginn nýgræð-
ingur á skíðunum því hún héfur
m.a. náð þeim áfanga að keppa á
tvennum ólympíuleikum, 1984 og
1988. Hún varð í 6. sæti í svigi á
ÓL 1984. Hún var með í heimsbik-
arkeppninni frá 1982 til 1988 og
varð í 6. sæti í svig og 7. sæti í
stórsvigi á heimsmeistaramótinu í
Crans Montana 1987. Tvíburasystir
hennar, Dorota, tók einnig þátt í
heimsbikarnuin á sama tíma.
Þriðji sigur Jurko
Tékkinn Peter Jurko sigraði á
þriðja mótinu af fjórum í gær. Hann
hafði áður unnið bæði svigmótin á
ísafírði. í gær var keppt í stórsvigi
og náði Jurko langbesta tímanum
í fyrri umferð. Fór brautina á
1:02.55 og var rúmlega sekúndu á
undan Svíanum Mathias Fernströ-
em. í síðari umferð náði Tékkinn
næst besta tímanum á eftir Stig
Sömme, Noregi, fékk samanlagðan
tíma, 2:07.44 mín. Sömme varð
annar og Fernström þriðji.
Valdemar Valdemarsson, Akur-
eyri, náði besta árangri íslendinga
er hann hafnaði í 7. sæti. Hann var
1,47 sek. á eftir Jurko.
Keppt yerður í stórsvigi á Dalavík
í dag. Síðan verða tvö svigmót í
Bláfjöllum á föstudag og laugardag
og þá lýkur alþjóðamótaröðinni hér
á landi.