Morgunblaðið - 17.04.1991, Page 60

Morgunblaðið - 17.04.1991, Page 60
- svo vel sétryggt -ife20É* SJOVAnioALMENNAR Láttu Lotus 1-2-3 gefa þér rétta mynd af rekstrinum! MIÐVIKUDAGUR 17. APRIL 1991 VERÐ I LAUSASOLU 100 KR. Útflutningnr; Freðsíldin skilar 700 milljónum ÁÆTLAÐ útflutningsverðmæti síldar, sem var söltuð, fryst og brædd í vetur, er um 2,4 millj- arðar króna. Útflutningsverð- mæti saltaðrar, frystrar og bræddrar síldar á vertíðinni í fyrravetur var hins vegar um 2,7 milljarðar króna. Mismunur- inn er einungis 300 milljónir, eða 11%, þrátt fyrir að Sovét- menn hafi ekki keypt saltsíld héðan í vetur. Um 100 þúsund ^S-. tonn voru veidd af síld í vetur, sem er svipað magn og veitt var af síld í fyrravetur. Síldarútvegsnefnd hefur selt Sovétmönnum 150-200 þúsund tunnur af saltsíld fyrir um einn milljarð króna á ári undanfarin ár en þeir hafa ekki staðið við kaup á 50 þúsund tunnum af saltsíld héðan í vetur fyrir 5 milljónir Bandaríkjadala, eða um 300 millj- ónir króna. Áætlað útflutningsverðmæti saltsíldar er 1,2 milljónir, eða 600 milljónum minna en í fyrra. Áætl- að útflutningsverðmæti frystrar síldar er aftur á móti um 200 milljónum meira en í fyrra, eða 700 milljónir, og áætlað útflutn- ingsverðmæti bræddrar síldar er rúmlega 100 milljónum meira en í fyrravetur, eða rúmar 500 millj- ónir. Samanlagt útflutningsverð- mæti síldar, sem fryst var og brædd í vetur, er því um 1,2 millj- arðar, eða jafn mikið og útflutn- ingsverðmæti saltsíldar. Framleiðsla á roðflettum salt- síldarflökum var tíu sinnum meiri í vetur en í fyrravetur en tæplega tvöfalt hærra verð fæst fyrir roð- flett flök en hefðbundna saltsíld. Síldarfrysting jókst um 37% frá því í fyrravetur og Japanir greiða 25% hærra verð en í fyrra fyrir stærstu síldina, 300 grömm og stærri. Þá voru fryst hér um 920 tonn af roðlausum síldarflökum í vetur en þau eru aðallega seld til Frakklands. Sjá nánar í Úr verinu bls. Cl. Listflugyfir Reykjavík MorgunDlaoiö/KAA Björn Thoroddsen á listflugvélinni TF-BTH yfir Reykjavík. Vélin er af gerðinni Pitts Special og smíðaði Björn vélina sjálfur. Hann hefur ekki látið staðar numið því hann vinnur nú að smíði nýrrar listflugvélar. Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskólans: Sjálfstæðisflokkur fengi 40,4% Framsóknarflokkurmn 20,2% Alþýðubandalagið fengi 15,1% Sjálfstæðisflokkurinn fengi 40,4% fylgi ef gengið væri til þingkosninga nú, samkvæmt svörum í skoðanakönnun, sem Félagsvísindastofnun Háskóla íslands hefur gert fyrir Morgun- blaðið. Það er marktækt fylgis- tap frá síðustu könnun, sem gerð var 23. til 26. marz. Þá fékk Sjálf- stæðisflokkurinn 48% fylgi þeirra, sem afstöðu tóku. Alþýðu- bandalagið bætir hins vegar við sig fylgi svo marktækt getur talizt, hefur 15,1% fylgi nú en hafði 10,1% í marz. Aðrir flokkar eru með svipað fylgi og í könnuninni í marz. Al- þýðuflokkurinn er í fyrsta sinn um langt skeið með minna fylgi en Alþýðubandalagið, hefur nú 12,1% fylgi, en hafði síðast 11,7%. Fram- sóknarflokkurinn fær 20,2% fylgi en hafði 19,2% í marz. Kvennalist- inn fær nú 9,8% en hafði 8,6% í Halldór Ásgrímsson í viðræðum við EB: Ljáði tvívegis máls á gagir kvæmum veiðiheimildum - segir Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra HALLDÓR Ásgrlmsson, sjávarútvegsráðherra, hefur tvívegis ljáð máls á því að ræða megi gagnkvæmar veiðiheimildir milli Islands og Evrópubandalagsins í viðræðum við ráðamenn bandalagsins, að því er fram kemur í grein eftir Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Utanríkisráðherra vitnar til skýrslu, sem fjallar um viðræður Halldórs Ásgrímssonar við Manú- el Marin, sem sæti á í fram- kvæmdastjórn EB og fer með sjávarútvögsmál en viðræður þessar fóru fram í byijun marz 1989. Orðrétt segir í skýrslunni, að sjávarútvegsráðherra hafi sagt á þessum fundi, að „ræða mætti gagnkvæmni í veiðiheimildum enda þýddi það ekki það að verk- efni íslenzkra fiskiskipa minnki". Þá vitnar utanríkisráðherra í grein sinni í aðra skýrslu um við- ræður Halldórs Ásgrímssonar á erlendri grund, við sjávarútvegs- ráðherra nokkurra aðildarríkja Evrópubandalagsins, sem fram fóru í október 1989. Utanríkisráð- herra birtir orðrétt ummæli, sem höfð eru eftir Halldóri Ásgríms- syni á þessa leið: „Hugsanleg skipti á veiðiréttindum milli ís- lands og Evrópubandalagsríkj- anna. Ólíklegt væri, að menn teldu hagstætt að íslenzk skip veiddu í lögsögu Evrópubandalagsríkj- anna og skip frá Evrópubanda- lagsríkjunum í lögsögu íslands í staðinn. Hins vegar væri rétt að taka slík atriði til umræðu, ef báðir aðilar teldu sig geta haft hag af.“ Jón Baldvin Hannibalsson segir í grein sinni, að sjávarútvegsráð- herra sé „eini stjórnmálamaðurinn á íslandi", sem hafi í formlegum viðræðum við yfírmenn sjávarút- vegsmála í Brussel ljáð máls á gagnkvæmum veiðiheimildum. marzkönnuninni. Aðrir flokkar og framboð fá minna en 1% fylgi. Könnun Félagsvísindastofnunar var gerð dagana 13. til 15. apríl síðastliðinn. Svör fengust frá 1177 manns af þeim 1500, sem úrtak stofnunarinnar náði til. Það er 80% nettósvörun. Félagsvísindastofnun telur að úrtakið endurspegli þjóðina vel, með tilliti til aldurs, kyns og búsetu. Sjá bls. 27. * Arnastofnun: Höfuðgersem- ar ekki lánaðar REGLUR um lán á handritum frá Árnastofnun voru samþykktar á ríkisstjórnarfundi í gær. f þeim segir meðal ar.nars að höfuðger- semar megi ekki lána úr landi. Tilteknar. eru sex höfuðgersamar meðal íslenskra handrita sem ekki mega fara úr landi, Konungsbók Eddukvæða, Konungsbók Snorra- Eddu, Flateyjarbók, Möðruvallarbók, Skarðsbók Jónsbókar og Stjórn. Ef tiltekið fornrit er aðeins til í einu handriti á að forðast að lána það, jafnvel innanlands. Einnig verður forðast að lána bestu handrit tiltek- inna verka. Þá skal ógjarnan lána handrit sem afbragð eru sakir feg- urðar skreytinga líkt og Skarðsbók Jónsbókar og Stjórn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.