Morgunblaðið - 24.04.1991, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1991
HANDBOLTI
Athugasemd
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi grein frá dómurum leiks KR
og Fram 17. þessa mánaðar, vegna
athugasemdar Leifs Dagfinnssonar í
blaðinu í gær.
„Vegna greinar Leifs Dagfinnsson-
ar í Morgunblaðinu í dag langar okk-
ur undirritaða til að koma eftirfar-
andi á framfæri.
Lýsingar hans á atburðum í upp-
hafi greinarinnar eru réttar, þar til
kemur að því að hann hendir boltan-
um að áhorfendum. Á þeirri stundu
stöðvar Guðjón tímann og við vísum
honum báðir út af í tvær mínútur
fyrir óíþróttamannslega framkomu,
þ.e. fyrir að henda boltanum að áhorf-
endum. Hróp höfðu komið frá áhorf-
endum, en þau voru ekki meiri frem-
ur venju og réttlæta ekki að leikmað-
ur kasti bolta að þeim.
Fyrir þetta „eina hopp“, eins og
segir í grein Leifs, fékk hann ekki
útilokun eins og hann lætur liggja
að. Það var ekki fyrr en hann gerði
sig líklegan til að ráðast á Guðjón
sem hann fékk útilokunina. Það sem
á eftir gerðist og í raun upphaf þess
líka er sorgaratburður og er ákaflega
leiðinlegt til þess að vita að jafn góð-
ur leikmaður og Leifur skuli ekki
geta haft betri stjórn á skapsmunum
sínum.
Spurningunni um „af hverju" virt-
ist enginn þurfa að fá svar við nema
Leifur og eins og fram kemur í grein
hans var hann stöðvaður af fyrirliða
sínum í að fá svar við henni. Allir
aðrir leikmenn og forráðamenn KR
eiga hrós skilið fyrir framkomu sína
við umræddan atburð.
Varðandi það, að við látum stjórn-
ast af hrópum leikmanna eða áhorf-
enda, vísum við aftur til föðurhú-
sanna. Það myndi vera að æra óstöð-
ugan ef um slíkt væri að ræða, mið-
að við þann ótölulega fjölda „ábend-
inga“ sem dómarar fá í hverjum leik.
í lokin langar okkur til að koma á
framfæri þeirri skoðun okkar, án
þess að það afsaki á nokkurn hátt
framkomu Leifs Dagfinnssonar, að
okkur fínnst orðið fyllilega tímabært
að setja upp einhvers konar siða-
nefnd, sem gæti tekið á málum for-
ráðamanna félaganna. Það er algjör-
lega óviðunandi, að þeir geti með
óviðurkvæmilegu orðbragði komist
tipp með að svívirða bæði dómara og
leikmenn andstæðinga, meðan á leik
stendur, án þess að á því sé tekið.
Með íþróttakveðju,
Guðjón L. Sigurðsson,
Hákon Sigurjónsson."
TENNIS
Reuter
Björn Borg vonsvikinn á svip í gær, í fyrsta leik sínum í átta ár.
„Þarf meiri
leikæfingu“
BJÖRN Borg náði ekki að upp-
lifa fortíðina í fyrstu tilraun eft-
ir átta ára fjarveru frá tennis-
mótum. Hann tók þátt í opnu
móti í Monte Carlo, en tapaði
í fyrstu umferð í gær. „Ég þarf
mikið meiri leikæfingu," sagði
hinn 34 ára gamli Svíi, sem
ætlar að reyna að bæta sig enn
frekar.
Borg tapaði 6-2 og 6-3 fyrir
Spánverjanum Jordi Arrese.
Svíinn, sem sigraði þrisvar á sama
móti á árunum 1977 til 1980,
mætti síðhærður til leiks eins og á
gullaldarárunum, hárbandið var á
sínum stað og tennisspaðinn var
hinn sami, en hraðinn var ekki sem
fyrr og mistökin leyndu sér ekki.
„Þetta var erfitt, því ég hef ekki
keppt í svo mörg ár,“ sagði Borg.
„Það þarf mikla keppnishörku til
að leika gegn þessum strákum í dag
og ég þarf að taka þátt í mörgum
leikjum og mótum áður en ég næ
fyrri getu.“
Mats Wilander, landi Borgs, féll
einnig úr keppni, tapaði 7-6 og 6-2
í 2. umferð fyrir Andrej Tsjesnokov
frá Sovétríkjunum, sem á titil að
veija.
Thomas Muster frá Austurríki,
sem tapaði í úrslitum í fyrra, varð
að láta í minni pokann fyrir Finnan-
um Veli Paloheimo í fyrstu umferð.
KNATTSPYRNA / MEISTARAKEPPNI KSI
Ná Framarar að slöðva
sigurgöngu Valsmanna?
ÍSLANDSMEISTARAR Fram og
bikarmeistarar Vals mætast í
meistarakeppni KSÍ á gervi-
grasinu í Laugardal klukkan 19
íkvöld.
Meistaraslagurinn er óvenju
snemma á ferðinni í ár.
Ástæðan er tveggja vikna æfinga-
og keppnisferð landsliðsins til Bret-
lands og Möltu, en bæði félög eiga
nokkra menn í hópnum.
Valsmenn,eru með fullt hús það
sem af er keppnistímabilsins —
hafa sigrað í þremur fyrstu leikjum
sínum í ReykjavíkurmótinUj síðast
Fram á sunnudaginn, 3:0. Islands-
meisturunum hefur hins vegar ekki
gengið eins vel og eru með einn
sigur og tvö töp á bakinu. Þeir
hafa aftur á móti átt mestu láni
allra félaga að fagna í meistara-
keppninni og sigrað alls sex sinnum
en Valur hefur þrisvar orðið meist-
ari meistaranna.
Meistarakeppnin fór fyrst fram
árið 1969 og þá sigraði KR. ÍBK
hefur sigrað fimm sinnum og ÍA,
Víkingur og ÍBV tvisvar hvert fé-
lag. Keppt er um glæsilegan far-
andbikar, Sigurðarbikarinn, sem
var gefinn til minningar um Sigurð
Halldórsson, forystumann í KR í
áratugi. Að auki gefur KSÍ sérstaka
verðlaunapeninga.
Bragi Bergmann verður dómari
á gervigrasinu í kvöld.
Stórleikur
á Hlíðarenda
Haukar
íslandsmeistarar
Vals -
í handknattleik
miðvikudaginn 24. apríl kl. 20.
Eftir leik verður Islandsmeistarabikarinn afhentur.
Valsmenn! - mætið allir og fagnið titlinum.
TEPPABOÐIN
POIAR
RAFGEYMAR
gólfefnamarkaður,
Suðurlandsbraut 26.
RíLA.
Bankinn hf.
Bíldshöfða 12.
A1IKUG4RÐUR
v/Sund
Valur er Ibestai liðið.
ÚRSUT
Knattspyrna
REYKJAVÍKURMÓTIÐ:
Víkingur-KR....................0:1
- Sigurður Björgvinsson víti.
Ármann - Leiknir................1:0
Jens Ormslev.
ENGLAND, 1. DEILD:
Arsenal - QPR................. 2:0
Dixon vsp. 58., Merson 7.2. Áhorf.: 42.393
Aston Villa - Manchester City...1:5
Platt vsp. 69. - David White 4., 24., 85.
og 90., Brennan 61. Áhorfendur: 24.168
Derby - Lceds..................0:1
- Shutt 30. Áhorfendur: 12.666
Liverpool - Crystal Palace......3:0
Rush 41., Barnes 55., Houghton 87. Áhorf-
endur: 3.767
Sunderland - Wimbledon... .0:0
Áhorfendur: 24.036
Efstu lið:
Arsenal ...35 22 12 1 65:16 76
Liverpool ...35 22 7 6 72:34 73
Crystal Palace.. ...36 18 9 9 44:41 63
Manchester City..36 16 11 9 61:50 59
Leeds ...35 17 7 11 55:40 58
Manch. United.. ...34 15 11 8 55:38 55
Wimbledon ...36 14 13 9 52:42 55
Tottenham ...34 11 13 10 46:43 46
■Tvö stig voru dæmd af Arsenal fyrr í
vetur, og eitt af Manchester United.
2. DEILD:
Barnsley - Blackburn............0:1
Brighton - Bristol City.........0:1
Swindon - Notts County...........1:2
Watford - West Bromwich..........1:1
HOLLAND, 1. DEILD:
Ajax-Sparta......................1:0
Efstu lið:
PSV Eindhoven....25 17 5 3 63:17 39
Ajax Amsterdam...25 15 8 2 58:18 38
FC Groningen.....25 14 9 2 51:25 37
HM í snóker
■ Gary Wilkinson missti af rúmlega 12
miHjónimi króna er hann náði ekki að
setja gulu kúluna niður. Hann var kom-
inn með 120 stig og átti mögulcika á 147
stigum, sem er það hæsta sem hægt er
að ná. Hann reyndi að setja gulu kúluna
í neðra hægra hornið, en hitti ekki.
Kanadamaðurinn Cliff Thorburn er sá
eini scm náð hefur 147 stigum í heims-
meistaramóti en það gerði hann fyrir
sjö árum. Steve Davis var hinsvegar sá
fyrsti sem náði fullu húsi í sjónvarpsleik.
HM í íshokký
Haldið í Finnlandi
Úrslit á mánudaginn:
Kanada-Þýskaland Sovétríkin-Finnland 3:2 3:0
Tékkóslóvakía-Sviss 4:1
Bandaríkin-Svíþjóð
Úrslit á þriðjudag:
Kanada-Finnland 5:3
Tékkólóvakía-Þýskaland 7:1
Svíþjóð-Sviss
Sovétr.-Bandar 12:2
Staðan:
Sovétríkin .4 4 0 0 25: 6 8
.4 4 0 0 15: 8 8
Svíþjóð .4 2 2 0 20:12 6
Tékkóslóvakía .4 2 0 2 12:10 4
.4112 9:12 3
Bandaríkin .4112 13:21 3
Sviss .4 0 0 4 5:14 0
Þvskaland .4 0 0 4 9:25 0
IMHL-deildin
Úrslitakeppni NHL-deildarinnar, 2. umferð.
Fjóra sigra þarf til að komast áfram:
Norris-deild:
Minnesota North Stars—St. Louis Blues..5:1
Minnesota hefur forystu, 2:1.
Smythe-deild:
Edmonton Oilers—Los Angeles Kings ..:..4:3
Eftir tvíframlengdan leik. Edmonton hefur
forystu, 2:1.
HLAUP
Víðavangshlaup Hafnarfjarðar
Vi'ðavangshlaup Hafnarijarðar
fer fram á morgun, sumardag-
inn fyrsta, og hefst kl. 13 við Ráð-
hús Hafnarfjarðar. Keppt verður í
öllum flokkum og eru farandbikarar
veittir fyrir sigur í öllum flokkum.
Hamraborgarhlaup UBK
Hamraborgarhlaup UBK, sem er
barnahlaup, fer fram á sumardag-
inn fyrsta við Hamraborg í Kópa-
vogi. Keppni hefst kl. 11 og er
mæting kl. 10.30. Keppt er í flokk-
um 15 ára og yngri.
Víðavangshlaup ÍR
Víðavangshlaup ÍR, 76. í röð-
inni, fer fram að venju á sumardag-
inn fyrsta. Hlaupið hefst í Hljóm-
skálagarðinum kl. 14. Keppt verður
flokkum karla og kvenna, sveina
og meyja og flokki kvenna 30 ára
og eldri og karla 40 ára og elflri; ,
ralód
: H i. í ■