Morgunblaðið - 12.05.1991, Side 11
MOBGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. MAI 1991
1001 IAM .Sí RUDAdU'/lVD: aidA.iBVi; ÍUflOM
fyrir nýjum bílum, því á fyrstu fjór-
um mánuðum þessa árs er bílainn-
flutningur 50% meiri en á sama
tíma í fyrra. Um leið var það að
gerast að ríkissjóður hefur látið
undir höfuð leggjast að afla fjár
fyrir gífurlegum halla og niðurstað-
an er skelfileg.“
Hann segir afsakandi: „Þetta er
nú ekkert skemmtiefni, en hjá því
verður ekki komist að ræða þetta.
Fjárlög voru afgreidd fyrir síðustu
áramót með fjögurra milljarða
króna halla, en í lok apríl þegar
fjármálaráðuneytið gerði upp sín
dæmi stefndi í minnst átta milljarða
halla.
Skýringin á þessum gríðarlega
halla eru meðal annars nýjar skuld-
bindingar fyrrverandi ríkisstjórnar.
Það var á sínum tíma ákvörðun
stjórnarmeirihlutans á þingi og rík-
isstjórnar að auka útgjöldin og
vegna þjóðarsáttarinnar var ekki
gripið til skattahækkana. Síðan
bætist það við að frá áramótum
hefur ríkisstjórnin sett skuldbind-
ingar á ríkissjóð sem eru á bilinu
milli 12 til 13 milljarðar. Fimm
milljarðar þar af eiga sér enga stoð
í heimild frá Alþingi. Þar er einung-
is um að ræða yfirlýsingar eða
samninga þar sem skýrt er tekið
fram að samningurinn hafi ekki
gildi nema Alþingi samþykki hann
síðar. Þetta eru innistæðulausir
kosningavíxlar.
Þannig hafa útgjöld verið búin
til fram í tímann, til viðbótar þeim
útgjöldum sem nauðsynleg voru til
að standa undir lögbundinni þjón-
ustu. Síðasta ríkisstjórn brúaði bilið
með yfirdrætti hjá Seðlabankanum.
Yfirdráttur þar þýðir það sama og
að einstaklingur, sem eyðir meira
en hann aflar, láti undir höfuð leggj-
ast að fá lán hjá banka eða einhveij-
um öðrum, og láti gúmmítékka
detta á bankastofnunina og hlaðast
þar upp. Það hefur gerst í stórum
stíl núna. Yfirdrátturinn á fyrstu
þremur mánuðum ársins er þrefalt
meiri en hann var í fyrra á sama
tíma.“
— Verða þá tekin erlend lán?
„Það er alveg augljóst að það
verður að taka lán erlendis ef okkur
tekst ekki að skera niður til að jafna
þennan halla. Verkefni okkar á
þessum fyrstu dögum ríkisstjórnar
er að finna leiðir, annars vegar til
að draga úr hallanum, skera niður,
og hins vegar til að afla fjár til að
standa undir hallanum og annarri
lánsfjárþörf ríkisins, til dæmis
vegna húsnæðiskerfisins."
Friðrik segir að ef fráfarandi ríkis-
stjórn hefði viðurkennt markaðslög-
málin á ljármagnsmarkaðinum,
hækkandi raunvexti, hefði verið
möguleiki á því að fólk hefði sparað
fremur en eytt. „Útlán bankakerfis-
ins hefðu dregist saman og þannig
hefði fólk fundið fyrir efnahagsver-
uleikanum. Menn hefðu þá beðið
með að kaupa nýja bílinn, og lagt
til hliðar í staðinn.
Ríkisstjórnin viðurkenndi ekki að
þeir vextir sem hún bauð á ríkisvíxl-
um og spariskírteinum voru það
lágir að það keypti enginn þessa
víxla. Því fór sem fór.
Sparnaður er hins vegar nýtt
fyrirbæri á íslandi og það er mjög
skemmtilegt að sjá, að unga fólkið
hugsar um verðmæti og peninga
með allt öðrum hætti en kynslóð
mín gerði. Það hefur fullan skilning
á því að græddur er geymdur eyr-
ir, en það var hlægilegt hugtak hér
áður fyrr.
En þótt vextir séu áhrifamikið
tæki til að efla sparnað eða afla
fjár þá eru þeim takmörk sett. Þó
við hækkuðum raunvexti um 20%
gætum við ekki náð tilætluðum
sparnaði á innlendum markaði í ár.“
— Er ekki fólk orðið þreytt á að
halda í við sig endalaust, alltaf með
sama lága kaupið, gefst upp og slær
lán til að geta veitt sér eitthvað?
„Jú jú, og því hefur líka verið
haldið fram að fólk, sem hefur
ákveðinn lífstíl en ekki laun í sam-
ræmi við hann, grípi til þeirra ráða
að slá út á eignir sínar og auka þar
með skuldastöðu sína.“
— Ert þú sjálfur sparsamur?
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Viðbótarsæti
til Benidorm í júní
frú aðeins
kr. 39.800,-’
Þökkum frábærar undirtektir
Undirtektirnar hafa veið einstakar og nú er uppselt í meira en helming
allra ferða okkar í sólina í sumar. Tryggðu þér óskaferðina
með Veröld óður en allt selst upp.
Benidorm
Höfum nú tryggt okkur viðbótargistingu
á Europa Center gististaðnum
á hreint ótrúlega góðu verði.
Verð frá kr. 39.800,- fyrir hjón með
2 börn í íbúð í 2 vikur
og aðeins kr| 51.500,-
fyrir 2 í íbúð í 2 vikur í júní.
Bókunarstaða
23.
30.
6.
13.
20.
27.
4.
11.
18.
maí.......biðlisti
maí.......5 sæti laus
júní......laus sæti
júní......10 sæti laus
júní......laus sæti
júní......laus sæti
júlí.....örfá sæti laus
júlí.....laus sæti
júlí.....laus sæti
25. júlí.uppselt
1. ágúst... biðlisti
8. ágúst... uppselt
15. ágúst... uppselt
22. ágúst... örfá sæti laus
29. ágúst... laus sæti
Sæti laus
í september
Costa
del Sol
Enginn staður í Evrópu jafnast
á við suðurstönd Spánar,
vinsælasta ferðaparadís
álfunnar. Erum að selja
síðustu sætin!
Bókunarstaða
23. maí....biðlisti
30. maí....5 sæti laus
6. júní...biðlisti
13. júní...15 sæti laus
20. júní...uppselt
27. júní...laus sæti
4. júlí..uppselt
11. júli...laus sæti
18. júlí...15 sæti laus
25. júlí...laus sæti
1. ágúst.... laus sæti
8. ágúst.... örfá sæti laus
15. ágúst.... biðiisti
22. ágúst.... laus sæti
Irland
Ferðanýjung á Fróni aðeins 2ja
stunda flug og þú ert kominn í
nýja Veröld
Bókunarstaða
7. júní..biðlisti
14. júní ....laus sæti — beint frá
Akureyri
21. júnf ....Jónsmessunæturdraumur!
5. júlí.Eldriborgaraferð með
Hermanni Ragnari!
19. júlí.laus sæti — beint frá
Akureyrj
2. ágúst.. Lax- og silungsveiði, golf
og gönguferðir.
Náttúrufegurð og saga.
Gisting á bóndabæjum
og/eða fornum kastölum
með lúxus aðbúnaði.
Mallorka
Fegurstu strendur Mallorka
bíða þín á Alcudia og gististaðimir.
þeir bestu, sem völ er á.
Pú gerir kostakaup með Veröld
til Alcudia.
Bókunarstaða
19. maí.....biðlisti
26. maí.....biðlisti
4. júní....10 sæti laus
11. júnf....uppselt
18. júní....biðlisti
25. júní....uppselt
2. júlí.....laus sæti
9. júlí....laus sæti
16. júlf....15 sæti laus
23. júlí....laus sæti
30. júlí....biðlisti
6. ágúst...10 sæti laus
13. ágúst...biðlisti
20. ágúst...laus sæti
Sæti iaus í september.
Gerum sertilboö E/rir hóoa
allar brottfarir sumarsíns,
FLUGLEIDIR
.SlmlSm
oasis
FERflAMIIISTafilll
AUSTURSTRÆTI17, SÍMI: (91)622011 & 622200