Morgunblaðið - 22.05.1991, Síða 20

Morgunblaðið - 22.05.1991, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAI 1991 Meinsemd heil- briffðiskerfísins /l< • -W •» • mm o.. < ... . . . .. eftir Ingibjörgu Björnsdóttur Það hefur vakið furðu mína, að í allri umræðu um Heilsluhæli Nátt- úrulækningafélagsins að undan- förnu, hefur enginn úr hópi þeirra þúsunda dvalargesta, sem notið hafa góðs af þjónustu félagsins á liðnum áratugum, gengið fram til varnar náttúrulækningastefnunni. Allir þegja þunnu hljóði, enda hefur málið verið kynnt sem hneykslismál. Hneyksli er þetta mál allt, en ekki með þeim hætti, sem gefið hefur verið í skyn í fjölmiðium síðustu daga. Málið ber það allt með sér, að til þess er stofnað af mönnum, sem aðhyllast ekki stefnu Náttúrulækn- ingafélagsins, enda þótt þeir hafi ráðið sig í vinnujijá því og tekið sæti í stjórn þess. í stuttu máli snýst hávaðinn um það, að læknarnir, sem að málinu standa, vilja með góðu eða illu breyta hressingarhælinu í sjúkra- hús. Ríkisendurskoðun virðist vilja koma sjálfstæðum rekstri hælisins á vonarvöl og alfarið undir forsjá ríkis- ins. Guð einn má vita hvað vakti fyrir Jóhannesi Ágústssyni. En aiit er þá þrennt er. Þegar Jónas Kristjánsson hóf að kynna náttúrulækningastefnuna var hún um margt byltingarkennd og umdeild. Hann vildi kenna fólki nátt- úrulega og heilnæma lifnaðarhætti. Starfsemi Heilsuhælisins fékk góðar undirtektir þegar í upphafi og af aðsókninni hingað til að dæma, hefði mátt ætla, að náttúrulækningar, eins og þær hafa verið stundaðar á Heilsuhælinu, væru virtar sem verð- ugt framlag til íslenskrar heilbrigðis- þjónustu. Hvað svo sem sagt var um náttúrulækningar fyrir 70 árum þá eru þær viðteknar í dag af yfirstjórn heilrigðismála, enda efast enginn hugsandi maður lengur um samband næringar og heilsu, né mikilvægi þess að ástunda heilnæma lífshætti í anda náttúrulækningamanna nema ef vera skyldu einhverjir læknar. Ríkisendurskoðun hefur bent á, að þrátt fyrir vinsældir Heiisuhælisins er náttúrulækningastefnan utan- garðs í íslensku heilbrigðiskerfi. Skýrsla ríkisendurskoðunar Sú úttekt, sem ríkisendurskoðun hefur látið frá sér fara á rekstri Heilsuhælisins, er um margt athygl- isverð. Þar kemur fram, að það, sem talið er vera aðfinnsluvert við starf- semi NLFÍ hefur verið látið óátalið af heilbrigðisráðuneytinu alla tíð. Gagnrýnin beinist því fyrst og fremst að ráðuneytinu. Niðurstöður skýrsl- unnar eru líkt og sniðnar að kröfum læknanna, sem starfa við hælið. Starfsemi hælisins er gagnrýnd á þeirri forsendu, að hún samrýmist ekki gildandi heilbrigðislöggjöf, og hvetur ríkisendurskoðun til þess að markmiðum Náttúrulækningahælis- ins sé breytt. I skýrslunni eru sex atriði, sem ég við gera að umræðu- efni hér: Forsendur ríkisendurskoðunar Heiisuhæli Náttúruiækningafé- lagsins var í upphafi stofnað sem kennslustofnun til að kenna fólki að iðka holla og heilsubætandi lifnaðar- hætti, jafnframt því að vera lækning- astofnun. Greiddu dvalargestir sjálfir kostnað við dvöl á hælinu. Síðar fóru læknar að vísa sjúklingum sínum á Heilsuhælið til hressingar og upp- byggingar eftir erfiða sjúkrahúslegu, og þá var farið að greiða dagjöld með þeim dvalargestum. Þeir vísu menn, sem unnu skýrslu ríkisendurskoðunar, ganga útfrá því, að heilsuhælið falli undir reglur um sjúkrahús — þar er sagt beinum orð- um „sjúkrahús eins og Heilsuhælið". Staða Heilsuhælisins innan heilbrigð- iskerfisins hefur reyndar aldrei verð fastákveðin í lögum. Það fullnægir engan veginn þeim kröfum, sem gerðar eru til sjúkrahúsa, og dag- gjaldanefnd hefur aldrei metið starf- semi hælisins til sömu daggjalda og sjúkrahúsum reiknuðust. Heilsuhæli Náttúrulækningafé- lagsins hefur verið eina stofnunin sinnar tegundar hér á landi. Lög um sjúkrahús og skylda starfsemi hafa ekki hæft starfsemi hælisins, en samt sem áður hefur ekki þótt brýn ástæða til að setja sérstök lög um starfsemi þess. Hin óskilgreinda staða þess innan heilbrigðiskerfisins hefur oft reynst NLFÍ erfíð. Þegar reiknuð hafa verið út daggjöld, hefur jafnan verið gert fremur lítið með þá fag- mennsku, sem viðhöfð er á hælinu. En á sama tíma hefur ráðuneytið gert síauknar kröfur um sérhæfðari læknisþjónustu líkt og um sjúkra- stofnun væri að ræða. Þetta hefur oft gert NLFÍ erfitt fyrir, en á móti hefur komið skilningur ráðuneytisins á mikilvægu starfi Náttúrulækninga- félagsins, sem sett hefur Heilsuhæl- inu sérstök starfsskilyrði, sem ríkis- endurskoðun gagnrýnir nú. Ríkisendurskoðun. kýs að flokka Heilsuhælið sem sjúkrahús, til þess eins að geta lagt eitthvert lagalegt mat á starfsemi þess. Þar sem engin lög er að finna um heilsuhæli svo meta_ megi lögmæti Heilsuhælis NLFI, þá grípur ríkisendurskoðun lög um sjúkrahús og beitir þeim sem mælikvarða á starfsemi hælisins og kemst að þeirri niðurstöðu að hún sé ólögleg. Það er með öllu óskiljan- legt hvemig ríkisendurskoðun kom til hugar að bera slíkan mælikvarða á starfsemi Heilsuhælisins. Það þarf ekki annað en koma í anddyri hælis- ins tit að átta sig á því að þar er ekki rekið sjúkrahús. Þeir kjósa að flokka heilsuhælið sem sjúkrahús, enda þótt það bijóti í bága við heil- brigða skynsemi, og niðurstöður skýrslunanr eru á þá lund, að þær gætu verið pantaðar af læknum hælisins. Full ástæða er að hneyksl- ast yfir slíkum vinnubrögðum. Daggjöldin Hin svonefndu aukadaggjöld, sem Ríkisendurskoðun gerir mál úr, eru í raun hin upphaflegu gjöld, sem dvalargestir greiddu fyrir dvöl sína og þau hafa verið innheimt í 35 ár. Daggjöldin, sem ríkið greiddi með sjúklingum sínum, var viðbót vegna aukins álags þar sem skjólstæðingar ríkisins voru veikari og þörfnuðust meiri umönnunar en þeir, sem lögðu leið sína sjálfir á hælið. Eftir því sem ég kemst næst, þá hefur Nátttúru- lækningafélagið aldrei gengist undir reglugerð daggjaldanefndar er snert- ir aukagreiðslur dvalargesta, og hef- ur það aldrei verið neitt launungar- mál. Má í því sambandi benda á, að í ráðherratíð Ragnhildar Helgadóttur var málið látið óátalið eftir ítarlega umræðu á Alþingi. Upphæð dag- gjaldanna nú er 3.250 kr. á dag pr. sjúkling og hefur gegnum tíðina ver- ið á líkum nótum. Ríkið hefur því ekki tapað á þessum samningum og er skiljanlegt að þingmenn hafi ekki séð ástæðu til að hrófla við þessu Ingibjörg Björnsdóttir „Þar sem engin lög er að finna um heilsuhæli svo meta megi lögmæti Heilsuhælis NLFI, þá grípur ríkisendurskoð- un lög um sjúkrahús og beitir þeim sem mæli- kvarða á starfsemi hæl- isins og kemst að þeirri niðurstöðu að hún sé ólögleg.“ máli, þar sem kostnaður ríkisins hef- ur verið gjöf en ekki gjald. Fjáröflunaraðferðir NLFÍ Varðandi fjármál á Heilsuhælið undir tvo herra að sækja. Annars vegar heilbrigðisráðherra, sem segir því fyrir verkum og hins vegar dag- gjaldanefnd, sem metur kostnaðinn við verkið. Full ástæða hefði verið til, að ríkisendurskoðun setti ofan í við daggjaldanefnd fyrir dómgreind- arleysi við mat á því sem teljast má eðlilegur rekstrarkostnaður. Mat daggjaldanefndar á eðlilegum rekstr- arkostnaði hælisins hefur alltaf verið of lágt miðað við kröfur heilbrigðis- ráðuneytisins um faglega þjónustu. Fjáröflunaraðferðir Náttúrulækn- ingafélagsins hafa aiia tíð miðast við að bjarga rekstri Heilsuhælisins þannig að hægt væri að halda við húsum og auka og bæta þjónustuna. Það má til gamans geta þess, að þegar samið var við ríkið um dag- gjöld á sínum tímma, þá vildi Nátt- úrulækningafélagið fá greitt fyrir húsaleigu, þ.e.a.s. það vildi fá ein- hvern arð af því fé, sem bundið var í húsakosti staðarins. Heilbrigðis- ráðuneytið vildi ekki ganga að því. Náttúrulækningafélagið fór þá að taka gjald fyrir heitt og kalt vatn með heimild ráðuneytisins. Skilning- ur Ríkisendurskoðunar á þessari heimild til orkuöflunar og orkunýt- ingar er sá, að hún sé veitt í því skyni að tryggja hælinu hitaorku á kostnaðarverði. Þarna greinir menn á og það liggur ekki ljóst fyrir að ríkisendurskoðun hafi þar rétt fyrir sér. Náttúrulækningafélagið hefur selt ríkinu tiltekna þjónustu um áratuga- skeið og ef félagið hefði ekki fundið leiðir til að bæta upp hið lága verð, sem ríkið var reiðubúið að greiða fyrir þá þjónustu, þá hefði reksturinn fyrir löngu verið kominn í þrot. Sjúkl- ingum, sem óska að dvelja á hælinu, hefur íjölgað í tímans rás, og því hefði ríkið að öllum líkindum séð sér hag í því að yfírtaka reksturinn og koma honum inn á fjárlög, fremur en láta loka hælinu. Þannig fór reyndar fyrir mörgum sjálfseignar- stofnunum í heilbrigðisþjónustunni. Ríkið keypti þjónustu þeirra langt undir kostnaðarverði og yfirtók síðan reksturinn, þegar í óefni var komið. Það er erfitt að sjá fjárhagslegan hag ríkisins í þess háttar viðskiptum, en með því móti fékk heilbrigðisráðu- neytið óskorað vald til íhlutunar um rekstur stofnananna. Mér er til efs að ríkið gæti rekið Heilsuhælið á þeim daggjöidum, sem Náttúrulækningafélagið má sætta sig við í dag. Enginn gististaður rís undir því að selja gistingu og fæði undir 4.000 kr. pr. dag hvað þá með innifalinni endurhæfingu eða líkams- rækt undir faglegu eftirliti og lækn- isskoðun. Daggjaldanefnd ætlast samt til að Náttúrulækningafélagið geri þetta, og Ríkisendurskoðun vill loka þeim leiðum, sem NFLÍ hefur farið til að bjarga rekstrinum. Þessar fjáröflunarleiðir voru í upphafí sam- þykktar af yfírvöldum enda hafa þær komið sérlega vel út fyrir ríkið. Fjárfestingar Eitt atriði í gagnrýni Ríkisendur- skoðunar beinist að fjárfestingum Náttúrulækningafélagsins til að bæta aðstöðuna í Hveragerði og á Akureyri. Telur hún óeðlilegt að sjúkrahús innheimti daggjöld af sjúklingum í þeim tilgangi. Eg tek undir það sem meginreglu, að ríkið mismuni ekki fólki, en ef ríkið býður upp á ókeypis þjónustu, þá verður það einnig að sjá sóma sinn í því að greiða fyrir hana. Þar sem ríkið hef- ur ekki borgað þá þjónustu, sem það kaupir af Náttúrulækningafélaginu og býður upp á á Heilsuhælinu, hafa dvalargestir orðið að greiða mismun- inn sjálfir. Náttúrulækningafélagið hefur selt viðamikla þjónustu til ríkisins í mörg ár og lagt til húseignir, húsmuni og tæki. Óeðlilegt getur það ekki talist, að það skuii hafa haft einhvern arð af iðju sinni til viðhalds og viðbygg- ingar. Slíkar forsendur eru yfirleitt lagðar til grundvallar, þegar verðlögð SIEMENS Með SIEMENS heimilistœkjum verður lifið lettara! Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið! • Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6. • Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13. • Borgarfjöröur: Rafstofan Hvítárskála. • Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25. • Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42. • Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7. • Búöardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12. • ísafjöröur: Póllinn hf„ Aðalstræti 9. • Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1. • Sauöárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1. • Siglufjöröur: Torgið hf., Aðalgötu 32. • Akureyri: Sír hf„ Reynishúsinu, Furuvöllum 1. • Húsavík: Öryggi sf„ Garöarsbraut 18a. • Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3. • Neskaupstaður: Rafaida hf„ Hafnarbraut 24. • Reyðarfjörður: Rafnet, Búðareyri 31. • Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1. • Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13 • Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43. • Vestmannaeyjar: Tréverk hf„ Flötum 18. • Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4. • Selfoss: Árvirkinn hf„ Eyrarvegi 29. • Garöur: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2. • Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.