Morgunblaðið - 22.05.1991, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 22.05.1991, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1991 Svar Flugleiða um gjaldskrárhækkanir til Flugeftirlitsnefndar: Afgreiðslugjöld hækkuðu um 25% og akstursgjöld um 59% á síðastliðnu ári Flutningsgjöld hækkuðu um 7 - 22% SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ hefur sent Félagi íslenskra stórkaup- manna niðurstöðu Flugeftirlitsnefndar á athugun á hækkun farm- gjalda og afgreiðslu- og þjónustugjalda hjá Flugleiðum en fjórtán innflytjenda kvörtuðu við ráðuneytið í febrúar sl. og töldu hækkan- —^ir þessara gjalda óeðlilega miklar. I niðurstöðunni er vísað til umsagn- ar Flugleiða til nefndarinnar þar sem fram kemur að farmgjöld hafi hækkað allt að 22% eða um 14,5% að meðaltali frá 1. septemb- er 1990 - febrúarloka sl. Afgreiðslugjöld hafi hækkað um 25% og akstursgjöld um 59% á síðasta ári. Að sögn Halldórs S. Krisljánsson- ar, skrifstofustjóra samgönguráðuneytisins, mælti nefndin með að umsögn Flugleiða yrði send Félagi stórkaupmanna og sagði hann að ekki væri ástæða til að aðhafast frekar í málinu af hálfu ráðu- neytisins að sinni. Stefán Guðjónsson hjá Félagi stórkaupmanna sagði að félagið hefði gert könnun meðal félags- manna í kjölfar kvörtunar innflytj- endanna fjórtán og komist að þeirri niðurstöðu að kvartanir þeirra ættu við rök að styðjast. Var því send fyrirspurn til samgönguráðuneytis- r ins um málið sem svaraði félaginu með því að senda því umsögn for- stjóra Flugleiða. Innflytjendunum sem sendu kvörtunina hefur hins vegar ekki borist svar ráðuneytis- ins. Innflytjendurnir töldu í kvörtun sinni til ráðuneytisins að hækkanir á farmgjöldum Flugieiða hefðu numið 40% frá í ágúst á síðasta ári og hækkanir á afgreiðslugjöld- um og akstri hefðu numið allt að 80% á sama tíma. Félag stórkaup- manna komst að þeirri niðurstöðu að afgreiðslu og þjónustugjöld sam- kvæmt gjaldskrá Flugleiða hefðu hækkað allt að 60% og fraktflutn- ingagjöld um allt að 37% á síðasta ári. Taldi félagið þessar hækkanir óeðlilega miklar í samanburði við hækkun almenns verðlags og að teknu tilliti til olíuverðshækkana. Ennfremur var kvartað undan seinagangi í afgreiðslu, að sending- ar væru oft lengi að berast til lands- ins og að þjónusta á þeim leiðum sem Arnarflug hafði áður hefði versnað verulega. Taxtar afgreiðslu og þjónustu- gjalda þurfa samþykki verðlags- stjóra en innflytjendur semja síðan um afslætti á gjöldunum og telja þeir að flutningsgjöldin hafi hækk- að óeðlilega þrátt fyrir minni taxta- hækkanir. í svari Sigurðar Helgasonar, for- stjóra Flugleiða, kemur fram að hækkanir á flutningsgjöldum til landsins hafi verið á bilinu 7 - 22% en 3,3% frá landinu. Segir hann að þessar hækkanir séu eðlilegar með tilliti til olíuverðshækkana og sam- þykkis IATA. Segir hann að erlend- ir flugleyfishafar hafi sjálfír ákvörðunarrétt um skráningu flutn- ingsgjalda til íslands og því væri óeðlilegt ef Flugleiðir yrðu að sæta takmörkunum sem gengju gegn ákvörðunum IATA og annarra flu- gleyfishafa varðandi farmgjöld. Birgir Þorgilsson formaður Flugeft- irlitsnefndar, gerði athugasemd við þetta atriði í niðurstöðu nefndarinn- ar og segir að samkvæmt loftferða- samningi íslands við t.d. Danmörku sé gert ráð fyrir að samið sé um farmgjöld á vettvangi IATA en þeir séu jafnframt háðir samþykki flug- málayfirvalda landanna. Segir hann að þó að t.d. SAS þurfi ekki á slíku samþykki að halda í sínum heimal- öndum sé honum ekki kunnugt um að íslensk stjórnvöld hafi afsalað sér þessum rétti enda væri hættu- legt ef ákvörðunarréttur um farm- gjöld frá Kaupmannahöfn til ís- lands væru alfarið í höndum SAS. Forstjóri Flugleiða segir að hækkanir á afgreiðslugjöldum og akstri á síðasta ári hafi verið innan eðlilegra marka því þessi gjöld hafi ekki tekið hækkunum í mörg ár. Þá getur hann þess að Arnarflug hafí tekið verulega hærri gjöld fyr- ir þessa þjónustu en Flugleiðir á meðan það var í flugrekstri og ekki hafi verið gerðar athugasemdir við það. Hafnar forstjórinn því enn- fremur að þjónusta hafi versnað og getur þess að þjónustuþættir frakt- starfseminnar hefí verið í rækilegri endurskoðun og í gangi sé þjón- ustuátak og hagræðingaraðgerðir Jtil hagsbóta fyrir viðskiptavini fé- lagsins. Stefán Guðjónsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að niðurstaða Flugeftirlitsnefndar hefði ekki verið tekin fyrir á stjórnarfundi hjá Fé- lagi stórkaupmanna en hann bjóst við að það yrði gert bráðlega. „Það hefur ekkert gerst sem hefur breytt skoðun okkar um hækkun flutn- ingsgjaldanna," sagði hann. FORELDRAR V. V / ■O" / v ^MILINU ^ÁGUM Á sjöunda starfsári okkar bjóðum við upp á fjölbreytta og vandaða dagskrá undir stjórn reyndra leiðbeinenda: Reiðnámskeið, íþróttir, ieiki, sveitastörf, siglingar , sund, kvöldvökur o.fl. VERÐ: í tilefni þjóðarsáttar höldum við verðinu óbreyttu frá því í fyrra: 1 vika kr. 15.800, 2 vikur kr. 29.800. Staðfestingargjald fyrir 1 viku kr. 5.800, fyrir 2 vikur kr. 9.800. Systkinaafsláttur: 1 vika kr. 1.200, 2 vikur kr. 2.400. TÍMABIL: 2. júní - 8. júní, I vika 9. júní -15. júní, 1 vika 16. júní - 22. júní, 1 vika 23. júní - 29. júní, 1-2 vikur 29. júní - 6. júlí, 1 vika 7. júlí - 13. júlí, 1 vika 14. júlí - 20. júlí, I vika 21. júlí - 27. júlí, 1-2 vikur 27. júlí - 2. ágúst, 1 vika 5. ágúst -11. ágúst, 1 vika 11. ágúst - 17. ágúst, 1 vika Innritun fer fram á skrifstofu SH Verktaka, Stapahrauni 4, Hafnarfirði. SIMI 65 22 21 Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Litið inn í gamla Austurbæinn á Selfossi. Barnaskólinn á Selfossi: Ljósi brugðið á um- hverfið og söguna Vel heppnuð þemavika nemenda og kenn- ara í tilefni 100 ára afmælis Ölfusárbrúar Selfossi. SEX þingmenn með pípuhatta, ekki mjög háir í loftinu, hjálpuðust að við að klippa á borða sem strengdur var yfir annan enda stórs líkans af Olfusárbrú. Að því búnu gengu þeir yfir brúna og mann- fjöldinn fylgdi á eftir. Áður en þetta var höfðu piltur og stúlka flutt nokkur ávarpsorð í tilefni vígslu brúarinnar og opnunar sýn- ingarinnar Árdaga í Barnaskóla Selfoss. Sýningin var framlag skólans á 100 ára afmælisári Ölfusárbrúar en í tilefni þess smíðuðu nemendur og kennarar meðal annars líkan af Ölfusárbrú. Með brúnni lögðu nemendur áherslu á það að bygging brúarinnar mark- aði upphaf þéttbýlismyndunar á Selfossi. Sýningin var afrakstur þema- viku í skólanum þar sem nemendur tóku fyrir sögu byggðarinnar, Ölf- usá og umhverfi hennar. Á sýning- unni sem sett var upp í skólanum mátti sjá Selfoss í árdaga og skip- an byggðarinnar í dag. Þetta sýndu börnin með haganlega gerðum líkönum og uppdráttum. Umhverfismál skipuðu veglegan sess á sýningunni. Sjá mátti af- rakstur rannsóknarferða barnanna um nágrenni Selfoss og með bökk- um Ölfusár. Kom þar greinilega fram áhersla þeirra og skilningur á hreinu og ómenguðu umhverfi. Ornefni og saga byggðarinnar voru á snum stað og stór örnefna- kort prýddu veggi á sýningunni. Einum sýningargesta varð að orði þegar hann skoðaði eitt kortið: „Og ég sem hélt að hérna í kring væri ekkert merkilegt." í samkomusal skólans var útbú- inn veitingasalur og þar gekk þjón- ustufólk um beina líkt og gerðist í Tryggvaskála forðum daga. Öðru hveiju komu þar fram ungir lista- menn sem spiluðu og dönsuðu. Velflestir sýningargestir settust niður í veitingasalnum og þágu það Setið undir Aski Yggdrasils. Þingmenn með pipuhatta gengu í fararbroddi yfir Ölfus- árbrúna að vígslu lokinni. sem á boðstólum var, vöfflur með ijóma, kaffi eða svaladrykk. Á útisvæði skólans voru auk brúarinnar tré í pottum, Askur Yggdrasils og líkan af Selfossbæn- um. Börnin fylgdust grannt með sýningargestum og hvarvetna mátti heyra og sjá nemendur kynna sýningargripi fyrir skyld- mennum sínum. Þakkarbréf hékk uppi á vegg frá Vigdísi Finnbogadóttur forseta sem var ásamt fjölmörgum gestum boðið að koma á sýninguna en hún komst ekki vegna anna. Skóla- stjórnin hefur í huga að varðveita sýningargripina fram á haust en þá er fyrirhugað að minnast 100 ára afmælis brúarinnar með sér- stakri dagskrá 1. til 8. september. Þemavikan náði greinilega til- gangi sínum, hún virkjaði nemend- ur til rannsókna á eigin umhverfi og til umhugsunar um byggðarlag sitt, sögu þess og sérkenni. En þetta hefði ekki getað gerst nema kennarar og starfsfólk skólans hefði verið tilbúið leggja sál sína í verkið. Sig. Jóns. m tKgttitpiðfeift | Meira en þú geturímyndad þér!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.