Morgunblaðið - 22.05.1991, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKÚDÁGUR 22. MAÍ 1991
fyrir:
>
★ Miöstöövarlagnir
★ Kaldavatnslagnir
★ Kæli' og frystilagnir.
VATNSVIRKINN/if
taMÚU 21 - PÓSTHOLF 8620 - 128 REYKJAVlK
SlMAR: VERSIUN 686455. SKRtFSTOfA 685966
Pökkunar-
límbönd
ÁRVÍK
ÁRMÚU 1 - REYKJAVÍK - SÍMI 687222 -TELEFAX 687295
RAYMOND WEIL
GENEVE
L E TEMPS CRÉATEUR
OTHELLO
Þunn; aðeins 3,5 ram,
vatnsþétt, handunnin,
ól og kassi með 18 K. gullhúð.
Útskriftargjöfin í ár
MEBA,
úra- & skartgripaverslun
Kringlunni, sími 31199
fclk í
fréttum
Börn og fullorðnir skemmta sér
yfir einu sviðsatriðinu.
AFMÆLI
Hvassaleitisskóli
25 ára
Hvassaleitisskóli hélt upp á 25
ára afmæli sitt fyrir nokkru
og heppnuðust hátíðarhöldin einkar
vel, að sögn Kristjáns Sigtryggs-
sonar skólastjóra. Sagði Kristján
að foreldra- og kennarafélagið
hefðu sýnt stórhug, konurnar hafi
annast ókeypis veitingar fyrir sýn-
ingargesti með fjölbreytilegu hlað-
borði. Ennfremur hafi stjórn félags-
ins staðið fyrir fjáröflun til tölvu-
kaupa fyrir skólann og söfnuðust
þannig um 500 þúsund krónur.
Borgin leggi á móti aðra hálfa millj-
ón og með þeirri upphæð verði fest
kaup á 10 Macintosh-tölvum. Heim-
ili nemenda lögðu og fram 1.000
krónur hvert, alls um 168 þúsund
krónur og allmörg fyrirtæki og
stofnanir lögðu einnig hönd á plóg-
inn.
Sýningin sem um ræðir var
margþætt og vel heppnuð. Til dæm-
is má nefna að í skólastofum var
sýning á vinnu nemenda, lesnar
voru frumsamdar sögur nemenda,
samleikur á blokkflautur var flutt-
ur, ljóð og leikþættir voru fluttir,
hannyrða- og smíðavörur voru
sýndar og margt, margt fleira.
Aætlaður fjöidi sýningargesta var
um 2.000 talsins, en afmælishátíðin
stóð yfir daganna 4. og 5. maí. í
sýningarskrá er eftirfarandi varpað
fram: Skólastarf lætur ekki mikið
yfir sér í önn hversdagsins. Þeir sem
stunda sína vinnu án verulegs sam-
bands við skólann spyrja stundum:
„Hvað gera börnin í skólanum?"
Þeirri spurningu var svarað á af-
mælishátíð Hvassaleitisskóla.
SKEMMTIFERÐ
Kalt sjávarréttahlaðborð beið
þeirra Lionsbræðra í 700 metra hæð
og að sjálfsögðu var matast þarna
á klakanum. Síðan var sólað sig og
unað fram eftir degi við vélsleða
og skíðaiðkanir. Þarna eru glæsi-
legar brekkur og færi í allar áttir,
má m.a. þeysa vestur á Hvanna-
dalshnjúk í fylgd leiðsögumanna ef
tími leyfir.
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Lionsmenn gæða sér á sjávar-
réttahlaðborðinu í 700 metra
hæð á Skálafellsjökii.
Farið var upp í u.þ.b. 1300 m
hæð og horft ofan í dali Suðursveif-
ar, sem margur segir að sé einna
tilkomumesta sjón á íslandi.
Mikil ánægja var með dvölina á
þessum fagra og óvenjulega stað
og var stigið á stokk og strengt
þess heit að endurtaka þessa ferð
síðar.
Þeir í Jöklaferðum hf. undirbúa
nú skálabyggingu þarna á næstu
vikum með gisti- og veitingaað-
stöðu og ferðir verða á jökul frá
Hótei Höfn á degi hveijum í sumar.
Um 3.000 manns komu á jökul-
inn sl. sumar og er spáð mikilli
ijölgun jökulfara, enda mikið verið
pantað.
- Einar.
Morgunblaðiö/Einar Jónsson
COSPER
11710
PPIB
;0SPER
Kálfafellsstað, Suðursveit.
Lionsmenn á Höfn héldu sinn
síðasta fund á starfsárinu
laugardaginn 4. maí sl. Að þessu
sinni var honum fundinn staður á
Skálafellsjökli, Suðursveit, í sól og
veðurblíðu. Undirbúningur og að-
staða var á hendi Jöklaferða hf.,
Höfn, en félagið hefur aðstöðu
þarna á Hálsaskeri vð jökulsporð-
inn, snjóbíl og 12 sleða.
Sjávarréttahlaðborð í 700 metra hæð