Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1991 31 30 Jtfotnguuftlftfrt Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. MatthíasJohannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Stuðningur almennings forsenda árangurs Með þeim aðgerðum í ríkisfjár- málum og efnahagsmálum, sem kynntar voru á dögunum tók Friðrik Sophusson, fjármáláráð- herra, fyrsta skrefið til að snúa við þeirri þróun, sem verið hefur í ríkis- fjármálum í mörg undanfarin ár. Þetta var lítið skref en það skipti verulegu máli, að hin nýja ríkis- stjórn sýndi strax á fyrstu vikum valdaferils síns að hverju hún stefnir. Það á eftir að koma í Ijós, hvort þessi niðurskurður tekst í reynd. Margir efast t.d. um, að það takist að draga úr útgjöldum til heilbrigðismála um 500 milljónir á þessu ári. En takist ríkisstjórninni ekki að framkvæma minniháttar samdrátt í ríkisútgjöldum það sem eftir er af þessu ári, er auðvitað engin von til þess, að hún ráði við meiriháttar átök á næstu árum. Margar ríkisstjórnir hafa boðað samdrátt í ríkisútgjöldum eða a.m.k. stöðvun á aukningu ríkisút- gjalda á undanfömum ámm og raunar áratugum. Segja má, að engri ríkisstjóm hafi tekizt að ná markverðum árangri að þessu leyti síðustu tvo áratugi. Sumar þeirra hafa haft vilja til að framkvæma þetta verk en ekki haft pólitískt bolmagn til þess. Það er mikil- vægt, að fjármálaráðherra og sam- starfsmenn hans geri sér grein fyr- ir því strax í upphafi, að hér er um gífurlega erfitt verkefni að ræða og jafnframt, að þeir leitist við að skilgreina þann vanda, sem forverar þeirra í starfí hafa staðið frammi fyrir. í hvert sinn, sem gerð er tilraun til að hemja útgjöld ríkisins rísa upp hagsmunasamtök, talsmenn einstakra landshluta eða byggða, alþingismenn, fagráðherrar og fleiri og segja, að ekki komi til greina að skera niður þennan út- gjaldalið eða hinn. Fjölmiðlar sýna mótmælunum stundum meiri áhuga en verkinu sjálfu. Ein helzta forsenda þess, að takast megi að ná árangri er að íjármálaráðherra fái almenning í landinu til liðs við sig. Þess vegna þarf Friðrik Soph- usson að veija verulegum tíma á fyrstu mánuðum ráðherraferils síns til þess að kynna fyrir fólki sjónar- mið sín og skoðanir og afla þeim fylgis meðal almennings. Hags- munasamtökin og aðrir andmæl- endur niðurskurðar þurfa að fínna, að fólkið stendur með fjármálaráð- herra og ríkisstjórninni en ekki á móti þeim, þegar um er að ræða að hemja eyðsluna í opinbera kerf- inu. Með sama hætti og stuðningur almennings er forsenda árangurs er nauðsynlegt, að fjármálaráð- herrann og ríkisstjómin átti sig á, að þetta verk verður ekki unnið í einu áhlaupi. Það skiptir meira j máli, að mikill árangur hafi náðst við lok kjörtímabils en hversu langt verður gengið í upphafí. Þess vegna er skynsamlegt að líta svo á í fyrstu atrennu, að um sé að ræða niður- skurð á fjárlögum fjögurra ára og að ríkisstjórnin setji sér ákveðin markmið fyrir hvert ár fyrir sig. í fjárlagafrumvarpi því, sem Friðrik Sophusson leggur fyrir Al- þingi í haust þurfa að vera sann- færandi tillögur um niðurskurð á næsta ári en jafnframt vísbending um, hvert ríkisstjórnin stefnir á kjörtímabilinu í heild. Þetta þýðir, að mikilvægar ákvarðanir þarf að taka á næstu þremur mánuðum vegna þess, að meginlínur fjárlaga- frumvarps fyrir næsta ár þurfa að liggja fyrir síðla sumars. Og til þess að slíkar tillögur liggi fyrir í haust þarf mikið verk að vinna í sumar, einmitt á þeim tíma, þegar embættismenn og stjórnmálamenn, eins og aðrir þjóðfélagsþegnar taka sér sumarfrí. Hins vegar má full- yrða, að liggi slíkar tillögur ekki fyrir í haust hafi þessi ríkisstjóm misst af strætisvagninum varðandi ríkisútgjöldin, sem eru kjarni þess efnahagsvanda, sem þjóðin stendur frammi fyrir nú. Sumir spyija, hvort of mikið sé hugsanlega gert úr vanda ríkisfjár- mála. Svarið við slíkum athuga- semdum er einfalt. Ef ekki væri um að ræða mikinn hallarekstur á ríkissjóði o g mikla fjárþörf húsnæð- islánakerfísins væru vextir ekki að hækka eins og nú er að gerast. Yaxtahækkanir þýða kjaraskerð- ingu fyrir einstaklinga vegna hús- næðislána og aukin útgjöld fyrir fyrirtæki, sem kunna að hyggja á fjárfestingar eftir samdráttarskeið síðustu ára. Margir hafa takmarkaða trú á því, að þessari ríkisstjóm takist að ná tökum á vanda ríkisfjármál- anna. Ástæðan fyrir þeirri vantrú er hvorki þeir flokkar sem að stjórninni standa né þeir menn, sem skipa ráðherraembætti heldur ein- faldlega, að þetta hefur ekki tekizt að nokkru ráði síðustu tuttugu ár. En sennilega hefur vandi ríkisfjár- mála ekki verið jafn augljós og nú og fáar ríkisstjórnir, sem hafa komizt til valda á þessu tímabili, hafa verið jafn staðráðnar í að taka á þessum vanda og núverandi ríkis- stjórn. Þá ber að hafa í huga, að Sjálf- stæðisflokkurinn er siðferðilega skuldbundinn til þess að tryggja skattalækkun á kjörtímabilinu og slík skattalækkun getur ekki náð fram að ganga nema ríkisstjórninni takist að hemja ríkisútgjöldin. Það er því til mikils að vinna fyrir Sjálf- stæðisflokkinn að sýna, að hann geti staðið við orð sín bæði að því er varðar niðurskurð ríkisútgjalda og skattalækkanir. Þessum árangri er hægt að ná, ef fólkið í landinu veitir ríkisstjórn- inni og fjármálaráðherra öflugan stuðning til þess að vinna þetta verk. Eftir þeim stuðningi eiga fjár- málaráðherra og ríkisstjórnin í heild að leita. Arsfunclur Alþjóðahvalveiðiráðsins hófst í gær í Reykjavík: Ákvarðanir á þessum fundi hafa djúpstæð áhrif á framtíð ráðsins - sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra í setnignarræðu Morgnblaðið/Bjarni Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra við opnun 43. ársfundar Al- þjóðahvalveiðiráðsins, ásamt Sture Irberger forseta ráðsins og Ray Gambell framkvæmdastjóra þess. ÞORSTEINN Pálsson sjávarút- vegsráðherra gaf sterklega í skyn, við upphaf ársfundar Al- þjóðahvalveiðiráðsins í Reykjavík, að Islendingar myndu segja sig úr ráðinu, ef það ynni ekki í samræmi við stofnsamning sinn og heimilaði veiðar á hvölum úr stofnum sem þyldu nýtingu. „Ríkisstjórn íslands tekur að þær ákvarðanir sem ráðið tekur á þess- um fundi muni hafa djúpstæð áhrif á framtíð stofnunarinnar. Á þessum fundi mun ráðið fá til umfjöllunar tillögur aðildarríkja um framhald frumbyggjahvalveiða og um að hefja á ný hvalveiðar í vísinda- skyni. Það sem úrslitum ræður verður hvort ráðið metur þessar til- lögur í samræmi við ákvæði stofn- samningsins og viðauka við hann að teknu tilliti til ráðgjafar vísinda- nefndarinanr og niðurstöðu mats um stofnstærðir," sagði Þorsteinn Pálsson í opnunarræðu sinni. Síðar í ræðunni sagði hann, að ef hvalveiðiráðið væri ekki reiðu- búið að taka hlutverk sitt alvarlega myndu aðildarríki Hafréttarsátt- málans neyðast til að leita annað til að fullnægja skyldum sínum til að vinna saman á vettvangi viðeig- andi alþjóðlegrar stofnunar til að stjórna nýtingu hvala. Rætt hefur verið í þessu sam- bandi um Alþjóðahafrannsóknar- ráðið, ICES, og hafa svonefnd Sam- tök um nýtingu og rannsóknar á sjávarspendýr í Norður-Atlantshafi, sem stofnuð voru á síðasta ári, átt nokkuð samstarf við ICES. Þegar Morgunblaðið spurði Þorstein hvort líklegt væri að önnur samtök en hvalveiðiráðið fengju alþjóðlega við- urkenningu sem hvalveiðistjómun- arsamtök, sagði hann að allt of snemmt væri að vera með getgátur um slíkt. í ræðu sinni sagði Þorsteinn, að það hefði valdið sér vonbrigðum að frétta, að lagt hefði verið að ríkis- stjórnum nokkurra aðildarríkja að leggjast gegn því að hvalveiðar í atvinnuskyni hæfist á ný um ófyrir- sjáanlega framtíð, og beita til þess ýmsum aðferðum sem ekki gætu talist ábyrg stjórnun á grundvelli stofnsamningsins. Slíkt myndi leiða til þess að ráðið þyrfti í störfum sínum að fást við atriði sem ætlað væri að koma í veg fyrir vísindalega stjórnun hvalveiða. „Ég get aðeins fullyrt, að ef þetta verður ofaná muni líkur á samvinnu innan Al- þjóðahvalveiðiráðsins hverfa með öllu jafnhliða því sem von um virka vernd og stjórnun á grundvelli stofnsamningsins brygðist,“ sagði Þorsteinn. Samstaða í vísindanefnd um veiðistjórnunartillögu Undanfarin ár hefur vísinda- nefnd hvalveiðiráðsins endurskoðað veiðistjórnunarreglur. Nefndin á- kvað á fundi sínum í síðustu viku að mæla með einni ákveðinni tillögu að stjórnunarkerfí við ráðið, en fimm mismunandi tillögur hafa ver- ið prófaðar af undirnefndum. Ef hvalveiðiráðið fellst á tillöguna á fundi sínum nú, gæti vísindanefndin hugsanlega á grundvelli hennar lagt til hrefnuveiðikvóta fyrir ísland á næsta ári. Jóhann Siguijónsson fulltrúi ís- lands í vísindanefndinni sagði við Morgunblaðið að það hefði komið verulega á óvart, að nefndin hefði náð nokkuð góðri einingu um eina tiltekna aðferð, þar sem venjulega væru margar skoðanir uppi innan nefndarinnar í mikilvægum málum. „Okkur finnst þessi aðferð viðun- andi þótt við sjáum á henni galla,“ sagði Jóhann. Hann bætti við, að samkvæmt henni myndi ísland væntanlega fá hrefnukvóta en óljóst væri með langreyði. ísland hefur óskað eftir því að hvalveiðiráðið úthluti á yfirstand- andi fundi veiðkvóta á 92 langreið- um og 192 hrefnum á grundvelli bráðabirgðatillögu um stjórnunar- aðferðir. Þorsteinn Pálsson sagði raunar að í ræðu sinni, að af Is- lands hálfu væri enn talið að núgild- andi stjórnunaraðferðir ætti að nota þar til ráðið hefði gert á þeim breyt- ingar, en lagði um leið áherslu á þörfína á að ljúka vinnu við endur- skoðun stjórnunaraðferðanna án tafar. Vísindanefnd hvalveiðiráðsins fjallaði um ofangreindar tillögur Islendinga á fundi sínum fyrir viku; en tók ekki afstöðu til þeirra. I skýrslu nefndarinnar kemur fram, að verulegur ágreiningur hafí verið í nefndinni hvort ræða ætti íslensku áætlunina og skoðanir hafi verið skiptar. Raktar eru þær skoðanir sumra nefndarmanna, að þessar bráða- birgðaaðferðir íslendinga hafí ekki verið prófaðar nægilega og brjóti jafnframt í bága við markmið hval- veiðiráðsins um stjórnun. Á hinn bóginn héldu aðrir nefndarmenn því fram, að fyrirhuguð veiði myndi engin áhrif hafa á hvalastofnana og því hefði enginn mótmælt. Þá ' væri nefndinni skylt að taka afstöðu til tillagna Islands þar sem ljóst væri að endurskoðaðar stjórnunar- reglur tækju ekki gildi fyrir en 1992-93. í skýrslunni kemur fram að nefndin vísar í raun málinu til ráðsins, og í dag er fyrirhugað að halda sérstakan fund íslenskra vísindamanna með formönnum sendinefnda ráðsins þar sem tillög- ur íslendinga verða útskýrðar. Mismunandi upplýsingar um stöðu hvalastofna Þorsteinn Pálsson sagði í ræðu sinni, að mat á hvalastofnunum hefði leitt í ljós að sumir stofnanna, þar á meðal hrefnur í SuðurÚshafi og á hafsvæðinu umhverfís ísland, væru í góðu ástandi og stofnstærð- araaukning hefði verið a.m.k. 3-4% á ári, jafnvel þótt stofnarnir hefðu verið nýttir að einhveiju marki. Á blaðamannafundi, sem sam- tökin Worldwide Fund for Nature héldu í gær, var þessu hins vegar mótmælt. Nokkrir meðlimir vísinda- nefndar hvalveiðiráðsins, voru frummælendur á fundinum og sagði Sidney Holt, einn þeirra, að upplýs- ingar um stærð hvalstofna við ís- land væru allt of ófullkomnar til að hægt væri að nota þær sem rétt- lætingu fyrir hrefnuveiðum í at- vinnuskyni. Á fundinum kom fram, að Worldwide Fund telur að hval- veiðibannið eigi að vara að minnsta kosti þangað til samþykktar hefðu verið öruggar stjórnunaraðferðir og mannúðlegar aðferðir við veiðarnar. Það er greinilegt á fundargögn- um að síaukin áhersla er lögð á umræðu um veiðiaðferðir. John Gummer landbúnaðarráðherra Bretlands, leggur til dæmis áherslu á það í skriflegri stefnuyfirlýsingu á fundinum að ráðið fjalli gaum- gæfilega um aðferðir við að drepa hvali. Hvalveiðiþjóðirnar líta á þetta sem enn eina aðferð hvalfriðunar- sinna til að koma hvalveiðiráðinu hjá því að taka afstöðu til hval- veiða, nú þegar hylli undir lok á mótun nýrra veiðistjómunarreglna. í fréttatilkynningu frá japanska hvaleiðisambandinu segir, að þetta mál sé þegar afgreitt eftir að hval- veiðiráðið lögleiddi notkun sprengi- skutla fyrir nokkrum árum. Japanir og Norðmenn Jeggja mikla áherslu á það, eins og íslend- ingar, að ráðið samþykki sem fyrst nýjar veiðistjómunarreglur og út- hluti veiðikvótum úr nýtanlegum stofnum. Ef marka má það sem áhrifamiklar þjóðir í hvalveiðiráð- inu, eins og Bandaríkjamenn, Bret- ar og Ástralir hafa sagt opinber- lega, er það þó ólíkleg niðurstaða af þessum ársfundi, í stefnuyfirlýs- ingu Bandaríkjanna segir til dæmis, að enginn tími hefði verið fyurír- fram ákveðinn til að aflétta hval- veiðibanninu, enda gæti það grafið undan því vísindastarfi sem þegar hafi verið unnið hjá ráðinu. Um leið óska Bandaríkin eftir endurnýj- un á sléttbaksveiðikvóta fyrir Esk- imóa í Alaska, en þær veiðar falla undir skilgreininguna frumbyggja- veiðar. Hafa Alaskaeskimótar feng- ið að veiða 44 sléttbaka árlega. Oljóst umboð dönsku fulltrúanna Kaupmannahöfn. Frá Nils Jergen Bruun, fréttaritara Morgunblaösins. SENDINEFND Danmerkur, þar með einnig Færeyja og Grænlands, á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins sem hafinn er í Reykjavík gengur klofin til leiks. Stjórnvöld í Kaupmannahöfn álíta að aðalfulltrúinn, Henrik Fischer, eigi að vera fulltrúi alls konungsríkisins - en það er hins vegar danska þjóðþingið sem ákveður hvaða stefnu hann skuli fylgja á fundi ráðsins. Danir fara með utanríkis- og varnarmál Færeyinga og Grænlendinga sem hafa að öðru leyti sjálfstjórn í málefnum sínum. Eining er sögð ríkja í sendinefnd- inni um að styðja þá ósk Grænlend- inga að fá að veiða sem svarar 670 tonnum á ári til innanlandsneyslu. Er það um 200 tonnum meira en núgildandi kvóti þeirra leyfir. Meirihluti á danska þjóðþinginu, þingmenn jafnaðarmanna, Só- síalíska þjóðarflokksins og Radikale venstre sem er miðjuflokkur, hefur á hinn bóginn ákveðið að Danir skuli styðja þau öfl sem vilja friða hvali og því krefjast þess að bann við veiðum í atvinnuskyni verði framlengt um eitt ár. Grænlending- ar og Færeyingar eru á öndverðum meiði við Dani í málinu. Undanfarn- ar vikur hafa fulltrúar þeirra í Dan- fnörku reynt að fá samþykkt nýtt hugtak, „small-type whaling", er nefna mætti til hagræðis „minni- háttarveiðar". Landstjórnirnar í Færeyjum jafnt sem Grænlandi eru sammála dönsku stjórninni um það hvaða skilyrði slíkar veiðar skuli uppfylla o g minnihlutastjórn íhalds- manna og Venstre vildi koma til móts við Færeyinga og Grænlend- inga og leggja hugmyndina fram á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins. Rétt áður en sendinefndin lagði af stað til íslands snerist áðurnefndur meirihluti í þjóðþinginu gegn þess- ari tillögu stjórnarinnar. Minniháttarveiðum er ætlað að verða mitt á milli raunverulegra veiða í atvinnuskyni og veiða Grfen- lendinga eins og þær voru uppruna- lega [strandveiða frumbyggja]. Þær voru til innanlandsneyslu eingöngu. Minniháttarveiðarnar verða að full- nægja fimm skilyrðum. l.Sanna verður að umrædd þjóð hafi stundað hvalveiðar lengi, frá því fyrir seinni heimsstyijöld. 2. Veiðarnar má aðeins stunda á litlum bátum er geta veitt einn til tvo hvali í hverri ferð og hvalina skal flytja í land. 3. Ekki má veiða meira en 1% af stofninum og umfangið má ekki verða meira en einn af hundraði veiðanna eins og þær voru að jafn- aði 1966-1986. 4. I stofninum sem veitt er úr skulu vera minnst 2.500 dýr. 5. Aðildarríkin sætta sig við að afurðirnar séu seldar en það verður að gera í samræmi við ákvæði Washington-sáttmálans um slík við- skipti. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR ;28. MAÍ 1991 Heilsuhælið 1 Hveragerði: Heilbrigðisráðherra gefur mánað- arfrest til að ráða nýja yfirlækna REKSTRARSTJÓRN Heilsuhæl- is Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði vék yfirlæknum hæl- isins, Snorra Ingimarssyni og Gísla Einarssyni, frá störfum á laugardaginn. í fréttatilkynn- ingu frá stjórninni segir, að ástæða uppsagnar þeirra sé sú, að þeir hafi farið út fyrir verk- svið sitt á hælinu og jafnframt unnið markvisst að því að rekstur þess verði tekinn úr höndum Náttúrulækningafélagsins. Sam- kvæmt tillögum Ólafs Ólafsson- ar, landlæknis, hefur Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, gefið rekstr- arstjórninni mánaðarfrest til að ráða í stöður læknanna, með því skilyrði að ekki verði teknir inn nýir sjúklingar á meðan. í fréttatilkynningu, sem er undir- rituð af Gunnlaugi K. Jónssyni, fyr- ir hönd rekstrarstjórnar Heilsuhæl- isins, segir að fljótlega eftir að yfír- læknarnir voru ráðnir hafi tekið að bera á því að þeir hafí farið út fyr- ir verksvið sitt til stjórnunar á rekstri hælisins. Vísað er til bréfs læknanna frá 2. maí síðastliðnum til heilbrigðis- ráðuneytisins, þar sem lagt er til að Heilsuhælinu verði breytt í sjálfs- eignarstofnun, þar sem félagasam- tök á borð við Krabbameinsfélagið, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Gigtarfélagið og fleiri ættu fulltrúa í stjórn. Enn fremur að tryggja verði að einn aðili nái aldrei framar þeim heljartökum á starfseminni og Ijármögnun hennar, svo sem raunin hafi orðið á með Náttúru- lækningasamtökin. I fréttatilkynningu rekstrar- stjórnarinnar segir að það sé aug- Ijóst, að vinnuveitandi geti ekki haft í þjónustu sinni launþega, sem vinni markvisst að því að atvinnu- reksturinn verði tekinn úr höndum vinnuveitandans. Rekstrarstjórnin hefði því á fundi sínum samþykkt að víkja yfírlæknunum þegar úr starfí hjá Heilsuhælinu. Hælið muni hins vegar starfa áfram eins og það hefur gert um áratugaskeið. Einn læknir sé þar við störf og standi vonir stjórnarinnar til að fleiri lækn- ar bætist við bráðlega. Stjórn Læknafélags íslands sam- þykkti á sunnudaginn ályktun vegna brottvikningar yfirlæknanna. Þar segir að ekki sé forsvaranlegt að á Heilsuhælinu dvelji veikt fólk og stjórnin beini þeim eindregnu tilmælum til lækna, að þeir sendi ekki sjúklinga til innlagnar þar, að óbreyttum aðstæðum. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu sé skylt að við allar sjúkrastofnanir starfi yfirlæknar til þess að þær megi starfa sem slíkar. Stjórn Læknafélagsins sagði jafnframt í ályktun sinni, að hún bæri fyllsta traust til yfirlæknanna, sem þarna hefði verið vikið úr starfi, bæði að því er varði faglega og stjórnunarlega hæfni. Stjórnin lýsi ábyrgð á hendur stjórnendum hæl- isins og hvetur heilbrigðisyfirvöld til tafarlausra aðgerða þannig að tryggð verði nauðsynleg umönnun þeirra sjúklinga, sem nú eru á hæl- inu. Ólafur Ólafsson, landlæknir, átti í gær, að beiðni heilbrigðisráðherra, bæði viðræður við stjórnendur Heilsuhælisins, starfandi lækni og hjúkrunarfoystjóra og fyrrverandi yfirlækna. í samtali við Morgun- blaðið sagðist hann hafa lagt frai i tillögu til ráðherra um þá lausr málsins, að gefa rekstrarstjóru hælisins mánaðarfrest til að ráða í stöður yfirlækna, með því skilyrði að ekki verði lagðir inn neinir nýir sjúklingar á þeim tíma. „Varðandi þær deilur sem átt hafa sér stað milli faglegra stjórn- enda og þeirra, sem reka stofnun- ina, þá gerum við þá kröfu, að fag- legt forræði verði í höndum lækna, eins og á öðrum stofnunum, sem falla undir lög um heilbrigðisþjón- ustu,“ segir Olafur Ólafsson. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst Morgunblaðinu ekki að ná sambandi við læknana tvo sem sagt var upp störfum um helgina. Þjóðleikhússljóri ómerkír uppsagnir arftaka síns: „Býst við að fá annað upp- sagnarbréf 1. september“ - segir Benedikt Árnason leikstjóri GISLI Alfreðsson, þjóðleikhússtjóri, hefur sent bréf til þeirra tíu ein- staklinga sem nýskipaður þjóðleikhússtjóri, Stefán Baldursson, sagði upp. I bréfinu dregur Gísli uppsagnirnar til baka og segir þær ómerk- ar í samræmi við skoðun menntamálaráðuneytisins og ríkislögmanns. Gísli neitaði að skrifa undir uppsagnarbréfin á sinum tíma og segir að Stefán hafi leynt sig því hverjum og hversu mörgum ætti að segja upp. Stefán segir að uppsagnirnar hafi verið gerðar í samráði við Gísla og að það hafi verið fyrir hans milligöngu að staðið var að þeim eins og gert var. Benedikt Árnason, einn þeirra sem sagt var upp, segist alltaf hafa verið viss um að uppsagnirnar væru ólögmæt- ar, en hann býst við að fá annað uppsagnarbréf 1. september þegar Stefán Baldursson tekur við starfi þjóðleikhússtjóra. „Ég staðfesti við viðkomandi á laugardaginn að uppsagnirnar væru ekki gildar," sagði Gísli í sam- tali við Morgunblaðið. „Ríkislög- maður úrskurðaði áður en gripið var til uppsagnanna að ég þyrfti að skrifa undir slíkar tilskipanir. Sá úrskuður kom ekki til mín, hann fór til Stefáns. Það var túlkað fyrir mér þannig að Stefán gæti ákveðið hveijum ætti að segja upp en ég ætti bara að kvitta undir. Ég neit- aði hins vegar að skrifa undir bréf- in,“ sagði Gísli. Gísli segist ekki hafa vitað hverjum og hve mörgum átti að segja upp „Ég hafði í sjálfu sér ekkert við það að athuga að Stefán ætlaði að gera breytingar, en hann hélt því leyndu fyrir mér hveijum hann ætlaði að segja upp og hversu mörg- um. Ég gerði því engar athuga- semdir við þetta fyrr en nöfn þeirra og fjöldi sem segja átti upp lá fyrir. Eg tel að samkvæmt samningum Starfsmannafélags ríkisstofnana (SFR) séu menn fastráðnir ef þeir hafa starfað í átta ár eða lengur. Þeim á ekki að segja upp nema það eigi að fækka í starfsliði hússins eða að þeim verði eitthvað á í starfi .sem. ekki er í bessu tilfellij“ sagði Gísli. Stefán sagði tíu starfsmönnum upp, sex leikurum, tveimur leik- stjórum auk markaðsstjóra og tón- listarastjóra hússins. „Ég vil ekki lýsa því í gegnum fjölmiðla hvað verður gert í þessu máli þann 1. september þegar ég tek við að fullu sem þjóðleikhússtjóri,“ sagði Stefán Baldursson í samtali við Morgun- blaðið í gær. Hann sagði að flestir teldu það eðlilegt að nýráðinn leikhússtjóri hefði með mannahald að gera á sínu tímabili en hinsvegar hefði það komið í ljós að lagaákvæðin væru ekki ótvíræð. Leitaði fyrst álits ríkislögmanns „Því er ekki að leyna að ég leit- aði álits ríkislögmanns áður en ég sagði fólkinu upp. í áliti hans kom fram að Gísli Álfreðsson ætti að skrifa uppá þessar uppsagnir með mér, en Gísli neitaði því. Hann leitaði lögfræðiálits hjá Sigurði Líndal og ber mér þau boð frá honum að það sé fyllilega nægi- legt að ég skrifi einn undir upp- sagnabréfín. Það er því í samráði við Gísla og fyrir hans milligöngu að það ei' gengið svona frá uppsögn- unum.. Báðir þjóðleikhússtjórarnir og Þjóðleikhúsráð voru í þeirri trú að þetta væri allt réttilega gert. Það að Gísli dregur uppsagnirnar til baka núna eru hans viðbrögð við úrskurði ráðherra, þó hann hefði getað ítrekað uppsagnirnar fyrir 1. júní og þar með leyst málið,“ sagði Stefán. „Við Gísli höfum verið sammála um hvernig verkaskiptingin ætti að vera, að hann beri alfarið ábyrgð á því leikári sem er að-líða og ég á því leikári sem fer í hönd. Allt skipu- lag fyrir næsta leikár hefur verið á mínum höndum og hann hefur hvergi komið þar nærri, en nú þarf hann að staðfesta þá hluti, t.d. mannaráðningar og fleira," sagði Stefán. Grein Örnólfs talar fyrir sig sjálf Varðandi grein Örnólfs Árnason- ar í Morgunblaðinu á laugardaginn sagði Stefán: „Ég vil sem allra minnst segja um þessa grein, ég held hún tali fyrir sig sjálf. Það eru ákveðin atriði í henni sem ekki eru rétt. Eiginkona mín, Þórunn Sigurð- ardóttir var ráðin hér í vetur af Gísla Alfreðssyni til að leikstýra . ■ barnaleikriti. Það verk varð að víkja vegna Söngvaseiðs og Péturs.Gauts og var flutt yfir á haustið. Ég tók engar ákvarðanir um þetta. Varðandi leikritið eftir Þórunni þá höfðu ákveðnir aðilar í leikhús- inu lesið verkið áður en ég kom hingað, til dæmis Ámi Ibsen leik- listarráðunautur. Ég og leiklistar- ráðunautur lögðum síðan verkið fyrir verkefnavalsnefnd. Þar ríkti algjör einhugur um að reyna að fá verkið og þetta er athyglisverð yfir- lýsing sem kemur frá Benedikt Árnasyni um að svo hafi ekki ver- ið, en hann sagði sig úr nefndinni þegar honum var sagt upp,“ sagði . Stefán. ............ Þeir verkefnavalsnefndarmenn sem Morgunblaðið ræddi við í gær staðfestu þessi orð Stefáns. Skoð- anir hefðu að sjálfsögðu verið skipt- ar um ágæti verksins, eins og geng- ur og gerist með mat á leiritum, en það hefði verið samþykkt ein- róma að falast eftir verkinu. Hefði aldrei tekið verkið ef ég væri að hugsa um persónulega hagsmuni okkar Hann var spurður hvort ekki væri óeðlilegt af nýráðnum leikhús- stjóra að eiga svona mikil viðskipti við eiginkonu sína. „Ef ég væri að gæta persónu- legra hagsmuna okkar þá hefði ég aldrei tekið þetta leikrit til sýning- ar. Maður veit að það, að við skulum vera gift, býður upp á alls konar tal og óhróður. Þegar um er að ræða leikrit sem öllum í verkefnav- alsnefnd finnst það gott að leikhú- sið eigi að keppast við að ná því, þá verður maður að láta svona sjón- armið víkja og hugsa sem embættis- maður og leikhússtjóri, að ná í gott leikrit," sagði_ Stefán. Benedikt Ámason, einn þeirra sem sagt var upp störfum sagðist vera ánægður með að uppsagnirnar hefðu verið dregnar til baka enda hafi hann alltaf verið viss um að það yrði gert. Á von á að fá annað uppsagnarbréf 1. september „Við eigum reyndar von á að okkur verði aftur sagt upp störfum 1. september þegar Stefán tekur við stöðu þjóðleikhússtjóra. Hann hefur lýst því yfir að viðhorf hans til uppsagnanna hafi ekki breyst. Ef ekkert annað gerist fyrir þann tíma þá látum við reyna á það aft- ur hvort löglega sé að verki verið, og þá í gegnum samningana," sagði Benedikt og vísaði þar með í samn- inga SFR um átta ára starf og fast- ráðningu. Benedikt átti sæti í verkefnavals- nefnd þegar leikrit voru valin fyrir næsta leikár, m.a. leikrit Þórunnar, og segir hann að ekki hafi allir verið sammála um ágæti leikritsins. Aðspurður um hvort Stefán hefði komið með umrætt leikrit til nefnd- arinnat' Aagði..B,en.edikt. gyo. veta..
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.