Morgunblaðið - 28.05.1991, Síða 57
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
iiUtfUUA.
Ég hef undanfarið verið að lesa
Dagrenningu, rit sem Jónas Guð-
mundsson hinn ritsnjalli og hrein-
skilni maður hélt úti um 12 ára
skeið og fékk svo mikla útbreiðslu
að hún seldist upp í hvert skipti
sem hún kom út. Þar er m.a. hin
hreinskilna og sérstaka grein hans
Leyndardómur ofdrykkjunnar, þar
sem hann segir frá baráttu sinni
við áfengissýkina og hvernig hann
að lokum sigraði á þeim vett-
vangi, fyrir bæn til Jesú Krists.
Þett,a er stórkostlegt játning sem
mönnum nú á tímum væri hollt
að lesa og það með alvöru. Drott-
inn einn er fær um að frelsa.
Þeir eru margir í dag og þeim
fjölgar óðum sem verða undir í
baráttunni við Bakkus, menn sem
fóru með svo glæstar vonir inn í
framtíðina, ætluðu að verða landi
og þjóð til uppbyggingar og bless-
unar, en stóðust ekki freistingam-
ar, tískuna sem segir: Það gerir
þér ekkert þótt þú verðir með,
takir eitt staup. Og áður en varði
vom komnir inn í svartnætti það
sem Kristur varar við. Það eru
nógir til að bjóða og selja hinn
görótta drykk. Það eru nógir til
að vísa fólki inn á breiða veginn,
og fjandinn á sterka hersveit sem
skipuleggur freistingarnar og
kemur að úr öllúm áttum. Vamað-
arorð þurrkast út, því óvinurinn
hefir alltaf næga sjálfboðaliða.
Hugsa sér allar þessar veislur sem
hið opinbera stendur að og ég
hefi leyft mér að kalla: Drykkju-
skóla samfélagsins. Og það er
hann svo sannarlega. Það er sáð
í saklaus hjörtu og þó vita ráða-
menn þjóðarinnar að við höfum
ekki efni á að fóma öllum þessum
hóp á altari Bakkusar. En það eru
nógir til að halda hlífiskildi yfir
svona verknaði. Þetta þykir fínt,
og svo segir samtíðin: Eg á ekki
að gæta bróður míns. Sjáandi sjá
menn ekki, því miður. Benda á að
margir hafí sloppið. Já, svona er
nú þetta. Drykkjumannaheimilum
fjölgar ógeðslega sem samfélagið
verður að fjármagna, en það er
samt ekkert móti því að sjá þenn-
an hóp sem gistir þessi heimili há
vonlausa baráttu fyrir heilbrigðu
lífí. Baráttu sem almenningur
reynir í lengstu lög að loka augun-
um fyrir og þar ganga ráðamenn
þjóðarinnar með fána í stöng í
broddi fylkingar. Þetta þykir fínt
- og sjálfsagt.
Það er talað um að fjarlægja
hættumar og oft sjá menn það
að seint er að byrgja brunninn
þegar slysið er orðið. Þetta em
sannindi í lífínu. En hvernig er svo
háttað með vímuefnin. Það er
reynt að koma þeim eins nálægt
börnunum og frekast er unnt.
Menn em sporléttir að safna undir-
skriftum til að færa þetta eitur
nær. Blindir af ákafanum og sjá
ekki til framtíðarinnar. Koma
hættunum sem næst fólkinu og
þá er ekkert sparað. Og freisting-
arnar láta ekki standa á sér. Þetta
er staðreynd. Og svo.
Hvernig tekst til? Það segja
þeir kaupstaðir sem hafa fengið
Þessir hringdu ..
Ódrengileg skrif
Dísa hringdi:
„Ég er sammála Guðrúnu
Jacobsen sem skrifar greinina
„Ódrengilega vegið að Gísla á
Gmnd“ fímmtudaginn 23. mars.
Ég hef sjálf unnið á Gmnd og
séð afkomendur hans ganga þar
í hvaða störf sem er. Þótti mér
mjög leiðinlegt að sjá þessi
ódrengilegu skrif í Pressunni.“
Rafmagnsleysi
Guðni Jónsson, Keflavík-
hringdi:
„ Ég ætla að koma á framfæri
umvöndun við stjóm Hitaveitu
Suðumesja um það hvernig kom-
ið hefur verið fram við okkur
Suðumesjamenn upp á síðkastið.
Hitaveita Suðurnesja stendur sig
ágætilega með heita vatnið en
eins og allir á Suðurnesjum vita
sér Hitaveitan líka um dreifínu
rafmagns hér. Hvað rafmagnið
varðar hafa þeir ekki staðið sig
eins vel því það hefur stundum
verið tekið af fyrirvaralaust að
undanförnu. Fyrir skömmu tóku
þeir rafmagnið af milli kl. 24 og
kl. 3 um nótt. Þetta var á þeim
tíma sem Stöð 2 var með útsend-
ingar og reyndar var ég líka að
vinna með tölvu sem auðvitað
datt út í miðjum klíðum. Þetta
hefur gerst aftur og aftur og
stundum án nokkurra tilkynn-
inga. Svona framkoma samræm-
ist ekki nútímanum."
Heilsuhælið ekki spítali
Velunnari Heilsuhælisins í
Hveragerði hringdi:
„Mér er illa við að Heiluhælið
í Hveragerði eigi að kallast
ríkisspítli. Mér finnst sjálfsagt
að dvalargestir borgi eitthvað
uppí kostnaðinn við dvölina á
hælinu og myndi ekki vilja fá
endurgreiðslu þó mér væri boðin
hún.“
Kettlingar
Þrír kassavandir kettlingar,
einn grábröndóttur og tveir
svartir og hvítir, fást gefins.
Upplýsingar gefur Þóra í síma
670729.
Hjól
Nýlegt fjallahjól, af unglinga-
stærð, fannst annan í hvítasunnu
í austurhluta borgarinnar. Upp-
lýsingar í síma 73831
Kettlingar
Tveir gullfallegir 10 vikna
kassavandir kettlingar fást gef-
ins, annar grár en hinn svartur
og hvítur. Upplýsingar í síma
666330.
Hjól
Svörtu Evertonhjóli, 27
tommu með hrútstýri, var stolið
fyrstu helgina í maí. Vinsamleg-
ast hringið í síma 39845 ef það
hefur fundist.
Metsölublad á hverjum degii
Reiðskólinn Hrauni
Grímsnesi - sími 623020
Reiðskóli fyrir 10-15 ára unglinga
Utreidar og bókleg kennsla um hesta
og hestamennsku.
9 daga námskeið með fullu fæði.
Reiðskólinn Hrauni
Þar sem hestamennskan hefst!
SÉ DREPINU HLÚÐ
þessar áfengisveitur. Það er sagt:
Þetta er allt í lagi. Menn geta
farið í meðferð. Og 'síðan ekki
söguna meir. En reynslan sýnir
að það er ekki nóg. Kristur og bæn
til hans er eina meðferðin sem
dugar og ennþá erum við að hlúa
að drepinu. Við sjáum daglega
mismun góðs og ills, en það virð-
ist ekki nægja til að opna augun.
Það er haldið áfram. Hvenær verð-
ur þjóðin alvarlega hugsandi. Það
eru sannmæli sem Einar Ben. seg-
ir: „Sé drepinu hlúð, visnar heil-
brigt líf. Og hefndin grær á þess
leiði.“ Athugum_ það alvarlega.
Arni Helgason
Viltu Hafa Það Gott
UMINU
HSf
Það er þægilegra að sofa hja Isbirni
en á vondri dýnu.
Hvað heldur þú og hvernig er dýnan þín? Það er ekki dýrt að
sofa vel og við eigum allar rúmdýnugerðir og geysilegt úrval
af fallegum rúmum.
Þú þarft ekki að fara annað.
BILDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVlK - SlMI 91-681199 - FAX 91-673511
Rósarkrossreglan AMORC
heldur almennan kynningarfund um starfsemi
reglunnar í kvöld, þriðjudagskvöldið 28. maí
kl. 20.30 í Bolholti 4, 4. hæð.
Ailir velkomnir.
<