Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 37
;ÞRÍEMTOAGÖR^8?mi^L r$7 Forsætisráðherra: Nefnd stjórnarflokka endur- skoðar sj ávarútvegsstefnuna Hvað kosta vaxtahækkanir ríkissjóð, spyr Halldór Asgrímsson (F-Al) STEFNURÆÐA Davíðs Odds- sonar var í þriðja sinn til um- ræðu í sameinuðu þingi í gær. Enn sem fyrr þótti stjórnarand- stæðingum margt þarfnast-skýr- inga og sögðu ríkisstjórnina ekki tala einum rómi. Forsætisráðher- rann taldi hins vegar að „blæ- brigðamunur" milli stjórnarlið- anna væri hátíð samanborið við sundurlyndi stjórnarandstöðunn- ar og fyrri stjórnarflokka. Halldór Asgrímsson (F-Al) vildi fá skýringar á ýmsu í stefnu ríkis- stjórnarinnar, taldi að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hefðu ekki talað alveg einum rómi í sumum málum. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra talaði um þörf á breytingum í stjóm fiskveiða og að gera þyrfti ákvæðið um sameign þjóðarinnar á fiski- stofnunum virkt. Ráðherrann hefði sagt að þessi mál væra í öngstræti en það hefði ekki heyrst á máli sjáv-- arútvegsráðherra að svo væri. Hall- dór sagði að allir væru sammála um sameign þjóðarinnar á físki- stofnunum, en við hvað væri átt með því að gera ákvæðið virkt? Forsætisráðherrann hefði sagt að ekki stæði til að þjóðnýta íslenskan sjávarútveg, og fagnaði Halldór þeirri yfirlýsingu. En forsætisráð- herrann hefði líka talað í stefnu- ræðu sinni um sérstaka nefnd sem starfaði með fullu jafnræði stjómar- flokkanna. Hvað ætti þessi nefnd að vera fjölmenn? Hver ætti að gegna formennsku? Bæri að skilja það svo verið væri að taka málið úr höndum sjávarútvegsráðherra? Hingað til hefði verið unnið að þessu máli í nánu samstarfí við ýmsa hagsmunaaðila í landinu en Halldór sagðist skilja orðalagið þannig að nú ætluðu stjórnarflokkarnir að skipa einir í þessa nefnd og aðrir kæmu ekki þar að. Halldór gerði nýlegar vaxta- hækkanir að umtalsefni. Ríkis- stjórnin segði tilganginn vera að auka spamað og draga úr þenslu. Halldór efaðist um að þessar hækk- anir næðu tilgangi sínum, vafasamt væri að heildarspamaður í þjóðfé- laginu ykist verulega. 7,5% raun- vextir hefðu þótt háir en ekki dug- að til. Afleiðingin af þessum vaxta- hækkunum væri að vextirnir væm hærri hér en erlendis. Atvinnufyrir- tæki myndu leita á erlendan lána- markað, það yrði baráttumál að fá erlent lánsfé. Halldór Ásgrímsson taldi affarasælast að halda jafn- vægi í samfélaginu og stöðugleika í efnahagsmálum og vaxtastefna Endurskoðun sjávarútvegsstefnunar í stefnræðu Davíðs Oddssonar forsætisætisráðherra kom fram að stjórnarflokkarnir hyggjast mynda nefnd með fullu jafnræði beggja stjórnarflokkanna til að móta sjáv- arútvegsstefnu sem nái jafnt til veiða og vinnslu, hamli gegn of- veiði, efli fiskmarkaði, treysti byggð og stuðli að ■ hagræðingu. Og þar sem stjórnskipuleg staða sameign- arákvæðis laga um stjórn fiskveiða yrði tryggð. Forsætisráðherra upplýsti í um- ræðum um stefnuræðuna í gær að í ráði er að þessi nefnd verði skipuð sjö mönnum. Stjórnarflokkarnir tilnefna hvor um sig þrjá menn. Sjávarútvegsráðherra leitar sam- ráðs um skipan formanns milli stjórnarflokkanna og skipar svo nefndina í framhaldi af því. Stjórnarskrárbreytingar Stjórnskipunar- og þingskapar- nefnd efri deildar hefur skilað áliti ríkisstjórnarinnar væri síst til þess fallin. Ræðumaður kvaðst oft hafa átt erfitt með að skilja aðgerðir í hús- næðismálum undanfarin ár og ekki verið sáttur við hvernig að þeim hefði verið unnið. Hann sagði ljóst að vextimir í gamla kerfínu hefðu ekki fengið staðist og var hann því sammála að nauðsynlegt hefði verið að hækka vextina á lánum síðan 1984, en hann átti erfitt með að skilja hvers vegna þetta hefði ekki verið hægt fyrir 2 mánuðum en þá hefði félagsmálaráðherrann fullyrt að það væri ekki hægt. Halldór sagði ljóst að fjármögnun í hús- bréfakerfínu væri mjög dýr. Menn væru að taka á sig byrðar sem þeir yrðu að bera næstu 25 árin. Ef vextir lækkuðu — eins og hann hefði trú á myndu þeir sem nú tækju lán ekki njóta þess. Halldór sagði sanngjarnara að lána til hús- næðismála úr almennum sjóðum eins og gert hefði verið hingað til þá væri frekar von til að lánþegar nytu þess þegar vextir lækkuðu. Ræðumaður taldi að vaxtabótakerf- ið gagnaðist húsbyggjendum og íbúðarkaupendum í takmörkuðum mæli. Rætt hefði verið um að taka á frumvarpinu til stjómskipunar- laga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins íslands. Frumvarpið er flutt til staðfestingar á stjórnar- skrárbreytingu sem samþykkt var á síðasta þingi og miðar að því að Alþingi starfí framvegis í einni deild. Fullur einhugur er í nefndinni um samþykkt frumvarpsins og verður það væntanlega til annarrar umræðu í efri deild í dag. Þinglok? Enn er allt óljóst um hvenær þessu vorþingi lýkur; 114. löggjaf- arþinginu. Vonir standa þó til að takast megi að ljúka þinghaldi jafn- vel í lok þessarar viku eða fyrri hluta þeirrar næstu. Að afloknu þessu þingi verður 115. löggjafarþingið kallað saman til fundar og verður það haldið í einni málstofu. Þacfþing mun vænt- anlega ekki starfa heldur verður því frestað til hausts en unnt verð- ur að kalla það saman til funda- halda i sumar ef ástæða þykir til. afföll húsbréfanna inn í útreikning vaxtabóta en á það yrði að benda að það væri ákveðið hámark sem hver og einn gæti fengið í vaxtaaf- slátt — ef hann myndi rétt — innan við 200 þús. fyrir hjón. Að taka afföllin með í reikninginn nýttist ekki þeim sem þegar hefðu náð hámarkinu. Hann benti einnig á að vaxtabæturnar kostuðu ríkissjóð umtalsverðar ljárhæðir og taldi að þyrfti að upplýsa hvað síðustu vaxtahækkanir myndu kosta ríkis- sjóð í auknum vaxtabótum. Halldór Ásgrímsson innti forsætisráðherra eftir því hvað menn hygðust gera með húsbréfakerfið. Það væri ljóst að við hefðum takmarkað fjármagn til að veija í þennan málaflokk, væri ætlunin að takmarka útgáfu bréfanna? Félagsmálaráðherrann virtist telja slíkt óframkvæmanlegt og vildi athuga með að selja þessa pappíra erlendis. Halldór tók sterk- lega undir þá vanþóknun sem fram hefur komið, m.a. frá framkvæmda- stjóra Vinnuveitendasambandsins, á þeim áformum. Ósamræmi Einar Kr. Guðfinnsson (S-Vf) taldi að í þessum umræðum hefði gætt ósamræmis í fullyrðingum og gagnrýni fyrrum stjórnarliða; nú- verandi stjómarandstæðinga. Ríkisstjórnin væri gagnrýnd fyrir stefnuleysi eða óljósa stefnu. En á hinn bóginn hefði t.a.m. Jóhannes Geir Sigurgeirsson skilgreint stefnu ríkisstjórnarinnar sem breska fijálshyggju. Hefði sú stefna hingað til verið talin í skýrara lagi. En Einar sagði að stefna ríkisstjómar- innar væri nú að koma fram með skýrum hætti, m.a. í efnahagsráð- stöfunum sem miðuðu að auknum efnahagslegum stöðugleika. Einar tók undir þá skoðun að vaxtahækkun ein og sér dygði ekki enda hefði ríkisstjórnin gert tillögur um ráðstafanir til að draga úr láns- íjárþörf opinberra aðila. Olafur Þ. Þórðarson (F-Vf) gerði að umtalsefni sögu- eða sagn- fræðilegar tilvitnanir og samlíking- ar utanríkisráðherra á stjórnarsátt- málanum við ræðu Þorgeirs Há- varssonar. Þingmenn hefðu sumir talið að hér væri átt við annan Þorgeir, Ljósvetningagoða. Ólafur taldi hins vegar að utanríkisráð- herrann hefði því sem næst gert Þorgeir Hávarsson að leiðtoga lífs síns í þinglegum vopnaburði. Ólafur rakti hvernig Þorgeir þessi hefði hangið á einni hvönn í fuglabjargi en frá þvi greinir í Fóstbræðrasögu. Ólafur minntist einnig á að forsæt- isráðherra hefði gert að umtalsefni að Persakeisari hefði látið flengja sjóinn með svipum í vanmætti sínum gagnvart máttarvöldunum. Ólafur sagði vanda Persakeisara hafa verið að hann hefði haft her sem hefði verið aðgerðarlaus og þurfti keisarinn að koma í veg fyr- ir að liðsmennimir dræpu hver ann- an._ Ólafí var áhyggjuefni að ríkis- stjómin ætlar að kanna að tengjast evrópska myntkerfínu. Það væri ekki á valdi stjórnmálamanna að fastbinda gengi gjaldmiðla, mark- aðurinn hlyti að ráða einn. Ræðu- maður sagði að vísað væri til þess að danska krónan væri nú bundin. „Hvers vegna? Af því að Danmörk er ekki lengur sjálfstætt land.“ Danmörk væri bara eitt hérað í hinu nýja stóra ríki Evrópu. Ólafur hvatti menn til að íhuga vel stefn- una í þessum málum og varast að logsjóða stýrið fast; hætta að stýra skútunni í efnahagsmálum. Blæbrigðamunur Davíð Oddsson forsætisráð- herra taldi þann blæbrigðamun sem fram hefði komið hjá stuðnings- mönnum núverandi ríkisstjórnar vera hátíð í samanburði við ágrein- ing og sundurlyndi stjórnarand- stæðinga. Forsætisráðherrann greindi frá því að hin sérstaka nefnd sem end- urskoða ætti og móta sjávarútvegs- stefnuna yrði skipuð sjö mönnum þrem frá hvomm stjórnarflokki. Formaður yrði eins og nefndin skip- aður af sjávarútvegsráðherra. En gert væri ráð fyrir því að samráð yrði milli stjórnarflokkanna um for- manninn. Það kæmi í hlut sjávarút- vegsráðherra að leita þess samráðs og skipa síðan nefndina í framhaldi af því. Forsætisráðherra sagði ljóst að nefndin myndi eiga náið og gott samstarf við alla aðila sem að þessu máli kæmu. Einsýnt væri einnig að náið samstarf yrði haft við stjórnar- andstöðu þegar málið kæmi til kasta þingsins. Forsætisráðherra sagði að und- anfarið hefðu Framsóknarflokkur og Alþýðubandalag verið að hlaupa frá verkum sínum. Ráðherrann nefndi t.a.m. í þessu sambandi að fyrirrennari sinn í embættinu hefði lýst húsbréfakerfinu sem mistök- um, einnig hefði sá hinn sami talað um fleiri mistök, varðandi álver og evrópskt efnahagssvæði. Það mætti því meta feril síðustu ríkisstjórnar sem mistakaferil. Forsætisráðherra sagði ekki hafa verið tekna ákvörðun um frekari takmörkun á útgáfu húsbréfa, sá áfangi sem náðst hefði væri afskap- lega mikilsverður. Ráðherrann sagðist telja að húsbréfín væru komin til að vera og þau ættu eftir að sanna giidi sitt þegar aðstæður væru eðlilegar orðnar. Davíð Odds- syni þótti athyglisvert að Persakeis- ari hefði látið liðsmenn sína flengja sjóinn til að koma í veg fyrir að þeir berðu hver á öðrum. Það hefði e.t.v. verið hugsun Steingríms Her- mannssonar þótt það ráð hefði ekki dugað. Hjörleifur Guttormsson (Ab- Al). greindi frá efasemdum sínum og fleiri um að þessi ríkisstjórn myndi ná háum aldri. En tilurð hennar gæti orðið afdrifarík. Þetta væri stjórn hægri aflanna sem boð- uðu markaðshyggju og væri tæpast treystandi fyrir því fjöreggi sem sjálfstæði þjóðarinnar væri. Í sinni tölu ítrekaði ræðumaður m.a. gagn- rýni sína á væntanlegt evrópskt efnahagssvæði. Hjörleifur hvatti framsóknarmenn til að íhuga vel skilmerkileg og gagnmerk varnað- arorð sem skrifuð hefðu verið í leið- urum dagblaðsins Tímans um þessi efni. Hjörleifur vék að fyrirhuguðu álveri á Keilisnesi og lýsti efasemd- um um að nægilega vel yrði fyrir mengunai’vörnum séð. Hann beindi spurningum til umhverfísráðherra um þau efni og spurði m.a. hvort fast og ákveðið væri kveðið á um það í samningsdrögum að hið fyrir- hugaða álver skyldi hafa innan við 2% brennisteinsinnihald í rafskaut- um og þurfi því ekki vothreinsibún- að. Hann spurði ennfremur iðnaðar- ráðherra um stöðu orkusölusamn- inga og lýsti þeirri skoðun sinni að ekki ætti að fresta þinghaldi nú í vor fyrr en Alþingi hefði verið gerð skilmerkiieg grein fyrir stöðu þess- ara mála. Finnur Ingólfsson (F-Rv) talaði næstur og sagði stefnuræðu forsæt- isráðherra hafa verið betri en hægt hefði verið að vonast til, miðað við að Sjálfstæðisflokkurinn hafi geng- ið til kosninga án stefnu. Hann sagði að þó virtist hafa komið í ljós að ríkisstjórnin ætlaði sér að hafa sömu stefnu og fyrri ríkisstjórn í tveimur veigamiklum málaflokkum, sjávarútvegs- og landbúnaðarmál- um, og væri það til marks um að Sjálfstæðisflokkurinn hefði svínbeygt Alþýðuflokkinn í þessu stjómarsamstarfí. Þenslumerki Guðmundur Bjarnason (F-Ne) sagðist taka undir orð fyrri ræðu- manna um að nauðsynlegt sé að draga úr þenslu í þjóðfélaginu. Hann kvaðst sjá þenslumerki, eink- um í húsnæðiskerfinu á höfuðborg- arsvæðinu, þar sagði hann ákveðin þenslueinkenni þegar vera komin fram. Hann lýsti efasemdum um að réttar væru þær tölur sem fé- lagsmálaráðherra hefði sett fram um aukna greiðslubyrði vegna hús- næðislána og kvaðst ekki sjá hvem- ig það að leggja niður lánakerfið frá 1986 ætti að leysa vanda í þess- um málaflokki. Hann kvaðst óttast að vaxtahækkunin ætti eftir að leiða til alvarlegra áfalla, bæði fyr- ir einstaklinga og fyrirtæki og að greiðsluerfiðleikalánum muni ör- ugglega fjölga. Steingrímur J. Sigfússon (Ab- Ne) sagði orð forsætisráðherra í upphafi stefnuræðu um að tveggja flokka ríkisstjórn sé traust ekki eiga við rök að styðjast, ef reynsla sög- unnar væri skoðuð. Hann sagði ennfremur að það væri rangt að halda því fram að Viðreisnarstjóm- in á sjöunda áratugnum hafí verið góð ríkisstjórn, þvert á móti hefði hún verið einhver versta ríkisstjórn sem á íslandi hafí verið og skilið sjávarútveginn eftir í rústum. Þegar hér var komið umræðum var þeim frestað til kvölds. Stuttar þingfréttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.