Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAI 1991
Studentar frá Mennta-
skólanum að Laugarvatni
LaugarvatnL
LAUGARDAGINN fyrir hvíta-
sunnu voru brautskráðir 34
stúdentar frá Menntaskólanum
að Laugarvatni.
Mikið fjölmenni var viðstatt
brautskráningu nýstúdenta frá
ML, sem fór fram á sal skólans.
Kristinn Kristmundsson skóla-
meistari brautskráði nú í 20. sinn
en alls hafa 37 hópar verið braut-
skráðir frá upphafi. Fjöldi eldri
stúdenta voru viðstaddir athöfn-
ina. 10 ára stúdentar færðu skó-
lanum nýju útgáfuna af Britanicu,
32 bækur, að gjöf og 20 ára stúd-
entar færðu skólanum plöntur í
tijálund sem jafnframt var til
minningar um látinn skólafélaga
þeirra.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi
hlaut að þessu sinni Jórunn Svav-
arsdóttir með einkunnina 8,53.
- Kári.
34 brautskráðir nýstúdentar frá Menntaskólanum að Laugarvatni.
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Tónlistarskólinn í Keflavík:
Léttsveitin spilar
"í Disney World
LÉTTSVEIT Tónlistarskólans í
Keflavík hélt miðvikudaginn 22.
maí í tónleikaferð til Bandaríkj-
anna. Ferðinni er fyrst heitið til
Boston þar sem hljómsveitin mun
halda tónieika og síðan verður
flogið til Orlando og dvalið þar í
tíu daga.
Á þeim tíma mun hljómsveitin
halda tvenna tónleika, spila á þjóð-
hátíðarfagnaði fyrir íslendingafélag-
ið í Orlando og hápunktur ferðarinn-
ar verða tónleikar Léttsveitarinnar
í skemmtigarðinum Disney World.
Undirbúningur ferðarinnar hefur
staðið yfir í tvö ár og hafa meðlimir
hljómsveitarinnar aflað fjár til farar-
innar með öllum hugsanlegum að-
ferðum, m.a. með því að leika jóla-
sveina, flytja búslóðir o.fl. Fjáröflun-
Rakarastofa
í Grímsbæ
RAKARASTOFA hefur verið
opnuð í verslunarmiðstöðinni
Grímsbæ við Bústaðaveg. Eig-
andi stofunnar er Grímur Þóris-
son, hárskeri.
Boðið er upp á klippingar,
skeggsnyrtingu, rakstur, hárþvott
og strípur. Opnunartími er kl. 9-18
virka daga og 10-14 laugardaga.
in hefur gengið vel og þurfa hljóm-
sveitarmeðlimir nú einungis að
greiða uppihaldskostnað í ferðinni.
Alls fara rúmlega 30 manns í ferð-
ina sem stendur í tvær vikur eða til
miðvikudagsins 5. júní.
Stjórnandi Léttsveitar Tónlistar-
skólans í Keflavík er Karen Stur-
laugsson.
Léttsveit Tónlistarskólans í Keflavík.
Fjórða deild leikarafélagsins:
Hreyfanleiki á að vera í
stöðum við Þjóðleikhúsið
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun fundar 4.
deildar Félags íslcnskra leikara:
„Vegna einhliða blaðaskrifa að
undanförnu um þær aðgerðir sem
átt hafa sér stað í Þjóðleikhúsinu
viljum við að þetta komi fram:
Samningar Félags íslenskra leik-
ara við Þjóðleikhús um kaup og
kjör fastráðinna leikara kveða á um
eftirfarandi:
„1.1.1 Fastráðinn leikari skal
ráðinn til a.m.k. eins árs í senn.
Heimilt er aðilum þó að gera ráðn-
ingarsamning til lengri tíma, þ.e.
til 2ja eða 3ja ára takist um það
samkomulag. Ef ráðningu leikara
er ekki sagt upp með 6 mánaða
fyrirvara miðað við mánaðamót
framlengist hún um 1 ár í senn.
1.1.2 Hafi leikari starfað í 8 ár
eða lengur hjá Þjóðleikhúsinu á
hann rétt á að gerður sé við hann
ótímabundinn ráðningarsamningur
Viðbygging Fjölbrautaskóla Suðurnesja:
Hjalti og Andrés
með lægsta tilboðið
KeDavík. O
með gagnkvæmum 3ja mánaða
uppsagnarfresti." (Tilvitnun lýkur.)
Þarna er þess hvergi getið að
leikarar þeir, sem á hveijum tíma
eru ráðnir til starfa við stofnunina,
hljóti sjálfkrafa æviráðningu. Samt
sem áður hefur af einhveijum or-
sökum skapast sú hefð í Þjóðleik-
húsinu að hrófla sem minnst við
þessum „hreyfanlegu“ samningum
sem hefur alið á þeirri tilhneigingu
að skoða þá sem óuppsegjanlega.
Fyrir bragðið hefur ískyggilega lítil
tilfærsla eða endurnýjun átt sér
stað í leikaraliðið Þjóðleikhússins
mörg undanfarin ár. Að þessu hefur
löngum verið fundið, bæði af aðilum
innan leikarastéttarinnar og utan
hennar, en því miður enginn séð
ástæðu til að aðhafast neitt fyrr
en nú að nýráðinn Þjóðleikhússtjóri
virðist ætla að taka af skarið.
í FÍL eru 225 leikarar, þar af
erum við sem skipum 4. deild, þ.e.
leikarar sem ekki hafa fasta at-
vinnu, 150 talsins. Við (viðstaddir
á fundi 4. deildar 14. maí 1991)
erum ekki á móti þessum breyting-
um í Þjóðleikhúsinu, við viljum
hreyfanleika á samningum og hljót-
um því að styðja aðgerðir Þjóðleik-
hússtjóra. Nú á dögunum, þegar
þessar stöður voru auglýstar, sóttu
78 leikarar um. Við viljum taka það
skýrt fram að við erum ekki að
leggja nokkurt mat á einstakar
uppsagnir, einungis að styðja þá
viðleitni að hafa hreyfanleika á
stöðugildum við Leikhús þjóðarinn-
Keflavík.
FEÐGARNIR Hjalti Guðmunds-
son og Andrés Hjaltason áttu
lægsta tilboðið i nýja viðbygg-
ingu Fjölbrautaskóla Suður-
nesja. Tilboð þeirra Hjalta og
Andrésar hljóðaði uppá
131.836.100 kr. en alls buðu
Keppni í ökuleikni hafin
BINDINDISFÉLAG ökumanna heldur í sumar, eins og endranær,
> keppni í ökuleikni. Þetta er 14. árið sem keppni í ökuleikni er hald-
in og hafa til þessa um 5.000 ökumenn tekið þátt í henni.
I ár verður keppt á. 36 stöðum
víðsvegar um landið. Ökuleikninni
er skipt í karla- og kvennariðil auk
riðils fyrir ökumenn með bráða-
birgðaskírteini. Reiðhjólakeppni er
skipt í riðla eftir aldri, 9-11 ára og
12 ára og eldri.
Ökuleikni ’91 hefur fengið eftir-
talda aðila til liðs við sig: Hekla hf.
gefur vegleg verðlaun í íslands-
meistarakeppni ökuleikninnar. Það
eru: Verðlaunabikarar fyrir þijú
efstu sætin í hvorum riðli í úrslita-
keppni og MMC Lancer árgerð 1991
fyrir villulausan akstur aðra um-
ferðina í úrslitakeppni, sé viðkom-
*andi í 12. sæti eða ofar. Einnig
lánar umboðið bíla til úrslitakeppn-
innar og veitir henni fjárhagslegan
stuðning.
Reiðhjólaverslunin Fálkinn gefur
verðlaunapeninga í reiðhjólakeppn-
inni og verða þeir veittir fyrir þijú
efstu sætin í hvorum riðli á hveijum
keppnisstað á hringferðinni um-
hverfís landið. Einnig fá þátttak-
endur happdrættismiða þar sem
verðlaunin eru tvö DBS-fjallareið-
hjól frá Fálkanum.
Fyrsta almenna keppnin var
haldin í Reykjavík sunnudaginn 25.
maí og síðan koll af kolli.
Ökuleiknin skiptist í tvo þætti,
umferðarspurningar og þrautaakst-
ur. í þrautaakstrinum er það sam-
spil leikni og hraða sem máli skipt-
ir. Allir sem hafa ökuleyfi og skoð-
unarhæfan bíl geta tekið þátt í
keppninni.
(Frcttatilkynning)
þrír aöilar í verkið. Um er að
ræða liðlega 3.000 fermetra hús
sem á að skila fullbúnu eftir 15
mánuði.
Utboðið var lokað og var það
gert í samráði við Meistarafélag
byggingamanna á Suðurnesjum
og bárust 3 tilboð. Næstlægsta
boðið átti Húsagerðin hf.,
148.500.000 kr., og Húsanes sf.
bauð 149.588.650 kr. Öll tilboðin
gera ráð fyrir að taka húsæði
verknámsdeildar skólans við Iða-
velli 1 upp í byggingarkostnaðinn.
Hjálmar Árnason skólameistari
sagði að á næstu dögum yrði far-
ið yfir tilboðsgögnin af óháðum
aðilum og þess yrði ekki langt að
bíða að bygginganefnd kæmi sam-
an til að taka ákvörðun um fram-
haldið.
Nýja viðbyggingin á að rísa við
skólann vestanverðan og sagði
Hjálmar að með tilkomu hennar
væri húsnæðisþörfínni væntanlega
fullnægt næstu 20-25 árin en allt
frá stofnun skólans árið 1976 hefði
hann búið við afar þröngan húsa-
kost. I nýju viðbyggingunni verða
10-12 skólastofur, mötuneyti,
samkomusalur og aðstaða fyrir
allar verknámsdeildir sem eru í 3
húsum við Iðavelli.
BB
Félag leikstjóra á íslandi:
Ráðning leikstjóra til
skamms tíma studd
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun Félags leik-
stjóra á Islandi:
„Aðalfundur Félags leikstjóra á
íslandi haldinn 21. maí 1991 telur
það ekki í verkahring félagsins að
skipta sér af því hveijir af félögum
þess, sem skipta tugum, eru ráðnir
til starfa við Þjóðleikhúsið. Fundur-
inn lýsir stuðningi við þá stefnu
nýkjörins Þjóðleikhússtjóra að ráða
leikstjóra einungis til skamms tíma,
eins eða tveggja ára í senn, enda
hefur það verið og er skoðun félags-
manna að endurnýjun sé æskileg í
þessum störfum. Fundurinn bendir
á að nú er liðinn áratugur frá því
að leikhúsfólki tókst að knýja það
fram að Þjóðleikhússtjóri og aðrir
leikhússtjórar atvinnuleikhúsanna
væru aðeins ráðnir til fjögurra ára
í senn og aldrei lengur en í átta
ár. Vildum við með því tryggja að
breyttir tímar og breytt viðhorf
endurspegluðust ætíð í listrænni
forystu húsanna og sú sífellda end-
umýjun sem er nauðsyn öllum list-
um mætti eiga sér stað. Leikstjórum
hefur aldrei dottið í hug að sú end-
umýjun ætti aðeins að ná til eins
manns þ.e. leikhússtjórans. Breyt-
ing á listrænni forystu hlýtur ætíð
að kalla á aðrar breytingar á skipu-
lagi og starfsliði hússins. Enda gert
ráð fýrir því svigrúmi í lögum um
Þjóðleikhús og í ráðningarsamning-
um hússins.
Fundurinn hvetur leikhúsfólk til
að taka afstöðu til deilnanna á
grundvelli hagsmuna alls leikhús-
fólks og leiklistarinnar í landinu.
Og fundurinn minnir á að Stefán
Baldursson hefur verið skipaður
Þjóðleikhússtjóri. Honum ber sam-
kvæmt lögum skylda til að móta
listræna stefnu Þjóðleikhússins.
Honum ber einnig samkvæmt lög-
um að ráða sér samstarfsmenn til
að hrinda þeirri stefnu í fram-
kvæmd. Okkur getur greint á um
ákvarðarnir hans í einstökum mál-
um, en aðalatriðið er að það er
hans og einskis annars að axla
þessa ábyrgð."