Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 39
MÖRGÚNBLAÐIÐ ÞRÍÐJUDÁGUR 28-. MAÍ 1991 Heimamenn sterkir á helg- arskákmóti áAkureyri Skák Margeir Pétursson ÓLAFUR Kristjánsson sigraði nyög örugglega á helgarskák- móti sem Skákfélag Akur- eyrar gekkst fyrir um síðustu mánaðamót. Hann vann sex fyrstu skákir sínar og var því öruggur um sigur fyrir síðustu umferðina. Akureyringar hrepptu einnig næstu tvö sæti, það voru þeir Amar Þorsteins- son sem varð annar og Rúnar Sigurpálsson sem varð þriðji. Nokkrir öflugir skákmenn Iögðu leið sína til Akureyrar, en þeim tókst ekki að sækja gull í greipar heimamanna. Snorri Guðjón Bergsson, sem sigraði í áskorendaflokki á Skák- þingi íslands um páskana varð óvænt að láta sér nægja 4-6. sætið og sama hlutskipti fékk hinn öflugi ísfírðingur, Guð- mundur Gíslason. Bragi Hall- dórsson, sá gamalreyndi meistari og skákskýrandi lenti í 7-8. sæti. Mótið var því sérlega vel heppnað fyrir heimamenn, en gestimir hefðu þó mátt vera fleiri að þeirra mati. Röð efstu manna á mótinu varð þessi: 1. Ólafur Kristjánsson 6 v. af 7 mögulegum. 2. Arnar Þorsteinsson 5*/2 v. 3. Rúnar Sigurpálsson 5 v. 4-6. Guðmundur Gíslason, Þór Valtýsson og Snorri G. Bergsson 4‘/2 V. 7-8. Bragi Halldórsson og Júlíus Björnsson 4 v. Það fer ekki framhjá neinum sem teflir við Ólaf Kristjánsson að maðurinn er einkar vel lesinn í fræðunum og með brennandi áhuga á skák. Hann var á meðal þátttakenda á hinu geysisterka alþjóðamóti á Akureyri árið 1988 og hefur vafalaust lært sitthvað af þeirri reynslu þótt margar góðar stöður hafí farið forgörð- um í tímahraki. Litlu munaði reyndar á helgarmótinu að Ólafur missti góðá stöðu gegn Amari niður í tap, en á síðustu sekúnd- unum fann hann glæsilegan leik sem nýttist vel til bæði sóknar og vamar: Hvítt: Arnar Þorsteinsson Svart: Ólafur Kristjánsson Sikileyjarvörn 1. e4 - c5 2. Rf3 - Rc6 3. d4 — cxd4 4. Rxd4 — e6 5. Rc3 — d6 6. Be3 - Rf6 7. f3 - Be7 8. Dd2 - a6 9. 0-0-0 - Dc7 10. g4 - b5 11. g5 - Rd7 12. f4 — b4 13. Rce2 - Rxd4 14. Dxd4 - e5 15. Dd2 - Rc5 16. Bxc5 - dxc5 17. f5 - Bb7 Eftir mjög djarfa byijun stend- ur svartur uppi með töglin og hagldimar. Hann hefur bisku- paparið og meira rými og kóngur hans er ekki í hættu. 18. De3 - c4 19. f6!? - Bc5! 20. Df3 — g6 21. Rg3 - c3 Það var óþarfí að leyfa næsta leik hvíts. Betra var 21. — Bd4 og ef 22. Re2 þá einfaldlega 22. — Ba7 og hvítur er mótspilslaus. 22. Bc4! - Bd4 23. De2 - h5 24. h4 - Hc8 25. Bb3 - a5 26. Hhel - Bc6!? Ólafur vill éngan tíma missa í sóknina, en þetta gefur kost á mjög varasamri skiptamunsfórn. Nú æsist leikurinn: 27. Hxd4! - exd4 28. e5 - a4 29. Bxf7+! - Dxf7 30. e6 — Dc7 Hvíti hefur tekist að skapa sér stórhættulegt mótspil með glæsi- legum tilþrifum, auk þess sem Ólafur átti hér aðeins mínútu eftir á næstu sex leiki. En hér missir Amar af hættulegum leik, 31. Dd3!, sem hefði sett svart í mikinn vanda. Hann ætti þó að standa sízt lakar að vígi eftir 31. - Df4+ 32. Kbl - Dd2! 33. Dxg6+ — Kd8, en niðurstaðan væri öldungis óviss. 31. f7+? - Ke7 32. Df2 - cxb2+ 33. Kbl - Bf3! Afskaplega öflugur leikur, sem bæði verst máti og hótar máti í senn! 34. He2 - d3 35. Dd4 - dxc2+ og hvítur gafst upp. ■ AÐALFUNDUR Skáksam- bands Islands var haldinn 11. maí sl. í Faxafeni 12, Reykjavík. For- seti sambandsins, Jón Rögnvalds- son, og aðalstjórn voru endurkjörin einróma með lófataki. Inn í vara- stjórn kom Þröstur Þórhallsson í stað Margeirs Péturssonar. í stjórn em eftirtaldir menn: Jón Rögnvaldsson, forseti, aðalstjórn Áskell Örn Kárason, varaforseti, Árni Emilsson, gjaldkeri, Lánis Jóhannesson, ritari, Ólafur Ás- grímsson, meðstjórnandi, Rík- harður Sveinsson, meðstjómandi, Hilmar Thors, _ meðstjórnandi. Varastjóm skipa: Ólafur H. Ólafs- son, Þröstur Þórhallsson, Guð- mundur Guðjónsson og Þráinn Guðmundsson. Aðalmál fundarins voru fjárniál og umræður um norrænt skáksam- starf. Fjármál voru mjög erfíð og fer mikill hluti af tíma og starfi stjórnar að bjarga þeim málum. Norrænt skáksamstarf hefur verið mikið til umræðu undanfarið og hefur verið gagnrýnt harðlega. (Fréttatilkynning) ■ AÐALFUNDUR Sögufélags verður haidinn þriðjudaginn 28. maí í Skólabæ, Suðurgötu 26, og hefst kl. 20.30. Auk venjulegra aðalfund- arstarfa heldur Gunnar Sveinsson skjalavörður erindi, sem hann nefn- ir: Útgáfa Alþingisbóka íslands. - Útgáfa Alþingisbókanna hófst árið 1912 og gáfu þeir Jón Þorkelsson, Einar Arnórsson og Einar Bjama- son út fyrstu 9 bindin. Þá tók Gunn- ar Sveinsson við og hefur í 25 ár unnið að þessari útgáfu, en 17. og síðasta bindið kom út á þessu vori. Alþingisbækumar eru eitt viða- mesta ritverk, sem til er á íslensku, alls um 10.000 blaðsíður. FUNDIR - MANNFA GNAÐUR Háteigssöfnuður Aðalsafnaðarfundur Háteigssafnaðar verður haldinn í kirkjunni fimmtudagskvöldið 30. maí kl. 20.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarnefndin. ÝMISLEGT Vigtarmenn Námskeið til löggildingar vigtarmanna verður haldið í Reykjavík dagana 5. og 6. júní nk. ef næg þátttaka fæst. Skráning þátttakenda fer fram á Löggildingarstofunni og veitir hun jafnframt allar nánari upplýsingar í síma 91- 681122. Löggildingarstofan. í hádeginu ídag Blandaðir sjávarréttir. Eftirlæti útlendinga. Kr. 990,- HALLARGARflllRIHH Húsi verslunarinnar, sími 678555. Málverkauppboð Gallerý Borg heldur listmunauppboð á Hótel Sögu fimmtudaginn 6. júní nk. Mótttaka á verkum í Gallerý Borg við Austur- völl milli kl. 14.00 og 18.00. Athugið breyttan opnunartíma. éraé&tc BORG j NAUÐUNGARUPPBOÐ Nauðungaruppboð ferfram á eftirtöldum eignum á skrifstofu embættisins, Suður- götu 1, Sauðárkróki fimmtudaginn 30. maí 1991 kl. 10.00. Hrafnhóli, Hólahreppi, þingl. eigandi Magnús Margeirsson. Uppboðs- beiðendur eru innheimtumaður ríkissjóðs og veðdeild Landsbanka (slands. Annað og síðara. Suðurgötu 22, Sauðárkróki, þingl. eigandi Sigurður Kárason. Upp- boðsbeiðandi er Björn Ólafur Hallgrimsson hdl. Annað og síðara. Þriðja og sfðasta nauðungaruppoð á eigninni: Árhóli, Hofsósi, þingl. eigandi Lúðvík Bjarnason, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 30. mai kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er Eggert B. Ólafsson, hdl.___________________ Sýslumaðurinn i Skagafjarðarsýslu. Bæjarfógetinn á Sauðárkróki. TIL SÖLU Til sölu Atlas 1902 DHD árgerð 1981 og 1982 Vélarnar eru í góðu lagi og hafa fengið gott viðhald frá upphafi. Þær eru yfirfarnar af verkstæðismönnum okkar og þeim fylgir tveggja mánaða ábyrgð á glussakerfi og mótor. Verð og greiðslukjör eru samkomulagsatriði. Allar frekari upplýsingar gefa Gunnar eða Hannes á skrifstofutíma í síma 91-44144. SJÁLFSTJEDISFLOKKURINN TÉLAGSSTARF Akureyri - Akureyri Sjálfstæðiskonur í Vörn Fundur verður haldinn í dag, þriðjudaginn 28. maí, i Kaupangi við Mýraveg kl. 20.30. Fundarefni: 1. Kosning fulltrúa á landssambandsþing. 2. 19. júní: Kvenréttindadagurinn. Stjórn Varnar. Borgarnes - Mýrasýsla Sjálfstæðisfélag Mýrasýslu boðar til fundar í Sjálfstæðishúsinu, Brákarbraut 1, fimmtu- daginn 30. maí kl. 20.30. Fundarefni: Iðnaðar- og atvinnumál. Gestur fundarins verður Páll Kr. Pálsson, forstjóri Iðntæknistofnunar. Stjórnin. IIFIMDALI Ul< F ■ U S Námskeið í ræðumennsku og fundarsköpum Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, heldur nám- skeið í ræðumennsku og fundarsköpum dagana 28. til 30. maí. Þátt- takendum verður þar boðið upp á þjálfun í ræðumennsku, auk þess sem farið verður yfir grundvallaratriði almennra fundarskapa. Um- sjón með námskeiðinu hefur Birgir Ármannsson, formaður Heimdall- ar. Námskeiðið hefst í dag, þriðjudaginn 28. maí, kl. 20 í kjallara Valhallar. Félagsmenn eru eindregið hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til þjólfunar í félagsstörfum. Heimdallur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.