Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1991 > Morgunblaðið/Sveinn Guðmundsson Halldór Gunnarsson útibússtjóri og Sóley Vilhjálmsdóttir gjaldkeri. Króksfjarðarnes: Samvinnubankinn breytir um nafn Miðhúsum, Reykhólasveit. BREYTT var um nafn á Samvinnubankanum í Króksfjarðarnesi á dögunum og sett upp nýtt skilti með nafni Landsbankans. Sama starfsfólk þjónar þessu útibúi og áður en það eru þau Halldór Dalkvist Gunnarsson útibússtjóri og Sóley Vilhjálmsdótt- ir gjaldkeri. Halidór er búinn að vera úti- bússtjóri Samvinnubankans frá því að útibúið var stofnað. Fyrst var stofnuð umboðs- skrifstofa frá Samvinnubankan- um á Patreksfirði 1972 og 1982 kom skrásetningavél og þá varð umboðsskrifstofan að sjálfstæðu útibúi frá Samvinnubankanum í Reykjavík. I Króksfjarðarnesi var mikið um dýrðir og gátu þeir sem í bankanum komið smakkað á góðri ijómatertu. Einnig er búið að halda upp á stórafmæli Kaup- félags Króksfjarðar en það varð 80 ára nú á dögunum. Kaupfé- lagið og Samvinnubankinn eru tvær greinar af sama meiði, þó að nú séu skildar leiðir á yfirborð- inu. - Sveinn. Biskup vísiterar Skaga- fiarðarprófastsdæmi Sauðárkróki. BISKUP íslands, herra Ólafur Skúlason, mun nú um mánaðamót- in vísitera Skagafjarðarprófastsdæmi og hófst heimsóknin með kirkjuskoðun á Sauðárkróki sunnudaginn 26. maí kl. 11 árdegis, og hádegisverði með sóknarnefnd og sóknarpresti að henni lokinni. Ein af embættisskyldum bisk- ups er að vísitera söfnuðina og kynnast þannig hverri sókn og samfélagi. Kannar biskup ástand kirkna, lítur yfir embættisfærslur presta og sóknamefnda og áritar gjörðabækur, embættisbækur, legstaðaskrá kirkjugarða o.fl. Megintilgangur heimsóknar bisk- ups til safnaða kirkjunnar er að hitta fólkið bæði í kirkjunum og á samkomum þeim tengdum. Við- staddir kirkjUskoðun eru sóknar- nefnd, safnaðarfulltrúi og sóknar- prestur hverrar kirkju. Að lokinni messu í Sauðár- krókskirkju kl. 14.00 sunnudaginn 26. maí og kirkjukaffi í safnaðar- heimilinu fór fram kirkjuskoðun og messa í dómkirkjunni á Hólum, en einnig snæddi biskup og föru- neyti hans kvöldverð á hinu forna biskupssetri. Mánudaginn 27. maí var mess- að í Viðvíkurkirkju kl. 14.00 og kvöldmessa fór fram í Rípurkirkju kl. 21.00 en að kvöldi þriðjudags- ins 28. maí fer fram kirkjuskoðun og helgistund í Sjávarborgarkirkju kl. 20.00. Þann dag situr biskup líka fund með Héraðsnefnd próf- astsdæmisins og prestum, en einn- ig heimsækir hann á þriðjudegin- um Sjúkrahús Skagfirðinga og dvalarheimili aldraðra á Sauðár- króki. Á stærri myndinni eru, auk skip- stjórans, stjórnarmenn í togara- félaginu og fulltrúar seljenda bún- aðarins. Á innfelldu myndinni sést togarinn i höfn á Isafirði. 15 manna áhöfn er um borð. Nýi búnaðurinn reyndist vel: Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Skutull úr fyrsta túrnum Hét áður Baldur og var þá í eigu Hafrannsóknar ísafirði. SKUTTOGARINN Skutull ÍS er nýkominn úr fyrsta rækjutúrnum eftir gagngerar breytingar á spilbúnaði og aðrar lagfæringar. Toga- raútgerð Isafjarðar hf. keypti skipið af Rikissjóði á síðasta ári, og stóðu yfir ýmsar breytingar á því þar til í lok apríl er það fór í fyrsta túrinn. . Mikilvægustu breytingarnar voru á spilbúnaði skipsins, en í það voru sett ný togspil frá Ibercisa á Spáni ásamt sjálfvirkum stjórn- og drif- búnaði frá ABB/Rafboða og skjá- myndakerfi frá Tæknivali. Að sögn skipstjórans Rafns Svanssonar reyndist búnaðurinn mjög vel eftir stillingar og lagfær- ingar, sem tók fyrstu fjóra sólar- hringana. Sjálfvirknibúnaðurinn frá Raf- boða er nú í 43 íslenskum togurum, en búnaðurinn í Skutli er sá fyrsti þar sem fyrirtækið leggur til ailan búnaðinn. Skipasmíðastöð Marzel- íusar á ísafirði sá um niðursetningu spilanna. Aflinn í fyrstu veiðiferðinni var 82 tonn af rækju. Af því fór tæpur helmingur á markað erlendis, en afgangurinn verður unninn hjá rækjuverksmiðjunum á ísafirði, en þær eiga allar hlut í skipinu. Að Miðvikudaginn 29. maí er mess- að kl. 11.00 árdegis í Glaumbæjar- kirkju en kl. 14.00 síðdegis í Reyn- istaðarkirkju. Þá er messað í Víði- mýrarkirkju kl. 14.00 á fímmtu- deginum 30. maí og helgistund verður í Löngumýrarskóla þann dag kl. 17.00 en á föstudeginum 31. maí er mes§að í Goðdalakirkju kl. 14.00. Laugardaginn 1. júní heldur biskup áfram heimsókn í kirkjur Skagfírðinga, og þann dag messar hann kl. 14.00 í Mælifellskirkju og kl. 16.00 í Reykjakirkju. Á sjómannadaginn, sunnudag- inn 2. júní, heimsækir biskup Sigl- fírðinga, tekur þátt í hátíðarsigl- ingu og minningarathöfn um drukknaða sjómenn, en kl. 11.00 árdegis er messað í Siglufjarðar- kirkju en síðdegis þann dag heim- sækir hann sjúkrahúsið og dvalar- heimili aldraðra. Elsta timburkirkja landsins, Knappstaðakirkja, sem byggð var 1838, verður svo skoðuð kl. 18.00 á sjómannadaginn og um kvöldið kl. 21.00 Barðskirkja í Fljótum. Mánudaginn 3. júní er messað í Hofsstaðakirkju kl. 13.00 og í Flugumýrarkirkju kl. 16.00 en þriðjudaginn 4. júní er messað í kirkjum fram Blönduhlíðar, kl. 14.00 á Silfrastöðum og kl. 17.00 að Miklabæ. Miðvikudag- inn 5. júní er messað í Fells- kirkju kl. 14.00 og kl. 21.00 i Hofsóskirkju og á fímmtudegin- um 6. júní kl. 14.00 í Hofskirkju en kl. 17.30 fer fram skoðun og helgistund í bænhúsinu í Gröf, en þessi litla kirkja er elsta guðshús að stofni til í Skaga- firði, reist árið 1671. Vísitasíu biskups í Skagafjarð- arprófastsdæmi lýkur svo með messum í Hvamms- og Ketukirkj- um í Skefílsstaðahreppi á Skaga, kl. 14.00 og 17.00 föstudaginn 7. júní. Með biskupi íslands, herra Ólafí Skúlasyni, ferðast eiginkona hans, frú Ebba Sigurðardóttir, svo og prófastur Skagafjarðarprófasts- dæmis, sr. Hjálmar Jónsson og eiginkona hans, frú Signý Bjarna- dóttir. Síðast var Skagafjarðarpró- fastsdæmi vísiterað árið 1967, í biskupstíð herra Sigurbjörns Ein- arssonar. - BB. staðaldri er Japani um borð til að flokka bestu rækjuna sem fer öll til Japan. Verðið á henni getur ver- ið um 900 krónur kílóið á móti um 80 krónum sem fæst fyrir það sem fer til vinnslu heima. Áflinn fékkst á svæðinu frá norðurkanti Stranda- grunns að Kolbeinseyjarhrygg. Það óhapp varð meðan skipið lá í höfn að loft fór af skiptibúnaði við aðalvél sem var í gangi með þeim afleiðingum að skipið sleit af sér allar landfestar og var á leið upp í fjöru. Vegna snarræði skips- hafnarmanna sem nálægir voru tókst að drepa á vél með neyðar- stoppi og láta ankeri falla jiður en skipið kenndi grunns. - Ulfar Morgunblaðið/Hilmar Amason Þúfneyrin á Patreksfirði. Patreksfj örður: Þúfneyrin er orðin að einu svöðusári Patreksfirði. LENGI hefur verið barist við hafið hér. í seinni tíð hefur baráttan meðal annars staðið um það, hver á að halda Vatn- smýrinni, sjórinn sem eitt sinn skóp hana, eða við sem byggj- um þetta þorp. Sjávarstraumur um eyrina hafa breyst eitthvað við gerð hafnarinnar, eða þegar opnað var inn í vatnið, sem nú er okk- ar góða höfn. Sjórinn reynir að halda því sköpulagi á eyrinni, sem náttúran hafði sjálf gert. Til að koma í veg fyrir það og bjarga mannvirkjum ganga menn á náttúruna annars staðar og nú er svo komið að hlíðin fyrir ofan Þúfneyrina er eitt svöðusár, sem blasir sérlega vel við séð frá flugvellinum á Sand- odda. Maður sem undirritaður mætti á fömum vegi sagðist búast við að innan fárra ára yrði Geirseyrarmúlinn með öllu horfinn. Hann sagðist raunar vita af stórgrýtisnámu sem myndi duga til langs tíma án þess að valda slíkri sjónmengum sem verkin í Geirseyrarmúla. Hann skildi ekki í hvers vegna enginn hafði komið auga á þenn- an stað, sem er gilið þar sem sorpbrennslan er nú og heitir Fjósadalur. En svona frétt verður að fylgja eitthvað jákvætt. Hér vinna bæði opinberir aðilar, ein- staklingar og félög að fegmn staðarins. Tiltö'ulega nýstofnað trjáræktarfélag hefur falleg áform á pijónunum og hefur þegar hafist handa. Mörg plant- an hefur fyrir þess tilverknað fengið sinn fasta samanstað. Einstaklingar hafa tekið upp á því að planta út afklippum úr görðum sínum og sveitarfélagið sinnir sínum þætti, sem er mest tyrfíng ógróinna svæða. Það horfir til betri tíma en víst er betra að rasa ekki um ráð fram. - Hilmar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.