Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1991 27; Financial Times um Evrópusamstarfið: Brýnt að EFTA-ríkin verði ekki homrekur „MIKIÐ starf þarf enn að inna af hendi til að binda lausa enda í samningunum um Evrópska efnahagssvæðið en endanleg tilhögun samstarfsins er nú komin á hreint,“ segir í frétt breska blaðsins Financial Times um ráðherrafund aðildarríkja Evrópu- bandalagsins (EB) og Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) í Brussel fyrir skömmu. í forystugrein blaðsins er lögð áhersla á mikilvægi þess að EFTA-ríkin verði ekki hornrekur heldur virkir þátttakendur í samstarfi Evrópuþjóðanna. Evrópusam- vinna án þeirra yrði „firra“. Breska vikuritið Economist telur að leiðtogar EFTA séu á því að EB hagnist að vísu meira á EES-samstarfinu en það sé þess virði ef samningurinn gegni hlutverki aðgangseyris EFTA-landa að Evrópubandalaginu. Fréttamaður blaðsins segir fundinn hafa afsannað spádóma um yfirvofandi andlát hugmynd- arinnar um Evrópska efnahags- svæðið (EES). Svisslendingar og Islendingar hyggist að vísu bíða með lokaákvörðun þar til í júlí er fullljóst verði hvað sé í boði af hálfu EB. Um íslendinga seg- ir að þeir séu staðráðnir í að láta engar fiskveiðiheimildir af hendi nema þeir fái veiðiheimild- ir í staðinn í lögsögu EB-ríkja. Allt sé nú í baklás í þessari deilu en víst að hægt verði að liðka fyrir lausn með fjárframlagi EFTA-landa í þróunarsjóð fyrir fátæk aðildarríki Evrópubanda- lagsins. Svisslendingar séu tregir í taumi vegna ótta þeirra við að missa hluta fullveldis síns. Erfitt geti reynst að finna orðalag sem fullnægi óskum þeirra. Haft er eftir svissneskum stjórnarerind- reka að „óánægja með EES-við- ræðurnar gæti valdið auknum áhuga á að ræða aðild Sviss að EB“. Samkomulag sé um að Fram- kvæmdastjórn EB kanni hug EFTA-þjóðanna áður en sam- þykkt verði ný lög fyrir banda- lagið. „EFTA-löndin geta með þessum hætti haft áhrif á lög- gjöfina þótt þau taki ekki þátt í að semja hana“. Einnig er því haldið fram að löndin fái aðlög- unartíma áður en þau taki upp reglur EB um frelsi til jarða- kaupa, sama gildi um reglur er kveða á um fullt atvinnufrelsi einstaklinga í hveiju aðildarríki, án tillits til þjóðemis. Hluti arfleifðarinnar í forystugreininni segir Finan- cial Times að markmið fram- kvæmdastjórnar EB með hug- myndinni um efnahagssvæðið hafi verið að fresta inngöngu nýrra ríkja meðan leystar yrðu flækjur í sambandi við innri markað bandalagsins og tillögur um aukið samstarf. Bent er á að EFTA-ríkin sex eigi mikil- vægan þátt í pólitískri, efnahags- legri og menningarlegri arfleifð álfunnar. EB verði að hafa vænt- anlega aðild þeirra i huga þegar bandalagið geri áætlanir um starfshætti framtíðarinnar. Búa þurfi í haginn fyrir bandalag þar sem aðildarríkin verði mun fleiri. Sviss muni e.t.v. aldrei geta sætt sig við skyldur samstarfsins en fyrir önnur EFTA-lönd, Finn- land ekki undanskilið, hljóti aðild að virðast óumflýjanleg. Aðlög- unin verði þó að taka sinn tíma. EES geti orðið þægilegri „bið- stofa“ en nokkur önnur stofnun og gegnt mikilvægu hlutverki um hríð. Nýir þátttakendur, — einkum Tékkóslóvakía, Ungverj- aland og Pólland — gætu fengið aðild að EES jafnframt því sem önnur ríki væru á leiðinni þaðan inn í EB. Verða Island og Sviss að lokum ein um EES? Aðildarríki EFTA, Fríverslun- arbandalags Evrópu, hafa upp- götvað þann gamla sannleik, að sá, sem er staddur miðja vegu Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og Eldrid Nordbo, viðskiptaráðherra Noregs, á blaðamannafundi í Vín, sem haldinn var í tengslum við leiðtogafund EFTA-ríkjanna í síðustu viku. milli tveggja staða, er í rauninni hvergi. Þess vegna eru þau farin að líta á Evrópska efnahags- svæðið, EES, sem verið er að smíða í samvinnu við Evrópu- bandalagið, fremur sem áfanga á leið til fullrar aðildar en annan kost, segir í skrifum fréttaritara breska vikuritisins Economist í Brussel í síðustu viku. Hann seg- ir ennfremur að óformleg niður- staða EFTA-ráðherranna hafi raunar verið sú, að EES-samn- ingurinn eins og hann liti út nú gagnaðist EB betur en þeim en það væri þó í lagi svo fremi litið væri á hann sem aðgangseyri að bandalaginu. Þrátt fyrir það eru ekki öll EFTA-ríkin einhuga um að sækja um aðild og eru efasemda- mennirnir í hópnum íslendingar og Svisslendingar. íslendingar óttast, að gráðugir Spánverjar eyðileggi fískimiðin og sviss- neska stjórnin er ekki viss um, að EB-aðild verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu þótt bankarnir og stórfyrirtækin séu henni hlynnt. Niðurstaða Economist er sú að Svisslendingar og íslendingar séu enn á báðum áttum en hinar EFTA-þjóðirnar fjórar séu búnar að gera það upp við sig að fram- tíð þeirra verði í Evrópubanda- laginu. Paprikufiskfars lensk fiskipanna metisfiskipanna^ sígilt og VINSÆLT Gerið hv Glæný ýsa, smálúða, kariu rauðspretta og stembitu gpriidamll n<jt *3lluiiguí '/■.yw hpnntyij ötnfyu í i’ 0-VO i TII ri'UÐ í OFNINNI ýsa í sinnepssosu Ýsa í karrýsósu Ýsa í aspassosu Ýsa í sveppasosu Ýsa í kryddsosu Ýsa í hvítlaukssosu KAUPSTADUR ÍMJÓDD Spennandi J[fnúanir í ofninn eða a ponnuna A1IKLIG4RDUR ALLAR BÚÐIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.