Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAI 1991 Laugarvatn; Norræn ráðstefna um mannréttindi NORRÆN ráðstefna á Hótel Eddu verður haldin dagana 6.-10. júní nk. um mannréttindi. Á ráðstefnunni verður m.a. fjall- að um réttindi smáþjóða, flótta- mannarétt og tengsl umhverfisrétt- ar og maiinréttinda. Einnig verður fjallað sérstaklega um mannréttindi á Islandi út frá ýmsum sjónarhorn- um. Þekktir fyrirlesarar og virtir fræðimenn á sviði mannréttinda halda fyrirlestra á ráðstefnunni. ■ UDÍ Sukriti Av. sem er sér- lærður jógakennari frá Filippseyj- um verður með jógakennslu fyrir konur á vegum Ananda Marga. Þátttakendum verða kynntar slök- unaraðferðir og hugleiðsla og rætt verður um skilning jóga á tilgangi andlegra æfinga. Kostnaði verður _ haldið í lágmarki. Námskeiðið verð- ur haldið í leikskólanum Sælukoti, Þórsgötu 1, fimmtudaginn 30. maí kl. 20.00. Mannréttindaráðstefnur með svip- uðu sniði hafa verið haldnar undan- farin ár á hinum Norðurlöndunum á vegum þarlendra mannréttinda- stofnana en þetta er í fyrsta skipti sem slík ráðstefna er haldin á Is- landi. Fyrirlestrarnir verða fluttir á ensku. Skipulagning ráðstefnunnar er í höndum íslenskrar undirbúnings- nefndar og starfar hún í náinni samvinnu við norrænu mannrétt- indastofnanirnar í Kaupmannahöfn, Lundi, Ósló og Turku. Þátttakendur koma flestir frá Norðurlöndum. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur greiði sér- stakt þátttökugjald en greiða hins vegar fyrir mat og gistingu. Þeir sem vilja taka þátt í ráðstefnunni tilkynni sig til ráðstefnudeildar Ferðaskrifstofu íslands. Frekari upplýsingar og dagskrá er hægt að fá hjá Guðrúnu Gauks- dóttur, Borgardómi Reykjavíkur, Túngötu 14, Reykjavík. (Fréttatilkyiining) passa best elskulega var að orði komist hér áður fyrr, — og svo ekkjur og ekkl- ar. Við gætum svo staðið fyrir fjár- söfnun handa hinum bágstöddu og látið þá þakka okkur í sjónvarpi og útvarpi fyrir framan alþjóð með tárin í augunum yfir „góðmennsku" okkar. i Sem betur fer eru enn til þeir íslendingar, sem vilja að allir fái að lifa með reisn. Sem telja að allir eigi rétt á að taka ákvörðun um líf sitt. Jafnvel þá ákvörðun að skilja við maka sinn, án þess að fara við það á vonarvöl. Foreldrar í láglaunahópum þessa lands. í sameiningu getum við þrýst á ráðamenn að bæta ástandið í dagheimilismálunum, svo öll börn eigi kost á gæslu þar. Núverandi ástand er óþolandi. Mánaðargjald dagheimilanna er nú kr. 7.900 fyrir hvert barn einstæðra foreldra og námsfólks en 13.200 fyrir aðra. Gjald dagmóður er aftur á móti 27.100 á mánuði fyrir hvert barn, skv. upplýsingum frá Félagi dag- mæðra í Reykjavík og það gjald verður gift fólk og sambúðaraðilar að greiða, þar sem dagheimilarými eru ekki einu sinni nógu mörg fyrir börn einstæðra foreldra hvað þá öll börn sem þurfa á gæslu að halda. Hveiju sveitarfélagi er í sjálfsvald sett hvort það greiðir niður gjald til dagmóður fyrir einstæða foreldra og námsfólk en víðast mun það þó vera gert. Dagheimilin taka ekki við öðrum en börnum „forgangs- hópanna" á biðlista sína, þannig að þeir gefa alranga mynd af þörf- inni. Þó talið sé sjálfsagt-mál að tvo aðila þurfi til að sjá fyrir fjöl- skyldu svo vel sé virðast ráðamenn loka augunum fyrir þessum stað- reyndum. Hvað ætlast þeir til að sé gert við börnin á meðan báðir foreldrar vinna utan heimilisins? Hver veit nema „pappírsskilnuð- unum“ sem prestarnir hafa sem mestar áhyggjur af myndi fækka til muna, kæmust þessi mál í viðun- andi horf. Því vissulega væri það mikil kjarabót fyrir láglaunafólk, og jafn sjálfsagt og nauðsynlegt og að hækka skattleysismörk og að lægstu laun færu aldrei niður fyrir þau mörk. Við megum ekki láta undarlega uppsett dæmi tekin úr lausu lofti etja okkur út í baráttu hvert við annað. Við skulum heldur taka höndum saman og beijast fyrir því sem hlýtur að vera sameiginlegt markmið okkar allra: Betri fjár- hagsleg og félagsleg staða fjöl- skyldnanna, örugg og góð uppeldis- skilyrði barnanna okkar. Höfundur erformaður Félags einstæðra foreldra. jBibem Breióar aó aftan Mjórri aó framan Mittisteygja Teygja vió lærin Ofnæmisprófaóar • Óbleiktar Guðný Kristjánsdóttir „Er þá algengast að giftir einstaklingar hafi að meðaltali kr. 100.000 í launatekjur á mánuði meðan hið dæmigerða einstæða foreldri hafi 200.000?“ Nettó tekjur á mánuði voru því að meðaltali kr. 101.074 og af þess- ari upphæð greiddi hún svo dag- heimilisgjald fyrir bæði börnin. Þessi fjölskylda ber sig vel og biður engan að vorkenna sér, en skilur ekki alveg af hveiju hún er svona fjarskalega öfundsverð og hvers vegna kjör hennar eru hjóna- skilnaðarhvetjandi. Hver var tilgangurinn með því samanburðardæmi sem birtist í fjölmðlunum í marsmánuði sl.? Er það ósk þeirra sem að því dæmi stóðu og þeirra sem voru sem and- aktugastir yfir niðurstöðunni að við snúum aftur til þeirra tíma þegar ekkjur og munaðarleysingjar þurftu að þreyja þrautagöngu og lifa á náð og miskunn „góðhjartaðra“ manna og kvenna? Á að stöðva þá sem svindla á kerfinu, með því að hætta að greiða mæðralaun og hærri barnabætur til einstæðra foreldra? Fráskildir einstæðir foreldrar yrðu vafalaust miklu færri, þar sem fá- tækt fólk hefði ekki efni á að skilja, hversu slæmt sem hjónabandið væri. Eftir stæðu „konur sem eiga börn í lausaleik" — eins og svo Aörar bleiur Margiir hyggur auð í annars garði eftir Guðnýju Kristjánsdóttur Fyrir nokkru var um það rætt í fjölmiðlunum að „kerfið" væri vont við fjölskyldufólk. Þegar nánar var að gætt kom í ljós að þar var átt við heiðariega gift fólk eða skrásett sambúðarfólk með þijú börn á framfæri. í þessu sambandi var gerður samanburður á högum þess- ara fjölskyldna og svo aftur á móti einstæðs foreldris og óskrásettra sambúðaraðila með sama barna- fjölda á sínum snærum og aftan við hnýtt meðlagsgreiðanda þriggja barna. Útkoman úr dæminu sem til var tekið sýndi að meðlagsgreið- andinn hafði það best, fast á eftir fylgdi einstæða foreldrið og þeir sambúðaraðilar sem svindla á kerf- inu, en „heiðarlega ljölskyldan“ var langverst sett. Gat verið um aprílgabb að ræða? Einhver með skopskynið í kald- hæðnara lagi? Nei, ekki virtist herra biskupnum yfir íslandi vera skemmt í viðtali í útvarpinu. Lýsti hann áhyggjum sínum og prestastéttar- innar allrar yfir þessari þróun. Kerf- ið væri hjónaskilnaðarhvetjandi, þar sem fólk sæi í hendi sér að það gæti helst rétt við bágan íjárhag með því að nýta sér þau hlunnindi sem fylgdu því að vera einstætt foreldri. Auðvitað ætti eitthvað að gera fyrir þá sem minna mega sín en nú væri öllu öfugt snúið og það bitnaði á fjölskyldunni. En lítum nú nánar á dæmið sem upp var sett í blöðunum á dögunum. Og takið nú eftir. Aðeins eitt dæmi var tekið. Hjón sem bæði vinna utan heimilis og hafa samanlagt 200 þúsund krónur í launatekjur á mánuði annars vegar og hins vegar einstætt foreldri eitt og sér með sömu launatekjur á mánuði og hjón- in bæði samtals. Er þá algengast að giftir ein- staklingar hafi að meðaltali kr. 100.000 í launatekjur á mánuði meðan hið dæmigerða einstæða for- eldri hafi 200.000? í launatöxtum verkalýðsfélag- anna er þó ekki að finna sértaxta fyrir hjón og annan fyrir einstætt foreldri, sem virðist þó liggja í aug- um uppi að miðað sé við í þessu furðulega dæmi. Við könnumst við að launamismunur er nokkur hér hjá vorri þjóð, er jafnvel að aukast. En hingað til hefur því verið haldið fram að hann sé á milli starfs- stétta, en fari ekki eftir hjúskapar- stöðu viðkomandi launþega, verka- maður að öllu jöfnu með lægri laun en ráðherra o.s.frv. Einnig segir Kvenréttindafélag íslands að konur séu flestar með mun lægri laun en karlar. í hagskýrslum má finna að lang- flestir einstæðir foreldrar eru kon- ur. Og fullyrt að þær sitji fáar á ráðherrastól. Ög launin eru þá sennilega í samræmi við það. Von- andi eru til þeir einstæðu foreldrar sem hafa í raunveruleikanum 200 þúsund króna laun á mánuði, en því miður eru meðaltalsjónurnar með langtum lægri laun. Konur sem vinna t.d. í fiski, við ræstingar, á gæsluvöllum og dagheimilum, í skólum, verslunum, skrifstofum og við önnur þjónustustörf. Og algeng- ustu launin svona á bilinu frá 60-80 þúsund á mánuði. En það var þetta með „hlunnind- in“. Einstæðir foreldrar fá meðlag með börnum sínum. Fæstum finnst það óréttlátt og fáir telja það til hlunninda. Meðlag greiðir það for- eldrið sem ekki hefur forsjá barn- anna, svo ekki er það tekið úr vasa hins almenna skattborgara. Trygg- ingastofnun ríkisins greiðir barna- lífeyri (sama upphæð og meðlag) ef foreldri er látið. Vonandi telja fæstir það eftir. Mæðra- og feðra- laun greiðir sama stofnun einstæð- um foreldrum. Barnabætur greiðast í gegnum skattakerfið. Þær miðast við barnafjölda og eru ekki tekju- tengdar, en eru heldur hærri til ein- stæðra foreldra en annarra, nú 2.299 á mánuði. Munurinn er meiri þegar barnið hefur náð 7 ára aldri, því þá lækkar upphæðin til giftra foreldra og sambúðarfólks (á hvaða forsendum?), en helst óbreytt hjá einstæðum foreldrum. Barnabótaauki fer hvorki eftir aldri barna né hjúskaparstöðu for- eldranna, en er aftur á móti tekju- tengdur. Barnabætur og barnabóta- auki greiðast út á þriggja mánaða fresti. Skoðum nú eitt raunverulegt dæmi: Kona, einstætt foreldri með tvö börn á framfæri. Meðaltalstölur á mánuði 1990: Tekjur: Kr. Launatekjur 70.00 Meðlag 13.627 Mæðralaun 11.187 Barnabætur 12.602 Bamabótaauki 6.641 114.057 Frádráttur: Kr. Skattar 9.483 Lífeyrissjóður 2.800 Félagsgjald 700 12.983
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.