Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 47
47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1991
Minning:
Jóna S. Guðmunds-
dóttirfrá Hesteyri
Mánudaginn 20. maí lést á sjúkra-
húsi í Hafnarfirði Jóna Sigurveig
Guðmundsdóttir, húsmóðir, Lækjar-
götu 10 í Hafnarfirði, frá Hesteyri
í Jökulíjörðum, Sléttuhreppi N-ís,
eiginkona Guðmundar Þorgeirssonar
frá Miðhúsum í Garði. Heimilið á
Lækjargötu 10 var sérstakt um
marga hluti. Gestrisnin og hjartahlýj-
an, sem stafaði frá heimilisfólkinu,
var svo mikil, að ekki gleymist.
Jóna var Norður-ísfirðingur í báð-
ar ættir úr Grunnavíkur- og Sléttu-
hreppum. Foreldrar hennar voru
hjónin Guðmundur Þeófílusson,
bóndi frá Látrum í Aðalvík, og Ket-
ilríður Guðrún Veturliðadóttir, hús-
móðir frá Dynjanda í Jökulíjörðum.
Þau hjón bjuggu á þremur stöðum
mislangan tíma, Atlastöðum í Fljóta-
vík, Nesi í Grunnavík og á Hesteyri.
Guðmundur féll út af vélbáti á Látra-
lagi og drukknaði 24. mars 1917.
Ketilríður hélt heimili sitt á Hesteyri
til 1943 og stjórnaði með skörungs-
skap og festu og ríkri umhyggju
fyrir velferð þess og hagsæld. Hún
var hin mesta dugnaðarkona, ósér-
hlífin, fórnfús, prýðilega verki farin
og vel að sér í öllu því, sem húsmóð-
urstörfunum heyrði til. Hún var
ástrík móðir, skilningsgóð á þarfir
barnanna og vildi á allan hátt búa
þau sem best undir lífið og lífsstarf-
ið. Ketilríður andaðist 1959, nær 80
ára gömul. Þau hjón, Guðmundur og
hún, eignuðust 9 börn, sem talin eru
eftir aldri: Veturliði Jakob, bóndi á
Hesteyri, fæddur 27. janúar 1899,
d. 24. ágúst 1942, átti Petólínu
Oddnýju Þorbergsdóttur úr Efri-Mið-
vík; Bjarni, fæddur 26. júní 1900,
verkstjóri v/Togaraafgreiðsluna' í
Reykjavík, nú á Hrafnistu, átti Svan-
hildi Vatle; Sigurlína, fædd 9. desem-
ber 1901, lést í desember 1990, síð-
ast húsmóðir í Keflavík, átti Sölva
Þorbergsson, bónda í Efri-Miðvík;
Margrét, fædd 2j9. maí 1904, búsett
á Isafirði, ógift; Ólafur Helgi, fæddur
5. mars 1906, dáinn 15. ágúst 1956,
ókvæntur og barnlaus; Jóna Sigur-
veig, sem hér er minnst; Mikael,
fæddur 12. september 1912, látinn,
barnlaus og ókvæntur; Kristján El-
ías, fæddur 13. febrúar 1916, dáinn
á síðasta ári; Guðmundur Elías,
fæddur 16. maí 1917, látinn, fram-
kvæmdastjóri á ísafirði, átti Lilju
Halldórsdóttur. Auk þess ól Ketilríð-
ur upp tvö bamabörn sín, Ragnheiði
og Gústaf.
Jóna stundaði nám við Húsmæðra-
skólann á ísafirði, sem reyndist henni
mjög dijúgur skóli. Hún var heima-
elsk og hugur hennar, líf og störf
snerist mest um ástvinina, eiginmann
og börn. Áttu þó margir fleiri hauk
í horni þar sem Jóna var. Hún var
sívinnandi í höndum þegar heilsan
leyfði, t.d. útsaum, var hún listelsk
hannyrðakona. Eru margir fallegir
munir eftir hana á heimilinu og hjá
börnunum. Jóna bar tígullegt yfir-
bragð, hún var vinsæl kona í allri
umgengni, trygglynd, frændrækin
og vinföst, góðgjörn og hjálpsöm og
vildi hvers manns vandræði leysa.
Hún var glaðlynd í eðli sínu og fé-
lagslynd. Hún var alls staðar ósér-
hlífin og góður liðsmaður. Ung að
árum kynntist hún Sæmundi Alberts-
syni á ísafirði og áttu þau satnan
þijú börn: Gústaf, starfsmann á Ála-
fossi, búsettur í Reykjavík; Laufey,
húsmóðir í Bandaríkjunum; Gunnar,
kennari í Reykjavík. Þau slitu sam-
vistir.
Árið 1941 urðu þáttaskil í lífi Jónu
Sigurveigar er hún giftist eftirlifandi
eiginmanni sínum, Guðmundi Þor-
geirssyni. Þarna hófst sambúð og
samhjálp er síðan hefur staðið í hálfa
öld báðum til gagns og gleði. Þau
studdu hvort annað. Börn þeirra eru:
Guðmundur Elías, húsasmiður í
Hafnarfirði, Elísabet, húsmóðir í
Kópavogi.
Jóna dvaldi á sjúkrahúsi á annað
ár og naut hjúkrunar og umönnunar
hjúkrunarliðs og lækna St. Jósefss-
pítala í Hafnarfirði. Eru hér færðar
þakkir fyrir kærleiksríka umönnun.
Eiginmaður hennar, Guðmundur,
sýndi henni fagurlega hugarfar
traustsins og kærleikans með reglu-
legum heimsóknum á sjúkrahúsið,
ásamt börnunum. Það gaf Jónu hug-
rekki og rósemi, yl og birtu að finna
hin_ traustu kærleiksbönd.
Ástvinum hennar, eiginmanni,
systkinum, börnum og öðrum nánum
vinum votta ég alúðarfyllstu samúð
og bið almættið að græða sárin. Ég
bið henni Guðs blessunar á Sumarl-
andinu.
Helgi Falur Vigfússon
Minninga-
tónleikar
um Sigurð
Ágústsson
Syðra-Langholti.
TÓNLEIKAR til minningar um
Sigurð Ágústsson, bónda og tón-
skáld frá Birtingaholti er lést
nú í maímánuði, verða haldnir
tónleikar að Flúðum miðviku-
daginn 29. maí kl. 21.00. Þar
verður flutt tónlist eftir hinn
merka listamann.
Kór Langholtskirkju syngur
Þjóðhátíðarkantötu sem samin var
í tilefni 1100 ára afmælis íslands-
byggðar. Stjórnandi er Jón Stef-
ánsson og einsöngvarar eru Signý
Sæmundsdóttir og Þorgeir Andrés-
son. M-hátíðarkór Uppsveitar Ár-
nesssýslu vestan Hvítár syngur
undir stjóm Jónínu Kristinsdóttur.
Sigurður Ágústsson
Kiwaniskórinn svo og kirkjukórar
Hruna- og Hrepphólasóknar syngja
undir stjórn Heiðmars Jónssonar.
Einnig syngur Samkór Selfoss.
Stjórnandi er Jón Kristinn Cortes.
Eftir Sigurð Ágústsson liggja
fjölmörg tónlistarverk sem munu
varðveita minningu listamannsins
um ókomna tíma.
- Sig.Sigm.
Koffein-
skert kaffi
frá Merrild
DANSKA fyrirtækið Merrild
Kaffe A/S hefur sett nýtt kaffi á
markað hér á landi, Merrild Light.
Merrild Light er koffeinskert kaffi
sem inniheldur aðeins helming koff-
einmagns á við venjulegt kaffi. Kaffi-
bragðið helst þó hið sama eftir sem
áður, því að koffeinið er fjarlægt á
náttúrulegan hátt með hreinu vatni
svo að ekkert af hinu góða bragði
tapast. Merrild Light inniheldur að-
eins 0,7% koffein, en hefðbundið
kaffi inniheldur 1,2-2,3% koffein.
Nákvæmar rannsóknir á kaffi og
markaðskannanir á Norðurlöndum
hafa leitt í ljós að mikill markaður
er fyrir koffeinskert kaffi sem að
öllu leyti hefur eiginleika hefðbund-
ins kaffis. Merrild Light er því góður
kostur fyrir þá, sem að jafnaði neita
sér um að drekka kaffi, segir í frétt
frá fyrirtækinu.
Triiimjih
VORLINAN
SAUÐÁRKRÓKI
Vinningstölur laugardaginn 25. maí 1991
m
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 0 2.433.385
4. 4 af 5 84.502
3. 4af 5 134 5.439
4. 3af 5 4.636 366
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.281.497 kr.
Ath. Vinningar undir 12.000 krónum eru greiddir út
á Lottó sölustöðum.
Þol - þakmálning
Þekur, verndar og fegrar
Þarftu að mála þakið? Þá vantar þig Þol
þakmálningu frá Málningu hf. Hún er
sérstaklega framleidd fyrir bárujám
og aðra utanhússfleti sem
þarfnast varanlegrar vamar.
Þol er hálfgljáandi alkýð-
málning sem er auðveld í
////
OJt. UKWiWUSS
MtKtomtmní
notkun. Þol þakmálningin dregur nafn af
einstöku veðrunarþoli sínu og litaúrvalið er
_____fjölbreytt. Þol þakmálningin frá
Málningu hf. er punktur-
, inn yfir vel málað hús. -
Það segir sig sjálft.
Næst þegar þú sérð fallega málað hús — kynntu þér þá hvaðan málningin er
Imálning'f
-það segir sig sjálft -