Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 45
leei íam .82 auoAaui(3ifl<i aiaAjavíuoflOM Tt- MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1991 45 Minning: Guðni Stefán Jóns son frá Heiði Fæddur 15. maí 1920 Dáinn 19. maí 1991 Stefán föðurbróðir minn var son- ur hjónanna Bjargar Sveinsdóttur og Jóns Guðnasonar sem bjuggu allan sinn búskap að Heiði í Sléttu- hlíð, Skagafirði. Þau eignuðust sjö böm. Heiðdal og Guðjón sem voru eldri en Stefán eru látnir en eftirlif- andi systkini eru Guðrún, búsett á Siglufirði, Jóhann, búsettur í Reykjavík, Guðbjörg, vistmaður á Kópavogshæli, og Marteinn búsett- ur í Garði á Suðurnesjum. Þau systkinin þurftu snemma að taka til hendinni sem þótti reyndar sjálfsagt í þá daga og fékk heimilis- fólkið orð fyrir mikla vinnugleði og glaðværð. Oft var kveðist á og lesn- ar upp sögur heilu kvöldin eða tek- ið í spil og teflt. Þar naut Stefán sín vel því hann var stálminnugur og átti auðvelt með að tileinka sér það sem hann hafði áhuga á. Hann var alla tíð vel heima í þjóðlegum fróðleik og svo mikinn áhuga hafði hann á taflmennsku að eitt sinn er hann var ungur maður á Heiði tefldi hann við félaga sinn í gegnum símann. Stefán var á Heiði þar til hann var fulltíða maður. Síðan við nám í Bændaskólanum að Hólum og sóttist námið svo vel að hann lauk tveggja vetra námi á einum vetri með 1. einkunn. Hafði hann áhuga á frekara námi en af því varð þó ekki. Árið 1955 hóf hann búskap að Heiði með sambýliskonu sinni Rögnu Jóhannsdóttur frá Hrauni í Sléttuhlíð. Þau bjuggu fyrstu fjög- ur árin í félagi við foreldra hans en við lát þeirra tóku þau við allri jörðinni. Þau bjuggu þar ágætisbúi enda bæði harðdugleg og fyrir- hyggjusöm. Það gleymast seint móttökurnar sem lítil frænka fékk þegar hún kom í heimsókn til þeirra þar, því frændi fór fyrst með okkur krakk- ana út í leiki sem hann virtist hafa jafn mikla ánægju af og við en síð- an beið okkar veisla inni í bæ hjá Rögnu. Á Heiði fæddist þeim einka- barnið Stefanía Björg. Árið 1969 brugðu þau búi og fluttu til Reykjavíkur og hafa búið síðan á Kleppsvegi 58. Þar hefur alltaf verið gott að koma og þiggja hlýjar og rausnarlegar móttökur enda hafa húsráðendur verið ákaf- lega gestrisnir og barngóðir. Því hafa börnin mín svo sannarlega fengið að kynnast. Fljótlega eftir komuna til Reykjavíkur hóf Stefán störf hjá Kassagerð Reykjavíkur og vann þar í tæp 20 ár eða þar til heilsan fór að gefa sig. Hann undi hag sínum hér í Reykjavík þó hann væri mikið náttúrubarn en hann var félagslyndur og hafði þar af leiðandi ánægju af að fara á mannamót hér. Eitt aðaláhugamál Stefáns var sjómennska sem hann stundaði bæði með búskapnum og eins eftir að hann fluttist hingað suður. Stefanía dóttir þeirra er hjúkr- unarfræðingur hér í Reykjavík og á hún einn son, Guðna Stefán, sem hefur átt því láni að fagna að geta verið mikið með afa sínum og ömmu. Stefanía hefur alla tíð reynst foreldrum sínum ákaflega vel en þó sérstaklega þegar heilsu þeirra fór að hraka nú síðari árin. Stefán frændi bar sig vel í veik- indum sínum enda ekki alinn upp við sjálfsvorkunn. Ragna sá um að hann fengi rétt mataræði sam- kvæmt læknisráði og fór hann sam- viskusamlega eftir því. Einnig stundaði hann sundlaugarnar eftir því sem aðstæður leyfðu. Þess vegna leit hann mjög vel út og erfitt að ímynda sér að dauðinn væri nú á næsta leiti þó svo að alltaf mætti búast við því eins og heilsu hans var komið. Ég flyt hér með kveðju og þakk- læti frá fjölskyldu minni og ætla að láta lokaorðin verða þau sem sonur minn sagði er hann frétti lát frænda síns því þessi orð lýsa Stef- áni mjög vel: „Hann var góður maður.“ Blessuð sé minning Guðna Stef- áns Jónssonar. Ólöf í gær var lagður til hinstu hvílu minn kæri vinur Stefán Jónsson. Stebbi, eins og hann var alltaf kall- aður, var fæddur og uppalinn á Heiði í Skagafirði. Foreldrar hans voru Björg Sveinsdóttir og Jón Guðnason. Stebbi var lengst af bóndi og sjómaðúr en flutti hingað til Reykjavíkur árið 1969 með konu sinni Rögnu Jóhannsdóttur og einkadóttur þeirra Stefaníu Björgu. Þegar á mölina var komið hóf Stebbi störf hjá Kassagerð Reykja- víkur og vann þar til ársins 1987 en lét þá af störfum sökum heilsu- leysis. Stefán var þó aldrei iðjulaus og dundaði við beitingu og afskurð af hnetum svo eitthvað sé nefnt því sjómennskan var honum ætíð ofarlega i huga. Jafn vinnuglaðan og samviskusaman lífsins þjón er vart hægt að hugsa sér því Stebba féll aldrei verk úr hendi og sinnti skyldum sínum af natni og alúð. Eins var það með nálgun Stebba við mig, sem var full af nærgætni og skilningi á skynjun og tilfinning- um lítils barns þegar við Stebbi komum inn í líf hvors a’nnars. Ég var þó tæpra tveggja ára og ekki hugrökk að feta fyrstu sporin inn á framandi heimili úr öruggum móðurfaðmi. En Stebbi og Ragna eyddu þeim kvíða með ástríki sínu sem barnunginn þarfnaðist. Einnig hún Stefanía sem sýndi mér góð- vild og þolinmæði og gaf mér á sinn hátt hlutdeild í foreldrum sín- um. Já, við Stebbi urðum strax mikl- ir mátar og hann á heiðurinn af því að vera minn fyrsti alvöru leikfélagi. Stebbi var einstakur, alltaf boðinn og búinn að ljá mér langa og dýrmæta stund af tíma sínum að loknum vinnudegi. Beið ég hans oft með óþreyju þegar líða tók á daginn og er hann birtist í gættinni fagnaði ég honum af barnslegri kæti. Við Stebbi vorum alltaf svo glöð saman, gátum bros- að og skellt upp úr af minnsta til- efni. Mér eru minnisstæðar þær stundir þegar Stebbi sat með mig í fanginu og las mér sögur. Við áttum okkur eina uppáhaldssögu, „Pönnukökukónginn“, sem við lás- um aftur og aftur og höfðum mik- ið dálæti á. Stebbi var bókhneigður maður og las fyrir mig íslendinga- sögur á forníslensku. Stebbi var góður sögumaður og tókst svo eft- irminnilega með látbragði sínu að töfra fram ævintýrablæ sagnanna. í huga Stebba var menntun máttur og fýlgdist hann af áhuga með framförum mínum þegar kom að skólagöngu minni. Stebbi spurði gjarnan um reikninginn því hann var töluglöggur mjög og lét mig oft spreyta mig á dæmum sem hann útbjó sjálfur. En leikurinn var aldrei langt undan alvörunni og þá sungum við Stebbi og hann spilaði á kassagítarinn. Og svo voru það gönguferðirnar, þessar yndislegu ferðir þegar við leiddumst hönd í hönd og Stebbi sagði mér sögur úr sveitinni. Það sést best á því hversu kær hann Stebbi var mér að þegar hann var í vinnunni sakn- aði ég nærveru hans og félagsskap- ar. Mér fannst það því sérstakur greiði þegar hún Ragna bjó mér það erindi að hlaupa út í Kassa- gerð til Stebba með nesti í tösku. Nú þegar leiðir skilja og minn- ingarnar streyma um hugann, minningar sem verma og gleðja, ber að þakka. Þakka Stebba hans elsku, tryggð og umhyggju fyrir mér og mínu fólki. Blessuð sé minn- ing um góðan mann. Pálína Jónsdóttir Það er skrítið að afi skuli vera farinn. En ég þarf ekki að gráta af því að ég veit að honum líður vel. Ég átti þess kost að eiga með honum samleið fyrstu átta ár ævi minnar. Afi kenndi mér að tefla, fór með mér í fótbolta og sagði mér sögur. Ósköp fannst mér gaman þegar ég kom heim til afa eftir síðasta skákmót og ég þurfti að segja hon- um aftur og aftur frá hvernig mér tókst að máta í fyrstu þremur umferðunum. Ég veit að við afi eigum eftir að hittast aftur. Kannski verður það í Nangijala í Kirsjubeijadal. Þa veit ég að afi verður niður við spegilsléttan sjóinn að undirbúa haug af netum. Og báturinn, svo skínandi fallegur, bíður á strönd- inni. Á meðan hendurnar vinna hratt og örugglega rifjar hann upp í hugskoti sínu ljóð, vísu eða rímu eða býr til eitthvað nýtt. Ég sé fyrir mér gleðina sem skín úr and- liti hans. Nú þarf hann ekki að hafa áhyggjur af því að reyna of mikið á líkamlega krafta og verða of þreyttur. Kæra afa þakka ég allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Guðni Stefán Pétursson NORDMENDE MS-3002 er vönduð hljómtækja- samstæða með hálfsjálfvirkum reimdrifnum plötuspilara; staf- rænu útvarpi með FM/MW/LW- bylgjum, stöðvaminni, sjálfvirkri stöðvaleit og sjálfvirkri finstillingu; 2 x 70 W magnara með 3 rása tónjafnara, og innbyggðum Surround Sound-hljomgæðum; tvöföldu segulbandi með hrab- upptöku, sispilun, endastövun og teljara; 3 Ijósráka geisla- spilara með 0,6 sek. sóknartíma 20 lögum o.m.fl.auk tveggja vandaðra tívátta hátalara í viðarumgjörð og þráblausri fjarstýringu fyrir allar abai- aðgerðir samstæðunnar. Aukabúnaður: 2 stk. Surround System-hátalarar: Verb áður4.990,- Útsöluverb 4.500,- eða 3.900,- stgr. Skápur meb glerhurb og á hjólum: Verb ábur 13.900,- Útsöluverb 10.900,- eba 9.900,- stgr. MS-3002 kosta&i áí)ur 54.900,- en útsöluverb er 44.900,- eöa aöeins 39.900,- stgr. E EUROCARO ■■■■■ — m V/SA Sajrikort MHI MUNÍ ÁN greiöslukjör vib allra hæfi til allt ab 30 mán. SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800 íbúðar- og sumarhús byggð af traustum aóilum. Leitaöu upplýsinga og fáöu sendan bækling. S.G. Einingahús hf. Selfossi, sími 98-22277
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.