Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 51
MQR(fU|NBLAEW£} i&flJWffiíAQVPi 28* RfAÍ 1991 51 ' SveinnH. Valdemars- son - Kveðjuorð Látinn er Sveinn H. Valdemars- son skipstjóri. Hann fæddist 16. maí 1930 í Kollugerði í Vindhælis- hreppi, A-Húnavatnssýslu, en átti sín bernsku- og unglingsár heima á Svansgrund og síðar Neðstabæ í Norðurárdal í sömu sýslu. 21 árs lagði hann á sjóinn og sjómennska varð hans lífsstarf upp frá því, þar til yfír lauk. Hann tók gagnfræðapróf frá Reykjaskóla í Hrútafirði, fiski- mannapróf frá Stýrimannaskólan- um í Reykjavík 1955 og farmanna- prófi frá sama skóla 1958. Fyrir og eftir fiskimannapróf stundaði Sveinn störf á ýmsum fiskiskipum, bátum og togurum, en á miðju ári 1956 hélt hann út til Noregs í sigl- ingar. Hugur hans stefndi til far- mennsku, en siglingatími á far- skipi, sem er skilyrði til farmanna- náms við Stýrimannaskólann í Reykjavík, var ekki auðfenginn í þá daga á íslenskum farskipum. Haustið 1957 settist hann í far- mannadeild Stýrimannaskólans, eftir að hafa aflað sér tilskilins sigl- ingatíma, og laúk farmannaprófi um vorið. Strax að prófi loknu hóf hann störf á ms. Kötlu, skipi Eimskipafé- lags Reykjavíkur, og var þar rúmt ár. 1960 réðst hann til Landhelgis- gæslunnar og starfaði á ýmsum skipum þeirrar stofnunar til ársins 1962 er honum bauðst starf hjá Hafskipum hf. Skipstjóri varð hann á ms. Laxá og síðar á ms. Skaftá og hefur af sjómönnum jafnan ver- ið kenndur við annað hvort þeirra skipa. Allir vita hver endalok Haf- skipa hf. urðu og réði Sveinn sig þá til Skipadeildar SÍS þar sem hann lauk sínu lífshlaupi. Leiðir okkar Sveins lágu fýrst saman 1952 um borð í togaranum Gylli frá Flateyri og entust þau kynni allar götur síðan án þess að þar félli nokkru sinni skuggi á. Við leigðum saman, sigldum saman, lærðum saman báða vetuma sem við vorum í Stýrimannaskólanum og margar stundirnar unnum við saman að félagsmálum. Þrátt fyrir að vitað var að Sveinn gengi ekki heill til skógar kom lát hans mér á óvart og ég er ósáttur og sár. Því hvað sem má um það segja að þessi sé vegur okkar allra, þá fínnst mér rúm sextíu ár ekki hár aldur. Sveinn átti svo ótalmargt eftir ógert og fjörutíu ár til sjós tóku dijúgan toll af starfsþreki hans. Ég fullyrði að Sveinn var með mætari skipstjómm sem siglt hafa á kaupskipaflotanum, góður sjó- maður, kappsfullur með forsjá og greindur vel. Hann var alvörumað- ur, lagði alúð við hvert það starf sem hann tókst á hendur og skilaði ríkum árangri. Það varð honum mikið áfall þegar Hafskip hf., það félag sem hann hafði starfað af kostgæfni fyrir í yfír tuttugu ár, fór á hausinn. Aldrei verður honum kennt um það, en það hlýtur engu að síður að ýera flestum ljóst, að það hefur verið erfiður biti að kyngja. Samt var seigla hans það mikil að aftur lagði hann á brattann og hóf störf sem stýrimaður að nýju. Sveinn var félagsmaður góður og ávallt vel meðvitaður um þýð- ingu stéttarsamheldni. Hann vann mikið að félagsmálum skipstjóra og var gott að standa við hlið hans eða eiga hann að, hvort heldur var við gerð kjarasamninga eða við almenn félagsstörf. Hann var stjórnarmað- ur í SKFÍ um árabil og formaður þess frá 1979 til 1983. I samninga- nefnd félagsins var hann mörg ár og vann öðrum fremur að lífeyris- málum skipstjóra, en þau eru, væg- ast sagt, í skötulíki ef undan eru skilin lífeyrisréttindi þeirra skip- stjóra sem unnið hafa hjá ríkinu og þeirra sem eiga réttindi sín í Lífeyrissjóði sjómanna. Það er sorg- legt til þess að vita hvað litlum skilningi þessi mál hafa mætt og staðreynd sé að skipstjórar skuli neyddir til að halda áfram störfum frám á sjötugt svo að þeir geti öðl- ast full lífeyrisréttindi. Ekki síst þegar haft er í huga hið gífurlega álag sem í dag fylgir fækkun í áhöfnum, auknum afköstum og harðri sjósókn kaupskipaflotans. En ef skilningur á þessum málum skyldi breytast með betri tíð og barátta Sveins skila árangri, þá mætti minnast ljóðlínanna góðu: „Fáir njóta eldanna sem fyrstir kveikja þá.“ Sveinn kvæntist Elísabetu Jóns- dóttur árið 1961 og eignuðust þau fímm börn en son hafði hann eign- ast áður, 1956. Um leið og ég sendi Elísabetu, börnum hans og barnabörnum, svo og öðrum aðstandendum mínar innilegustu samúðarkveðjur, vil ég endurtaka að genginn er góður drengur og engum vandalausum manni á ég jafn mikið að þakka og Sveini H. Valdemarssyni. Höskuldur Skarphéðinsson Kveðja frá Skipstjórafélagi íslands Aðfaranótt 18. maí sl. lést á sjúkrahúsi í Moss, Noregi, Sveinn H. Valdemarsson stýrimaður og fyrrverandi skipstjóri. Sveinn byijaði ungur að stunda sjómennsku sem varð hans ævistarf. Fyrst á hinum ýmsu togurum frá 1951, síðan sem stýrimaður frá 1958 til 1965 er hann varð fastráðinn skipstjóri hjá Haf- skip hf. þar til það skipafélag hætti störfum. 4. júní 1965 gekk Sveinn í Skipstjórafélag íslands og var hann meðstjórnandi í stjóm félagsins 1978 og formaður 1979 til 1984. Þann rúma aidarfjórðung sem Sveinn var félagi í Skipstjórafélagi íslands kom hann víða við og er vart til sú nefnd sem hann starfaði ekki í. Sveinn starfaði að samninga- málum fyrirfélagið frá 1978, mennt- amálanefnd frá 1985, stjóm Styrkt- arsjóðs frá 1985 og formaður lífeyr- ismálanefndar frá 1990 til dauða- dags. Samningamál og lífeyrismál voru Sveini afar hugleikin og var hann ávallt boðinn og búinn til starfa í þeim málum, þótt oft og tíðum væru stoppin stutt á milli ferða en síðustu árin starfaði hann sem stýri- maður hjá Skipadeild Sambandsins, nú Samskip hf. Á engan félagsmann Skipstjórafélagsins er hallað þótt sagt sé að Sveinn hafi verið einn starfsamasti og ötulasti félaginn í þeim málum. Sveini sveið sárt það misrétti sem farmenn búa við í lífeyr- ismálum þegar að starfslokum kem- ur og barðist hann ásamt öðrum félögum Skipstjórafélags íslands fyrir leiðréttingu þeirra mála. Sveinn var alltaf fullur bjartsýni og þess fullviss alla tíð að réttlæti myndi nást í lífeyrismálum farmanna. Fyrir hönd stjórnar Skipstjórafé- lags íslands flyt ég ekkju Sveins, frú Elísabetu Jónsdóttur, og börnum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Að leiðarlokum eru Sveini þökkuð mikil og góð störf í þágu félagsins. Við minnumst öll góðs drengs, sem nú er genginn. Helga Jakobs. BLÓM SEGJA ALLT Mikið úrval blómaskreytinga fyrir öll tækifæri. Opiö alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070. t Bróðir okkar, FRIÐRIK HAFSTEIIMIM RUNÓLFSSOIM málarameistari frá Hólmavík, sem lést 22. maí sl., verður jarðsunginn frá Langholtskirkju í Reykjavík fimmtudaginn 30. maí nk. kl. 13.30. Magna og Vigdfs Runólfsdætur. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem vottuðu minningu ÞÓRÐAR Á. MAGNÚSSONAR, eiginmanns míns og föður okkar virð- ingu. Sigurlaug Sigurjónsdóttir og börn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför bróður okkar, SIGURÐAR HELGASONAR, Skólavörðustíg 18. Sérstakar þakkir til Eimskipafélags íslands og samstarfsmanna hans. Systkini hins látna. t Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og útför SIGURÐAR ÁGÚSTSSONAR, Birtingaholti. Sérstakar þakkir færum við félögum úr karlakórnum Fóstbræðr- um, Karlakór Selfoss og Lúðrasveit Selfoss, sem heiðruðu minn- ingu hins látna við útförina. Ásgeir Sigurðsson, Jóna Simonardóttir, Ásthildur Sigurðardóttir, Guðmundur Ingimarsson, Arndís S. Sigurðardóttir, Skúli Gunnlaugsson, Sigurfinnur Sigurðsson, Ásta Guðmundsdóttir, Ágúst Sigurðsson, Sigrfður Eiriksdóttir, Magnús H. Sigurðsson, Guðbjörg Björgvinsdóttir, Móeiður Á. Sigurðardóttir, Þorleifur Eiríksson og aðrir afkomendur og tengdafólk. I t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, FINNBOGA ÞORSTEINSSONAR, Meistaravöllum 21. Lína Knútsdóttir, Sheila Jensen, Óle Jensen, Jóhanna Finnbogadóttir, Atli Ólafsson, Þorsteinn Finnbogason, Jórunn Finnbogadóttir, Hörður Hjartarson, Þorbjörn Finnbogason, Jackie Finnbogason, Knútur Finnbogason, Mary Cullinane, Inga Finnbogadóttir, Sævar Eiriksson, Bára Finnbogadóttir, Högni Gunnarsson, Heiðrún Finnbogadóttir, Ari Hallgrímsson, Ásdís Finnbogadóttir, Sigurður Ólafsson, Finnbogi Finnbogason, Kolbrún Óladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð- arför LÁRU LAUFEYJAR SIGURSTEINSDÓTTUR, Heiðmörk 1, Selfossi. Geir Þórðarson, Rut Sigurgrimsdóttir, Oddvar Egeli, Aðalheiður Sigurgrímsdóttir,Halldór Haraldsson, Svana Sigurgrímsdóttir, Örn Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. \ t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför okkar kæra BJÖRNS SIGFÚSSONAR fyrrum Háskólabókavarðar. Sérstakar þakkir færum við þeim mörgu, sem heiðruðu hann lát- inn með minningargjöfum. Læknum og hjúkrunarfólki á deild 12 A, Landspítalanum, eru færðar innilegar þakkir fyrir frábæra hjúkr- un í sjúkdómslegu. Kristín Jónsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug og veittu okkur stuðning við andlát og útför eigin- manns míns, föður, tengdaföður og afa, PÉTURS OTTESENS JÓNSSONAR rakarameistara, Sogaveg 164, Reykjavík. Kristín Elíasdóttir, Elsa Pétursdóttir, Steinarr Guðjónsson, Kristín Steinarsdóttir, Björg Steinarsdóttir, Rakel Steinarsdóttir, Bryndís Steinarsdóttir. r + Þökkum samúð og vinarhug við andlát og jarðarför HÁKONARGUÐRÖÐARSONAR bónda i Efri-Miðbæ, Norðfjarðarhreppi. Sigurlaug Bjarnadóttir, Bjarni Hákonarson, Finndís Harðardóttir, Guðröður Hákonarson, Þóra Lind Bjarkadóttir, Halldóra Hákonardóttir, Birgir Ólason, Sigurborg Hákonardóttir, Bjarni Aðalsteinsson, Jón Björn Hákonarson. Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.