Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991 • • Oryggisgæsla fyrir atlögu að föður sínutn SAKADÓMUR Reykjavíkur hef- ur dæmt 24 ára gamlan mann, sem talinn er ósakhæfur, til að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun fyrir að stinga föður sinn með hnífi í brjóstið að kvöldi 15. febrúar síðastliðins. Stungan gekk í gegnum brjóstkassann og inn í hægra lunga. Faðir hans þurfti að gangast undir aðgerð á sjúkrahúsi en varð ekki fyrir varanlegu líkamlegu heilsutjóni, að mati læknai Með athæfi sínu taldi sakadómur að maðurinn hefði gerst sekur um tilraun til manndráps en með hlið- sjón af geðheilbrigðisrannsókn á honum og framburði föður hans og vitnis, taldi dómarinn, Hjörtur 0. Aðalsteinsson sakadómari, að mað- urinn væri ósakhæfur og var honum því ekki dæmd refsing en gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun. Stakk mann með hnífi MAÐUR á þrítugsaldri var fluttur með sjúkraflugvél frá ísafirði til Reykjavíkur í fyrrinótt eftir að maður á Iíkum aídri hafði stungið hann með hnífi í kvið og læri. Hann er ekki talinn í lífshættu. Arásarmaðurinn er í haldi lög- reglu. Arásarmaðurinn kom á heimili mannsins í fjölbýlishúsi á ísafírði um klukkan fjögur að morgni og komst óboðinn inn í íbúð hans. Til stymp- inga kom sem lyktaði með því að árásarmaðurinn tók hníf í eldhúsi og stakk húsráðandann. Að sögn lög- reglu höfðu mennirnir átt í eijum um skeið en ekki var talið víst að árásarmaðurinn hefði komið á stað- inn með þann ásetning að vinna hin- um mein. Sjúkrabíll og lögregla voru kvödd á staðinn og var hinn slasaði fluttur á sjúkrahúsið á ísafirði en síðan flug- leiðis ti) Reykjavíkur. Að sögn lög- reglu var hann ekki talinn í lífshættu í gær. Árásarmaðurinn var færður I fangageymslur lögreglu vestra en hann var mjög ölvaður, að sögn lög- reglu, og í gær var ekki lokið yfir- heyrslum yfir honum og vitni sem var viðstatt atburðinn. Jóhannes Þórðarson Morgunblaðið/Árni Helgason Kristberg Finnbogason Sjómanni bjargað eftir 12 tíma volk: Fannst af tilvilj- un í svartaþoku KRISTBERGI Finnbogasyni sjómanni og eiganda Trausta SH 372, fjögurra tonna stálbáts frá Stykkishólmi, var bjargað er fjögurra tonna bátur hans sökk á Breiðafirði í fyrrakvöld. Kristberg hafði verið á lítilli gúmmítuðru í um það bil hálfan sólarhring er Jóhann- es Þórðarson á Gusti SH, sigldi fram á hann af tilviljun í svarta- þoku er hann var á leið að vitja lóða sinna. Kristberg var íklæddur flotgalla en var talsvert kaldur og þrekaður þegar komið var með hann til hafnar í Stykkishólmi síðdegis í gær. Hann sagði fréttarit- ara Morgunblaðsins að bátur hans hefði skyndilega fyllst af sjó og hann hefði Iítinn tíma haft til að koma gúmmítuðrunni á flot áður en Trausti var sokkinn. Síðast sást til Trausta SH í mynni Breiðafjarðar um kl.20.00 í fyrra- kvöld. Talið er að báturinn hafi sokkið á milli kl. 20.00 og 22.00. --------------------------j— Skipverjinn á Trausta SH fannst laust eftir kl. 11.00 í gærmorgun á gúmmífleka á miðjum Breiðafirði. BREIÐAF JÖRÐU R 40 km Kristberg kom ekki til hafnar í Stykkishólmi um miðnætti í fyrra- kvöld eins og hann hafði áætlað og hófst þá eftirgrennslan í höfnum á norðanverðu nesinu en um klukk- an 20 í fyrrakvöld hafði Felix SH frá Stykkishólmi séð til ferða báts- ins norður af Rifi og virtist hann þá vera að halda til hafnar í þokka- legu veðri, golu eða kalda, en dimmri þoku. Þegar í ljós kom að báturinn hafði hvergi komið til hafnar hófst leit snemma í morgun með þátttöku báta á Snæfellsnesi og rannsóknaskipsins Árna Frið- rikssonar sem statt var á Breiða- fírði. Um ellefu í gærmorgun, í þann mund sem verið var að senda Fokker-flugvél Landhelgisgæsl- unnar til leitar, tilkynnti Jóhannes á Gusti að hann hefði fundið Krist- berg á litlum gúmmíbáti eða -fleka. Þeir komu til hafnar laust eftir klukan 14. í samtali við fréttaritara Morg- unblaðsins í Stykkishólmi, sagðist Jóhannes Þórðarson hafa farið snemma morguns að vitja um lúðu- og hákarlalóðir sínar. í einhverri svörtustu þoku sem hann myndi eftir á Breiðafirði hafi hann skyndi- lega séð eitthvað fljótandi á sjónum rétt við bát sinn, en kvaðst fyrst í stað ekki hafa áttað sig á að þetta væri gúmmíbátur og maður á. Jó- hannes sagðist fljótlega hafa náð Kristbergi, sem orðinn var mjög kaldur, um borð og látið vita um atburðinn í iand. Leggja til úrsögn íslands úr Alþjóða hvalveiðiráðinu Þetta eru meingölluð samtök, segir formaður íslensku sendinefndarinnar FORMAÐUR íslenzku sendinefnd- arinnar á ársfundi Alþjóða hval- veiðiráðsins, Guðmundur Eiríks- son, lýsti því yfir í lok fundarins í gær, að hvalveiðiráðið væru meingölluð samtök. Því Iegði sendinefndin það til við stjórnvöld, að þau tækju ákvörðun um úrsögn Islands úr ráðinu. Áður höfðu full- trúar sjómanna gengið af fundi í mótmælaskyni. Formaður norsku sendinefndarinnar, Arvesen, segir að Norðmenn muni íhuga vand- lega viðbrögð sín og svipaða sögu er að segja af Japönum. Friðunar- sinnar réðu ferðinni við allar at- kvæðagreiðslur í lok fundarins, knúðu fram breytingar á tillögu vísindanefndarinnar um veiði- stjórnun og komu í veg fyrir at- kvæðagreiðslu um umsókn Islend- inga um veiðikvóta á hrefnu og langreyði. Hvalveiðiráðið samþykkti veiði- kvóta á hvölum fyrir Alaska-eski- móa, Grænlendinga og St. Vincent og The Grenadines til neyzlu heima fyrir og hafnaði í atkvæðagreiðslu Morgunblaðið/Knstjíin G. Amgrímsson Borgarkringlan opnuð í dag Borgarkringlan, ný verslunar- og þjónustumiðstöð í Kringlunni 4 og 6, verður opnuð með formlegum hætti klukkan 13.30 í dag. Húsin voru ekki byggð með þessa notkun í huga og hefur að undanförnu farið fram mikið starf við endurhönnun þeirra og breytingar. Síðustu daga hafa iðnaðarmenn ásamt eigendum verslana og þjónustufyrirtækja lagt nótt við dag til að gera húsnæðið sem glæsilegast úr garði og gefst almenningi kostur á að skoða það í dag og á morgun. Myndin var tekin í gær þegar framkvæmdir stóðu sem hæst. Á henni eru, ofar í stiganum, Halldór Guðmundsson og Bjarni Snæ- bjömsson, arkítektar að endurhönnun hússins, og fyrir framan þau Helga Björns, búninga- og fata- hönnuður í París, en hún gerði fána og loftbelgi, sem skreyta húsið, og Björn Ólafs, arkítekt í París, ráðgjafi við endurhönnun hússins. Sjá nánar fylgirit Morgunblaðsins í dag um Borgarkringluna. umsókn Japana um veiði á 50 hrefn- um til handa íbúum ákveðinna strandhéraða. Jafnframt var um- sóknum Japana og Sovétmanna um leyfí til vísindaveiða hafnað. Þá var töluvert deilt um umsókn íslendinga um veiðar á hrefnu og langreyði. Varð niðurstaðan sú, að friðunar- sinnum tókst að koma í veg fyrir atkvæðagreiðslu um þær. Þá gengu fulltrúar sjómanna í sendinefnd Is- lands af fundi og sögðust ekkert þar hafa að gera. Óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands íslands, sagði ís- lendinga ekkert hafa að gera í sam- tökum, sem hefðu snúizt upp í hval- verndunarsamtök. Því yrðum við, ásamt öðrum hvalveiðiþjóðum, að stofna alþjóðleg samtök til að stjórna skynsamlegri nýtingu á hvalastofn- unum. Fyrr um daginn gengu fulltrú- ar norska sjómannasambandsins af fundi af sömu ástæðum. Kjartan Hoydal, formaður hins færeyska hluta dönsku sendinefndar- innar, sagði ómögulegt fyrir Færey- inga að vinna innan Alþjóða hvalveið- iráðsins. Hver framvinda mála yrði, vildi hann ekki segja. Hann teldi þó líklegast, yrðu ekki breytingar á vinnuaðferðum ráðsins, að stofnuð yrðu sérstök samtök hvalveiðiþjóða við norðanvert Atlantshaf. Ray Bambell, framkvæmdastjóri, Alþjóða hvalveiðiráðsins, sagði úr- sögn íslands tæpast hafa mikil áhrif, yrði hún að raunveruleika. Hann sagði fjölda þjóða innan ráðsins mjög breytilegan og því hefði brotthvarf eða innganga þjóðar lítil áhrif. Guðmundur Eiríksson sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að hvalveiði- ráðið væri meingallað. Starfsháttum þess væri þannig farið, að minnihlut- inn gæti ráðið ferðinni vegna þess hve stór hluti þyrfti að samþykkja breytingar. Ákvarðanir þær, sem teknar hefðu verið undir lok fundar- ins, hefðu í raun verið ólöglegar og gegn starfsreglum og markmiðum ráðsins. Þá hefði friðunarsinnum tekizt að fá samþykktar breytingar á tillögu vísindanefndarinnar um veiðistjórnun, sem gerðu það að verk- um að nánast ómögulegt væri að vinna eftir þeim. í Iok fundarins var Luis Fleischer frá Mexíkó kosinn formaður ráðsins í stað Svíans Sture Irberger. Vara- formaður var kosinn Ástralinn Peter Bridgewater. Davíð Oddsson forsætisráðherra: Ekki ótrúlegt að ís- land segi sig úr ráðinu DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að tillaga sendinefndar íslands hjá Alþjóða hvalveiðiráðinu um að Island segi sig úr ráðinu, eftir að niðurstaða ársfundar ráðsins lá fyrir í gær, sé skiljanleg og ekki sé ótrúlegt að íslendingar segi sig úr ráðinu. „Þessi tillaga mun verða lögð fyrir ríkisstjórn fljótlega og þar munu menn taka afstöðu til henn- ar,“ sagði forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi. „Mér finnst þessi tillaga sendi- þessi veiðigrein taki til,“ sagði for- nefndarinnar mjög skiljanleg, eftir að fyrir lá hvernig málin þróuðust á fundinum. Það er ekki ótrúlegt að niðurstaða okkar verði sú að við segj- um okkur úr ráðinu. Rikisstjórnin hefur ekki tekið afstöðu til málsins ennþá. Menn vilja fara yfir málin í heild og hvaða skilyrði eru sett um nauðsyn þess að íslendingar séu aðil- ar að einhveijum samtökum sem sætisráðherra. Davíð var spurður hvort hann teldi persónulega að fara bæri að tillögu sendinefndarinnar: „Ég hef ekki tek- ið neina ákvörðun um það. Sjávarút- vegsráðherrann mun leggja málið fyrir ríkisstjórnina, sem mun um það fjalla. Fyrr er ekki tímabært að gefa upp sína afstöðu," sagði Davíð Odds- son forsætisráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.