Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991
9
Ungmennabúðir HSH,
Lýsuhóli, Snæfellsnesi
HSH hefur á undanförnum árum starfrækt sumarbúðir
fyrir börn á aldrinum 6-12 ára á Lýsuhóli. Ýmislegt verð-
ur á dagskrá: Farið verður m.a.í veiðiferð, bátsferð, fjöru-
ferð, heimsóttur sveitarbær, skroppið á hestbak og farið
í leiki. Á kvöldin eru kvöldvökur og fá börnin að spreyta
sig við leiklist, söng o.fl.
1. námskeið hefst 3.-7. júní, aldur 8-10 ára.
2. námskeið hefst 10.-14. júní, aldur 10-12 ára.
3. námskeið hefst 18.-21. júní, aldur 6-8 ára.
Athugið að rútuferð er frá BSÍ kl. 9.00 f.h. og til baka á
föstudegi kl. 18.00.
Allar nánari upplýsingar gefur Þóra Kristín í síma
93-56707 og í síma sumarbúðanna 93-56730.
TRYGGIHGASTOFHUN RÍKISINS
óskar eftir kaupum á húsnæði undir starf-
semi sína. Auglýst er eftir 4-5.000 fermetra
húsnæði, hluti þess geymsluhúsnæði. Hús-
næðið þarf að hafa greiða aðkomu fyrir
hreyfihamlaða, bílastæði og vera nálægt
strætisvagnaleiðum.
Til greina koma skipti á núverandi húsnæði
Tryggingastofnunar á Laugavegi 114,
Reykjavík.
Tilboð skilist á skrifstofu forstjóra Trygginga-
stofnunar ríkisins, Laugavegi 114, 150
Reykjavík, fyrir 12. júní 1991.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
SKEMMTIFERÐ
1991
Ferðalag með eldri félaga,
60 ára og eldri og maka þeirra,
um Vesturland og „Dalina(i.
Gist í„HótelEddu(i, Sælingsdal.
Farið verður frá Suðurlandsbraut 30 kl. 8.30 laug-
ardaginn 15. júní og komið heim sunnudaginn
16. júní um kl. 18.00.
Leiðsögumenn: Árni Björnsson, þjóðháttafræð-
ingur,
Jón Böðvarsson, ristj. Iðnsögu ísl.
Skráning í síma 813011 milli kl. 8.00 og 16.00.
KÚIULEGUR
ITnifaen
Suðurlandsbraut 10, sími 68 64 99.
Fræðslu- og menningar-
sjónvarp Háskóla
íslands
í Fréttabréfi Háskóla íslands [maí 91] er
ræða Sigmundar Guðbjarnasonar, fráfar-
andi rektors skólans, við brautskráningu
kandídata síðastliðinn vetur. Staksteinar
staldra við þann kafla í ræðu rektors sem
fjallar um fræðslu- og menningarsjónvarp
Háskólans, sem þjónað getur margs kon-
ar tilgangi með fjarkennslu, endurmennt-
un og kynningu á vísindum og listum.
Hlutverk
Háskóla-
sjónvarps
Háskólarektor sagði
m.a. í kveðjuræðu sinni
til kandidata:
„Við Háskóla íslands
er hafin kennsla í hag-
nýtri fjölmiðiun en mark-
miðið með slíkri kennslu
er að efla fagmennsku,
traust og vönduð vinnu-
brögð í heimi fjölmiðla
sem í vaxandi mæla móta
lífsviðhorf okkar, óskir
og þarfir.
Fyrir skömmu sam-
þykkti Háskóli íslands að
ieita eftir stuðningi við
uppbyggingu á fræðslu-
og menningarsjónvarpi
Háskólans. Hlutverk
þessa Háskólasjónvarps
er:
* 1) að annast fjar-
kcnnsiu.
* 2) að efla endur-
menntun.
* 3) að miðla fræðslu-
efni til almennings.
* 4) að fjalla um menn-
ingarmál almennt og
styrkja íslenzka tungu og
menningu sérstaklega.
Ástæðurnar fyrir því
að þessi hugmynd kemur
fram nú eru margar. Ein
ástæðan er, að sú tilraun
sem gerð var til að
byggja upp fjarkennslu á
vegum ríkisútvarpsins,
hefur ekki tekizt og hef-
ur fræðsluvarpið fallið
niður. Fjarkennsla í sjón-
varpi á engu að síður
erindi hingað, því að
þetta kennsluform hefur
gefið góða raun i fjöl-
mörgum Iöndum nær og
fjær.
Önnur ástæðan er upp-
bygging á aðstöðu til
keimslu í hagnýtri fjöl-
miðlun og innrétting á
húsnæði því sem hannað
var í Odda fyrir mynd-
ver. Nú þegar hafin er
kennsla í hagnýtri fjöl-
miðlun er bæði unnt og
eðlilegt að byggja upp
nútima myndver og að-
stöðu til kennslu og fram-
leiðslu á fræðsluefni.
Óskað hefur verið eftir
því við menntamálaráðu-
neytið, að Háskólasjón-
varpið fái þá fjárveitingu
sem nú er á fjárlögum
til fjarkennslu til að reka
slíkt myndver. Einnig
hefur verið óskað eftir
því við Ríkisútvarpið að
Háskólasjónvarpið fái
endurgjaldslausan að-
gang að dreifikerfi ríkis-
sjónvarpsins með það í
liuga að sjónvarpa á
morgnana beint til skól-
airna og til almennings á
timum sem ekki eru nú
nýttir af ríkissjónvarp-
inu...
Þriðja og í raun veiga-
mesta ástæðan fyrir upp-
byggingu Háskólasjón-
varps er að skapa vett-
vang fyrir viðleitni Há-
skólans að treysta menn-
ingarlegt sjálfstæði þjóð-
arinnar, að auðga
islenzka tungu og styrkja
sjálfsvitund íslendinga
og sjálfsvirðingu."
Fjarkennsla,
endurmennt-
un, kynning á
vísindum og
listum
Viðfangsefni Iláskóla-
sjónvarps yrðu einkum
þessi, að mati rektors:
* A) „Endurménntun,
t.d. miðlun á námsefni
og námskeiðum sem hafa
tekizt vel þjá Endur-
mcnntunardeild Háskól-
ans. Þar er boðið upp á
fjölbreytt efni, bæði sér-
hæft efni fyrir sérfræð-
inga á ýmsum sviðum og
almennt efni, svokölluð
menningarnámskcið,'
sem hafa verið mjög eft-
irsótt. Þá er einnig boðið
upp á mikið framboð af
hentugu erlendu efni fyr-
ir endurmenntunarstarf-
ið.
* B) Fjarkennsla fyrir
framhaldsskólastig og
jafnvel grunnskóla i þeim
tilgangi að treysta undir-
stöðumenntun, m.a. þá
sem háskólakennslan
byggist á. Slík stuðnings-
kennsla gæti verið mjög
örvandi bæði fyrir nem-
endur og kennara. Síðar
ætti að stefna að fjar-
kcnnslu og samnýtingu
námskeiða á háskóla-
stigi.
* C) Kymiing á vísind-
um og listum í landinu.
Sá þáttur í menningarlífi
þjóðaiTimar sem erfiðast
virðist að kymia er
vísindastarfsemm. Sjón-
varpið er mikilvirkast
fjölmiðla í slíku starfi.
íslenzka þjóðin gerir vax-
andi kröfur til vísinda-
manna sinna og er mikil-
vægt að kymia þá miklu
grósku, sem nú er í
visindum hér á landi ...
Vonir standa til að
einkaframtakið skynji og
skilji að það hefur hér
hlutverki að gegna, því
að góð almeim menntun
er forsenda framfara í
þjóðfélaginu; góð almenn
menntun þjóðar þjónar
bæði hagsmunum fyrir-
tækja og stofmma- og þá
um leið hagsmmium
heildarinnar.
Þegar Hskólasjón-
varpið verður að veru-
leika þá verður leitað
samstarfs við aðra skóla
og fræðslustofnanir um
uppbyggingu starfsem-
innar scm nýtast mun
yngri sem eldri, strjálbýli
sem þéttbýli, án tillits til
fyrri memitunar.
Með þessum hætti vill
Háskóli íslands, kæri
kandidat, veita börnum
þínum stuðningskennsiu
á ýmsum skólastigum,
auðvelda þér endur-
memitun og ntiðla til þín
fræðsluefni ýmiskonar,
ekki sízt á efri árum þeg-
ur þú hefur loks nægan
tíma til að njóta þekking-
ar og skilnings á lifinu
og tilvenmni."
Skyndibréfin eru alltaf
án innlausnargjalds
Fjárfesting í eina viku? Mánuð? Ár?
Skyndibréfin eru einu verðbréfasjóðsbréfin sem
eru alltaf innleysanleg án innlausnargjalds.
✓
Avöxtun umfram verðbólgu er 6,3%
m. v. sl. 3 mánuði. i
■3
X
<
>
X
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
HAFNARSTRÆTI 7, 101 REYKJAVÍK, S. (91) 28566 KRINGLUNNI. 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700
RÁÐHÚSTORGl 3, 600 AKUREYRI S. (96) 11100