Morgunblaðið - 01.06.1991, Side 12

Morgunblaðið - 01.06.1991, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991 RÝMISVERK LIST OG HÖIUIMUN Bragi Ásgeirsson Listakonan Kolbrún Björgólfsdótt- /rhefur lengi staðið í femstu röð ís- lenzkra leirlistarmanna og er ekkert að rugla á sér heimildir. Hún nefnir sig með vissu stolti listiðnaðarmann og gerir enga kröfu til neins annars, ólíkt svo mörgum sem vilja helst ijúfa skil listiðnaðar og myndlistar. Það er nefnilega þetta sem svo mörgum yfirsést, hve ferskleikinn er mikilvægur í öllum listiðnaði og sjón- listum almennt. Ekki er nóg að vera með tíðarandanum ef þetta atriði vantar í vinnuferlið. k Það er þessvegna sem ýmsir frum- kvöðlar í Iistiðnaði og myndlist eru stöðugt að vinna á svipuðum nótum, en eru þó alltaf jafn ferskir. Fersk- leikinn kemur alls ekki með því að vera alltaf að skipta um stílbrögð og tjáningarmáta heldur vinnubrögð- unum sjálfum og þar liggur hundur- inn grafinn. Og til þess að höndla þennan dýr- mæta og fágæta ferskleika í hnitmið- uðum vinnubrögðum er mikilvægt að grunnmenntunin sé í lagi og hvers konar alhliða þjálfun, en einmitt þessum atriðum hefur hrakað víðast hvar í listaskólum og að jafnaði með dapurlegum afleiðingum. í stað þess hefur listheimspeki í ýmsum útgáfum haldið innreið sína í listaskóla, sem í sumum tilfellum réttlætir hvers konar fúsk og fráhvarf frá öguðum vinnubrögðum. Sýning listiðnaðarkonunnar Kol- brúnar Björgólfsdóttur í listhúsinu Nýhöfn, sem var opnuð sl. laugardag og standa mun til 5. júní, kallar ósjálfrátt fram slíkar hugleiðingar. Einfaldlega vegna þess, að hún er ein athyglisverðasta sýningin sem sett hefur verið upp á þessum stað frá því að listhúsið hóf starfsemi sína. Hún er athyglisverð fyrir það hve vinnubrögðin eru vönduð og mikið lögð í hvern grip, þannig að hver um sig er sem gæddur innri lífsmögnum, — hefur sál eins og maður gæti allt eins sagt. Og þrátt fyrir alla þá vinnu sem lagður er í hvern grip, heldur hann fullkomlega ferskleika sínum og slík vinnubrögð eru einungis á færi lista- manna af mjög hárri gráðu. Þótt verkin séu formrænt mjög svo ólík verkum annarrar snjallrar lista- konu á sama sviði, hinnar tyrknesk fæddu Alev Siesbye, er vinnur í Kaupmannahöfn, þá fínn ég til skyld- leika milli þeirra í traustu og hárná- kvæmu verklagi. Á sýningu þeirra er ekki til veikur punktur, einungis blæbrigðamunur milli einstakra verka. Þannig á ég erfitt með að gera upp á milli ver- kanna á sýningu Kolbrúnar í Ný- höfn, en skírnarfonturinn (5) er ákaf- lega fallegur og vel formaður og kúlan á gólfinu (18) vekur æ meiri eftirtekt því oftar sem maður kemur á staðinn. Kolbrún Björgólfsdóttir hefur náð svo fágætum árangri í listiðnaði, að verk hennar myndu sóma sér á myndlistarsafni og þessi verk og önnur svipuð, sem hún á væntanlega eftir að gera, þyrftu nauðsynlega að koma fyrir sjónir erlendra fagmanna. Það er hárrétt sem hún segir í viðtali að hér vanti listiðnaðarsafn og ber að ráða bót á því sem fyrst, en þangað til þurfa hin almennu myndlistarsöfn að halda vöku sinni er sh'kar sýningar koma fram. Hugmynda- fræði Myndlist Bragi Asgeirsson Nýlistasafnið býður þessa dagana upp á kynningu á tveim svissneskum listamönnum, Ian Anull og Christoph Rutiman. Sýningin kemur hingað frá Ósló þar sem hún var sett upp í húsakynn- um „Unge Kunstneres Samfund", sem einnig mun nefnast Samtímalist- asafnið og mun vera af líkum toga og Nýlistasafnið. Það er allt gott um ungt fólk að segja, en einum of langt gengið að álíta að samtímalist og nýlistir ein- angrist við ákveðinn aldurshóp eða vissar hræringar innan myndlistar- innar. Það sem skar mest í augu við skoðun sýningarinnar var, hve hug- myndafræðileg hún er út og í gegn, og jafnframt hve hún sver sig í ætt við hugmyndafræðilegar tilraunir áttunda áratugarins, þó listheim- spekin kunni að vera frábrugðin að einhvetju leyti. Fulltrúar hugmyndafræðilegu list- arinnar eru með sanni ekki af baki dottnir eins og þessi sýning ber með sér, og vissulega hefur sú tegund myndlistar fullan rétt á sér ekki síð- ur en margar aðrar. En það er eftir- tektarvert að þessi endurnýjaði áhugi skuli koma frá Norðurlöndum, sem virðast sjá hér nýja möguleika, sem svo væntanlega getur bjargað þeim frá ofurvaldi málverksins! Listamennirnir eru að vísu ekki norrænir en framkvæmdin er norsk, og kannski hefur þróunin verið önnur og hægari hjá þeim en hér, svo að ýmislegt sem telst nýtt þar er vel- þekkt hér. Færri tala um það, að hugmynda- fræðilega listin hélt málverkinu úti í kuldanum í nær áratug og er af ýmsum álitin einsýnasti og leiðinleg- asti áratugur aldarinnar í myndlist- 7 7 arpólitíkinni. Tvennt er það sem kemur mér mjög á óvart varðandi þessa sýningu og það er, að hún á að vera sett upp til að minnast 700 ára afmælis sviss- neska sambandsríkisins á þessu ári og það tók svo sendifulltrúa frá Noregi vikutíma að uppgötva þessa listamenn, sem þeim finnst dæmi- gerðir fyrir svissneska Iisthugsun. Þó ég telji mig engan sérstakan sérfræðing í svissneskri listhugsun þrátt fyrir að ég þekki ýmislegt til svissneskra myndlistarmanna, en það kæmi mér mjög á óvart ef svissn- eskir listamenn almennt væru sam- mála mati þeirra sem önnuðust valið. Þvert á móti er líklegra að í þeim fínni viðkomandi samhljóm með eigin skoðunum í listhugsun. í öllu falli hefði ég viljað sjá svipmeira framlag frá Svisslendingum varðandi þetta afmæli. Hins vegar má slá því föstu, að félagarnir Anull og Rutiman séu mjög frambærilegir á sínu sviði og ágætir fulltrúar þjóðar sinnar hvað hugmyndafræðilega list snertir. Þannig séð munu vísast margir áhangendur þessara viðhorfa hér fagna sýningunni þó menn hafí séð margt svipað í sölum Súm-listahóps- ins forðum og Nýlistasafnsins á síð- ari árum. STÓRKOSTLEG RYMINGARSALA I TEPPALANDI- DÚKALANDI Vegna breytinga á verslunum okkar að utan sem innan höldum við frábæra rýmingarsölu á hvers konar gólfefnum. Mikill rýmingarafsláttur. 25 - 40% afsláttur. Raðgreiðslur Euro og VISA Missið ekki af einstöku tækifæri. Athugið að í sumar, frá og með 8. júní til 31. ágúst, verða verslanir okkar lokaðar á Iaugardögum. verða verslanir okkar lokaðar a Iaugardögum. ^ ŒFNUM FYRIR ^ \)N RÝMINGARSÖLUNNI LÝKUR FÖSTUDAGINN 7. JÚNÍ Teppaland • Dúkaland Grensásvegi 13, sími 8 35 77

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.