Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991
27
Bandaríkin:
Obeinar reykingar
eru stórhættulegar
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
í SKÝRSLU sem unnin hefur verið fyrir Umhverfisverndarráð
Bandaríkjanna segir að allt að 53 þúsund Bandaríkjamenn, sem
ekki reykja, deyi árlega úr hjartasjúkdómum og/eða lungnakrabba
vegna eitrunar sem þeir verða fyrir vegna reykinga annarra sem eru
í nálægð þeirra.
Umhverfisráð Bandaríkjanna
hefur enn ekki samþykkt þessa full-
yrðingu skýrslunnar. Umræðum um
hana hefur verið skotið á frest og
e.t.v. kemur hún aldrei til sam-
■ MIAMJ - Bandarískir sak-
sóknarar segja, að Manuel Nori-
ega, fyrrum einræðisherra í Pan-
ama, hafi njósnað fyrir CIA, banda-
rísku leyniþjónustuna, meðan á stóð
samningaviðræðum um Panama-
skurðinn seint á áttunda áratugn-
um. Kemur fram í skjölum þar að
lútandi, að honum hafi verið greidd-
ir fyrir um 300.000 dollarar. Gaf
hann meðal annars upplýsingar um
afstöðu Panamastjórnar til samn-
ingsins.
■ TÓKÝÓ - Útflutningur
Japana umfram innflutning var
nærri 300% meiri í apríl sl. en á
sama tíma í fyrra og er búist við,
að þessi þróun haldi áfram á næst-
unni. Nokkur samdráttur hefur ver-
ið í neyslunni innanlands í Japan
og á það sinn þátt í hagstæðum
vöruskiptajöfnuði en sumir telja þó,
að útflutningur Japana muni
minnka þegar fram í sækir. Aðal-
lega vegna samdráttarins á Banda-
ríkjamarkaði og vaxandi verndar-
stefnu í Evrópu.
■ MOSKVU - Talið er, að
hryðjuverkamenn eigi sök á spreng-
ingu, sem varð í sovéskri farþega-
lest í síðustu viku en þá létu 12
manns lífið og sjö slösuðust. Var
lestin á leið frá Moskvu til Baku,
höfuðborgar Azerbajdzhans, en
dæmi eru um, að skotið hafi verið
á eða sprengjum komið fyrir í lest-
um, sem ganga á milli Armeníu
og Azerbajdzhans.
í fréttabréfinu er minnt á þá
ákvörðun bandarískra stjórnvalda að
fækka F-15 orrustuþotum í Bitburg-
flugstöðinni í Þýskalandi. Þótt þessi
ákvörðun segi í sjálfri sér ekkert um
framtíðarskipan mála í varnarstöð-
inni í Keflavík sé hún athyglisverð
fyrir þá sök að með þessu virðist
hugmyndin vera sú að breyta skipu-
lagi flugsveita í flughemum. Megin-
reglan sé sú að í hverri flugsveit séu
24 orrustuþotur. Þetta eigi vart við
lengur um Bitburg eftir að fækkað
hafi verið um 12 þotur í flugherfylk-
inu þar sem telur þtjár flugsveitir.
Fyrirkomulagið í Keflavík sé hins
vegar undantekning. Þar séu nú 18
þotur en frá árinu 1962 til 1985
hafi 12 þotur verið staðsettar í Kefla-
víkurstöðinni. 18 þotur séu því und-
antekning fremur en regla hvað
varnarstöðina í Keflavík varðar.
í greininni segir að fram hafi kom-
ið vísbending um að Keflavíkurstöðin
njóti ekki lengur sérstöðu. í janúar
1990 hafi sú stefna verið innleidd í
varnarstöðinni að stöðva ráðningar
á borgaralegum starfsmönnum.
Þetta fyrirkomulag hafi víðast verið
í gildi í herstöðvum Bandaríkja-
manna en Kefiavíkurstöðin hafi
ávallt verið undanskilin. Störfum ís-
lendinga við stöðina hafi fækkað um
rúmlega eitt hundrað frá því í janúar
í fyrra eða um níu prósent.
Fram kemur einnig að ratsjárþotur
af gerðinni E-3 Sentry AWACS voru
undir lok síðasta árs kallaðar frá
Keflavíkurstöðinni vegna styrjaldar-
innar fyrir botni Persaflóa. Banda-
rísku vélarnar hafa ekki snúið aftur
en í stað þeirra er nú haldið úti í
Keflavíkurstöðinni einni AWACS-
þotu í senn frá NATO. Þessar þotur
koma frá Geiienkirchen-flugherstöð-
inni í Þýskalandi.
þykktar. Sumir segja að það stafi
af ótta stjórnvalda við tóbaksfram-
leiðendur.
En ef fullyrðingin er sönn, er um
að ræða þriðja stærsta áhættuhóp-
inn, sem unnt væri að bjarga ef til
réttra aðgerða er gripið. Tveir
stærstu áhættuhóparnir sem unnt
er að bjarga eru þeir sem reykja
og þeir sem misnota áfengi.
Sé hér um rétta fullyrðingu að
ræða, og hið sama gildi á íslandi
og í Bandaríkjunum, gætu allt að
53 íslendingar (ef miðað er við
fólksfjölda) árlega fallið í valinn
fyrir áðurnefndum sjukdómum þó
þeir hafi aldrei reykt en aðeins lifað
og hrærst í tóbaksreyk frá öðrum.
Vísindamenn segja að tóbaks-
reykingar annarra séu helsta upp-
spretta eitrunar í andrúmsloftinu,
sem Ijölda fólks sé búin.
Reyklausi dagurinn var í gær og var hans minnst með margvíslegum
hætti víða um heim. Áherslan var þó sú sama alls staðar: Losum
okkur við reykinn. Myndin er annars frá Bangladesh en þar var
reykingamönnum bent á, að peningarnir, sem færu í tóbak, væru
betur komnir í mat og lyf handa börnunum.
Skógareyð-
ing boðar
endalokin
Quito. Reuter.
EYÐING regnskóganna, mikil-
vægustu súrefnisuppsprettunn-
ar, er svo hröð, að líkja má við
sjálfsmorð fyrir allt mannkyn.
Er þetta haft eftir sérfræðingum
Sameinuðu þjóðanna, sem segja, .
að 17 milljónir hektara séu
höggnir árlega.
„Ástandið er skelfilegt vegna
þess, að með skógareyðingunni er
mannkynið að fremja sjálfsmorð og
drepa um leið flestar aðrar lífverur
á jörðinni," sagði Julio Cesar Cent-
eno skógfræðingur á ráðstefnu um
regnskógana, sem haldin er í Quito
í Ekvador.
Talið er, að á síðasta áratug
hafi. regnskógarnir verið felldir á
11 milljónum hektara á ári en nú
er þessi tala komin upp í 17 milljón-
ir. Á fimm ára tímabili hafa regn-
skógarnir því minnkað um 85 millj-
ónir hektara en það samsvarar fiat-
armáli Venesúela. Áætlað er, að
allt skóglendi í heiminum sé nú um
fjórir milljarðar hektara, þar af
helmingurinn regnskógar og mestir
í Suður-Ameríku.
<tx
E
™a9/?y
NORDMENDE
Tilvaliö fyrir:
• feröalagiö
• sumarbústaöinn
• skrifstofuna
• fríiö
• eldhúsiö
• hjólhýsiö
• náttboröiö
• þig, hvar sem er..
Nordmende TR-800 fer&atækib er meb FM, MW og SW útvarpsbylgjum,
2x4 músíkvatta magnara, þriggja banda tónjafnara, tveimur
innbyggöum brei&bandshátölurum, kassettutæki me& sjálfvirkri
endastö&vun, eins-rofa upptöku, innbygg&um hljó&nema o.m.fl.
Utsöluverö aöeins
V/SA
munXlán
greibslukjör vib allra hæfi til allt ab 30 mán.
kr.
J Vib
tökum
vel
s
a
móti
þér!
Verb ábur; 8,400, kr.
SKIPHOLT119
SÍMI29800