Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991
IHVAÐA
VEÐRISEMER
Meö Meco þarftu ekki
að hafa áhyggjur
af veörinu, það er alltaf
hægt að grilla.
Hönnun MECO:
Loftflæðið gerir Meco
að frábæru útigrilli:
• Það sparar kolin.
• Brennur sjaldnar við.
• Hægt er að hækka og
lækka grindina frá glóðinni.
• Tekur styttri tíma að grilla
og maturinn verður
safaríkari og betri.
• Auðveld þrif.
iþ
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
ísamutujMH
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöiD!
Hann spilar eins og ég vil spila
__________Jass____________
Guðjón Guðmundsson
EIN af tíu bestu jasssöngkonum
heims, að mati margra, Karin Krog,
heillaði íslenska áheyrendur á Hótel
Borg sl. fimmtudagskvöld. Á efnis-
skránni voru meðal annars verk
eftir breska saxafónleikarann John
Surman, einn af nánustu sams-
starfsmönnum Krog og Northern
Song úr smiðju píanistans Per Hus-
by. Verkið var óður til norðurhjar-
ans eða eins og Krog söng: „Join
the carnival of endless night.“
Söngur hennar er ákaflega blæ-
brigðaríkur og þótt hann sé ekki
ýkja hljómmikill skáka fáar söng-
konur Krog í túlkun og fyllingu.
Með henni þetta kvöld léku norski
píanistinn og tónsmiðurinn þer
Husby, Þórður Högnason og Pétur
Grétarsson. Næst var tekið Sarah
eftir Carol Coats, sem samdi mörg
lög fyrir söngkonuna nýlátnu, Söru
Vaughan. Krog kynnti lagið svo að
er hún var stödd á hljómleikaferða-
lagi í Bandaríkjunum fyrir nokkrum
mánuðum fékk Coats henni þetta
lag Söruh Vaughan til heiðurs. I
Kvartett Sigurðar Flosasonar.
All blues svingaði sveitin eftirminni-
lega og Husby átti frábæran ein-
leikskafla. Sveitin var tvisvar klöpp-
uð upp og flutti Krog í fyrra skip-
tið norskt þjóðlag og kvaddi síðan
með Every time I say goodbye I
die a little og frábærum tónleikum
var lokið.
I Púlsinum var kvartett Sigurðar
Flosasonar og Ulf Adáker farnir
að hita upp en beðið var eftir bassa-
leikaranum Þórði. Hann kom í hús
með Husby og Krog. Kvartettinn
OLYMPIULEIKARNIR
í BARCELONA 1992
Barcelona’92
1988 COOB'92, S.A. TM
Feróaskrifstofa íslands er umboósaðili
Ólympíuleikanna. Frestur til aó panta
mióa rennur út 10. júní næstkomandi.
dfb
FERDASKRIFSTOFA
ÍSLANDS
sem skipaður er Kjartani Valdi-
marssyni, Matthíasi Hemstock auk
Sigurðar og Þórðar, er besta jass-
sveit landsins um þessar mundir.
Allt frábærir sólistar og samæfing-
in fyrir hendi. Sveitin komst enda
í úrslit í mikilli samkeppni í Belgíu
fyrir skemmstu. Með þeim var
sænski trompetsnillingurinn Ulf
Adáker og sveiflan var heit. Husby
kvaðst hafa komið til að hlusta aft-
ur á Kjartan, en hann hafði heyrt
hann leika kvöldið áður. „Hann
spilar eins og ég vil spila. Hann
hefur greinilega klassíska undir-
stöðu en hann leikur svo hreint,"
sagði Husby, og hann ætti að vita
hvað hann er að syngja, margverð-
launaður maðurinn. Um Sigurð
sagði hann bara: „Han er vældig
flink."
Tónleikarnir hófust á ljúfri bal-
löðu eftir Horace Silver, Peace.
Adáker blés í mút og var unun að
fylgjast með honum finna útgöngu-
leiðir úr völundarhúsi blúsins. Rosa-
legur spuni þar á ferð. Ekki var
spuni Sigurðar síðri, en Sigurður
hefur sjaldan leikið heitara en á
Rúrek-hátíðinni. Þórður lék feita
hljóma með miklum víbrato og það
sauð á settinu hjá Matthíasi, sem
minnir alveg ótrúlega á Pétur Öst-
lund.
Þá er bara að hvetja alla til að
láta tónleika Ulf Adákers og Kvart-
etts Sigurðar Flosasonar ekki fram
hjá sér fara.
Per Husby.
Karin Krog
íslandsmeistarakeppnin í ralli hefst á laugardag:
Eigendur Lada Samara
styrktir til þátttöku
Skógarhlíð 18 • 101 Reykjavík • Sími 91-25855
Telex 2049 • Bréfasími 91-625895
FYRSTA keppnin sem gefur stig
í íslandsmeistarakeppni í ralli
verður haldin í dag. Þá stendur
Bifreiðaíþróttaklúbbur
Reykjavíkur fyrir Eikaborgara-
ralli um Lyngdalsheiði og á Uxa-
hryggjaleið. Sú nýbreytni er á
þessu íslandsmeistaramóti, að
Bifreiðar og landbúnaðarvélar
hf. útvega keppendum á Lada
Samara bílum veltibúr og
hlífðarpönnu samkvæmt samn-
ingi fyrirtækisins og BÍKR.
Keppnin hefst klukkan 07.30 á
laugardag og verður þá ekið frá
Þingvöllum yfir Lyngdalsheiði.
Alls eru 17 bílar skráðir til keppni
og flestir bestu ökumenn landsins,
að sögn Hönnu Símonardóttur í
keppnisstjórn BÍKR. Rásnúmer eitt
hafa Ásgeir Sigurðsson og Bragi
Guðmundsson á Metro 6R4, númer
tvö Steingrímur Ingason og Guð-
mundur Björnsson á Nissan 240
RS og númer þijú feðgarnir Rúnar
Jónsson og Jón R. Ragnarsson á
Mazda 323 4WD Turbo.
„Rall er pýsamþykkt íþróttagrein
innan Í.S.Í. og til þess að opna
ódýran valkost fyrir þá sem vilja
spreyta sig á ralli hafa BÍKR og
Bifreiðar og landbúnaðarvélar hf.
gert samning um að keppendum á
Lada Samara verður útvegað velti-
búr og hlífðarpanna. Að þessu sinni
verða tveir Lada Samara bílar í
keppninni og verður gaman að sjá
hvernig þeir standast átökin," sagði
Hanna í samtali við Morgunblaðið.
Klukkan 12.05 hefst keppni á
Uxahryggjaleið og verður hún ekin
flórum sinnum. Keppni lýkur um
klukkan 15.30 og verða úrslit til-
kynnt við Eikaborgara, Höfðabakka
1, klukkan 16.30, en þar verður
einnig hægt að fá upplýsingar um
gang keppninnar.
Knben
Fíugog
hill íjjártán
daga
11 sinnum í viku.
FLUGLEIDIR
Upplýsingar í síma 690300 (alla 7 daga vikunnar) á söluskrifstofum okkar, hjá umboðsmönnum um land allt og ferðaskrifstofum.
s!'Stgr. á manninn m.v. 4 í bíl í b-flokki (2 fullorðna og 2 börn, 2-llára).