Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991
Textavarp Ríkisútvarpsins
ný þjónusta sem hefst í haust
eftirMarkús Örn
Antonsson
, Ríkisútvarpið ætlar að hefja nýja
þjónustu við landsmenn á haustdög-
um. Hinn 30. september nk. verða
25 ár liðin frá fyrstu útsendingu
íslenzka sjónvarpsins. Þann dag
verður hafin tilraun með útsending-
ar textavarps á sjónvarpskerfi Rík-
isútvarpsins um land allt og er
ætlunin að gera það að föstum lið
í frétta- og upplýsingaþjónustu
stofnunarinnar.
Textavarpið verður sent út sam-
hliða venjulegri sjónvarpsdagskrá
eða stillimynd. Allar nýrri gerðir
sjónvarpstækja geta tekið á móti
textavarpinu. Með því að styðja á
hnapp á Ijarstýringunni eiga not-
endur þess kost að velja á milli
dagskrármyndar og textavarps eða
blanda þeim saman ef t.d. er um
að ræða skýringartexta við inn-
lenda þætti í þágu heyrnardaufra
sérstaklega. í því tilviki birtist text-
inn einungis þeim sem þurfa á hon-
um að halda og hafa yfir að ráða
nauðsynlegum móttijkubúnaði fyrir
textavarpið.
Aðaláherzla lögð á fréttir
Fyrst um sinn mun Ríkisútvarpið
leggja áherzlu á fréttaþjónustu í
textavarpi sinu. Nýjustu fréttir á
ritmáli, innlendar og erlendar, eiga
að birtast á skjánum hvenær sem
stillt er á textavarpið. Auk þess er
ætlunin að hafa veðurlýsingu og
veðurspá í textavarpi, einnig upp-
lýsingar um samgöngur innanlands,
færð á vegum landsins, þegar það
á við, gengi gjaldmiðla, tíðindi af
fiskmörkuðum og þannig mætti
lengi telja. Textavarpið getur orðið
dagbók allra landsmanna með afar
flölbreytilegum kostum til upplýs-
ingamiðlunar. Þarna "fer á ferðinni
einskonar dagblað í smækkaðri
mynd, sem hægt er að endurskoða
allan sólarhringinn til að koma að
nýjum boðum og breytilegum.
I textavarpinu rúmast mikið
magn upplýsinga af því að textinn
er settur upp á „blaðsíður“. Með
öðrum orðum: Hver síða samsvarar
skjáfylli af texta. í efnisyfirliti er
gerð grein fyrir blaðsíðutalinu. Not-
endur velja síðan viðkomandi númer
með því að ýta á tölustafina á flar-
stýringunni hjá sér en um leið flett-
ir sjónvarpstækið upp á þeirri til-
teknu síðu og kallar textann fram
á skjánum þannig að þeir sem ekki
hafa nógu góða sjón til að lesa al-
mennu stafagerðina geti stækkað
letrið með þvl að styðja á takka á
fjarstýringunni.
Samvinna textavarps á
Norðurlöndum
Sjónvarpsstöðvarnar á Norður-
löndunum reka sameiginlega frétta-
þjónustu í textavarpi. Ríkisútvarpið
verður aðili að því samstarfi. ís-
lenzkar fréttasíður verða birtar í
textavarpi á öllum hinum Norður-
löndunum og eins mun íslenzkum
textavarpsnotendum gefast kostur
á að fletta upp á norrænum fréttum
í textavarpinu íslenzka. Norrænu
fréttirnar eiga að berast hingað
milliliðalaust frá fréttastofunum
erlendis og verða birtar á viðkom-
andi tungumálum. Norðurlandabú-
ar hér á landi munu því geta fylgzt
með nýjustu fréttum úr sínum heim-
kynnum. Vafalaust verður texta-
varpið nýtt í framtíðinni til að koma
að fréttum og öðrum hagnýtum
upplýsingum á fleiri erlendum tung-
umálum í þágu ferðamanna hér á
■ NÁ TTÚR UVERNDARFÉ-
LAG Suðvesturlands verður með
kynningu á íslenskum nautgripum í
dag laugardaginn 1. júní. Farið verð-
ur í heimsókn á Geirakot, sem er
kúabú í Sandvíkurhreppi. Lagt verð-
ur af stað frá inngangi Húsdýra-
garðsins á laugardag kl. 13.30 og
komið aftur í bæinn um kl. 18.00.
Ferðin er liður í kynningu á íslensk-
um húsdýrum sem Náttúruverndar-
félag Suðvesturlands gengst fyrir í
sumar í samvinnu við Upplýsinga-
þjónustu landbúnaðarins og nefnist
Húsdýrin okkar. Á hálfsmánaðar
fresti verður sérstök kynning á einu
íslensku húsdýranna.
Markús Örn Antonsson
„Textavarpið getur
orðið dagbók allra
landsmanna með afar
fjölbreytilegum kostum
til upplýsingamiðlunar.
Þarna er á ferðinni
einskonar dagblað í
smækkaðri mynd, sem
hægt er að endurskoða
allan sólarhringinn til
að koma að nýjum boð-
um og breytilegum.“
landi og annarra áhugasamra not-
enda. Með hinni sameiginlegu, norr-
ænu fréttamiðlun fá Islendingar á
Norðurlöndunum líka allt annan og
skjótari aðgang að fréttum að heim-
an en verið hefur til þessa.
Textar með íslenzku
sjónvarpsefni
Eins og gefur að skilja getur
textavarpið komið heyrnardaufu
eða heyrnarlausu fólki almennt að
miklum notum. Áform um texta-
varpið, sem hafa verið á döfinni
undanfarin tvö ár, taka ekki sízt
mið af óskum og þörfum þessa til-
tekna hóps samfélagsþegnanna fyr-
ir góða og örugga upplýsingamiðl-
un. Með tækni textavarpsins verður
hin almenna dagskrá Sjónvarpsins
gerð aðgengilegri fyrir þá en verið
hefur til þessa því að íslenzkir skýr-
ingartextar geta orðið hluti af
textavarpinu. Slíkir textar verða
ekki sýnilegir öðrum en þeim sem
þá velja úr textavarpinu og blanda
þeim saman við dagskrárefnið, sem
Sjónvarpið sendir út þá stundina.
Sjónvarpið sendir nú íslenzkan
skýringartexta með endursýndu,
innlendu efni. Með tilkomu texta-
varpsins opnast eins og áður segir
VINALINAN
Ert þú á aldrínum 18-30 ára?
Hefur þú áhuga á að leggja jafnöldrum
þínum lið?
Við hjá Ungmennahreyfingu Rauða kross íslands
ætlum að byrja í haust með símaþjónustu fyrir fólk á
aldrinum 18-30 ára undir heitinu Vinalínan.
Vinalínan er hugsuð sem trúnaðarsími þar sem fólk
getur talað við jafnaldra sína um allt sem því liggur á
hjarta.
Helgina 8.-9. júní verður haldið kynningarnámskeið.
Þar verður Vinalínan kynnt og hæfir sjálfboðaliðar
valdir.
Skráning er í síma 26722.
UNGMENNAHREYFING RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Inribgsntit! nirg;
v,° 3 PRocenr-iob
LEíJOH^HISSNííJD Mi^Ð 108
IHCfiiríVil oVEKKLíiÍAti TIU. Hti.IIO
* svöts* r i-Asrvú sjaúct - sakwis í i t
* uibú>nmn ntf-chef irvspfk tiuqafm. .. it2
* SHS PLAíieRiW HIL •^LFrrVK....llj
* KnS^HAUfcK FftSt VII) C£MERN...114
Sýnishorn af nokkrum síðum í
textavarpi sænska sjónvarpsins.
margvíslegir möguleikar til sérþjón-
ustu við heyrnarskerta. Það er hins
, vegar undir stjómvöldum komið og
þeim fjárhagslegu skilyrðum sem
þau skapa Ríkisútvarpinu í hve
miklum mæli verður mögulegt að
veita þessa nýju þjónustu að því er
varðar textunina á íslenzku sjón-
varpsefni.
Textavarþ Ríkisútvarpsins er
tímabær nýjung og sjálfsögð viðbót-
arnýting á dreifikerfi Sjónvarpsins
og efnisaðföngum hjá fréttastofun-
um. íslendingar eru sólgnir í frétt-
ir. Aðstæður í landinu kalla á ítar-
legri umfjöllun um veður og færð
á vegum og í lofti en almennt tíðk-
ast hjá öðrum þjóðum. Textavarpið
getur uppfyllt þarfir landsmanna
fyrir hvort tveggja og að auki
annazt víðtæka almenna upplýsing-
amiðlun af margvíslegum öðrum
toga þegar fram líða stundir.
Höfundur er útvarpsstjóri.
Kópal-Steintex
Úrvals málning á venjuleg hús
Þegar þú málar húsið þitt þarftu að gera þér VARA-böðun fyrir málun, án þess að
grein fyrir þeim kostum sem bjóðast. Sé hindra „öndun“ steinsins. Kópal-Steintex
húsið þitt steinhús, í eðlilegu
og ekki er að vænta nokk-
urra breytinga á því, þá not-
ar þú Kópal-Stcintex frá
Málningu hf., hefðbund-
na, vatnsþynnanlega, plast-
málningu í hágæðaflokki.
Kópal-Steintex er auðvelt
í notkun, gefur steininum
góða vatnsvörn, sem auka
má enn með VATNS-
gefur
slétta og fallega áferð, hylur
vel og fæst í mörgum falleg-
um litum, og einn þeirra er
örugglega þinn. Til að ná
bestu viðloðun við stein
skaltu grunna hann fyrst
með Steinakrýli og mála
síðan yfir með Kópal-Stein-
texi, einkum ef um duft-
smitandi fleti er að ræða.
Næst þegar þú sérð fallega málað hús — kynntu þér þá hvaðan málningin er
Bmálning'f
- það segir sig sjdlft -