Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991 11 LEIKLESTUR _________Leiklist______________ Guðrún Þóra Gunnarsdóttir Kirkjulistahátíð ’91: Leiklestur úr Fjallkirkjunni eftir Gunnar Gunnarsson og Kristnihaldi undir jökli eftir Halldór Lax- ness. Á nýafstaðinni kirkjulistahátíð var m.a. lesið úr skáldverkum Gunnars Gunnarssonar og Hall- dórs Laxness. Leikaramir Rúrik Haraldsson og Þorsteinn Gunn- arsson lásu úr Kristnihaldi undir jökli en Hallgrímur Helgi Helga- son tók efnið saman. Myndir úr Fjallkirkjunni hét leiklestur þeirra Helga Skúlasonar og Helgu Bac- hmann og það voru Lárus Pálsson og Bjarni Benediktsson frá Hof- teigi sem tóku saman. Leiftrandi samtöl einkenna bæði þessi verk og því henta þau einkar vel til leiklesturs og tæpast þarf að taka það fram að þau eru bæði firnavel skrifuð. Persónur eru dregnar skýrum dráttum og margar þeirra eru ærið sérstæð- ar, s.s. séra Jón PrímUs í Kristni- haldinu og afi á Knerri í Fjallkirkj- unni. Guðdómurinn kemur mikið við sögu í Kristnihaldinu og Fjail- kirkjunni og verkin því viðeigandi á kirkjulistahátíð. Þessi verk eru þó ekki trúarleg í hefðbundnum skilningi þess orðs: söguhetjur beggja verkanna standa and- spænis torræðum heimi sem þær skilja ekki og komast að því að engin einhlít svör eru til. Leiklestramir voru í alla staði vel unnir og lesarar drógu upp mótaðar persónur í flutningi sín- um. Þeir Rúrik og Þorsteinn voru hógværir í allri túlkun sinni en krydduðu lesturinn með skemmti- legu látbragði og Rúrik var t.d. prýðilegur í hlutverki Hnallþóm sem fannst sú ósk Umba um að fá að smakka á fiski vera grófleg móðgun við prestssetrið. Stutt tilsvör einkenna samtölin í Kristnihaldinu og þau eru lipur í upplestri og lífleg enda eru samt- öl undir jökli ekki venjuleg og Umbi rekur sig fljótlega á að það þýðir lítið að spyija beinna spum- inga, þeim er sjaldnast svarað. Samtölin í Fjallkirkjunni eru mörg hver afar lífleg og kímin í meira lagi, einkum ef afi á Knerri er nálægur. Oft er þó um að ræða n.k. einræður persónanna en Uggi skýtur inn orði og orði, það mynd- ast því síður þessi dramatík í sam- tölunum sem er svo mikil í Kristni- haldinu. Ég var heldur ekki alveg sátt við uppbygginguna. Mér fannst sum samtölin vera teygð fullmikið, t.d. viðræður þeirra Ugga og Bjarna í smiðjunni. Það hefði að ósekju mátt stytta þær og bæta frekar inn fleiri samtölum afans á Knerri og Ugga, sem og samtölum Ugga við móður sína. Helgi var afar lifandi sem afínn og hvert orð var fullt af orku gamla mannsins. Flutningur þeirra Helgu var yfirleitt með miklum ágætum og vandaður í alla staði. Áheyrendur voru afar fáir á báðum leiklestrunum og ástæðan er án efa sú að veðurblíðan hefur leikið við höfuðborgarbúa og þá fýsir fólk lítið inn í hús; kannski hefði kirkjulistahátíð mátt vera aðeins fyrr á ferðinni. Myndin er tekin á æfingu Kammersveitarinnar. Kirkjulistahátíð ’91: Trúartónar frá Sviss KAMMERSVEIT Reykjavíkur og Mótettukór Hallgrímskirkju halda Frank Martin tónleika í Seltjarnarneskirkju laugardaginn 1. júní kl. 17. Þetta eru lokatónleikar Kirkjulistahátíðar ’91. Frank Martin má hiklaust telja eitt fremsta tónskáld Svisslendinga á þessari öld. Einleikarar á tónleikunum á laug- ardaginn eru Unnur María Ingólfs- dóttir, fiðla, og Uwe Eschner, gítar. Stjórnandi Kammersveitarinnar er Guðmundur Óli Gunnarsson og kon- sertmeistari Rut Ingólfsdóttir. Stjómandi Mótettukórsins er Hörður Áskelsson. Á Frank Martin tónleikunum verða flutt verkin Polyptique, Messa fyrir tvo kóra án undirleiks og Fjórir stuttir þættir. Hið síðarnefnda er gítarverk skrifað 1933 þegar gítar- inn er að hasla sér vöil meðal hinna klassísku hljóðfæra. Messan þykir mörgum í flokki þess besta sem skrif- að hefur verið af kirkjutóniist á þess- ari öld. Polyptique er eitt síðasta verk Martins og er kveikjan af því Passíumyndir eftir ítalska málarann Duccio frá því um 1300. Guðmundur Óli Guðmundsson hef- ur í vetur verið við nám í Helsing- fors hjá Jorma Panula en meðal fyrr- verandi nemenda hans eru flestir þeir ungu finnsku hljómsveitarstjórar sem farið hafa sigurför um heiminn á síðustu árum. Unnur María Ingólfsdóttir fiðlu- leikari hefur verið konsertmeistari Kammerhljómsveitarinnar í Bem í Sviss 1987-1990 og víða komið fram á tónleikum í Evrópu. Uwe Wschener er þýskur gítar- leikari sem árið 1989 fluttist til ís- lands og hefur stundað kennslu jáfn- hliða tónleikahaldi. (Fréttatilkynning) Kópavognr: Sj ómannadagurinn HÁTÍÐAHÖLD í tilefni Sjómannadagsins verða í Kópavogshöfn á veg- um Siglingafélagsins Ýmis, Hjálparsveitar skáta í Kópavogi og Björgun- arsveitarinnar Stefnis og hefjast þau kl. 14.00 á sunnudag. Ýmir stendur fyrir keppni í opnum flokki seglbáta og hefst fyrsta keppni kl. 11.00 árdegis en þær standa fram eftir degi. Almenningi verður boðið upp á siglingu um voginn á kjölbátum og hægt verður að fá lánaða árabáta. Nokkrir félagar úr Vélbátafélaginu Kvikunni verða á staðnum og bjóða bæjarbúum í siglingu á bátum sínum. Hjálparsveit skáta verður með opið hús og sýnir aðstöðu og tækjakost sinn og mun ásamt Stefni standa fyrir ýmsum uppákomum. sjoMimmtmmí mt Dagskré 54. siómannailagsins í Reykjavík 2. m 1991 Klukkan: 08.00 Fánar dregnir að húni á skipum í Reykjavíkurhöfn. 11.00 Minningarguðsþjónusta í Dómkirkjunni í Reykjavík. Dóm- kirkjuprestur sr. Hjalti Guðmundsson minnist drukkn- aðra sjómanna og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar, dómorganista. Útihátíðarhöld við Reykjavíkurhöfn 13.00 Hefjast skemmtisiglingar með skipum Hafrannsóknar- stofnunar, Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni, um sundin við Reykjavík. Þar gefst fólki kostur á að fylgjast með störfum vísindamanna. 13.30 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur létt sjómannalög, stjórn- andi Eiríkur Stephensen. 14.00 Samkoman sett. Þulur og kynnir dagsins er Harald Holsvik, framkvæmdastjóri Öldunnar. Ávörp: A. Fulltrúi ríkisstjórnarinnan Þorsteinn Þálsson, sjávarútvegsráðherra. B. Fulltrúi útgerðarmanna, Eiríkur Ólafsson, framkvæmdastjóri frá Fáskrúðsfirði. C. Fulltrúi sjómanna, Hilmar Snorrason, skipstjóri. D. Guðmundur Hallvarðsson, starfandi formaður sjómannadagsráðs, heiðrar aldraða sjómenn með heiðursmerki dagsins. 15.00 Kappróður á Reykjavíkurhöfn. Keppt verður í karla- og kvennasveitum. 15.00 Félagar úr björgunarsveit S.V.F.Í. Ingólfi í Reykjavík verða með ýmsar uppákomur í Reykjavíkurhöfn í sam- vinnu við áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, m.a. björg- unarútbúnað, kappsund í flotgöllum og margt fleira. Félagar úr sportbátaklúbbnum Snarfara verða með báta sína í Reykjavíkurhöfn. Stefnt er að því að útihátíðarhöldum dagsins verði lokið kl. 17.00. Sjómannablaðið og merki dagsins verða til sölu á staðnum. HRAFNISTA, REYKJAVÍK Klukkan: 13.30 Opnuð handavinnusýning og sala í föndursal á 4. hæð C-álmu. Kaffisala í borð- og skemmtisal frá kl. 14.30-17.00. Allir velkomnir. Ágóði rennur til velferðarmála heimilis- manna á Hrafnistu í Reykjavík. HRAFNSSTA, HAFNARFSRÐ! Klukkan 10.30 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur sjómannalög við Hrafn- istu, Hafnarfirði. 14.00-17.00 Opnuð handavinnusýning og sala í föndursal. Kaffisala í föndur- og skemmtisal frá kl. 14.30-17.00. Allir velkomnir. Ágóði rennur til velferðarmála heimilis- manna Hrafnistu, Hafnarfirði. Sjómannadagshóf verður að kvöldi sjómannadagsins á Hótel íslandi. Miðasala á Hótel íslandi. Allirvelkomnir. Siómannailagurinn í Reykjavíli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.