Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991
fclk í
fréttum
Michiko Koshino ásamt aðstoðarmönnum við undirbúning sýningarinnar. Morgunblaðið/KGA
TÍSKA
_ Haustlínan kynnt
Það er ekki á hverjum degi sem erlendir tískuhönn-
uðir sýna nýjustu línuna hér á landi, en í kvöld
sýnir japanski hönnuðurinn Michiko Koshino föt sín
á skemmtistaðnum Yfir strikið.
Sýningin verður kynning Koshino á næstu vetrarl-
ínu sinni og í föruneyti hennar er leikstjóri sem mun
stjórna upptökum á sýningunni og stemmningu kvölds-
ins. Upptakan verður notuð til kynningar á línunni,
íslandi og Yfír strikið um heim allan. 20 fyrirsætur
frá Icelandic Models, hárgreiðslufólk frá Jóa og félög-
um, smiðir, ljósamenn og sviðshönnuðir hafa lagt dag
og nótt saman til að setja upp sýninguna, en einnig
verður með í för plötusnúður sem leikur það nýjasta
í danstónlistinni.
WWWWWW
Utno
Ml/
vrvrvfvwwf
Urt>h
FERÐASUMARIÐ
\i
O:
/ \ s
91
Nú þegar sumarið er loksins komið höfum við ákveðið að efha til stórsýningar
á nýjum bílum, tjaldvögnum, hjólhýsum og öðru sem hægt er að tengja
sumarferðalögum.
Við eftirtaldir sýnendur viljum hér með bjóða alla velkomna í Bílakringluna,
Grófiimi 8, Keflavík um helgina og kynnast fjölda frábærra nýjunga í glæsilegum
700 fermetra sýningarsal.
Sýningin er opin laugardaginn 1. júní kl. 10 - 18 og sunnudaginn
2. júni kl. 13 - 18. Komið og sannfærist. /' /1
0? Bílaumboðið hf ^^renault
Brimborg hf. Q S □AIHATSU VOLVO
1Gbbust CITROÉN
HONDA Á ÍSLANDI íff) HOltfDA
Ingvar Helgason hf.
Onissan
9
SUZUKIBILAR HF.
m
ii
OPIÐ
Laugardae
kl. 10-18
Sunnudag
kl. 13-18
Stórútsala á notuðum
bílum einnig
um helgina.
Gr.kjör: Engin útb,
- eftirstöðvar
á 36. mán.
, GjsJ.i.
jóóssön
S Cö.
$ SUZUKi
Camp-let
Tjaldvagnar og hjólhýsi
^—.rR-
BIIAKRINGIAN
GRÓFIN 7 og 8 - Keflavík
Puisupartý og
[£]
Ýmsar
kynningar
verða á
staðnum.
Heitt á
könnunni.
KONGAFOLK
Danska drottning-
arefnið í höfn?
Danir hoppa nú hæð sína í öllum
herklæðum, því nú hyllir und-
ir nýtt drottningarefni. Um all langt
skeið hefur krónprinsinn Friðrik
verið að gera hosur sínar grænar
fyrir ljómandi huggulegri fyrirsætu
að nafni Malou Aamund, en sá
Þrándur hefur verið í götu að hún
hefur verið gift tónlistarmanni að
nafni Nikolai Egelund. Þau hafa
að vísu verið skilin að borði og
sæng og lögskilnaður verið í vænd-
um, en Dönum finnst ekkert tiltöku-
mál þótt drottningarefni sé fráskilin
kona. Nú er skilnaðurinn í höfn og
hin 21 árs gamla Malou orðin fijáls
eins og fuglinn.
Það er til marks um gífurlegan
áhuga Dana á málinu, að vikublað-
ið Billed bladet skýrði frá skilnaðin-
um, en er önnur blöð fylgdu á eftir
og höfðu samband við Malou, Frið-
rik, Nikolai og Suzanne Bjerrehus,
ömmu Malou, vissi ekkert þeirra
að allt væri í höfn! Má segja að þau
hafí lesið um það í dönsku blöðun-
um.
Það sem nú getur komið í veg
fyrir að Malou Amund verði næsta
drottning Danmerkur er að hún og
Friðrik slíti sambandi sínu eða að
Margrét drottning leggi ekki bless-
un sína yfír ráðahaginn. Sérfræð-
ingar í dönskum kóngafólksmálum
telja hverfandi líkur á því að Margr-
ét myndi fetta fingur út í val Frið-
riks þrátt fyrir skilnaðarmálið.
Malou sé greind, sjálfstæð og falleg
og í raun eigi það að duga. Það
veit auðvitað enginn hvort að Frið-
rik og Malou tolli saman, en eitt
þykir þó benda til þess, Friðrik hef-
ur lengi verið iðinn pilsajagari og
skipt um vinkonur nær vikulega.
Eða þar til að hann kynntist Malou.
Þau hafa verið „bestu vinir“ nú svo
mánuðum skiptir og ónafngreindir
aðilar sem standa nærri kóngafólk-
inu fullyrða að um heita ást sé að
ræða.
OLYMPIULEIKAR
José Carreras tónlistar-
stjóri Olympíuleikanna
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
Spænski óperusöngvarinn José
Carreras hefur tekið tilboði
Olympíunefndarinnar um að hafa
umsjón með tónlist á Olympíuleik-
unum í Barcelona á Spáni á
næsta ári.
Þijár ástæður voru nefndar fyr-
ir tilboðinu. í fyrsta lagi listrænir
hæfíleikar söngvarans, í öðru lagi
tengsl hans við Barcelona sem er
heimaborg hans og í þriðja lagi
íþróttaáhugi hans. Aðalviðfangs-
efni söngvarans verður að sjá um
tónlist á opnunar- og iokaathöfn
leikanna. Það er vissulega spenn-
andi því milljónir manna í fimm
heimsálfum munu fylgjast með.
Þykir mörgum fomtnilegt að sjá
til hvaða bragða verður gripið til
að hrífa áhorfendur.
Flestum eru víst í fersku minni
tónleikar stórsöngvaranna Piacido
Domingos, Luciano Pavarottis og
José Carreras í rómversku böðun-
um í fyrrasumar. Þeir tónleikar
voru menningaruppákoma í tilefni
af heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu. Sagt er að þeir hafi ekki
sist orðið að veruleika vegna fót-
boltaáhuga Pavarottis, sem hafí í
tilefni þessa viðburðar í heimalandi
hans, viljað gera eitthvað eftir-
minnilegt. Þá þegar var farið að
tala um hvernig og hvenær hægt
yrði að koma annarri eins sam-
komu upp. Þó hún verði ekki end-
urtekin er ekki ósennilegt að eitt-
hvað svipað verði reynt í tilefni
Olympíuleikanna á næsta ári.
COSPER
— Þú verður að fara að fá þér gleraugu.