Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991 RÍKISENDURSKOÐUN FLYTURÁ SKÚLAGÖTU 57 Frá og með mánudeginum 3. júní 1991 verður Rfkisendurskoðunin til húsa á Skúlagötu 57, 150 Reykjavík. Nýtt símanúmer tekurgildi frá sama tfma: 614121. Ríkisendurskoðun. GRILL-VEISLA í FAXAFENI 10 LAUGARDAG KL. 10-16 Trimmbúðin kynnir ný gasgrill með kostum sem gefa sælkerum aukna möguleika til matargerðar. Gluggi á loki Hitamælir Þétt emileruð grind Fellanleg fram og hliðarborð Allir þessir kostir á aðeins kr. 19.800,- stgr. (án gaskúts). Rafknúinn mótor ásamt grillteini Bæsað og lakkað viðarverk Snúningshjól ísfugl Við bjóðum þér að kynnast eiginleikum grillsins í dag kl. 10-16 og um leið smakka á gómsætum nýjum léttpylsum frá Goða og kjúklingum frá ísfugli, og auðvitað Coca Cola með. Grillkokkur verður á staðnum og sýnir grilltakta. Kynnist eldamennsku sem gefur heimilislífinu nýjar víddir. Faxafeni 10, Húsi framtíðar, 108 Reykjavík, PÖNTUNARSÍM! 82265 Meira en þú geturímyndað þér! Blóm vikunnar Umsjón: Ágústa Björnsdóttir 206. þáttur Síðari hluti Fjölgun. Það er vandalítið að ijölga jarðarbeijum og að fást við fjölgun og uppeldi gróðurs finnst mörgum heillandi tómstundagam- an. Ofanjarðarrenglur vaxa í ríkum mæli út frá stofnhvirfingu jurtarinnar, þegar hún hefur náð vissum þroska. Sé jörð ekki hulin plasti þekst hún skjótlega af ren- gluflækjum og nýgræðingi. Þetta verður nauðsynlega að koma í veg fyrir, klippa renglur í burtu við og við, ella fer svo að ekki verður við neitt ráðið. Sé plast yfir mold- inni, verður ræktunin meðfæri- legri. Þegar endurnýja þarf plönt- ur er notast við nýgræðing sem þá verður að halda í. Hann á að losa frá móðuijurtinni og setja í hentug ílát, bakka eða potta og ala síðan upp í sólreit eða gróður- húsi. Eins má fylla potta af fijó- mold og koma þeim fyrir undir renglunum þar sem nýgræðingur- inn myndar rætur. Þarf að nota vírkengi til að halda renglunum föstum á meðan nýgræðingurinn er að festa sig. Þegar plöntur fara að stálpast eru renglurnar klippt- ar frá móðurjurtinni og uppeldi ungviðisins haldið áfram við sem best skilyrði, eins og áður er gef- ið í skyn. Það er atriði að velja fijósömustu plönturnar til undan- eldis og að geta byijað að fjölga snemma sumars, þannig að ung- viðið nái góðum þroska fyrir vet- urinn. Heppnist það er varla ástæða til annars en að láta plön- turnar blómstra og skila beijum strax á fyrsta sumri. Blómmyndun. Blóm jarðar- beija verða til þegar dagar fara að styttast í ágúst-september. Ríkuleg blómgun á sumrin er mjög undir því komið að okkur takist að laða fram góðan vöxt þegar beijatekju er að ljúka. Að flýta sprettu. Með því að setja plast á boga yfir plönturnar snemma vors má hvetja vöxt, blómgun og þroskun beija. Plast- dúkur getur þó verið vandmeðfar- inn því á sólskinsdögum getur orðið of heitt undir honum ef ekki er loftað. Öruggara er að nota acrylgrisju. Þótt óþétt sé örvar hún samt sprettu ogþroskun beija og ver þau fyrir fuglum. Setja má agryl yfir jurtirnar snemma í apríl, en á meðan á blómgun stendur, er rétt að taka grisjuna af. Blóm fijóvgast þá betur. Sama skal gera ef vætutíð er langvar- andi eftir að ber fara að vaxa. Illgresi og sjúkdómar. Þar sem plast er haft á beðum verður illgresi lítið sem ekkert vanda- mál, jafnvel ekki þótt plast sé smávegis gatað til að hleypa regn- vatninu niður. Sjúkdómahætta verður einnig minni, en aðallega angrar grásveppur í úrkomutíð og eins sækja sniglar í berin. Með þessu verður að fylgjast og beita nothæfum aðgerðum. Ó.V.H. I fyrri greininni um jarðarber (25/5) voru taldar upp nokkrar tegundir sem reynst hafa upp- skerumest. Við þá upptalningu má bæta tegundinni „glíma“ sem hér mun vera á markaði og reynst hefur ágætlega. Umsj. Jarðarber JARÐARBER Ræktun og- umhirða REYNSLA - RAÐGJ0F - ÞJ0NUSTA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.