Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 18
*18
M'ORGUNBLADlb Ul!:GÁm)ÁGlfR 1. Jt.N’í Í991___________
% Fyrirlestur Johns Naisbitts í Borgarleikhúsinu:
DIAMONÐ TIGER 16' með fót
bremsu. Verð aðeins kr. 8.800,-
DIAMONÐ LADY 26“, 10 gira
dömuhjól með aurbrettum,
bögglabero og standara.
Verð aðeins kr. 15.700,-.
Stgr. 14.915,-
DIAMOND BMX 20“ með fót-
btemsu, stólgjörðum, heillisveif,
standara og púðum. Óvenju
hagstætt verð ó svo vel útbúnu
hjóli, kr. 9.400,-.
Stgr. kr. 8.930,-
Kreditkort og greioslusamningar
Sendum í póstkröfu.
VARAHLUTIR OG VIÐGERÐIR,
VANDID VALIÐ 0G VERSLIÐ í MARKINU.
Ferslunin
Símar
35320
688860
og
Armúla
0
OTRULEGT VERD
Á FJALLAHJÓLUM
OG FLEIRI HJÓLUM
DIAMOND EXPLOSIVE 26“. 21 gírs fjallahjól, chromolly stell, SHIMANO
200 GS gírar og fylgihlutir, átaksbremsur, álgjarðir, standari og brúsi.
Mjög gott hjól á ótrúlegu verði, kr. 29.900,-. Stgr. kr. 28.400,-
DIAMOND TIGER 26“, 18 gira
fjallahjól, SHIMAN0 gírar, átaks-
bremsur, álgjarðir, standari og
brúsi. Frábært verð kr. 20.950,-.
Stgr. kr. 19.900,-
DIAMOND TIGER 24“, 18 gíra
fjallahjól, SUNTOUR gírar, átaks-
bremsur, ólgjarðir, standari og
brúsi. Verð aðeins kr. 18.900,-.
Stgr. 17.950,-
DIAMOND TIGER 20“, 10
fjallahjól, átaksbremsur, ólgjarð-
ir, standari. brúsi. Verð aðeins h
kr. 13.900,-. Stgr. 13.200,-
Hugmyndir
sem skila arði
eftir Árna
Sigfússon
Líkt og hafstraumar úthafanna
þá ríkja viðhorfastraumar í samfé-
lagi okkar. Þetta eru áhrifamiklir
farvegir breytinga í þjóðfélagsmál-
um, efnahagsmálum, stjórnmálum
og tækni. Oft eru þeir lengi að
koma í ''ljós en skriðþunga þeirra
gætir um langt skeið þegar þeir eru
komnir af stað. Þessir megin-
straumar eru áhrifavaldar á flesta
þætti lífs okkar. Þeir hafa ekki
aðeins áhrif á hvort við festum
rætur í Reykjavík eða annars staðar
í landinu heldur hvort við tökum
stefnuna til útlanda. Þeir munu
einnig hafa áhrif á hvaða möguleik-
ar munu bjóðast í menntun barna
okkar og hverskonar framtíð muni
bíða þeirra. Áhrifin eru ótrúlega
fjölþætt: Til hvernig starfa veljumst
við, hvert beinum við ferðalögum
okkar, hvernig högum við viðskipt-
um og fjárfestingum?
Umrót og ólga í alþjóðamálum
og ör tækniþróun síðustu árin hafa
opnað augu þjóðarinnar fyrir þeirri
staðreynd að hagsmunir hennar og
velferð fylgja meginstraumum sem
greina má í umheiminum. Alls stað-
ar verðum við vör við þessa megin-
strauma. Jafnvel „einangraðir“
munkar í Tíbet fljóta á öldutoppi
tækniframfara í fjarskiptum og
nota myndsendi (telefax) til að
koma skilaboðum milli heimsálfa.
Við búum í heimi sem hefur skropp-
ið saman. Það þarf því engan að
undra þó augu almennings séu að
opnast fyrir nýjum möguleikum í
framtíðinni. Aldrei hefur verið mik-
ilvægara að líta til framtíðar. Ann-
ars fáum við engu um hana ráðið.
Orlagaríkar breytingar
í bókinni Megatrends, sem kom
út fyrir tæpum 10 árum, kom höf-
undurinn John Naisbitt auga á 10
meginstrauma sem myndu móta líf
fólks á síðastliðnum áratug. John
Naisbitt reyndist sannspár um þær
áhrifamiklu breytingar sem samfé-
lög okkar á Vesturlöndum eru að
ganga í gegnum; dögun upplýsinga-
aldarinnar, aukið sjálfstæði ýmissa
stofnana samfélagsins, samteng-
ingu efnahagsheilda heimsins og
grósku hátækniiðnaðar og þjón-
ustugreina. Nú hafa John Naisbitt
og Patricia Aburdane eiginkona
hans gefið út nýja bók, „Mega-
trends 2000“ þar sem þau koma
auga á þá tíu meginstrauma sem
munu umbreyta veröldinni og lífi
allra sem í henni búa á næstu árum.
Þeir bera með sér umfang og áhrif
breytinga heils áratugar.
Meginstraumar tíunda
áratugarins
í bók sinni fjallar John Naisbitt
m.a. um eftirtalin atriði sem hann
telur að muni breyta heimssýn okk-
ar:
Gróska í efnahagslífi heimsins: Á
skjön við svartsýni sumra, virðast
öflugir þættir vera að verki við að
auka hagvöxt og velferð jarðarbúa.
Við megum ekki falla flöt fyrir
neikvæðni bölsýnismanna sem telja
þessu öfugt farið.
Endurreisn í menningarlífi: Það
sem telja má óvænta niðurstöðu hjá
John Naisbitt er, að listir og menn-
ing munu verða meira áberandi í
þjóðlífinu. Á þessum síðasta áratug
aldarinnar munu listir og menning
leysa íþróttir af hólmi sem aðal
dægradvöl almennings.
Sósíalískur markaðsbúskapur:
Niðurstaða þess umróts og end-
urnýjunar sem átt hefur sér stað í
Austur-Evrópu verður tilkoma
nýrra efnahags- og stjórnmálahug-
mynda sem eru án fordæmis.
Árni Sigfússon
Heimsmenning og menningarleg
þjóðerni'sstefna: Um leið og fyrir-
tæki á borð við MacDonald’s og
Benetton breiðast hratt um alla
heimsbyggðina, verður þörfín fyrir
sérstöðu sterkari. Hún mun leiða
til þjóðernislegrar menningarstefnu
til að skerpa sérstöðu hverrar þjóð-
ar eða menningarheildar.
Hjöðnun velferðarríkisins: Á
þessum siðasta áratug aldarinnar
verður leitað svara við spurning-
unni, hvernig hægt sé að hjálpa
fólki án þess að sigla almannasjóð-
um í strand. Bæði í þriðja heiminum
sem og í hinum vestræna verður
einkavæðing velferðargeirans
fyrsta skrefið.
Kvöldguðs-
þjónustur í
Seljakirkju
Með sumarkomunni breytist
guðsþjónustutími kirkna í Reykja-
víkurprófastsdæmum. í Seljakirkju
færist guðsþjónusta sunnudagsins
fram á kvöldið og verður fyrsta
kvöldguðsþjónustan næstkomandi
sunnudag, 2. júní, kl. 20.30. Verður
IRÐISAUKASKATTUR
Gjalddagi
virðisaukaskatts er
5. þessa mánaðar
Skýrslum til greiðslu, þ.e. þegar
útskattur er hærri en innskattur,
og núllskýrslum má skila til banka,
sparisjóða eða pósthúsa. Einnig
má gera skil hjá innheimtumönnum
rikissjóðs en þeir eru tollstjórinn
í Reykjavik, bæjarfógetar og sýslu-
menn úti á landi og lögreglustjór-
inn á Keflavíkurflugvelli.
Bent skal á að bankar, sparisjóðir
og pósthús taka aðeins við skýrsl-
um sem eru fyrirfram áritaðar af
skattyfirvöldum. Ef aðili áritar
skýrsluna sjálfur eða breytir áritun
verður að gera skil hjá innheimtu-
manni ríkissjóðs.
Inneignarskýrslum, þ.e. þegar
innskattur er hærri en útskattur,
skal skilað til viðkomandi skatt-
stjóra.
Til að komast hjá álagi þarf
greiðsla að hafa borist á gjald-
daga. Athygli skal vakin á því að
ekki er nægilegt að póstleggja
greiðslu á gjalddaga.
m
RÍKISSKATTSTJÓRI