Morgunblaðið - 01.06.1991, Síða 39

Morgunblaðið - 01.06.1991, Síða 39
iÍÓRGUNBLAÐIÐ LAUGAlÍÓAÓlL’k l^ffitil'ttyí 39 Doktor í plöntu- vist- fræði ÁGÚST H. Bjarnason grasafræð- ingur varði hinn 15. maí síðastlið- inn doktorsritgerð við háskólann í Uppsölum. Heiti ritgerðarinnar er „Vegetation on lava fields in the Hekla area, Iceland“, og er hún gefin út í ritröðinni „Acta phytogeographica Suecica“. Andmælandi var Olov Gjærevoll, fyrrum prófessor og ráðherra í Noregi. í ritgerðinni er fjallað um gróður í sögulegum hraunum, sem runnið hafa á Heklusvæðinu, hið elsta frá 1158 og hið yngsta frá 1980. Niður- stöður gróðurgreininga úr hverju einstöku hrauni voru flokkaðar eft- ir tölvuforriti „Tabord“. Lýst er ell- efu mismunandi gróðurfélögum, sem síðan voru aðgreind í svo- nefndu „CANOCO", (CCA) forriti, þar sem tillit er tekið til ýmissa þátta í umhverfi. í stuttu máli má segja, að því eldri sem hraunin eru þeim mun minni áhrif hefur aldur þeirra á gerð gróðurfélaga. Önnur atriði, eins og lega, hæð yfir sjó og gjóskufall kunna að ráða meiru þar um. Fjallað er um hvernig plönt- ur nema land í nýrunnum hraunum og myndun og framvindu mosa- þembu. Sýnt er hvernig hrauna- gambri (gamburmosi) tálmar út- breiðslu annarra tegunda og er það í fyrsta sinni, sem tálmun er lýst í fyrsta stigs framvindu samkvæmt fræðikenningu Connells og Slaty- Dr. Ágúst H. Bjarnason. ers. Þá er kafli um áhrif gjósku á gróður. í ljós kom meðal annars, að gjóskufall getur aukið hlut birk- is í mosaþembu. Einnig er lítillega vikið að gerð jarðvegs í hraunum oggreint frá mælingu á lágviðri. Agúst H. Bjarnason er fæddur 30. desember 1945 í Reykjavík, sonur hjónanna Guðrúnar Jónsdótt- ur Bjarnason og Hákonar Bjarna- son, fyrrum skógræktarstjóra. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1966 og fil. kand prófí frá Uppsala há- skóla 1969. Hann hóf athuganir á gróðri í hraunum við Heklu árið 1970, sem hann hefur stundað lengstum jafnframt kennsju í Menntaskólanum við Sund. Ágúst er kvæntur Solveigu Sveinsdóttur, kennara, og eiga þau tvo syni. Þ.ÞDRGRÍMSSON&CO UU RUTLAND UU ÞÉTTIEFNI Á ÞÖK - VEGGI - GÓLF ÁRMÚLA29, SÍMI 38640 TArf HASKOLANAM I 1 V1 KERFISFRÆÐI Innritun stendur nú yfir í Tölvuháskóla VÍ Markmið kerfisfræðinámsins er að gera nemendur hæfa til að vinna við öll stig hugbúnaðargerðar, skipuleggja og annast tölvuvæðingu hjá fyrirtækjum og sjá um kennslu og þjálfun starfsfólks. Frá og með haustinu 1991 verður eingöngu tekið inn á haustin og leng- ist námið frá því sem áður var í tveggja ára nám. Kennsla á haustönn hefst mánudaginn 2. september nk. Inntökuskilyrði er stúdentspróf eða sambærileg menntun. Eftirtaldar greinar verða kenndar auk raunhæfra verkefna í lok hverrar annar: Fyrsta önn: Þriðja önn: Forritun í Pascal Gluggakerfi Kerfisgreining og hönnun Kerfisforritun Stýrikerfi Fjárhagsbókhald Önnur önn: Fjölnotendaumhverfi Gagnasafnsfræði Gagnaskipan Rekstrarbókhald Umsóknarfrestur fyrir haustönn 1991 er til 28. júní, en umsóknir, sem berast eftir þann tíma, verða afgreiddar eftir því sem pláss leyfir. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást á skrifstofu Verzlunarskól- ans frá kl. 08.00 til 16.00 og í síma 688400. Skólinn er lokaður í júlí. TÖLVUHÁSKÓLI VÍ, Ofanleiti 1, 103 Reykjavík. Hlutbundin forritun Fyrirlestrar um valin efni Fjórða önn: Staðbundin net Tölvugrafík Hugbúnaðargerð WOODEX VIÐARVÖRN FYRIR AUGAD-FYRIR VIDINN WOODEX viðarvörnin frá Hygæa erfrábærlega endingargóð og áferðarfalleg auk þess sem hún fellur vel að íslenskum aðstæðum. Woodex fæst bæði sem grunn- og yfirborðsefni úr acryl- eða olíuefnum. WOODEX MULTITRÉGRUNNUR er vatnsblendin grunnviðar- vörn á allt tréverk. Hann gengur vel inn í viðinn og eykur stöðugleika hans og endingu. WOODEX HYDRA er hálfþekjandi, vatnsblendin, lyktarlítil viðar- vörn með Ijósþolnum litarefnum sem nota má úti sem inni. WOODEX ACRYL er yfirborðsefni á allt tréverk. Það myndar þunna en seiga og mjög veðrunarþolna húð. WOODEX ACRYL þekur mjög vel og er létt að vinna með. WOODEXINTRA smýgur djúpt í viðinn og veitir góða vörn gegn fúa, sveppum og raka. Góð grunnvörn. WOODEX ULTRA er lituð en gagnsæ viðaravörn úr olíuefnum sem nota má innanhúss sem utan. Fæst í flestum málninga- og byggingavöruverslunum um allt land. • • SKAGFJORÐ Krisljón Ó . Skogfjörð hf. Umboðs- og heitdverslun <

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.