Morgunblaðið - 01.06.1991, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991
47
“<S
Morgunblaðið/PPJ
Lockheed L.1011 TriStar-breiðþota Flugfélagsins Atlanta við Flug-
stöð Leifs Eirikssonar á Keflavíkurflugvelli.
Ásgeir Christiansen flugsljóri
með dóttur sína Láru í flug-
sljórnarklefa TriStar-breiðþotu
flugfélagsins Atlanta.
FLUG
Stærsta íslenska þotan
lendir í fyrsta sinn
Lockheed L.1011 TriStar-þota
Flugfélagsins Atlanta - TF-
ABG, fyrsta breiðþotan sem skrá-
sett er á íslandi, lenti á Keflavíkur-
flugvelli sl. sunnudagskvöld. Vakti
koma breiðþotunnar mikla athygli
og fylgdist mikill mannfjöldi með
þegar vélin flaug nokkra hringi yfir
Reykjavík áður en hún lenti á Kefla-
víkurflugyelli.
Við komu vélarinnar til Keflavík-
ur færði Þóra Guðmundsdóttir eig-
inkona Arngríms Jóhannssonar að-
aleiganda Atlanta, Ásgeiri Christ-
iansen flugstjóra stóran blómvönd
og bauð áhöfn hennár velkomna til
íslands með hin glæsilega farkost.
Breiðþota tekur 345 farþega og
er áhöfnin tíu manns, þrír flugmenn
og sjö flugfreyjur og flugþjónar.
Flugfélagið Atlanta hefur tekið vél-
ina á leigu af bandarískum aðilum
og verður hún notuð við leiguflugs-
verkefni fyrir flugfélagið Sudan
Airways. Verkefni þetta mun vænt-
anlega standa yfir í um sex mánuði
og mun vélin flytja pílagríma af
múhameðstrú til og frá Jeddah í
Saudi-Arabíu auk þess að verða
notuð á áætlunarleiðum súdanska
flugfélagsins innan Afríku svo og
til Evrópu. Alls munu um þijátíu
manns starfa við þetta verkefni á
vegum Atlanta þar af um helming-
ur íslendingar. Verkefnisstjóra við
þetta leiguflug Atlanta er Ásgeir
Christiansen flugstjóri, en hann
hefur lengi verið starfandi flug-
stjóri á TriStar-þotum bandarísks
flugfélags. TF-ABG hélt frá Kefla-
vík á mánudag til London en þaðan
fór hún strax í áætlunarflug til
Khartúm í Súdan.
Rucano x/frm
í miklu firvali á góðu verði á börn og fullorðna
Hi UTIUF" fijlT]
Glæsibæ - Sími 82922
9
'Jriitmfih
VORLINAN
VERSL.
BERGÞÓRA NÝBORG
STRANDGÖTU 15, HAFNARF1RÐI
MAI-SALAN NAÐIUM
8.000 STEIKUM
Mikil sala og einföld afgreiösla
tryggir ykkur gódar steikur á
lægsta verói.
NÝTT Á MATSEÐLINUM:
T-bone steikur m/bakaðri kartöflu,
kryddsmjöri og hrásalati
KR. 890,-
Grillud lambasteik m/bakaóri
kartöflu, kryddsmjöri og hrásalati.
KR. 690,-
BARNABOXIN
vinsælu með Ofurjarlinum
Hamborgari, franskar og kók
(auk þess sælgæti o. fl.)
KR. 480,-
uu/
Jarlinn
* /n í) k> r í h rn nt) /
Glaður íbragði
TRYGGVAGÖTU - SPRENGISANDI - KRINGLUNNI
;