Morgunblaðið - 01.06.1991, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 01.06.1991, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991 JAtbu iiL hjblaíkautc^j icm erótbómn blö'jru Scm beJzur cuf manni fia.UJÁ." Þegar þú ert búinn að af- greiða innbrotsþjófinn, komdu við í ísskápnum í bakaleiðinni Ég veit það er erfitt að hætta reykingunum. En þarftu að tyggja þesa garðslöngu í margar vik- ur? Þessir hringdu . . Athyglisverð hugmynd Matmaður hringdi: „Fyrir skömmu birtist athyglis- verð grein í Veivakanda þar sem þeirri hugmynd var kastað fram að selastofninn hér við land yrði nýttur til manneldis og þannig væri hægt að fá ódýrt úrvalskjöt, villibráð. Mér vitanlega er selkjöt hvergi fáanlegt hér á Fróni og hef ég aðeins smakkað það erlend- is, þ. e. í Noregi. Þetta er vissu- lega úrvalskjöt sé það rétt matre- itt. Hvet ég veitingamenn og kokka þessa lands til að taka þetta mál til athugunar. Einnig kjöt- kaupmenn, því nóg er af selnum." Góð þjónusta Kona hringdi: „Ég vil þakka fyrir góða þjón- ustu sem ég hef jafnan fengið í Hagkaupum í Kringlunni. Þrátt fyrir það að oftast sé mikið að gera er starfsfólkið alúðlegt og gefur sér tíma til að sinna við- skiptavinunum. Ég versla oft þarna og vil þakka fyrir þá góðu þjónustu sem ég hef fengið." Köttur Svartur höngi er í óskilum. Hann er ungur síamsblendingur og fannst á hraki fyrir um það bil viku við Seilugranda. Eigandi hafi samband sem fyrst í síma 76206. Kettlingur Sjö vikna svartur. kassavandur fresskettlingur fæst gefins. Upp- lýsingar í síma 52943. Kettlingar Tveir tíu vikna kassavandir kettlingar, fress og læða, fást gefins. Þau eru svört og hvít. Upplýsingar í síma 624802. Hjól Grænt Eurostar hjól fannst í garði við Sæviðarsundi og var því komið til lögreglunnar. Alltaf á tali Andrés Ólafsson hringdi: „Mikil aðsókn hefur verið að Söngvaseið hjá Þjóðieikhúsinu og hef ég verið að reyna að fá miða. Það er hins vegar mjög óþægilegt að ekki virðist mögulegt að ná sambandi í síma Þjóðieikhúsins því þar er alltaf á tali. Vil ég mælast til þess að Þjóðleikhúsið bæti þessa þjónustu því hún er afar þýingarmikil." Köttur Köttur tapaðist frá Ásgarði 6 í Garðabæ og er hann með háls- band með merkisspjaldi sem á er ritað nafn og símanúmer. Vinsam- iegast hringið í síma 52458 ef hann hefur einhvers staðar komið fram. Hjól Nýlegt DBS 18 gíra fjallahjól var tekið við Hagamel 21 hinn 13. maí. Hjólið er hvítt og fjólu- blátt. Vinsamlegast hringið í síma 625512 ef það hefur fundist. Peningaveski Grátt peningaveski tapaðist fyrir skömmu, líklega á horni Frakkastígs og Lindargötu. Finnandi er vinsamlegast beðinn að koma því til lögreglunnar. Kettlingar Þrír kettlingar fást gefins. Upp- lýsingar í síma 28192. Hjól Appelsínugult Muddy fox hjól var tekið 20. maí við Ljósaland 13. Finnandi er vinsamlegast beð- inn að hringja í síma 30788. Köttur í óskilum Hvítur og gulbröndóttur full- vaxinn högni með gráa ól en ómerktur að öðru leyti fannst fyr- ir nokkru á flækingi við Grettis- götu. Upplýsingar í síma 17823. Kettlingar Sex kettlingar, þrír tíu vikna og þrír sex vikna, fást gefins. Upplýsingar í síma 44245. FÓRNFÝSI Ég var ein af stórum hópi lasna fólksins sem dvaldi sér til hressing- ar á Náttúrulækningahælinu í Hveragerði síðustu vikurnar sem Björn heitinn Jónsson yfirlæknir starfaði þar. Hann var þá orðinn svo veikur að hann staulaðist á milli læknastofu og íbúðar sinnar, slík var fórnfýsi hans mannkærleik- ur. Hann fór þaðan beint í Lands- spítalann þar sem hann lést nokkr- um vikum síðar. Honum fylgdu margar hlýjar og þakklátar hugsan- ir fólksins yfir landamæri lífs og dauða. í ljósi þessara minninga óska ég Jakobi Úlfarssyni lækni gæfu og gengis í starfi. Vigdís Bjarnadóttir Kannski ekki með allri velvild Ég sá það í blaði um daginn að verið var að tíunda allar eignir sam- eignarfélagsins Grundar í Reykjavík og kannski ekki með allri velvild. En látum svo vera. En það var aftur á móti lítið sagt frá því starfí sem látið var í té til að hlúa þannig að öldruðu fólki og oft að því sem átti ekki í önnur hús að venda og þegar hugarfarið á bak við þessi skrif eru oftast ekki kristi- leg verður að virða margt til vor- kunnar. En stærstu eigninni gleymdu skriffinnarnir og þeirri sem erfitt er að meta, en það er hjartað sem á bak við slær og hugarorkan sem öllu þessu hefir komið til leiðar. Það er ekki hægt að taka mynd af slíkri stóreign en hún er skráð á mörg þakklát hjörtu. Árni Helgason, Stykkishólmi. HÖGNI HREKKVÍSI „ Vbrt'ekki /ME'p þess/ oNDANeieöGD, veippu &A&A AIÓSINA." Víkveiji skrifar Síðustu daga hefur staðið yfir samfelld uppskeruhátíð skól- anna í landinu; lokatónleikar, myndlistasýningar, danssýningar, leikrit, ýmiss konar sýningar og dagskrár. Víkveiji fylgdist með dagskrá um umhverfismál í Foss- vogsskóla og skoðaði sýningu nem- enda um sama efni. Gat hann ekki annað en dáðst að ótrúlegri elju og dugnaði nemenda og kennara. Á sýningunni mátti sjá og skilja, að ítarleg umfjöllun hefur verið í skól- anum um málefni umhverfisvernd- ar. Umgengni við landið skipar þar öndvegi, en einnig vakti athygli risastór hvalur, sem hékk í loftinu og var hann þannig útbúinn að hlusta mátti ,á hin einkennilegu hvalahljóð. Vakti skepnan mikla áthygli yngstu gestanna, sem mörg hver voru sannfærð um að þetta væri alvöru hvalur. Af textum mátti ráða að nemendur voru síður en svo sannfærðir um ágæti hvalveiða okkar Islendinga. Oneitanlega setja þær blett á annars hreina ímynd Islands í umhverfismálum, hvað sem öðru líður. Sýning nemendanna bar einnig vitni um mikinn frumleik og leikgleði, sem ánægjulegt var að verða vitni að. Kennurum skól- ans hefur greinilega tekist einstak- lega vel að virkja sköpunargáfu nemendanna og eiga hrós skilið fyrir það. xxx Víkverji fylgdist einnig með danssýningu eins af dansskól- um borgarinnar í Háskólabíói, þar sem gríðarlegur fjöldi nemenda sýndi afrakstur af erfiði vetrarins. Otrúlegur fjöldi unglinga er í alls kyns listnámi um alla borg samhliða grunnskóla- og framhaldsskóla- námi sínu. Slíkt nám er oft á tíðum mjög krefjandi og tekur nær allar tómstundir nemendanna. Mikill tími fer í ferðir milli skóla og það getur verið erfitt að fá hlutina til að ganga upp ef viðkomandi nemandi er svo óheppinn að búa í hverfi þar sem ekki er einsetinn skóli, eða þar sem strætóferðir eru strjálar. Víkveiji hefur látið sér detta í hug, að með auknu frelsi í rekstri grunnskóla, sem vænta má að ný ríkisstjórn beiti sér fyrir, verði starfræktir grunnskólar, sem sérhæfi sig í ein- hvers konar listnámi samhliða al- menna náminu. Þá gætu börn og unglingar valið sér grunnskóla með tilliti til þess hvort þau ætla einnig að stunda listnám. Það myndi skapa meiri festu í öllu námi þeirra, auk þess sem það skapaði forsendur fyrir faglegri samkeppni skólanna, sem ekki er vanþörf á. Sumum er illa við að heyra minnst á sam- keppni í þessu sambandi, en allt eins gætum við talað um metnað, ef menn skilja þannig betur hvað við er átt. Til þess að skólakerfið standist ítrustu kröfur verður að koma til meiri faglegur metnaður kennara, nemenda og stjórnenda. Slíkan metnað sjáum við helst í því skólastarfi, sem rekið er utan við almenna skólakerfið; í myndalista- skólum, dansskólum, tónlistaskól- um og öðrum sérskólum, en sem betur fer er honum einnig sums staðar fyrir að fara í almenna skóla- kerfinu, eins og í Fossvogsskóla, þar sem skólastjóri og kennarar eru óragir við nýjungar og tilraunir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.