Morgunblaðið - 01.06.1991, Side 56

Morgunblaðið - 01.06.1991, Side 56
XJöfðar til X Xfólks í öllum starfsgreinum! LAUGARDAGUR 1. JUNI 1991 VERÐ I LAUSASOLU 100 KR. Verðlagsráð: 5,5% hækkun á 92 oktana bensíni Á FUNDI verðlagsráðs í gær var samþykkt að hækka verð á 92 oktana bensíni um 3 krónur lítrann, eða um 5,5%, og tekur hækkunin gildi í dag. Lítrinn hækkar úr 54,40 krónum í 57,40. Búist er við álíka mikilli hækkun á verði 95 oktana og 98 oktana bensíns i dag. Að sögn Georgs Ólafssonar verð- lagsstjóra renna 1,85 kr. af hækk- uninni t.il ríkisins, en þar er um að ræða 95 aura hækkun á bensín- gjaldi, 60 aura virðisaukaskatt og Vextir hækka í dag: Islandsbanki hækkar mest VEXTIR skuldabréfaútlána hækka í dag, mest hjá Islands- banka, síðan hjá Landsbankan- um, þá sparisjóðunum og minnst hjá Búnaðarbankanum. Vextir á óverðtryggðum skuldabréfaút- lánum hækkuðu um 3,5% hjá ís- landsbanka, 3,25% hjá Lands- bankanum og 3% hjá Búnaðar- bankanum og sparisjóðunum. Vaxtahækkanirnar voru til- kynntar í gær og taka gildi í dag. Kjörvextir almennra skulda- bréfaútlána hækkuðu um- 3,2%, samkvæmt yfirliti Seðlabanka ís- lands, ogeru nú að meðaltali 17,1%, hæstir hjá Landsbankanum. Kjör- vextir vísitölubundinna útlána hækkuðu að meðaltali um 1,8% og eru nú 8,3%. Forvextir víxla hækk- uðu um 3%. Þeir eru nú að meðal- tali 18,3%, hæstir í Landsbanka og íslandsbanka 18,5%, í sparisjóðun- um 18,25 ogí Búnaðarbanka 18%. Innlánsvextir hækka minna en útlánsvextir og einnig nokkuð mis- munandi eftir lánsformum og bönk- um. Sjá fréttir og viðtöl á miðopnu. 30 aura vegna hækkunar á tollum. Ekki er um neina hækkun á álagn- ingu olíufélaganna að ræða. Bjarni Snæbjörn Jónsson, fram- kvæmdastjóri markaðssviðs Skelj- ungs hf., segir 1,15 krónur af hækkuninni, sem ekki renna beint til ríkisins, einkum skýrast af hækk- andi verði dollarans og margfeldis- áhrifum þess, nú sé dollarinn um 10% hærri gagnvart krónunni held- ur en hann var síðast þegar bensín- verð var ákveðið. Bensínverð á heimsmarkaði er um þessar mundir svipað og það birgðaverð, sem verð- lagning hér er miðuð við, en á þess- um árstíma má búast við einhveij- um hækkunum erlendis vegna vax- andi eftirspurnar. Olíufélögin ákveða sjálf verð á 98 oktana súperbensíni og 95 okt- ana blýlausu bensíni. Ekki hafði í gærkvöldi verið endanlega ákveðið verð á þeim tegundum, en búist við að það hækkaði álíka mikið og 92 oktana bensín og á sama tíma, það er þegar bensínstöðvar verða opn- aðar í dag. Alþingi í einni málstofu Alþingi íslendinga var sameinað í einni málstofu í gær eftir að hafa verið skipt í deildir í 116 ár. Löggjaf- arþing Islendinga hefur ekki áður starfað í einni málstofu. Salóme Þorkelsdóttir var kjörin forseti Alþingis, en hún var forseti sameinaðs þings fyrir breytinguna. Eftir að nefndir höfðu kosið sér formenn og varafor- menn, las Davíð Oddsson forsætisráðherra upp forsetabréf um að Alþingi væri frestað til loka september- mánaðar og var fundi slitið og þingmenn héldu heim. Þó er möguleiki að Alþingi verði kallað saman í sumar ef tilefni gefst til, til dæmis í tengslum við samninga um Evrópska efnahagssvæðið. Sjá frásögn af síðasta þingdegi á bls. 24. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra: Stórfellt tap á bönkunum vegna rangra ákvarðana Bankarnir reyna að fela ákvörðun um að auka vaxtamun aftur FRIÐRIK Sophusson fjármála- ráðherra segir að ákvörðun við- skiptabankanna um að auka vaxtamun nú við vaxtabreyting- ar í dag, þann 1. júní, hafi ekk- ert með þá vaxtabreytingu að gera sem orðið hefur upp á síðkastið, „heldur vegna þess að ég vissi að sumir bankanna höfðu verið reknir með stórfelldu tapi vegna rangra ákvarðana fyrr á þessu ári og ég þóttist sjá það, að þeir myndu reyna að fela ákvarðanir um að auka vaxta- mun á nýjan leik, þar til næsta tækifæri gæfist“, sagði fjármála- ráðherra í samtali við Morgun- blaðið í gær þegar leitað var álits hans á vaxtahækkunum við- skiptabankanna sem taka gildi i dag. „Það má vel vera að vaxtabreyt- ingin hjá bönkunum nú sé eðlileg, en það að taka nú ákvörðun um að breikka bilið á milli innláns- og útlánsvaxta, til þess að ná inn meiri rekstrartekjum fyrir bankana, hef- ur ekkert með þá vaxtabreytingu að gera sem orðið hefur upp á síðkastið,“ sagði Friðrik. Fjármála- ráðherra sagði að aukning á vaxta- mun nú, hjá viðskiptabönkunum væri af eldri toga spunnin, sem • • Ollum starfsmönnum Alafoss hf. sagt upp störfum í gær ÖLLU starfsfólki Álafoss hf. var sagt upp störfum í gær, samtals um 360 manns, en ástæður uppsagnanna eru þær að framtíð fyrir- tækisins er ekki nægjanlega tryggð. Vonast er til að hægt verði að endurráða starfsfólk aftur í þessum mánuði, en sú von byggist á því að unnt verði að afskrifa skuldir fyrirtækisins. Rætt hefur verið við aðila sem hagsmuna eiga að gæta, bændur, starfsfólk og sveitarfélög, en fyrirtækið rekur starfsemi sína í þremur sveitarfé- lögum, á Ákureyri, í Mosfellsbæ og í Hveragerði. Einkum hefur verið rætt við forráðamenn Akureyrarbæjar, sem tekið hafa já- kvætt í að koma til móts við fyrirtækið verði skuldir þess afskrifað- ar. Ólafur Ólafsson forstjóri Álafoss sagði að menn teldu sig hafa náð miklum árangri í rekstri fyrirtækis- ins, tap þess hefði verið lækkað verulega á milli ára, eða úr 610 milljónum króna fyrir afskriftir árið 1989 í 140 milljónir á síðasta ári. „Þetta.þykir okkur umtalsvert, en allt kemur fyrir ekki því skulda- staða fyrirtækisins er alvarleg, eig- ið fé er neikvætt um 600 milljónir króna. En við höfum fengið góðan vilja allra aðila um að skoða mál- efni fyrirtækisins," sagði Ólafur. Hann sagði að málið hefði verið kynnt hagsmunaaðilum, bændum, sveitarfélögum og starfsmönnum. Rætt hefur verið við forsvars- menn Akureyrarbæjar og sagði Ólafur viðbrögð þeirra jákvæð varðandi það að koma til móts við félagið eftir að búið væri að gera það aðgengilegra, þ.e. að afskrifa skuldir. Hvað afskriftir skulda varðaði sagði Ólafur að sá mögu- leiki væri ekki útilokaður. Rekstur fyrirtækisins gengur betur en oft áður nú og verkefna- staða þess er mjög góð. Kristín Hjálmarsdóttir formaður Iðju, félags verksmiðjufóks á Akur- eyri sagði að gærdagurinn hefið verið svartur, því auk þeirra starfs- manna sem sagt var upp störfum hjá Álafossi hf. var starfsmönnum fóðui'verksmiðjunnar ístess einnig sagt upp störfum í gær, en hluti þeirra eru félagsmenn í Iðju. „Eg efast um að jafnmörgum hafi verið sagt upp störfum á öllu landinu í einu fyrirtæki," sagði Kristín. Fram kom í uppsagnarbréfi til starfsfólks Álafoss að vonast væri til að unnt yrði að endurráða það í næsta mánuði. Kristín sagði að afleiðingar upp- sagnanna hefðu áhrif víða, því litl- ar saumastofur víða um land hefðu haft verkefni hjá Álafossi. „Þetta teygir anga sína víða,“ sagði Kristín. „Auðvitað koma svona uppsagnir alltaf sem reiðarslag, þó við höfum lengið búið við ákveðinn ótta um að svona gæti farið, en þetta verður alltaf högg. Einkum þegar á sama tíma er verið að segja upp starfsfólki hjá ístess, en þar starfar okkar fólk líka. Þetta hrun í iðnaðinum virðist engan enda ætla að taka og ef allt fer á versta veg sitjum við kannski uppi með félag án félagsmanna.“ bankarnir yrðu að útskýra nánar. Þegar Friðrik Sophusson kynnti ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í vaxtamálum, vaxtahækkanir á spariskfrteinum ríkissjóðs og vaxta- hækkanir í húsnæðiskerfmu, varaði hann sérstaklega við þeirri hættu sem væri á því að viðskiptabankarn- ir myndu í kjölfar þeirra ráðstafana nota tækifærið og auka vaxtamun. Blaðamaður Morgunblaðsins spurði ijármálaráðherra hvort ekki væri nú komið á daginn að ótti hans hefði átt við rök að styðjast: „Ég varaði við því, vegna þess að ég vissi að sumir bankanna höfðu ver- ið reknir með stórfelldu tapi vegna rangra ákvarðana fyrr á þessu ári og ég þóttist sjá það, að þeir myndu reyna að fela ákvarðanir um að auka vaxtamun á nýjan leik, þar til næsta tækifæri gæfist. Þess vegna tel ég að það sé skylda bank- anna að skýra út hver sé munurinn á vaxtabreytingu sem er afleiðing af almennri vaxtabreytingu annars vegar og hins vegar á þeim vaxta- mun sem þeir eru nú að sækja sér til viðbótar við þann mun sem þeir höfðu áður,“ sagði Friðrik Sophus- son fjármálaráðherra. Mjólkurvör- ur hækka SEXMANNANEFND hefur ákveðið 3,14% hækkun á grund- vallarverði mjólkur til bænda. Niðurgreiðslur verða auknar á móti og hækkar því verð á mjólkur- vörum um 1,5-2,5% í dag. Beiðni vinnslustöðvanna um hækkun var felld í fimmmannanefnd og réð atkvæði oddamanns úrslitum. I gær hafði ekki verið reiknað út verð á einstökum mjólkurvörum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.