Morgunblaðið - 13.08.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.08.1991, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. AGUST 1991 Fráleitt að léleg hönnun valdi mestu um aftanákeyrslur - segir yfirverkfræðingnr umferðardeildar Reykjavíkurborgar ÞORARINN Hjalta.son, yfirverkfræðingur umferðardeildar borgar- verkfræðings, segir það fráleitt sem haft var eftir Gunnari Þór Jóns- syni, prófessor i slysalækningum, í Morgunblaðinu á laugardag að íbúar Reykjavíkur eigi það frekar á hættu en aðrir á höfuðborgarsvæð- inu að lenda í umferðarslysum og að lélegri hönnun umferðarmann- virkja sé helst um að kenna mikinn fjölda aftanákeyrslna í borginni. Þórarinn sagði að kannanir sýndu að um 80% af allri umferð á höfuð- borgarsvæðinu færi um götur Reykjavíkur og því væri eðlilegt að 80% slysa á svæðinu, sem kæmu inn á slysadeild, yrðu í borginni, eins og hann segir að fram hafí komið í erindi Gunnars. Samanburður sá sem eftir Gunnari hafi verið hafður í Morgunblaðinu taki ekkert tillit til þess að íbúar, til dæmis Seltjarnar- ness og víðast á höfuðborgarsvæð- inu, aki meira í Reykjavík heldur en í sínum heimabæ enda sæki flestir þangað ýmsa þjónustu og jafnvel vinnu. „Hin einfalda skýring er að það er mikiu minna ekið á Seltjarn- amesi á hvern íbúa en í borginni," sagði Þórarinn. Þórarinn Hjaltason kvaðst ekki neita því að sums staðar í gatna- kerfi borgarinnar væri pottur brot- inn og á stöðum þar sem mikið væri um aftanákeyrslur, eins og til dæmis á aðreinum Miklubrautar við Ártúnsbrekku og af Bústaðavegi inn á Kringlumýrarbraut, mætti finna að því að aðreinar væru of stuttar og umferð inn á þessar götur hefði ekki sérstakar akreinar fyrir sig. Stöðugt væri unnið að úrbótum á þessu eftir því sem íjárráð leyfðu og á Kringlumýrarbraut væri verið að leggja lokahönd á úrbætur. Úr- bætur í Ártúnsbrekku ættu sam- kvæmt vegaáætlun að hefjast 1994 en þar er um að ræða þjóðveg í þéttbýli og þarf 400 milljónir króna til að gera nýja akbraut. Einnig nefndi Þórarinn að á Eiðisgranda og Bústaðavegi væri nú verið að gera sérstakar akreinar fyrir vinstri beygju við gatnamót en skortur á slíku hefði verið talinn bjóða heim hættu á aftanákeyrslum. Þórarinn Hjaltason sagði að und- anfarin ár hefðu borgaryfirvöld lagt mikla áherslu á að koma upp um- ferðarljósum á gatnamótum en það væri talið fækka umferðarslysum um 30-50%. Hins vegar fylgdu því fleiri aftanákeyrslur og það væri hluti skýringarinnar en önnur væri sú að á síðustu fimm árum hefði umferð í borginni aukist um 30%, á sama tíma hefði óvenjumikil nýliðun orðið í hópi ökumanna. • Þá minnti Þorarinn á umræður sem orðið hefðu um að aukning á hálsáverkum eftir aftanákeyrslur væri ef til vill sýndar- aukning þar sem fólk væri farið að læra á kerfið og vissi að auðvelt væri að fá bætur út á þessa áverka. Morgunblaðið/Haraldur Þórðar Guðmundsson Endastakkst út af brautinni Það var fátt heillegt eftir í þessum bíl, sem endastakkst út af kvartm- ílubrautinni í Kappelluhrauni á sunnudag. Bíllinn fór margar veltur, en ökumaðurinn, Valur Vífilsson, kenndi sér einskis meins, enda vel varinn af ýmsum öryggisbúnaði. Valur sést hér á hvítum samfesting standa brúnaþungur yfir leifum bílsins. Sprengingin í Grafarvogi: Ekki rétt staðið að VEÐURHORFUR I DAG, 13. AGUST YFIRLIT: Yfir Grænlandshafi er 988 mb lægð, sem þokast norðaust- ur. Hiti breytist fremur lítið. SPÁ Vestlæg átt, gola eða kaldi víðar um sunnan- og vestanvert landið er þurrt að mestu norðaustanlands. Hiti verður á bilinu 8-14 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðvestlæg átt sunnanlands og vestan með skúrum, en norðanátt og rigning eða súld á Norðurlandi. Frem- ur svalt í veðri. HORFUR Á FIMMTUDAG:Suðvestanátt. Skúrir víða um land, eink- um á Suður- og Vesturlandi. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. IV: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Cels stefnu og fjaðrirnar ý Skúrir Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. * V E1 Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka / / / = Þokumóða Hálfskýjað * / * ’ , ’ Súld / * r * Slydda OO Mistur Skýjað / * / * * * —|- Skafrenningur Alskýjað * * * * Snjókoma * * * [7 Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 13 léttskýjað Reykjavík 12 rigning Bergen 14 skýjað Helsinki 15 skýjað Kaupmannahöfn 19 hátfskýjað Narssarssuaq 7 rigning Nuuk 4 þokumóða Osló 19 skýjað Stokkhólmur 16 skýjað Þórshöfn 14 skýjað Algarve vantar Amsterdam 19 skýjað Barcelona 27 lóttskýjað Beriin 22 skýjað Chicago 16 léttskýjaó Feneyjar vantar Frankfurt 23 skýjað Glasgow 16 skúrásið.klst. Hamborg 19 skýjað London 20 háltskýjað LosAngeles 20 skýjað Lúxemborg 20 akýjað Msdrití 30 heiðskírt Malaga 26 heiðskfrt Mallorca 26 skýjað Montreal 18 lóttskýjað NewYork 22 iéttskýjað Orlando 26 léttskýjað Þaris 20 alskýjað Madeira vantar Róm vantar V/n v 29 léttskýjað Washington 23 alskýjað Winnipeg 16 léttskýjað undirbúmngnum -segir forstjóri Vinnueftirlits ríkisins EYJÓLFUR Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins, segir rann- sókn hafa leitt í ljós að ekki hafi verið staðið rétt að sprengingunni í húsgrunni í Húsahverfi í Grafarvogi, á fimmtudagskvöld, þegar gijóti rigndi yfir hús og garða sem eru við grunninn. Framhald framkvæmda var heimilað í gær en Eyjólfur segir að reynt verði að komast hjá frekari sprengingum. Ef þær verði leyfðar verði ekki notaður kjarni við sprengingarnar. „Við vitum megin staðreyndimar í málinu og sjáum skýringar á því sem þama gerðist," sagði Eyjólfur. Hann sagði að orsaka væri ekki eingöngu að leita í að ekki hafi verið nægilega birgt yfír holuna, þar sem sprengiefninu var komið fýrir, heldur komi margt annað til, s.s. útsetning á borholum, val á hvellhettum, val á tímaseinkun hvellhettna og lagskipting berglaga o.fl. Brynjar Bijánsson, framkvæmd- astjóri verktakafyrirtækisins, Hag- virki - Klettur sem stóð að spreng- ingunum í húsgrunninum, segist ekki hafa fengið endanlegar skýr- ingar. Þó sé ljóst, að sprengiefnið hafí ekki allt spmngið. „Það gæti bent til þess að fyrirstaða hafí ekki losnað og sprengjan hafi ekki losað allt sem hún átti að gera, sem gerði það að verkum að öftustu holumar hafí spmngið upp í loft í stað þess að springa fram. Þetta er þó enn hrein tilgáta. Þetta bendir þó til að ekki hafí verið nægilega vel gengið frá þessu,“ sagði hann. Eyjólfur sagði að notkun kjama gerði sprengingar af þessu tagi vandasamari og ónákvæmari og nú væri til skoðunar hvort notkun hans nálægt byggð yrði heimiluð í fram- tíðinni. Um framhald málsins sagði Ey- jólfur: „Við munum skoða niður- stöður rannsóknarinnar vandlega og ákveða svo í framhaldi af því hvað rétt sé að gera í þessu máli.“ Að sögn Brynjars er verkið nú á lokastigi og stefnt að því að ljúka sprengingum í dag undir umsjón nýs sprengjustjóra og með eftirliti starfsmanna Vinnueftirlitsins. --------------------- Rafmagnslaust í Fossvogi á sunnudagsnótt HÁSPENNULÍNA bilaði í fyrri- nótt við Bústaðaveg með þeim afleiðingum að rafmagn fór af Fossvogshverfi í tæpa klukku- stund. Bilunin fannst fljótt og var gert við línuna í gær. Að sögn Kristjáns Jónssonar, verkstjóra hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, getur liðið nokkur tími á milli bilana af þessu tagi. Algeng- ustu rafmagnstmflanir í borginni stafí af skemmdum á rafstrengjum vegna jarðvinnu. Skýringanna sé þá að leita í því, að verktakar fari ekki eftir teikningum Rafmagnsvei- tunnar eða sýni ekki nógu mikla gætni þegar grafíð er hjá strengjun- um. Fjögnr þúsund manns í miðbænum: Almenn ölvun og mik- iU skortur á leigubflum LÖGREGLAN telur að hátt í fjögur þúsund manns hafi safnast saman í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt síðastliðins sunnudags. Átta manns gistu fangageymslur lögreglunnar og brotnar voru rúður í söluturni og á miðbæjarstöð lögreglunnar. Fáir vom í miðbænum framan af kvöldi. Þegar tónleikum, sem vom við Fellaskóla í Breiðholti, lauk upp úr miðnætti fýlltist mið- bærinn af fólki, að sögn lögreglu. Almenn ölvun var í miðbænum og að sögn lögreglu virtist sem annar hver maður væri með flösku í hendi. Mikill skortur var á leigu- bílum en veður var gott. Tíu manns vom handteknir vegna slagsmála og fyrir að hindra lögreglu í starfí og vora átta þeirra látnir dúsa í fangaklefum um nóttina. Rúður vora brotnar í sölutumi í Pósthús- stræti og á miðbæjarstöð lögregl- unnar en ekki hefur náðst í söku- dólgana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.