Morgunblaðið - 13.08.1991, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.08.1991, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1991 39 Minninff: Hendrik Rasmus Fæddur 6. maí 1911 Dáinn 4. ágúst 1991 Mágur minn og góður vinur er látinn. Henni eins og flestir nefndu hann var sonur hjónanna Ólafíu Þuríðar Bjamadóttur Þórðarsonar frá Reykhólum og konu hans Þóreyjar Pálsdóttur sama stað og Sigurðar Þorsteinssonar Jónssonar og konu hans Önnu Guðmundsdóttur bæði ættuð úr Borgarfirði eystra en bjuggu lengst á Þrándarstöðum í Eiðaþinghá. Sigurður var að mestu alinn upp hjá frænda sínum séra Sigurði Gunnarssyni sem síðast þjónaði í Stykkishólmi, en þeir vom þre- menningar. Foreldrar Henna, sem fullu nafni hét Sigurður Gunnar Hendrik slitu samvistir. Móðursystir hans Mar- grét Theodóra og maður hennar Johan Chr. G. Rasmus vefari og framkvæmdastjóri frá Neumunster í Þýskalandi, ættleiddu hann ásamt 2 stúlkum, Hjördísi f. 22. jan. 1916 og Edith Sophie f. 8. des. 1916 sem er látin. Margrét var fædd 27.03. 1877 d. 19.12. 1958 en Johan fæddur 26.12 1881 d. 22.11 1934. Margrét var málleysingjakennari lærði til þess í Danmörku og Þýska- landi. Kennari málleysingjaskólans Stóra Hrauni 1899-1908. Skóla- stjóri sama skóla eftir flutning til Rvík. frá 1908 til 1944. Bemsku og æskuheimili Henna var mikið menningarheimili þar sem jafnframt var hugsað mikið um þá sem minni máttar vora og áttu erf- itt uppdráttar í lífinu. Henni var við verkfræðinám í Þýskalandi árin 1931-1935, hann hætti námi eftir 2 ár án þess að ljúka prófi en sneri sér þess í stað að hljómlistinni, en sem bam nam hann á píanó og lék fyrst opinber- lega 13 ára gamall. í Þýskalandi kynntist hánn djass- tónlistinni og var ákaflega hrifinn af henni. í Þýskalandi lék hann með ýmsum hljómsveitum þar til að hann kom heim árið 1935. Árið eftir stofnar hann hljómsveitina Blue Boys, sem lék í KR húsinu. 1941-42 starfaði hann í Hafn- arfirði, stofnaði þar kabarett en fór jafnframt út í húsamálun ásamt öðram hljómlistarmanni Jónatani Ólafssyni. í síldinni á Siglufírði fyrir 1940 lék hann í 2 sumur, en hélt sig annars að mestu við Suðurlandið. Við balettskóla Sigríðar Ármann annaðist hann undirleik til margra ára bæði í skólanum og á danssýn- ingum. Hann samdi lög og útsetti og var fljótur að hvoru tveggja sagði vinur hans Jónatan Ólafsson. Frá 1953 í ein 15 ár starfaði Henni við skrifstofustörf á Kefla- víkurflugvelli og lék jafnframt á samkomum þar. Þegar hér var kom- ið var heilsan orðin heldur léleg og uppgötvaðist að hann var kominn með parkinsonsveikina. Eftir það var hann ekki í föstu starfí. Henni var gleðimaður mikill, heimsborgarabragur á honum, vel gefinn, skemmtilegur og snyrti- menni hið mesta. Ósvikinn framsóknarmaður og fylgdist vel með bæði þjóðmálum og heimsmálum. Það skiptust á skin og skúrir í lífi Henna, hann var ákaflega gest- risinn maður og rausnarlegur og sást þá ekki alltaf fyrir í gerðum sínum, hestamaður góður á yngri áram. Fljótur að taka ákvarðanir og framkvæma þær hveijar sem afleiðingarnar urðu. Árið 1949 vann Henni við húsa- málun á Reykhólum, þar kynntist hann systur minni Sigurlaugu Hrefnu Þórarinsdóttir. Þau gengu í hjónaband 12. sept. 1950. Bjuggu fyrst í Reykjavík, síðan á suðurnesjum til ársins 1959 að þau flytja að Hlíðarveg 62A, Kópa- vogi og þar hefur heimili þeirra staðið síðan. Börn þein-a eru þijú, Húgó f. 26.12. ’52 maki María Játvarðar- dóttir, Tómas f. 4.9. ’54 maki Hlíf Erlingsdóttir, Steinunn Ólafía f. 13.7. ’56 maki Jón Árni Sigurðs- son. Frá hjónabandi með Ástríði Önnu Guðmundsdóttir eignaðist hann dótturina Margréti f. 1.4. ’36, hún er lögfræðingur en hin börnin kennarar. Barnabörnin eru 10 og eitt barnabarnabarn. Góð vinátta var með okkur Henna. Á afmælinu mínu bárust mér alltaf blóm og vín ásamt upphring- ingu eða heimsókn. Þetta mátti aldrei bregðast af hans hálfu. 19. júlí lagði ég af stað í sumar- leyfl, kvöldið áður skrapp ég til að kveðja systir mína og mág, því mér sagðist svo hugur um að hann yrði ekki að fmna er ég kæmi aftur, svo varð líka raunin á. Hann var þó all hress og stutt í glettnina og gömlu reisnina sem alltaf prýddi hann. Ég kveð mág minn með ljóðmæl- um eftir Tómas Guðmundsson. Og þögnin, þögnin hvíslar hálfum orðum. Hugurinn minnist söngs sem löngu er dáinn. Ó, sál mín, sál mín! svona komu forðum sumrin öll, sem horfin eru í bláinn. Við Máni vottum systur minni, börnum Henna og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Guð blessi minningu Henna Ras- mus. Kristín Ingibjörg INDONESISKUR MÁNUÐUR í indónesískri matargerð gætir áhrifa frá Kína, Indlandi, Portúgal og Englandi vegna áhrifa og stjórnunnar þessara þjóða á Indónesíu í gegn um aldirnar. Matargerðin er mjög einföld, en notaðar eru kryddtegundir sem eru okkur framandi. Chilli er notað í flest allan mat, og varla til uppskrift þar sem ekki er notað chilli, karrýréttir þeirra eru einnig mjög þektir. Indónesískur matur er í flestum tilfellum bragðsterkur og þess vegna er borið fram með honum mikið af hrísgijónum. Við höfum nú fengið til okkar gestakokk, sem hefur 30 ára reynslu í indónesískri matargerð. Til að kynna íslendingum þessa frábæru matargerð bjóðum við nú upp á indónesískan mánuð í ASIU. MATSEÐILL: 1 SOTO AYAM Kjúklingasúpa Chicken soup 2 SOTO TOM YAM Súr og sterk súpa Hot & sour soup 3 MIE GORENG Steiktar núðlur m/kjúkling og rækjum Fried noodles w/chicken & prawns 4 MIE KUEY TEOW Steiktar núðlur m/rækjum og nautakjöti - Friedindonesiannoodlesw/prawns&beef 5 NASI GORENG Steikt hrísgrjón m/kjúkling og rækjum Fried rice w/chicken & prawns 6 SOTONG SAMBALSmokkfiskur í sambal Stir fried squids w/sambal 7 IKAN BALI Pönnusteiktur fiskur í chilli Pan fried fish w/chilli and vegetables 8 SAYUR LODEH Svínakjöt m/grænmeti Pork w/vegetables TILBOÐ MANAÐARINS: 1 SATE BABI Svínakjöt ápinna - Pork sate 2 IKAN MANISSúrsæturfiskur - Sweet & sour fish 3 AYAM GORENGKjúklinguríostrusósu (sterkt) Chickenw/oystersouse (hot) 4 DAGING KAMBING Lambakarrý Stirfriedlamb w/curry ' 5 RENDANG DAGING Nautakjöt í grænmeti Stir fried beef w/vegetables KAFFI eða TE Coffee orTea Allt á aðeins kr. 1.490,- Everything only 1.490,- kr. pr.p. Laugavegi 10 - Sími: 626210 FRÍ HEIMSENDINGAÞJÓNUSTA ef pantað er fyrir tvo eða fleiri eftir kl. 18.00 alla daga. BLOM SEGJA ALLT Mikið úrval blómaskreytinga fyrir öll tækifæri. ^HÚS Opið alla daga frá kl. 9-22. Sfmi689070. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.