Morgunblaðið - 13.08.1991, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 13.08.1991, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST.-1991 ; 7 Ellefu tillögur í samkeppni um myndverk í Ráðhúsinu ELLEFIJ tillögur hafa verið valdar til þátttöku í samkeppni um myndverk á vegg og klæðis- tjöld sem skreyta eiga ráðhús Reykjavíkur. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Verkefnisstjórn Ráðhúss Reykja- víkur voru sex tillögur valdar til að taka þátt í samkeppni um mynd- verk á eða fyrir framan vegg í borg- arstjórnarsal. Höfundar þeirra eru Daníel Þorkell Magnússon, Kristinn E. Hrafnsson, Kristján Guðmunds- son, Níe'ls Hafstein, Sigurður Örl- ygsson og Þorvaldur Þorsteinsson. Fimm tillögur voru valdar til að taka þátt í samkeppni um klæðis- tjöld úr verksmiðjuofnum ullardúk til að setja upp milli Tjarnarsalar og almennra gönguleiða við hátíð- leg tækifæri. Þær áttu: Erla Þór- arinsdóttir og Guðrún Erla Geirs- dóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Ingi- björg Styrgerður Haraldsdóttir, Kristján Guðmundsson og Sigur- laug Jóhannesdóttir. Þessar tillögur voru valdar úr hópi 69 umsókna af dómnefnd skip- aðri af fulltrúum frá Reykjavíkur- borg og Sambandi íslenskra mynd- listarmanna. í fréttatilkynningu frá Reykja- víkurborg segir: „Keppnislýsing samkeppninnar er byggð á sam- keppnisregium SÍM, Sambands ís- lenskra myndlistarmanna. Þátttak- andi sem skilar tillögu er fullnægir kröfum í keppnislýsingu fær greidd- Hótel Bjarkalundur er starfrækt- ur í sumar eins og endranær og Steingerður Hilmarsdóttir hótel- stjóri segir að starfsemin hafi farið hægt af stað en síðastliðinn hálfan mánuð hafi verið mikil umferð og mikið um að fólk hafi tjaldað á tjald- stæði hótelsins í góða veðrinu. Reykhólahreppur Mikið hefur verið unnið hjá Reyk- hóiahreppi í sumar. Umhverfi sund- laugarinnar hefur verið bætt og komið upp tjaldstæði með aðstöðu ar kr. 300.000. Að auki verða veitt verðlaun að upphæð kr. 300.000 fyrir tillögu að verki í A og tillögu í B hluta samkeppninnar." fyrir ferðamenn að komast að snyrtingu í sundlaugarhúsinu. Verið er að ljúka við að gera leik- völl fyrir krakka og er hann vel girtur og til prýði. í sumar hefur verið starfrækt unglingavinna í Reykhóla'nreppi og er það í fyrsta sinn sem farið er af stað með þá vinnu. Bjarni P. Magnússon sveitarstjóri segir að í næstu viku fari ungling- arnir út í Flatey og verði þá byrjað á tiltekt þar. - Sveinn Hvíldarhótel rekið í skóia á Reykhólum Reykhólasveit. SIGRIJN Olsen rekur hvíldarhótel í skólanum á Reykhólum, ásamt manni sinum Þóri Barðdal. Þessi starfsemi gengur mjög vel og er aðstandendum til sóma. Hér kemur fólk til að hvílast og endurnýja starfsorku sína. Jafnan er fullbókað og fólk fer heim til sín endurnýj- að. Skrifstofutækninám Menntun sem mark er tekið á Námið opnar þér leiðir til skemmtilegra starfa og nýrra möguleika í þínu lífi. Hjá okkur færðu betra verð og góðj greiðslukjör. Hver nemandi hefur i tölvu útaf fyrir sig og þaulvanir kennarar tryggja hámarks árangur ■ Tölvuskóli íslands j sími: 67 14 66, opið til kl 22Í — 'ður, léttur í taumi, ► gur, reistur og... Ariö 1988 var Peugeot 405 valinn bíll ársins í Evrópu, og nú þremur árum síðar, og eftir markvissa þróun, getum við boðið jafnvel enn betri bíl. í Peugeot 405 eru sameinaðir helstu kostir vandaös fjölskyldubíls; mýkt og þýöleiki, snerpa og lipurð, auk þess sem bíllinn er af mörgum kröfuhörðustu bílagagnrýnendum heims talinn á undan sinni samtíð hvað hönnun varðar - ekki síst vegna sérstakrar styrkingar farþegarýmis til öryggis fyrir farþega. Peugeot 405 býðst í þremur útgáfum og verðflokkum; GL 1.6 5 gíra með 1580 cc vél, GR 1.9 5 gíra með 1905 cc vél og GR 1.9 sjálfskiptur með 1905 cc vél, auk þess sem hægt er að fá bílinn með fjórhjóladrifi. • SPARNEYTINN • LÉTTUR í STÝRI FJÖÐRUN í SÉRFLOKKI • GLÆSILEG HÖNNUN Verö frá kr. 1.146.000,- JÖFUR hf NÝBÝLAVEGI 2 SÍMI 42600

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.