Morgunblaðið - 13.08.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 13.08.1991, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1991 HAPPDRÆTTI á Vann þijár milljónir hjá DAS Hinn 6. ágúst var dregið í 4. flokki Happdrættis dvalar- heimilis aldraðra sjómanna. Aðal- vinningurinn var þrjár milljónir króna til íbúðakaupa og féll hann í hlut Björgvins Magnússonar sem býr að Tunguvegi í Reykjavík. Björgvin hefur tekið þátt í happ- drætti DAS frá því að það hóf göngu sína en vinningurinn kemur sér sérstaklega vel fyrir hann nú, vegna jþess að hann og eiginkona hans, Asa Pálsdóttir, urðu atvinnu- laus nú í sumar er fyrirtækið sem þau unnu hjá var flutt út á land. Morgunblaðið/Sverrir Myndin er tekin þegar Björgvin Magnússon, til vinstri, og Ása Páls- dóttir eiginkona hans taka við vinningnum úr hendi Sigurðar Ág- ústs Sigurðssonar forstjóra DAS. 13.8. 1991 VAKORT Eftirlýst kort nr.: 4507 4500 0017 8092 4507 4300 0012 4759 4543 3700 0003 6486 4543 3700 0005 1246 Öll kort gefin út af B.C.C.I. og byrja á 4507 10 4548 10 4541 80 4560 07 4541 81 4560 62 4966 07 kort úr umferð og sendlö VISA Islandí sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- visa | rJLT‘ Höfðabakka 9 • 112 Reykjavik Slmi 91-671700 IVAKORTALISTI Dags. 13.8.1991. NR. 45 5414 8300 0362 1116 5414 8300 2013 1107 5414 8300 2675 9125 5414 8300 2717 4118 5421 72" | Ofangreind kort eru vákort, sem taka ber úr umferð. VERÐLAUN kr. 5000.- fyrir þann, sem nær korti og sendir sundurklippt til Eurocards. KREDITKORT HF. Ármúla28, 103 Reykjavík, sími 685499 IPÍB MATSEDILL Opin grísasamloha m/osti ....kr, 595, Hawaiborgari...........kr. 690, Glóöarsteikt lambaþversteik m/kryddsmjöri..........kr. 795, Djúpsteiktýsam/remolaói ....kr, 795 Súpa fylgir öllum réttum iff n rVrl,J ;1,J T Tf ! M 1 Tirí k | • j Hi 11 fiift ti É • j | f i s • li ■ fclk f fréttum GARÐAR Petra í steinagarðinum Steinasafn Petru Sveinsdóttur á Stöðvarfirði er fyrir löngu orðið þekkt um landið og alltaf íjölgar þeim ferðamönnum bæði innlendum og erlendum sem leggja leið sína í steinagarðinn hjá Petru. Hún sagði að gestir hefðu aldrei verið jafn margir og í sumar og þeir skiptu stundum hundruðum sem kæmu til Stöðvaríjarðar suma dagana til þess eins að skoða steinasafnið. -BB Morgunblaðið/Björn Blöndal Petra Sveinsdóttir í steinagarðinum sem hún stöðugt bætir og lagfærir enda er hann augnayndi orðinn. P ATREKSFJ ÖRÐUR Slapp með skrekkinn Hann er einn margra erlendra verkamanna fyrir vestan og vinnur hjá Þórslaxi hf. í Tálkna- firði. Hann er náttúruunnandi og það hafði næstum því orðið honum að aldurtila. „Einhver mesta án- ægja mín er að ganga á fjöll og um dali Vestfjarða því hér er svo fallegt og náttúran óspillt eins og heima,“ segir Nýsjálendingurinn heitir Mark Fowler, 27 ára gam- all, og hefur verið hér í níu mán- uði. Nýlega var hann á ferð með vinum sínu, Nýsjálendingi og Englendingi. Þeir höfðu gengið upp Hólsdalinn, eina fjóra kíló- metra'í leit að upptökum árinnar sem um hann rennur. Hann klifr- aði niður í gilið nærri upptökunum og þar sem hann sat á steini og mundaði myndavélina sína, þá heyrði hann hróp og skruðninga og leit upp. Stærðar steinn hafði losnað undan fótum vinar hans og stefndi beint á hann. Hann reyndi að forða sér en steinninn lenti á vinstri hendi hans og fæti. Fyrir Guðs mildi slapp hann með mikið marinn fót og 21 saumspor í hendinni. Þetta leit illa út, enda lenti steinninn nákvæmlega þar sem hann sat. Slysið varð kl. 19.30 og fræknir ungir Tálknfirð- ingar voru komnir með Mark til byggða kl. 23.00. Þeir voru 12 saman undir forystu björgunar- sveitarmanna úr sveitinni Tálkna, sem báru hinn slasaða þessa tor- færu leið á börum. Þeir unnu fá- bært verk, nánast afrek, og vill Mark færa þeim kærar þakkir syo og lækninum á Patreksfirði. „Ég var einstaklega.-heppinn," segir Mark. „Vonandi verð ég fljótt skoðunarferðum mínum um vestf- heill aftur og get leikið rugby við irsku fjöllin, sem heilla mig.“ Tálknfirðinga og haldið áfram - Hilmar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.