Morgunblaðið - 13.08.1991, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. AGUST 1991
Kísiliðjan í Mývatnssveit:
Utisamkoma í tilefni
af 25 ára afmælinu
Björk, Mývatnssveit.
KISILIÐJAN í Mývatnssveit bauð starfsmönnum og gestum til veg-
legrar útisamkomu síðastliðinn föstudag í tilefni þess að liðin eru
25 ár síðan fyrirtækið hóf starfsemi hér í sveitinni. Alls mættu 150
manns.
Samkoman var haldin í ijóðri
•norðan í Hlíðarkambi og hófst hún
kl. 14. Ekki spillti veðrið, logn, sól-
skin og hitinn um 15 stig.
Róbert Agnarsson framkvæmda-
stjóri Kísiliðjunnar setti mannfagn-
aðinn og bauð viðstadda velkomna.
Hann minntist sérstaklega Magnús-
ar Jónssonar og Vésteins Guð-
mundssonar. Starf þeirra var á
sínum tíma ómetanlegt við upp-
byggingu fyrirtækisins. Síðan var
brugðið á margs konar leiki af létt-
ara taginu, ekki síst fyrir unga fólk-
ið sem var fjölmargt. Að því búnu
hófst glæsileg grillveisla, ein sú
mesta sem sést hefur hér um slóðir
og ekki skorti veisluföngin. Um
kvöldið var setið við varðeld í logn-
inu og kyrrðinni við söng og hljóml-
ist.
Hér með vilja allir, sem voru við-
staddir þennan 25 ára afmælisfagn-
að, færa Kísiliðjunni kærar þakkir
fyrir ánægjulega stund og óska
henni allra heilla í framtíðinni.
Kristján
Hríseyingar minnast 60
ára afmælis hreppsins
SEXTÍU ára afmæli Hríseyjar-
hrepps verður fagnað með sam-
felldri 12 tíma langri dagskrá í
eyjunni á laugardaginn kemur,
17. ágúst, en þann dag eru liðin
Tvö óhöpp í
umferðinni
TVO umferðaróhöpp urðu á Ak-
ureyri í gær, ekið var á gang-
andi vegfaranda og þá varð harð-
ur árekstur tveggja fólksbíla.
Ekið var á gangandi vegfaranda
á gatnamótum Glerárgötu og Fjólu-
götu rétt fyrir kl. 14. í gærdag.
Maðurinn var fluttur á slysadeild
en fékk að fara heim að skoðun
lokinni.
Harður árekstur tveggja fólks-
bíla varð á mótum Glerárgötu og
Strandgötu um miðjan dag, farþegi
í öðrum bílnum var fluttur á slysa-
deild, en hann skrámaðist lítilshátt-
ar á höfði. Bílarnir skemmdust mik-
ið og var annar óökufær.
Margt fólk var á ferli í miðbæ
Akureyrar um helgina og voru þeir
hörðustu að fram til kl. 6 á sunnu-
dagsmorgun, að sögn varðstjóra,
en allt fór þó vel fram.
60 ár frá formlegri stofnun
hreppsins.
Erna Erlingsdóttir sem sæti á
í afmælisnefnd sagði að þess væri
vænst að dagskráin gæti öll farið
fram utan dyra. Dagskráin hefst
með guðsþjóunstu á hátíðarsvæð-
inu, sem verður á flötinni neðan
við kaupfélagið. Guðsþjónustan
hefst kl. 14 og þar predikar sr.
Hulda Hrönn Helgadóttir sóknar-
prestur. Þá verður flutt ávarp,
sungið og slegið á létta strengi.
Boðið verður upp á kaffi og síðan
taka við Ieikir af ýmsu tagi.
Sídegis verður kveikt upp í stóru
útigrilli og gestum og gangandi
boðnar grillaðar pylsur. Um kvöld-
ið kl. 20. verður kveiktur varðeld-
ur og ef að líkum lætur má búast
við að fjöldasöngur og hljóðfæra-
sláttur muni heyrast upp í land.
Dansleikur hefst kl. 22. um
kvöldið og á miðnætti verður efnt
til flugeldasýningar, en dansi síðan
fram haldið til kl. 2.
Erna sagði að undirbúningur
vegna afmælisins hefði staðið frá
því fyrr í sumar og væru menn
nú að leggja lokahönd þar á. Hún
sagðist vona að sem flestir brott-
fluttir Hríseyingar sæktu eyjuna
heim á þessum tímamótum, en að
sjálfsögðu væru allir velkomnir.
Islendingar unnu Fær
eyinga með yfirburðum
ÍSLENDINGAR sigruðu með nokkrum yfirburðum í 9. landskeppni
þjóðanna í skák, en keppnin fór fram á Akureyri um helgina. Islend-
ingar fengu 14 vinninga á móti 6 vinningum Færeyinga. Fyrsta land-
skeppnin fór fram árið 1972, en frá árinu 1978 hafa skákmenn frá
Norður- og Austurlandi teflt fyrir Islands hönd. Island vann í fyrstu
sex skiptin, en Færeymgar höfðu
1989 í Þórshöfn.
Fyrri keppnisdaginn virtist nokk-
urt jafnræði með liðunum, en þá
sigruðu íslendingar 6-4. Færeying-
ar tefldu stíft til vinnings seinni
daginn og spenntu bogann hátt,
með þeim afleiðingum að flestar
skákirnar töpuðust.
Færeyska sveitin fór til Húsavík-
ur í gær í boði heimamanna og
tefldi þar við sveit húsvískra skák-
manna, en í dag, þriðjudag, verður
sigur árið 1987 á Seyðisfirði og
kappi att við Austfirðinga áður en
haldið verður heim á leið á fimmtu-
dag. Næsta landskeppni verður háð
í Færeyjum að tveimur árum liðn-
um.
1. borð: Halldór Grétar Einarsson
(Vestfj.) og Heini Olsen 1-1.
2. borð: Askell Örn Kárason (Ak.)
og Torbjom Thomsen 1-1.
3. borð: Jón Garðar Viðarsson
(Ak.) og Jóan Pætur Midjord 2-0.
4. borð: Gylfi Þórhallsson (Ak.)
og Jóan H. Anddreasen 1-1.
5. borð: Magnús Pálmi Örnólfs-
son (Vestfj.) og Martin Brekká 1-1.
6. borð: Bogi Pálsson (Ak.) og
Súni Merkistein 1-1.
7. borð: Kári Elísson (Ak.) og
Heini Danielsen 1-1.
8. borð: Jón Viðar Björgvins-
son/Jón Árni Jónsson (Ak.) og
Gunnar Joensen 2-0.
9. borð: Viðar Jónsson
(Austfj.)/Jón Viðar Björgvinsson
(Ak) og Helgi Joensen 2-0.
10. borð: Sigðurður Eiríksson/
Gunnar Finnsson (Austfj.) og Niclas
Joensen 2-0.
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð:
Það er hörkuvinna
að yfirvinna sorg
- segir Sigurður Jóhannsson formaður
SIÐLA árs 1987 voru stofnuð í Reykjavík Samtök um sorg og sorgar-
viðbrögð, SUSS, sem höfðu það að markmiði að styðja syrgjendur og
þá sem vinna að velferð þeirra. Síðan þetta var hefur starfsemi samtak-
anna vaxið jafnt og þétt, og hún færst í reglulegt horf. Samtökin
standa nú orðið fyrir opnu húsi, námskeiðum og fræðslufundum með
reglulegu millibili, svo eitthvað sé nefnt. Þau eru opin öllu fólki sem
um sárt á að binda, en flest það fólk sem til samtakanna kemur leitar
huggunar eftir lát ástvinar. Systurfélög hafa verið stofnuð víða um
land, og nýverið fengu Reykjavíkursamtökin nafnið Ný dögun. Við
sama tækifæri tók Sigurður Jóhannsson við starfi formanns Nýrrar
dögunar.
Sigurður segir, að því fari fjarri
að Ný dögun og systursamtök þess
bjóði upp á einhveijar töfralausnir
til stuðnings syrgjendum. „Við leit-
umst fyrst og fremst við að miðla
af reynslu okkar, og sýna fólki þann-
ig fram á að að þær tilfinningar sem
það ber í bijósti séu alls ekkert
óvenjulegar. Þetta er eitt helsta
markmið starfsemi okkar, hvort
heldur sem um fræðslufundi, opið
hús eða ítarlegt samtal undir fjögur
augu er að ræða. Við reynum að
sækja inn á tilfinningasviðið til að
ná betur til fólks, en við biðjum eng-
an að tjá sig um sína sorg fyrr en
viðkomandi er tilbúinn til þess. Það
er staðreynd að það er hörkuvinna
að yfirvinna sorg, og slíkt verður
ekki gert á einum degi.“
Sigurður hefur unnið með samtök-
unum frá upphafi, en hann missti
eiginkonu sína í bílslysi árið 1986.
„Samtökin hafa hjálpað mér að lifa
með því skarði sem þessi atburður
hjó í líf mitt. Nú hef ég gift mig á
nýjan leik, en samt sem áður eru
vissar tilfinningar bundnar láti fyrr-
um konu minnar sem ég hef ekki
enn yfirunnið að fullu.“
Kirkjan hefur reynst samtökunum
afar vel, og til að mynda lagt til allt
húsnæði til fundarhalda, en nær allir
fundir þeirra fara fram í Laugarnes-
kirkju. „Við höfum unnið mikið í
samstarfi við sóknarpresta, sem er
mikilvægt þar sem segja má að starf
Morgunblaðið/Sverrir
Sigurður Jóhannsson ásamt
tveKgja ára syni sínum, Hákoni
Loga.
okkar tengist mjög þeim hluta starfs
þeirra sem snýr að sambandi við
syrgjendur. Þannig höfum við átt
mjög gott samstarf við Reykjavíkur-
prófastsdæmi, auk þess sem sóknar-
prestar á landsbyggðinni hafa oft
verið aðalhvatamenn að stofnun syst-
ursamtaka á þeim stöðum sem þeir
starfa. Einnig leitum við eftir sam-
starfi við allar þær starfsstéttir sem
gætu á einhvern hátt haft gagn af
reynslu okkar, eða við af þeirra.“
c i«*f iiiiiiiiiiKititBiMixiMiaiiaaiiMaiil
Sigurður segir gott dæmi um þetta
að lögreglan í Reykjavík hafi haft
frumkvæði að skoðanaskiptum við
samtökin, sem hann telur að hafi
reynst báðum aðilum mjög gagnleg.
„Þannig verður samstarf og skoð-
anaskipti út á við æ mikilvægari
þáttur í starfsemi okkar."
Fyrirlestra, sem haldnir eru á veg-
um Nýrrar dögunar, sagði Sigurður
vera fjármagnaða af félagsgjöldum,
en nær 400 félagar eru nú skráðir
í samtökin. „Við höfum notið fjár-
hagsaðstoðar fyrirtækja, stofnana
og félagasamtaka, meðal annars til
að geta haldið úti fréttabréfi. Þessi
stuðningur hefur reynst okkur afar
mikilvægur," segir Sigurður. „Við
leituðum síðan til sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu um fjárhagsst-
uðning, og fengum úthlutað ein-
hveiju fé frá nokkrum þeir'ra."
Sigurður segir, að í framtíðinni sé
ætlunin að leitast við að ná til breið-
ari hóps fólks. „Við leggjum áherslu
á að missa ekki sjónar á upphafs-
markmiði okkar, sem er að öll starf-
semin beinist að því að styðja syrgj-
endur og aðstandendur þeirra, hvort
sem um missi í dauða er að ræða
eða annan rnissi," segir hann. „Á
meðan það markmið er í heiðri haft
og einhver árangur næst geta sam-
tökin horft óhrædd til framtíðarinn-
ar.“
• C • »