Morgunblaðið - 13.08.1991, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1991
19
l
L
hana án athugasemda. Þeir sögðu
aðeins: Komdu út, og hreyttu úr
sér skömmum. Ég neitaði, að sjálf-
sögðu. Af fijálsum vilja færi ég
ekki úr bílnum. Ég stakk upp á
því að þeir kæmu með, til þess að
tryggja að það yrðu engar óspekt-
ir. Þá þrifu þeir í mig með dóna-
legu orðbragði. Satt að segja varð
ég mest undrandi á orðbragðinu
við bláókunnugan mann.
Þegar ég spurði um ástæður
svöruðu þeir aðeins á þessa leið:
Vagnstjórinn ræður! Þeir gripu
sinn handlegginn hvor, ekki mjúk-
lega, sneru upp á þá fyrir aftan
bak og drógu mig nauðugan upp
úr sætinu. Mig sárkenndi til bæði
í höndum og handleggjum. Þannig
drógu þeir mig út um dyr á miðjum
vagni, eftir gangstéttinni og inn í
lögreglubílinn að aftan. „Út í hom
með þig“, sagði Litli, og hrinti mér
upp að sæti bílstjórans. Þar ætlaði
hann í fyrstu að halda mér föstum,
en ég fékk hann til þess að sleppa
mér, þannig að ég gat setið nokk-
umveginn réttur í sætinu.
Þegar á lögreglustöðina við
Hlemm kom, fómm við inn í lítið
herbergi. Þar var enginn. Fljótlega
kom samt miðaldra maður, sköll-
óttur, á milliskyrtunni. Hann
spurði mig örfárra spuminga, um
nafn mitt, minnir mig, og eitthvað
fleira. Hann virtist með fullu viti.
Eitthvað hripaði hann hjá sér á
blokk. Reif svo blaðið úr blokkinni
og sagði mér að ég gæti farið. Ég
sagði honum þá, að hann gæti lát-
ið „þá“ keyra mig heim. Þegar ég
ætlaði upp í bílinn að framan kom
Litli, hrinti mér og sagði mér að
fara inn að aftan. Eg sagðist ekki
vera neinn fangi. Fór og fékk mér
leigubíl heim. Ég leit á hendurnar
á mér. Það voru komnir blóðblettir
á bæði handarbökin. Nú em þetta
marblettir.
Kæri Reykvíkingur! Nú veiztu
hvernig landið liggur. Þegar þú
stígur upp í strætisvagn, þá situr
maður við stýrið sem hefír vald til
þess að láta handtaka þig með
góðu eða illu. Hann getur sigað á
þig lögreglunni og það án þess að
lögreglan spyrji eins eða neins.
Hún spyr hvorki um nafn né mála-
vexti. Og það er eins líklegt að hún
helli yfir þig fúkyrðum. Fyrir lög-
regluna em orð vagnstjórans lög!
Lögreglustjórinn heldur að hann
sé húsbóndinn. Hann veit víst ekki
að þeir era margir og heita vagn-
stjórar!
Sé vagnstjórinn í vondu skapi
eða hafi hann vonda samvizku
vegna afglapa í starfi, þá er enginn
óhultur. Lögreglan er hans hand-
bendi. Hann getur tekið upp á því
að siga henni á þig, af litlu eða
engu tilefni. Þú verður því að
hugsa þig um tvisvar áður en þú
stígur upp í strætisvagn. Ég tala
nú ekki um ef vagnstjórinn er í
einkennisbúningi tryllitækjagæj-
anna, eða þessara sem mála á
svartan jakkann: Fuck Jesus
Christ.
Ég lét loks verða af því að
hringja í forstjóra SVR. Hann virt-
ist líta málið svipuðum augum og
ég: Sumir menn ættu ekki að vera
vagnstjórar. Þetta era menn sem
kunna ekki almenna hegðun,
kunna ekki að umgangast fólk, og
geta alls ekki séð sig sem þjóna
almennings.
Ég hringdi í lögreglustjórann til
þess að kvarta. Ég átti við hann
langt samtal í símann. Viðhorf
hans virtist svipað og mitt. Lög-
regluþjónarnir kunna að fást við
ofbeldismenn og drykkjurúta, ræn-
ingja, þjófa og morðingja, en alls
ekki venjulegt fólk, friðsama borg-
ara. Þeir virðast ekki þekkja nema
eina tegund af viðbrögðum, en það
er hvemig eigi að bregðast við
slagsmálahundum og álíka fólki. í
starfið virðast veljast meðal ann-
arra framstæðir menn án allrar
mannþekkingar, sumir ekki annað
en óþroskaðir og illa uppaldir
stráklingar, sem líta á starf sitt
sem framhald glæpamynda sjón-
varpsins.
Það vantar tilfínnanlega góðan
lögregluskóla, sem gæti gert menn
úr þessum lýð. Þar gætu þeir lært
að umgangast venjulegt fólk, ekki
aðeins drykkjurúta og slagsmála-
hunda, og að greina þama á milli,
sem sagt svolitla mannþekkingu
og mannasiði. Samtalið var nokkuð
langt. Ekki minntist lögreglustjóri
á skaðabætur fyrir ólöglegar hand-
tökur.
III
Upphafsmenn að hinum tveimur
aðföram að mér, tveimur handtök-
um, vora lítt þroskaðir einstakling-
ar, með særðan metnað. í fyrra
tilfellinu gat faðirinn ekki viður-
kennt að sonur hans hefði gert sig
sekan um vítaverða óknytti. Sonur-
inn hefði því verðskuldað föðurlega
áminningu og jafnvel refsingu. í
stað þess að gegna föðurskyldu
Lekur bílskúrsþakið?
Svalimar? - Útveggimir?
AQU AFIN-2K er níösterkt, sveiganlegt sementsefni,
sem þolir aö togna og bogna. Þetta er efni sem andar, en er
jafnframt örugg vatnsþétting á steypta fleti. Efninu er kústaö á
í tveim umferöum. AQUAFIN-2K er nýtt hérlendis, en þaö á
margra ára sigurgöngu aö baki, erlendis.
5 ára ábyrgð.
Framleiöandinn, Schomburg Chemiebaustoffe GmbH, sem er
elsta fyrirtækiö í Þýzkalandi á sviöi bæti- og þéttiefna fyrir
steinsteypu, fullyröir aö AQUAFIN-2K endist langt umfram
venjulega steinsteypu. Þessu til áróttingar veitir verksmiöjan 5
ára ábyrgö á efninu.
Húsfélög. Bjóöum tilboösverö á einar svalir til aö kynna
þetta frábæra þéttiefni.
Auðvelt - Ódýrt - Öruggt.
Kynningarverð kr. 930.-/m2, miðað við tvær umferðir.
Ef óskað er, þá veitum við aðstoð við að bera efnið á.
SKEIFUNNI 5A, S: 91-687126 & 124
sinni, þá ákvað faðirinn að fá bals-
am á sært stolt með því að láta
handtaka mig.
Það er rétt að ég láti þess get-
ið, að nokkra eftir handtökuna
gekk ég aftur sömu leið. En hinn
þögli vottur var þá horfínn. Það
var komið nýtt skýli! Hið gamla,
útdældaða eftir allt grjótið, var
burt! Hún hafði talað skýrri röddu
samvizka föður óknyttastráksins.
Ásökun hins þögla votts hafði
reynzt óþolandi.
í síðara tilfellinu reyndi annar
vanþroska maður að breiða yfír
afglöp sín með því að sperra sig
upp og láta handtaka mig, í stað
þess að játa ófullkomleika sinn,
sem svarta múnderingin gat ekki
breitt yfir, og biðjast afsökunar,
og lofa sjálfum sér, að svonalagað
skyldi aldrei koma fyrir aftur.
Handtökumar urðu tvær, báðar
fáránlegar, en samt tákn endur-
tekningarinnar. í báðum tilfellum
urðu mennimir sem stóðu að hand-
tökunni þrír, þar af tveir eins, það
er að segja í einkennisbúningum
lögreglunnar (Til þess að handtaka
okkur þarf þrjá. „Flokkurinn“ hef-
ir trúlega verið 6 menn.)
Þá má og geta sér til að ljúgvitn-
in láti sig ekki vanta nú, frekar
en áður.
HRINGDU OG FÁÐU SENT EINTAK.
Pbntunarlislinn kostar 250 kr. ♦ postburbargjald
PÖNTUNARLÍNA
91-653900
BÆJARHRAUNI 14, 220 HAFNARFIRÐI
Höfundur var um árabil
bankastjóri Framkvæmdabankans
og efnahagsráðunautur
ríkisstjórna.
VlizzHikkii %v'6v,ifftt
Spameytinn bíll d góðum greiðslukjörum.
Eins og fjöldi kannana og keppni í sparakstri hér og erlendis hafa sýnt
er Suzuki Swift í fararbroddi í heiminum hvað varðar bensínsparnað og
lágmarks mengun. Þessi árangur er ekki síst því að þakka að Suzuki
Swift er búinn aflmikilli vél með rafstýrðri bensíninnsprautun og full-
komnasta mengunarvarnabúnaði (catalysator) sem völ er á.
Nú fiest Suzuki Swifit á sérlega hagstœðu verði og greiðslukjörum.
Dæmi um verð og greiðslukjör: Suzuki Swift 1 .Oi GA 3dr.
Verð kr.:.........746.000.-
Útborgun kr.:.....190.000.-
Afborganir kr.:....18.680.-
í 36 mánuði
$ SUZUKI
iWM
SUZUKI BÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 SÍMI68 51 00
■
iiiiiiia!
U-iiÍÍIÍIIÍIIÍÍÍÍÍÍi
wjWítmí