Morgunblaðið - 13.08.1991, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1991
21
Einar Öder Magnússon og Atgeir.
landsliðinu í annað sinn en hann
var með stóðhestinn Pjalar frá Haf-
steinsstöðum í Danmörku fyrir
tveimur árum og komust þeir í úr-
slit í fimmgangi. Nú er hann aftur
með fjórgangshestinn Atgeir frá
Skipanesi átta vetra en hann er
undan Elg 965 frá Hólum og Heiði
frá Ögmundarstöðum. Þeir Einar
og Atgeir hafa átt nokkuð góðu
gengi að fagna í keppnum síðustu
tvö árin, voru í úrslitum á íslands-
mótinu í fyrra og í úrslitum í B-
flokki á fjórðungsmótinu í sumar
auk þess að hafa verið efstir á inn-
anfélagsmótum Sleipnis á Selfossi.
Einar sagðist verða setja spurn-
ingarmerki varðandi væntanlegan
árangur sinn á mótinu. „Þetta ræðst
mikið af því hvemig dómurum
mótsins fellur Atgeir. Að sjálfsögðu
reyni ég að komast í A-úrslit í
minnsta kosti annarri greininni,"
en Einar keppir í tölti og fjór-
gangi. „Ég get altént lofað því að
klárinn mun ekki gefast upp hjá
mér því hann hefur nægan kraft
og mikinn vilja,“ sagði Einar í lokin.
Jón Pétur Ólafsson/Byr
Á Evrópumótinu í Danmörku
unnu íslendingar aðeins einn EM-
titil og var þar að verki Jón Pétur
Ólafsson sem sigraði í gæðinga-
skeiði á Glaumi frá Sauðárkróki.
Aftur hefur Jón Pétur tryggt sér
sæti í íslenska liðinu á og hefur þar
með möguleika á að veija titil sinn.
Hestur Jóns Péturs nú er Byr frá
Akureyri undan Hrafni 802 frá
Holtsmúla og Báru 4418 frá Akur-
eyri. Jón Pétur fékk Byr í hendurn-
ar viku fyrir fjórðungsmótið þar
sem hann sýndi klárinn í
gæðingakeppninni.
Aðspurður um möguleika sína
sagðist Jón Pétur ekki telja Byr
ólíklegri til að^.gera góða hluti ytra
en aðra hesta sem þar koma fram.
Sagði hann að klárinn hefði lagast
mikið síðustu dagana og væri til
dæmis orðinn mjög góður í fimm-
gangi. „Ég stefni á að komast í
A-úrslit -í fimmgangi og verðlauna-
sæti í gæðingaskeiði og ætli maður
reyni ekki að vera með í keppninni
um samanlagðan sigurvegara,"
sagði Jón Pétur.
Ragnar Hinriksson/Gammur
Þegar röðin kemur að Ragnari
kemur ósjálfrátt upp í hugann ótrú-
leg frammistaða hans í Evrópumót-
inu í Hollandi þegar hann sigraði
fimmganginn, stigakeppnina og
skeiðið á lánshestinum Fróða frá
Ásgeirsbrekku en hestar íslending-
anna veiktust eins og kunnugt er
og þurftu að fá hesta að láni til að
geta verið með. Ragnar hefur keppt
á fjórum mótum, fyrst 1972 í Sviss
og þá ’77 í Danmörku, ’79 í Hol-
landi og ’81 í Nöregi.
Nú keppir Ragnar á hestinum
Gammi frá Ingveldarstöðum sjö
vetra gömlum undan Náttfara 776
frá Ytra-Dalsgerði og Leystu 3775.
Gammur vann A-flokkinn hjá Mána
í vor og B-flokkinn á síðasta ári.
Sagðist Ragnar taka þátt í tölti,
fimmgangi, gæðingaskeiði og 250
metra skeiði. Ekki vildi Ragnar
gefa nein fyrirheit um árangur í
einstökum greinum, sagðist að
sjálfsögðu gera sitt besta og tók
fram að klárinn væri í mikilli upp-
sveiflu þessa dagana.
Sigiirður Sæmundsson og
Pétur Jökull Hákonarson
liðssljórar
Nú í fyrsta sinn eru valdir tveir
liðsstjórar með liðinu og voru þeir
Sigurður Sæmundsson hrossabóndi
í Holtsmúla og Pétur Jökull Hákon-
arson. Þetta mun í fjórða skipti sem
Sigurður tekur að sér starf liðs-
stjóra auk þess sem hann hefur fjór-
um sinnum verið keppandi. Pétur
sem er formaður Hestaíþróttasam-
bands íslands hefur dæmt fyrir ís-
lands hönd á þessum mótum auk
þess að hafa unnið mikið að þessum
málum sem formaður sambandsins.
Þeir félagar voru sammála um
að raunhæft væri að reikna með
að þrenn gullverðlaun ynnust nú.
Pétur taldi að ef vel tækist til gætu
þau allt eins orðið fímm. Sigurður
sagðist vera bjartsýnn á skeiðhest-
inn Kolbak og Gunnar. Taldi
hann nokkuð öruggt að þeir ynnu
í það minnsta ein gullverðlaun. „Ég
er einnig nokkuð bjartsýnn á töltið
og þá horfi ég til Pjakks og Hin-
riks,“ sagði Sigurður og hann hélt
áfram „Sigurbjörn er náttúrlega
hvað sterkastur þegar pressan og
álagið er hvað mest. Þeir Tómas
og Ragnar verða báðir til alls líkleg-
ir ef þeir komast í úrslit.“
Aðspurður um hveijir væru
helstu andstæðingar strákanna
sagði Sigurður að eftir þeim litlu
fréttum sem þeim hefði borist væru
það Þjóðveijararnir eins og áður.
Andreas Trappe núverandi meistari
í fimmgangi væri nú með feikna
sterkan fjórgangshest undan Þór
frá Sporz en Trappe keppti einmitt
á honum ’83 í Þýskalandi og vann
fjórganginn. Þá verður núverandi
meistari í töltinu Bernd Vith með
Rauð sem hann sigraði töltið á fyr-
ir tveimur árum í Danmörku. Svo
geta að sjálfsögðu einstaka kepp-
endur frá öðrum þjóðum skotið upp
kollinum og blandað sér í toppbar-
áttuna í einstaka greinum.
Ekki verður annað heyrt en menn
séu bjartsýnir á góðan árangur og
menn ákveðnir að láta Þjóðveijana
ekki vaða svona upp eins og þeir
gerðu á síðasta móti þegar þeir sigr-
uðu í nánast öllum greinum síðasta
móts.
Víðavangs-
hlaup fellt
út úr dag-
skránni
Heimsmeistaramótið stendur
yfir í fimm daga að þessu sinni.
Dagskráin er með nokkuð svip-
uðu sniði og verið hefur. Athygli
vekur þó að nú hefur víðavangs-
hlaupið verið fellt niður og koma
sjálfsagt margir til með að fagna
því.
Þá er ein ný-keppnisgrein er nú
tekin upp á mótinu en það er tölt-
keppni sem kallast Tölt T 1:1.
Keppnisgreinin sem upprunnin er
frá Þýskalandi fer fram með þeim
hætti að sex hestar eru inni á vellin-
um í einu og er riðið á fijálsum
hraða. í einu atriði keppninnar
verða knapar að ríða hestunum við
fijálsan taum. Er hér um að ræða
sýningargrein sem ekki verður
reiknuð með í stigakeppni mótsins.
Dagskrá mótsins verður annars sem
hér segir:
Miðvikudagur 14. ágúst.
08.00 Kynbótadómar.
11.00 Forkeppni í tölti T 1:1.
14.00 Forkeppni í hlýðniæfingum.
Fimmtudagur 15. ágúst.
08.00 Kynbótadómar.
08.00 Forkeppni í tölti.
16.00 250 metra skeið 1. og 2.
umferð.
Föstudagur 16. ágúst.
08.00 Fjórgangur - fdrkeppni.
15.00 Gæðingaskeið.
Opnunarhátíð - mótið formlega sett.
Laugardagur 17. ágúst.
08.00 Fimmgangur-forkeppni.
13.00 Sýning kynbótahrossa.
14.00 Hlýðniæfingar-úrslit.
18.00 Skeiðkeppni 3. og 4. umferð.
Sunnudagur 18. ágúst.
10.00 Fjórgangur - B-úrslit
10.45 Fjórgangur - A-úrslit.
11.30 Fimmgangur - B-úrslit.
12.15 Fimmgangur - A-úrslit.
13.00 Kynbótasýning - verðlaun.
14.15 Tölt - B-úrslit.
15.00 Tölt - A-úrsliL
16.30 Lokaathöfn - Mótsslit.
Master floor
Níðsterkt parket
kr. 2.669,— fm.
Þolir Þolir vatn og fitu vindlingoglóð
'fiC
Létt QÓ þrífa Rispost ekki
Umhverfis- Eldtefjandi
verndandi
PARKET
Gegnheilt-svissneskt
gæðaparket
pússað og lakkað
Eik Beyki
Askur Merbau
verð frá 2.300,—
WC nieð haröri setu
kr 13.900,-
Handlaug á fæti
kr. 2.300,-
Baðkör 170x70
vx.fí.600,—
l^3URS7AFELL
Bíldshöfða 14,112 Reykjavík,
sfmar 91-672545/676840.