Morgunblaðið - 13.08.1991, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1991
Þjóðernisátökin í Júgóslavíu:
Fangaskipti Króata og
Serba fara út um þúfur
Zagreb, Belgrad, Brussel. Reuter, The Daily Telegraph.
EKKERT varð af því að Serbar og Króatar hefðu skipti á 70 föngum
í gær eins og fyrirhugað var. Tveir serbneskir skæruliðar og tíu
ára gamall serbneskur drengur féllu á sunnudag í árás sem herþot-
ur sambandshersins gerðu á götuvígi í Króatíu. Flugmennirnir héldu
að þeir væru að gera árás á vígi Króata. Króatar komu í gær í veg
fyrir að eftirlitsnefnd sem hefur umsjón með vopnahléinu sendi
menn á þeirra landsvæði. Alls hafa sjö menn fallið í Júgóslavíu síðan
vopnahléið komst á í siðustu viku.
Tvær herþotur stóðu að árásinni
á götuvígið sem átti að beinast að
króatískum þjóðvarðliðum í hefnd-
Bankar í Hong Kong;
Starfsemin
að færast í
eðlilegt horf
Hong Kong. Reuter.
ÚTIBÚ breska bankans Standard
Chartered í Hong Kong tilkynnti
í gær að óttaslegnir viðskiptavinir
þess hefðu tekið um 23 milljarða
ISK út af bankareikningum sínum
fyrir helgi vegna orðróms um
slæma stöðu bankans. Fjórir bank-
ar í Hong Kong hafa orðið fyrir
álíka áfölluni á síðustu fjórum vik-
um. Verð hlutabréfa í bönkum
varð hærra en nokkru sinni í
gær, sem bendir til að erfiðleikar
þeirra séu yfirstaðnir.
Sparifjáreigendur gerðust tor-
tryggnir út í bankakerfíð þegar úti-
búi BCCI-bankans var lokað í júlí.
Síðan hefur orðrómur um slæma
stöðu íjögurra banka valdið því að
fólk tók hið snarasta fjármuni sína
úr vörslu þeirra.
Allt er nú komið í eðlilegt horf og
í gær sagði bankastjóri Standard
Chartered, Ian Wilson, að þetta hefði
engin áhrif á starfsemi bankans.
arskyni fyrir að þeir skutu að þyriu
sambandshersins. Auk þeirra
þriggja sem fórust særðust sex
Serbar í árásinni og í annarri árás
sem gerð var á þorpið Poljana.
Að sögn króatísks lögreglumanns
urðu þessi mistök þrátt fyrir að
fánar Júgóslavíu og serbneska lýð-
veldisins blöktu við götuvígið.
Fyrr um helgina féllu þrír Króat-
ar, þ. á m. lögreglumaður og
myndatökumaður króatíska sjón-
varpsins.
Þrátt fyrir að átök hafi blossað
upp á nýjan leik tókst nefnd á veg-
um sambandsríkisins, sem ætlað er
að hafa umsjón með vopnahléinu,
að greiða fyrir því að stríðandi fylk-
ingarnar tvær hefðu fangaskipti um
helgina. Á laugardag vom tveir
Króatar látnir lausir í skiptum fyrir
þijá Serba og á sunnudag var 10
mönnum úr hvoru liði sleppt laus-
um. Talið er að Krótar haldi um
60 Serbum föngnum en Serbar
hafi um tvöfalt fleiri Króata í sinni
vörslu. Fangarnir sem sleppt var
sögðust hafa sætt barsmíðum og
illri meðferð í gíslingu sinni.
Hins vegar fóru fýrirhuguð skipti
á 70 föngum sem verða áttu í gær
út um þúfur þar sem Serbum hafði
ekki gefist ráðrúm til að sækja
fangana í búðirnar þar sem þeir
vom í haldi, að sögn Irfans Aj-
anovics, embættismanns í eftirlits-
nefndinni.
Hann sagði að Króatar væru
mótfallnir því að eftirlitsmenn væm
sendir til óróasvæðanna, en vildu
þess í stað að þeir kæmu sér fyrir
við landamæri Króatíu og Serbíu.
Hann sagði að þeir óttuðust að
annars yrði litið á það sem viður-
kenningu á því að það landsvæði
sem Serbar hafa náð á sitt vald
væri þeim tapað.
Reuter
Félagi í krótíska þjóðvarðliðinu ber eld að mynd af Josip Broz Tito,
fyrrum forseta Júgóslavíu, í þorpinu Savras í gær. Þar beijast sveit-
ir Serba og Króata á degi hverjum.
Átök mílli nýnasista og lög-
reglu í S-Afríku rannsökuð
Ventersdorp, Jóhannesarborg, Höfðaborg. Reuter.
RÍKISSTJORN Suður-Afríku skýrði í gær frá því að hún hygðist láta
lögreglu landsins rannsaka skotbardaga á milli lögreglu og hægrisinn-
aðra öfgamanna fyrir helgi. Létu þrír félagar í Andspyrnuhreyfingu
Afríkana (AWB) og einn blökkumaður lífið í átökunum sem urðu í
bænum Ventersdorp á föstudag. Adrian Vlok, lögreglumálaráðherra,
sagði líklegt að fjölmargir yrðu kærðir í kjölfar rannsóknarinnar.
Um 2.000 félagar í AWB, sem eru
samtök nýnasista, söfnuðust saman
í Vernersdorp á föstudag og gerðu
aðsúg að 1.000 lögreglumönnum sem
þar voru til að gæta öryggis F.W.
de Klerks, forseta Suður-Afríku, en
hann hélt þar ræðu um kvöldið. Þeir
voru vopnaðir byssum og bareflum
og létu ófriðlega. Átök brutust síðan
út þegar nýnasistarnir skutu að og
grýttu litla nítu sem í voru blökku-
menn. Farþegamir voru dregnir út
og þeim misþyrmt með þeim afleið-
Norðurslóðir:
Hernaðarumsvif Sovét-
manna ekki áhyggjuefni
- segir Arne Olav Brundtland
AUKIN hernaðarumsvif Sovétmanna á Kóiaskaga í kjölfar sam-
komulagsins um niðurskurð hefðbundins herafla í Evrópu (CFE)
hefur valdið ýmsum áhyggjum óg þá sérstaklega í Noregi. Einn-
ig hefur ýmsum orðið tíðrætt um nýafstaðnar heræfingar Sovét-
manna í Norður-Atlantshafi og eru menn ekki á eitt sáttir um
hvað búi að baki. Arne Olav Brundtland vinnur að rannsóknum
við Norsku alþjóðamálastofnunina. Hann er þeirrar hyggju að
rétt sé að fylgjast með framvindu þessara mála. Hins vegar þurfi
ekki sérstakan viðbúnað vegna umsvifa Sovétmanna.
Því hefur verið haldið fram að
CFE hafi haft þær afleiðingar að
víglínan í Evrópu hafí flust norður
á bóginn, frá Þýskalandi til Nor-
egs. Brundtland segir að skil-
greina þurfi víglínu. „Hana var
að finna í pólitískum málum,
ágreiningi um Berlín og Þýska-
land. Vesturveldin og Sovétríkin
mættust þungvopnuð í Mið-Evr-
ópu og á jaðarsvæðunum," sagði
Brundtland í viðtali við Morgun-
blaðið.
„Nú er víglínan hins vegar horf-
in og kalda stríðinu lokið. Spurn-
ingin um miðju og jaðarsvæði
hefur misst gildi sitt,“ sagði
Brundtland. „Nú gerist það að
bent er á fyrrverandi jaðarsvæði
í norðri og því haldið fram að
vandamálið hafi flust þangað. í
raun er vérið að snúa aftur til
hugsunarháttar kalda stríðsins."
Brundtland sagði að hins vegar
væri ekki hægt að neita því að
herafli hefði verið fluttur frá Mið-
Evrópu til norðvesturhluta Sov-
étríkjanna. Þar er m.a. um að
ræða um 40 MIG-herþotur. Jafn-
framt telja Sovétmenn þessar þot-
ur nú til sjóhersins, en ekki land-
hersins eins og áður. Afleiðing
þessa er að þoturnar eru undan-
skildar í CFE.
Það er hins vegar spurning
hvort ógn stafí af þessum flutn-
ingum. „Meðan á kalda stríðinu
stóð steðjaði sú hætta að Norð-
mönnum að þeir yrðu dregnir inn
í allsheijarstríð. Hún var her-
fræðilegs eðlis og skilyrðið var
að stríð brytist út milli austurs
og vesturs,“ sagði Brundtland.
„Nú er útilokað að slíkt gerist.
Þessi ógn er horfin. Eftir stendur
spurningin hvort Sovétmenn gætu
notað aukinn styrk sinn á norður-
slóðum til þess að þrýsta á Norð-
menn um að fara að óskum sínum
þar sem við hefðum ekki látið
undan áður,“ sagði Brundtland.
„Þetta er fræðileg spurning og
svarið við henni byggist á vanga-
veltum. Hins vegar hefur stjórn-
málasambandið við Sovétmenn
aldrei verið betra eftir stríð og
heimsókn [Míkhaíls] Gorbatsjovs
til Osló í júní ber því órækt vitni.
Ef við snúum aftur að spum-
ingunni um aukna hættu á jaðar-
svæðum, þá er aukin hernaðar-
geta Sovétmanna eitt. Hins vegar
eru gagnkvæm samskipti austurs
og vesturs mjög góð og ekkert
bendir til þess að Sovétmenn hafi
illt í hyggju.“
Menn hafa leitt getum að því
að varnarmikilvægi íslands muni
aukast vegna þess að banda-
rískum hermönnum eigi eftir að
fækka í Evrópu og því verði
brýnna að halda sjóleiðum á Atl-
antshafi opnum svo að fyrirvara-
laust megi senda liðsstyrk austur
um haf.
Brundtland lítur málið öðrum
augum. Hann sagði að öll þróun
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Arne Olav Brundtland
mála í Evrópu væri í átt til friðar
og samvinnu. Því væri marklaust
að fjalla um flutning herafla til
og frá og breytt vægi ýmissa
svæða og landa á borð við ísland.
„Ég vil því segja að mikilvægi
Islands hafi ekki aukist.. . en það
er nógu mikilvægt samt,“ sagði
Brundtland.
Brundtland sagði að ekki væri
ástæða til að hafa áhyggjur af
hernaðarmætti Sovétmanna á og
í Norður-Atlantshafi þrátt fyrir
að flotaæfingar þeirra í vor hafi
verið þær umfangsmestu í nokkur
ár. Hann kvaðst telja brýnna að
semja um afvopnun á höfunum
og þar strandaði á Bandaríkja-
mönnum.
ingum að einn lést.
Lögregla skaut að AWB-liðsmönn-
unum og notaði táragas til að leysa
upp mannsöfnuðinn. Þrír úr röðum
öfgamannanna létu lífíð, einn af
skotsárum.
Þetta voru fyrstu mannskæðu
átökin á milli lögreglu og öfgasinn-
aðra hægrimanna síðan þeir klufu
sig úr Þjóðarflokknum fyrir tíu árum
til að mótmæla því að blökkumönn-
um yrðu veitt aukin réttindi í land-
inu. Þeir líta óhýru auga til de Klerks
vegna þess að hann hefur unnið að
því að uppræta aðskilnaðarstefnuna.
Eftir átökin á föstudag sögðu nýnas-
istamir að de Klerks yrði þaðan í frá
minnst sem „slátrarans í Venters-
dorp“. Þeir sóru þess eið að hefna
þeirra sem féllu.
I sjónvarpsumræðum á sunnudag
áskaði leiðtogi AWB, Eugene Terre
Blanche, de Klerk um að hafa sýnt
AWB-félögum áreitni. Hann sagði
að menn sínir bæru byssur og járn-
skildi einungis í sjálfsvarnarskyni.
„Ovopnaður hvítur maður í þessu
landi er sama sem dauður," sagði
hann. ,
Bankamenn
handteknir
í Póllandi
Varsjá. Reuter.
LANDSBANKI Póllands staðfesti
á föstudag að varaforseti bank-
ans, Wojciech Prokop, væri einn
af þeim sjö mönnum sem viðriðnir
eru mikið bankahneyksli þar í
landi. Sama dag rak pólska þingið
Grzegorz Wojtowicz, forseta
Landsbankans, eftir að Lech Wal-
esa, forseti Póllands, lagði fram
kröfu þess efnis.
Prokop var handtekinn fyrr í vik-
unni ásamt hinum sex. Grazyna
Taladaj, talsmaður saksóknara-
embættisins í Varsjá, sagði að
mennirnir yrðu í haldi á meðan
rannsókn færi fram á stórvægilegri
misbeitingu á fjármunum ríkisins.
Saksóknaraembættið hefur verið
að rannsaka báðar þessar stofnanir
frá 18. júní vegna gruns um mis-
ferli og spillingu.