Morgunblaðið - 13.08.1991, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPn/AIVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1991
31
AUGLYSINGIN — Kaþólskur prestur kyssir nunnu, ný
auglýsing frá Benetton sem hneykslaðir kaþólikkar segja að sé van-
virða.
Auglýsingar
Viðskipti og velsæmi
The Economist
Marglitu peysurnar frá ítalska fataframleiðandanum Benetton eru
mjúkar og hlýjar en hið sama verður ekki sagt um auglýsingarnar.
í herferðinni á komandi hausti er meðal annars auglýsing sem sýnir
kaþólskan prest kyssa hvítklædda nunnu. „Staðfesting hreinna mann-
legra tilfinninga,,, segir Benetton. Vanvirða, segja hneykslaðir kaþó-
likkar.
Oliver Toscani, ljósmyndarinn sem
stýrir herferðum Benetton, segist
reyna að halda auglýsingunum fjarri
gömlum og leiðinlegum viðskipta-
sjónarmiðum. Markmiðið er að
„brjótast í gegnum tómlætismúrinn,,
með því vekja athygli fólks og kalla
fram viðbrögð. Auglýsingarnar selja
líka greinilega peysur. Á samdráttar-
árinu 1990 velti Benetton 2.100
milljörðum ítalskra líra (105 milljörð-
um ÍSK) sem er 24% aukning frá
árinu áður.
En Benetton hefur oftar en einu
sinni mátt reyna að það getur verið
varasamt að rjúfa hefðir. I síðustu
vorherferð var mynd af legsteinum
og á einum þeirra var Davíðsstjam-
an. Auglýsingin birtist um leið og
fyrstu írösku Scud-eldflaugarnar
lentu á Tel Aviv. Benetton var sakað
um að notfæra sér dauðann í hagnað-
arskyni. Til mótvægis verður Toscani
með mynd af nýfæddu og slímugu
bami í næstu haustherferð. Banda-
ríska uppeldisblaðið Child hefur þeg-
ar neitað að birta þá auglýsingu.
Benetton telur að herferðimar
„fjalli um helstu félagslegu viðfangs-
UJ ...........-.......1
Evrópubandalagið
sektar Tetra Pak
Framkvæmdaráð Evrópubandalagsins hefur sektað sænska stórfyrir-
tækið Tetra Pak um 75 milljónir ECU (5,4 milljarða ÍSK). Þetta er
langhæsta sekt sem eitt fyrirtæki hefur fengið fyrir að brjóta regl-
ur um verðlagningu og samkeppnishætti í löndum bandalagsins.
Tetra Pak ætlar að áfrýja dómnum til Evrópudómstólsins í Lúxem-
borg.
Rannsókn málsins hefur staðið
yfir í átta ár. Sir Leon Brittan,
framkvæmdastjóri samkeppnismála
bandalagsins, segir að upphæðin
endurspegli hve lengi Tetra Pak
hafi með kerfisbundnum hætti mis-
notað yfirburði sína og reynt að
hindra alla samkeppni í greininni.
Tetra Pak framleiðir aðallega
umbúðir og pökkunarvélar fyrir
fljótandi matvæli og hefur meðal
annars átt mikil viðskipti við íslensk
mjólkurbú. Á síðasta ári var velta
fyrirtækisins 4,14 milljarðar dollara
(251 milljarður ÍSK). Fram-
kvæmdanefndin getur sektað lög-
bijóta um all að tíunda hluta heild-
arveltu. Tapist málið fyrir Evrópu-
dómstólnum verður Tetra Pak að
greiða áðurnefnda upphæð auk
vaxta og 3,5% viðbótarsektar vegna
áfrýjunar.
Tetra Pak selur um helming
framleiðslu sinnar til Evrópubanda-
lagsins og þar er markaðshlutdeild
fyrirtækisins á sumum sviðum yfir
90 af hundraði. Viðskiptavinir hafa
ekki getað leigt vélar af Tetra Pak
í skemmri tíma en þijú ár og á
Ítalíu er leigutíminn að lágmarki
níú ‘ár.‘ Oh'éimilt’ ér áð‘ flýija vélarn-
ar eða breyta þeim og Tetra Pak
hefur einkarétt á varahlutum og
viðhaldsþjónustu. Viðskiptavinum
hefur einnig verið bannað að nota
umbúðapappa frá öðrum fyrirtækj-
um.
Framkvæmdaráðið segir að í
krafti stærðar sinnar hafi Tetra Pak
skipt Evrópubandalaginu niður í
mismunandi verðsvæði. Verðmun-
urinn á vélum frá Tetra Pak er í
sumum tilvikum þrefaldur. Á Italíu
og í Bretlandi hefur fyrirtækið selt
umbúðapappa langt undir fram-
leiðslukostnaði í því skyni að kné-
setja keppinauta. Norska fyrirtækið
Elopak varð af þeim sökum að loka
nýrri umbúðaverksmiðju á Italíu.
Bertil Hagman, forstjóri Tetra
Pak, segir að úrskurður Fram-
kvæmdaráðsins gi-undvallist á
kennisetningum en ekki raunveru-
leikanum. Hann vill meina að ekki
sé tekið nægilega mið af samkeppn-
ishörku í greininni og sérstöðu
matvælaiðnaðar. Auk þess hefur
Tetra Pak verið að endurskoða
nokkur af þeim samningsákvæðum
sem Framkvæmdaráðið gerir at-
hugasemdir við.
efni okkar tíma, þar á meðal eyðni,
offjölgun, umhverfisvá og samlyndi
kynþátta,,. Hins vegar virðast áhorf-
endur oft leggja annan skilning í
boðskapinn. Fyrir tveimur árum
sýndi auglýsing frá Benetton þel-
dökka konu með hvítt barn á bijósti.
Sú auglýsing olli uppnámi meðal
þeldökkra Bandaríkjamanna og sag-
an virðist ætla að endurtaka sig. I
komandi haustherferð er mynd af
hvitu barni að faðma þeldökkt bam
með hár sem líkist homum. Samtök
þeldökkra eru þegar farin að láta til
sín heyra á ný.
Benetton fylgir alþjóðlegri auglýs-
ingastefnu sem kölluð er „sameinað-
ir litir (united colors),,. Sömu auglýs-
ingarnar eru birtar um allan heim.
Herferðir sem misheppnast á einum
markaði vinna oft til verðlauna á
öðrum. Til dæmis verðlaunuðu
Frakkar og ítalir þeldökku konuna
með hvíta barnið á brjósti. Blaðamað-
ur The Economist segir að týndi
hlekkurinn í auglýsingastefnu Benet-
ton kunni að vera skilningur á við-
kvæmustu máium í hveiju landi.
Gjaldþrot hafa aldrei
verið fíeiri í Svíþjóð
M Frá ársbyrjun 1990 hefur iðnframleiðslan minnkað um 15%
Gjaldþrotum fyrirlækja hefur
fjölgað mjög í Svíþjóð og voru á
fyrra misseri þessa árs 8.400,
nærri 50 á dag og helmingi fleiri
en á sama tíma fyrir ári. Er hér
oftast um að ræða fremur stór
fyrirtæki en gjaldþrotum meðal-
stórra fyrirtækja hefur líka
fjölgað mikið.
Fjórðungur gjaldþrotanna átti
sér stað á Stokkhólmssvæðinu en
þar hefur raunar verið nokkur
þensla þrátt efnahagssamdráttinn
yfirleitt. Eru það aðallega fyrirtæki
í fasteignaviðskiptum og ráðgjöf,
bílasölur, hótel og veitingastaðir,
sem farið hafa á hausinn. Þá hefur
gjaldþrotum einstaklinga fjölgað
um 21% á árinu.
í maí sl. minnkaði sænsk iðn-
framleiðsla um 4,7% og hafði þá
ekki verið minni síðan á miðju ári
1984. Á einu ári, frá maí 1990 til
maí 1991, dróst framleiðslan saman
um heil 9% en um 15% frá ársbyij-
un 1990.
Á móti þessu kom, að viðskipta-
jöfnuður Svía við útlönd batnaði
vegna minni innflutnings og var
hagstæður um 7,8 milljarða skr. í
júní en um 4,6 milljarða í sama
mánuði í fyrra. Á fyrra misseri
þessa árs hefur viðskiptajöfnuður-
inn því verið hagstæður Svíum um
21 milljarð skr. eða um 203 millj-
arða ísl. kr.
Efnahagsástandið hefur einnig
valdið því, að lántökur innanlands
hafa minnkað og í júní lækkaði
skuld heimilanna í viðskiptabönk-
unum um 0,9 milljarða skr. og hef-
ur þá minnkað um 4,3 milljarða á
einu ári. Aftur á móti hafa erlendar
skuldir heimilann vaxið um 6,8
milljarða og skýringin aðallega sú,
að fyrir Svía er vaxtastigið lægra
erlendis og lánin því ódýrari.
Á síðustu 12 mánuðum hefur
verðbólgan í Svíþjóð verið 10,3%
en búist er við, að hún verði í rúm-
um 9% í árslok og fari undir 5%
snemma næsta árs.
UDPbvottavélar í miklu úrvaií!
SIEMENS uppþvottavélar eru velvirkar,
hljóðlátar og sparneytnar.
Breidd: 45 og 60 sm.
Verð frá 59.600,- kr.
SMttH & NORLAND
NÓATÚNI4 - SÍMI28300
Tilkvnning um útgáfu bankabréfa
3. flokkur 1991, kr. 300.000.000.-
Kr. þrjúhundruð milljónir 00/100.
Útgáfudagur 1. ágúst, 1991.
Grunnvísitala 3158.
Gjalddagi 1. ágúst, 1994.
Einingar bréfa: kr. 100.000.-, kr. 500.000.-, kr. 1.000.000.- og kr. 5.000.000.-.
-----------------------------------♦----------------
4. flokkur 1991, kr. 300.000.000.-
Rr. þrjúhundruð milljónir 00/100.
Útgáfudagur 1. ágúst, 1991.
Grunnvísitala 3158.
Gjalddagi 1. ágúst, 1996.
Einingar bréfa: kr. 500.000.-, kr. 1.000.000.- og kr. 5.000.000.-.
---------------♦----------------
Verðtrygging og ávöxtun: Ofangreind bréf eru verðtryggð
miðað við hækkun á lánskjaravísitölu.
Ársávöxtun umfram verðtryggingu er 8,4%.
Söluaðili: Landsbréf hf., Suðurlandsbraut 24, Reykjavík
og afgreiðslur Landsbanka Islands um allt land.
Umsjón með útgáfu: Landsbréf hf.
LANDSBRÉF H.F.
Landsbankinn stendur með okkur
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 91-679200, fax 91-678598.
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.