Morgunblaðið - 13.08.1991, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 13.08.1991, Qupperneq 50
50 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1991 Fjórðungsúrslitin í Brussel; Short koltapaði, Karpov og Ivantsjúk óheppnir ___________Skák______________ Margeir Pétursson FJÓRÐUNGSÚRSLIT áskor- endakeppninnar í skák hófust með miklum látum í Brussel á sunnudaginn. Fyrst til að ljúka var viðureign Englendingsins Nigel Short og Sovétmannsins Borís Gelfand. Fyrir fram var talið að það einvígi gæti orðið hvað mest spennandi, en Short var óþekkjanlegur og tapaði með hvítu í aðeins 24 leikjum. Tímahrak tók drjúgan toll i tveimur skákum. Ivantsjúk hafði teflt mjög vel gegn Júsúpov, en gaf peð af óskiljanlegum ástæð- um og varð að sætta sig við jafn- tefli. Anand tefldi hratt og afar yfirborðskennt gegn Karpov og komst upp með það, því heims- meistarinn fyrrverandi lék ótrú- lega illa af sér í vænlegu enda- tafli. Þegar skákin fór í bið blasti jafnteflið við. Eina skákin sem gekk nokkurn veginn eðli- lega fyrir sig var viðureign Tim- mans og Kortsnoj þar sem hinn síðarnefndi lenti í heldur lakara endatafli sem hann hélt þó ör- ugglega. Það var engin lognmolla yfir þessum upphafsskákum einvígj- anna Qögurra, þær voru allar tefld- ar þar til minnsta vinningsvon var úr sögunni. Fjórðungsúrslitin eru nú í fyrsta skipti öll á sama stað. Alþjóðlega fyrirtækið SWIFT sem annast fjármunafærslur á milli banka og hefur höfuðstöðvar sínar í Brussel, stendur fyrir þeim. Það greiðir líka öll verðlaun í næstu heimsbikarkeppni sem hefst hér í Reykjavík í haust. Tefldar verða átta skákir í hverju einvígi. Ef staðan verður jöfn að þeim loknum verða tefldar styttri skákir þar til úrslit fást. Tími kepp- enda verður þá minnkaður í 45 mínútur á 60 leiki og síðan hafa þeir 15 mínútur fyrir hverja 20 leiki eftir það. Í fyrstu umferð áskorendakeppninnar þar sem háð voru sjö einvígi þurfti að gera út um fjögur þeirra með slíkum hætti. Short var óþekkjanlegur Þótt Nigel Short sé aðeins ný- orðinn 26 ára þarf að fara mörg ár aftur í tímann til að sjá hann tefla jafnilla og í fyrstu skákinni við Gelfand. Hvítt: Nigel Short Svart: Borís Gelfand Sikileyjarvörn 1. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. d4 - cxd4 4. Rxd4 — Rf6 5. Rc3 — a6 6. f4 - Dc7 7. Be2 - e5 8. Rb3 í bók sinni um Najdorf-afbrigði Sikileyjarvarnar mælir John Nunn, aðstoðarmaður Shorts, með 8. Rf5, sem er mun hvassara. 8. - b5 9. 0-0 - Bb7 10. Dd3 - Rbd7 11. a3 - Be7 12. g4? Eftir fremur rólega taflmennsku skiptir Short um skoðun og blæs til sóknar. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra og hann veikir að- eins eigin stöðu. 12. - exf4 13. Bxf4 - Re5 14. Bxe5 - dxe5 15. g5 - Rd7 16. h4 - 0-0 17. Rd5?! - Bxd5 18. exd5 18. - e4! 19. Dxe4 - Dg3+ 20. Dg2 — Dxh4 21. Hadl — Bxg5 22. Hd3 - Hae8 23. Hf5 - h6 24. Rd2? — Rc5 og Short gafst upp. Það verður vafalaust erfítt fyrir Englendinginn að ná sér á strik eftir þessa útreið. Honum hefur vegnað vel það sem af er árinu, sigraði t.d. í Amsterdam ásamt Salov, á undan Karpov og Kasparov á meðan Gelfand hefur verið í öldudal. Tiraman komst ekkert áfram gegn Kortsnoj Viktor Kortsnoj er langelstur áskorendaefnanna, hann varð sex- tugur í vor. Karpov, sem nýlega varð fertugur, er næstelstur, og síðan kemur Timman sem einnig verður fertugur í desember. Það eru engin ellimörk á taflmennsku Kortsnojs þótt margir hafí afskrif- að hann eftir ósigurinn gegn Jó- hanni í Saint John 1988. Hann er langreyndasti einvígismaðurinn í hópi keppenda og víst er að fáir stórmeistarar eru jafn þaulsetnir við æfíngar og hann. í fyrstu skákinni valdi Timman fremur meinlaust afbrigði með hvítu og þótt hann kæmist út í heldur betra endatafl reyndist Kortsnoj vandanum vaxinn. Hvítt: Jan Timman Svart: Viktor Kortsnoj Nimzoindversk vörn I. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rc3 - Bb4 4. Dc2 - 0-0 5. Rf3 - c5 6. dxc5 — Ra6 7. g3 — Rxc5 8. Bg2 - Rce4 9. Bd2 - Rxd2 10. Rxd2 - d5!? Hér er oftar leikið 10. — Hb8 og síðan b6 og Bb7. En það er ekki nægilega kröftugt framhald fyrir Kortsnoj sem er ófeiminn við að taka á sig stakt peð. II. 0-0 - Bd7 12. cxd5 - exdð' 13. a3 - Bxc3 14. Dxc3 - Db6 15. Db3 - Bb5 16. Hfel - Da6 17. e3 - Hac8 18. Hecl - Hc6 19. Db4 - Hfc8 20. Hxc6 - Dxc6 21. Hel - Dc5 22. Dxc5 - Hxc5 23. Rf3 - Kf8 24. Rd4 - Ba4 25. Bfl - g6 26. f3 26. - Bd7 27. Kf2 - Re8 28. Hdl - Ke7 29. Hd2 - Ba4 30. Be2 - Rc7 31. Bd3 - Re6 32. b3 - Bd7 33. Re2 - Hc7 34. Bbl - Bc6 35. b4 - Hd7 36. Ba2 - a6 37. Bb3 - Hd8 38. Hdl - Hd7 39. g4 - Hd8 40. h4 - h6 41. Hd2 - f5 42. Kg3 - Kf6 43. Hdl — fxg4 44. fxg4 — g5 45. Hfl+ — Ke7 46. Rd4 - Rxd4 47. exd4 — Hf8 48. Hxf8 og hér var samið jafntefli. Júsúpov slapp með skrekkinn Það hefur örugglega verið þungu fargi létt af Artúr Júsúpov þegar hann hafði sloppið með jafn- tefli gegn „krónprinsinum“ Vassilíj Ivantsjúk. Það er strax orðið ljóst að ekki fer eins illa fyrir Júsúpov og Júdasín, sem tapaði fjórum fyrstu skákunum fyrir Ivantsjúk í einvígi þeirra í Riga í janúar. Júd- asín hefur reyndar ekki borið sitt barr eftir það einvígi og fallið úr hópi 2.600 stiga stórmeistara. Mið- að við gang skákarinnar er þó hætt við að róðurinn verði þungur fyrir Júsúpov, sem er þó nýbúinn við vinna glæsilegan sigur á móti í Hamborg. Júsúpov hafði svart og lenti snemma í verri stöðu þótt upp kæmi frekar rólegt afbrigði af franskri vöm. Tilraunir hans til að ná mótspili leiddu til þess að Ivant- sjúk sneri á hann og vann tvo menn fyrir hrók og peð. Júsúpov sá sig knúinn til að fóma skipta- mun til viðbótar fyrir gagnfæri og var þá orðinn manni undir fyrir tvö peð. En þá kom tímahrak til sög- unnar, er Ivantsjúk virtist hafa ráð andstæðingsins í hendi sér urðu honum á óskiljanleg mistök er hann lét enn eitt peð af hendi. Hvítt: Vassilíj Ivantsjúk Svart: Artúr Júsúpov Frönsk vörn 1. e4 - e6 2. d4 - d5 3. Rd2 - c5 4. exd5 — exd5 5. Rgf3 — Rc6 6. Bb5 - Bd6 7. dxc5 - Bxc5 Þetta afbrigði þæfðu þeir Karpov og Kortsnoj fram og til baka í einvígjum sínum 1974 og 1978 án þess að vamir svarts yrðu brotnar á bak aftur. 8. Rb3 - Bd6 9. 0-0 - Rge7 10. Hel - 0-0 11. Bg5 - Bg4 12. Bh4 - He8 13. Bg3 - Bxg3 14. hxg3 — Db6 Þessi staða er þekkt úr fræðun- um, kom t.d. upp í skák Balasjovs og Uhlmanns á minningarmóti Alj- ekíns í Moskvu 1971 og er talin hagstæð hvíti. Balasjov lék hér 15. Bd3, en Ivantsjúk velur hvassara framhald. 15. a4 - h6?! 16. Dd2 - Bxf3 17. gxf3 - Had8 18. f4 a6 19. Bfl - Hd6 20. a5 - Dc7 21. Rc5 Júsúpov hefur ekki fundið virka áætlun og Ivantsjúk er kominn með mjög sterka stöðu. Nú fer Júsúpov á stað með h-peðið sem virðist fremur örvæntingarfull tilraun til að ná mótspili. 21. - h5 22. Ha3 - h4 23. g4 - Hf6 24. Rd3 - Rd4? Það er spurning hvort þessi og næsti leikur Júsúpovs byggjast á yfírsjón eða hvort hann hefur ætlað að fóma liði. 25. Re5 - Rec6 26. Rxc6! - Hxel 27. Rxd4 - He4 28. Rf5? Sterkast var 28. Re2! og hvítur heldur liðsyfírburðum sínum. Nú höfðu keppendur aðeins rúma mínútu hvor fram að 40. leik. 28. - Hxf4 29. f3 - H4xf5 30. gxf5 — Ilxf5 31. Hc3 — Dg3+ 32. Dg2 - Del 33. Kh2 - De5+ 34. Khl - Hg5 35. Df2 - Df4 36. Hd3 - Hg3 37. Hd4 - Dg5 Það er alveg ljóst að Júsúpov hefur ekki fullnægjandi sóknarfæri fyrir liðið sem hann hefur fómað og hræðsluviðbrögð Ivantsjúks, sem koma fram í næsta leik hans, eru með öllu óskiljanleg. Eftir 38. Kh2 er ekki nokkur leið að sjá hvernig svartur ætlar að halda áfram sókninni og hvítur hlýtur að vinna á liðsmuninum. 38. — De5 er þá auðvitað svarað með 39. f4 og síðan 40. Bg2. 38. Hg4? — Hxg4 39. fxg4 — Dxg4 40. Bd3 - g6 41. De3 - Da4 42. Db6 - Kg7 43. b4 - Dal+ 44. Kg2 - De5 45. Df2 - g5 46. Df3 - Dd4 47. Df5 - De3 48. Dh7+ —'Kf8 49. Dh6+ - Ke7 50. Dh5. Jafntefli. Anand komst upp með kaffihúsataflmennsku Eftir rólega byijun og uppskipti á drottningum strax í tíunda leik hjá þeim Anand og Karpov hefði mátt búast við að niðurstaðan yrði stutt jafntefli. Reyndin varð hið gagnstæða, Anand tefldi framhald- ið mjög frumlega, lét t.d. af hendi biskupaparið. Karpov fór sér mjög hægt, en tókst þó á endanum að nýta sér veikingar Indveijans til að ná betri stöðu. Fljótlega upp úr tímamörkunum í 40. leik var ljóst að Karpov myndi vinna peð, en með sífelldum hótunum tókst An- and að halda ákveðnu lífí í stöð- unni. Rétt fyrir tímamörkin í 60. leik hafði hann loks erindi sem erfíði er Karpov lék hrottalega af sér og gaf kost á mannsfóm sem virðist tryggja Anand jafntefli í biðstöðunni. Indveijinn kemur þó ekki sterkur út úr þessari fyrstu skák, það er að vísu mjög erfítt að mæta hraðri og virkri taflmennsku hans en skorturinn á dýpt er tilfinnanlegur. Lágmarkið er að hafa drottning- amar inná ef hann ætlar að halda uppteknum hætti. Hvítt: Vyswanathan Anand Svart: 'Anatolíj Karpov Caro-Kann vörn 1. e4 - c6 2. d3 - d5 3. Rd2 - e5 4. Rgf3 - Bd6 5. De2 - De7 6. d4 — exd4 7. exd5 — cxd5 8. Rxd4 - Rc6 9. R2b3 - Rf6 10. Dxe7+ - Kxe7 11. Bd2 - He8 12. 0-0-0 - a6 13. f3 - Kf8 14. Bc3 - Re5 15. Kbl - b6 16. Bd3?! - Rxd3 17. Hxd3 - Bd7 18. Hddl - Hac8 19. Rcl - Rh5 20. g3 - g6 21. Rd3 - a5 22. ’ Bd2 - f6 23. Hhel - Hxel 24. Bxel - Rg7 25. Bf2 - Bc7 26. b4?! Auðvitað má Karpov ekki leika 26. — axb4? 27. Rxb4 og svarta peðið á d5 fellur, en með þessu veikir Anand sína eigin stöðu og eyðir þar að auki dýrmætum tíma. 26. - Kf7 27. b5 - Rf5 28. a4 - Re7 29. Re2 - g5 30. g4 - Rg6 Með látlausri riddaratilfærslu hefur Karpov á dæmigerðan hátt náð ákveðnu fmmkvæði vegna möguleikans Rg6- e5. 31. h3 - Be6 32. Rd4 - Bd7 33. Hhl? - Hh8 34. Hcl - Re5 35. « Rxe5+?! - fxe5 36. Re2 - h5 37. Rc3 - Be6 38. Hdl - hxg4 39. hxg4 — Hd8 40. Be3 — Kg6 41. Bcl - Hd7 Karpov hefur fengið allt sem hægt er að fá út úr þessu drottning- arlausa miðtafli. Hann hefur betri peðastöðu, sterkt miðborð, bisk- upaparið og betri kóng og sigurinn ætti því að blasa við, en með ein- hvers konar töfrabrögðum tekst Anand að ragla hann í ríminu. 42. Bb2 - d4 43. Re4 - Hf7 44. Bcl - Bd8 45. Hhl - Hxf3 46. Hh8 - Bf6 Karpov ætlar að svara 47. Hb8 með 47. — Bd5, en nauðsynlegir útreikningar hafa tekið dijúgan tíma á klukkunni. 47. Rxf6 - Hxf6 48. Hd8 - Bxg4 49. Hg8+ - Kf7 50. Hxg5 - Bf5 51. Hh5 - e4 52. Bb2 - Kg6 53. Hhl - Hd6 54. Hdl - d3 55. cxd3 — e3 56. Be5 — He6 57. Bd4 - e2 58. Hel - Bxd3+ 59. Kb2 - Bf5? Þessi grófí afleikur slakar heldur betur á klónni. Sjálfsagt og eðlilegt var 59. — Kf5 til að svara 60. Kc3 með Ke4. Karpov á þá alla mögu- leika að knýja fram vinning í enda- taflinu, en í staðinn fær hann gleði- snauða biðstöðu. 60. Bxb6! Hxb6 61. Hxe2 í þessari stöðu fór skákin í bið og Karpov með svart lék biðleik. Eftir hin herfílegu mistök í 59. leik blas- ir jafnteflið við. Þar sem svarti biskupinn valdar ekki uppkomureit svarta a-peðsins tryggja hrókaka- up hvíti jafntefli. Þá er svarta a- peðið í stórhættu, svo það er ekki að sjá að Karpov eigi minnstu vinn- ingsmöguleika í þessari skák. Bið- skákin verður tefld í dag. UR DAGBOK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: 9. -12. ágúst 1991 Um helgina voru 105 ökumenn kærðir fyrir umferðarlagabrot, þar af 72 fyrir of hraðan akstur, 12 gran- aðir um ölvun við akstur og 33 fyrir önnur umferðarlagabrot. Aðfaranótt laugardags var bifreið stöðvuð af lögreglu á 125 km hraða á Vestur- 1 landsvegi við Grafarholt, þar sem er leyfður hámarkshraði 70 km á klst. Ökumaður var færður á lögreglu- stöðina og sviptur ökuleyfi til bráða- birgða. Sömu nótt var bifhjól mælt á 110 km hraða á Reykjanesbraut þar sem leyfður hámarkshraði er 60 km á klst. Ökumaður var einnig færður á lögreglustöðina og sviptur ökuleyfí til bráðabirgða. Ennfremur var utanbæjarmaður mældur á bif- hjóli á Miklubraut á 119 km hraða þar sem hámarkshraði er 60 km á klst. Viðkomandi verður einnig svipt- ur ökuleyfi. Á laugardagskvöldið var tilkynnt um mjög ölvaða konu með ungbarn í barnavagni og grét barn- ið. Farið var með konuna á heimili hennar, en þar var annað barn henn- ar, 9 ára gamalt eitt heima. Haft var samband við bamaverndarnefnd og í samráði við hana var börnunum komið fyrir hjá bróður konunnar en konunni var leyft að fara fijáls ferða sinna. Á laugardagskvöldið var ráð- ist á afgreiðslustúlku í söluturni og sparkað í hana, farið í peningakassa og stolið kr. 5.000. Um tvo menn var að ræða en aðeins annar þeirra hafði sig í frammi. Málið er í rann- sókn hjá RLR. Aðfaranótt laugar- dagsins voru piltar á bifreið teknir með stöðumæli í fóram sínum, sem þeir sögðust hafa fengið hjá öðram og ætlaði að fela hann. Um kvöld- matarleytið á laugardeginum var til- kynnt um að eldur væri laus í íbúð í kjallara í vesturbænum. Ekki reynd- ist vera um eld að ræða en mikinn reyk úr eldhúsi íbúðarinnar. Atvik voru þau að húsráðandinn hafði ver- ið að sjóða kartöflur og skilið pottinn eftir á eldavélinni meðan hann hafði ætlað að skjótast út í búð. Aðfara- nótt laugardagsins veittu lögreglu- menn á varðgöngu því athygli að maður girðir niður um sig og lætur kunningja sinn taka ljósmynd af kynfæram sínum. Viðkomandi, sem var töluvert ölvaður, var handtekinn og færður í fangageymslu og málið sætir rannsókn hjá RLR. Snemma á sunnudagsmorguninn varð mjög harður árekstur á milli fólksbifreiðar og strætisvagns á gatnamótum Hofs- vallagötu og Hringbrautar. Öku- menn beggja bílanna slösuðust tölu- vert. Ökumaður fólksbifreiðarinnar er grunaður um að hafa ekið gegnt rauðu ljósi. Nokkuð var um það að gæludýr væra ekin niður, sérstak- lega kisur og því era það tilmæli til eigenda slíkra dýra að gæta þeirra betur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.