Morgunblaðið - 28.09.1991, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1991
33
Frá Dómkirkiunni í Reykjavík:
Dagskrá vetrarstarfsins
Safnaðarheimili Dómkirkjunnar er í gamla Iðnskólahúsinu við Lækj-
argötu.
Með komandi viku hefst vetr-
arstarf Dómkirkjunnar. Okkur
er ánægja að geta heilsað vetri
með fjöibreyttu tilboði um sam-
veru og uppbyggingu.
Helgihald verður með svipuðum
hætti og í fyrra. Hámessan er á
sunnudögum kl. 11.00 en venjulega
eru síðdegismessurnar kl. 17.00 og
þá með öðru sniði; áhersla er þá á
kyrrð, bæn og íhugun.
Á sunnudaginn kl. 11.00 hefst
vetrarævintýri kirkjuskólans. Það
gerist í Safnaðarheimilinu í Lækjar-
götu 14a, gamla Iðnskólanum. For-
stöðukona kirkjuskólans er Bára
Elíasdóttir, kennari. Með henni er
traust lið sem ti-yggir að hvorki
þurfi neinum að leiðast né heldur
fara þess á mis sem mikilverðast
er: Að kynnast Jesú. Við hvetjum
öll börn í Dómkirkjusókn, þ.e.
gamla vesturbænum og í Þingholt-
unum neðanverðum, að vera með
frá bytjun og athygli skal vakin á
því að rúta fer frá Vestubæjarskól-
anum kl. 10.45 að safnaðarheimil-
inu.
Fermingarundirbúningur er að
hefjast. Miðvikudaginn 2. október
kl. 18.00 er kynningarfundur í safn-
aðarheimilinu með þeim fermingar-
börnum sem ætla að vera með okk-
ur í vetur. Við leggjum áherslu á
upplifun trúarinnar og miðlun
fræðslu mest í gegnum þátttöku í
helgihaldi safnaðarins í vetur.
Tveir unglingaklúbbar starfa hjá
okkur, annar með unglingum sem
fermdust 1990 (á þriðjudagskvöld-
um) og hinn með unglingum fermd-
um 1991 (á miðvikudagskvöldum).
Umsjónarmenn eru þeir Haukur
Ingi Jónasson og Sigurður Arnar-
son guðfræðinemar. Þar er því fylgt
eftir sem miðlað var í fermingar-
undirbúningnum.
Mömmu- og pabbamorgnar verða
á dagskránni hjá okkur á þriðju-
dágsmorgnum frá kl. 10-12 og
verður farið af stað með þá 15.
október. Þar gefst tækifæri til sam-
veru og nppbyggingar. Ekki er
lan'gt að ganga til okkar frá ágætu
bílastæði við Oddfellowhúsið.
Samvera eldra safnaðarfólks
verður hjá okkur á miðvikudögum
kl. 13.30-16.30. Spil og annað verð-
ur til afþreyingar fram að kaffi en
sungið og spjallað um guðspjöllin
eftir það.
Fótsnyrting fyrir aidraða verður
svo sem venja er til í safnaðarheim-
ilinu á þriðjudögum. Tímapantanir
berist til Ástdísar í síma 13667.
Hádegisbænir verða í kirkjunni á
miðvikudögum kl. 12.05 og súpa á
kirkjuloftinu á eftir. Þeir sem aðeins
hafa hálftíma í mat geta jafnvel
náð að vera með og ætti því að
geta ræst sú von okkar að geta
mætt þörf þeirra fjölmörgu sem
starfa í miðbænum og nágrenni
hans fyrir kyrrðarstund og samfé-
lag í miðri viku.
Við bjóðum öllum sem vilja taka
þátt í vetrardagskránni með okkur,
en þessum upplýsingum beinum við
einkum til sóknarbarna Dómkirkj-
unnar. Þeim erum við prestarnir til
aðstoðar og gæslu í andlegum efn-
um og minnum á viðtalstímana
okkar í safnaðarheimilinu: Sr. Hjalti
Guðmundsson, má.-fi. kl. 11.30-
12.30 og sr. Jakob Ágúst Hjálmars-
son, þri.-fö. kl. 10.30-11.30. Síminn
er 622755.
Jakob Ágúst Hjálmarsson,
Dóinkirkjuprestur.
Málþing’ um háskóla
og háskólamennt-
un í Bandar í kj unum
MÁLÞING um háskóla og háskóla-
menntun verður haldið i Reykja-
vík 1. - 5. október nk.. Málþingið
er haldið í samvinnu bandaríska
sendiráðsins, Menningarstofnunar
Bandaríkjanna, Menntastofnunar
íslands og Bandaríkjanna og Há-
skóla Islands og er hluti dagskrár
í tilefni þess, að í ár eru liðin 100
ár frá iandnámi Leifs Eiríkssonar
í Vesturheimi og 50 ár siðan form-
legu stjórnmálasambandi var
komið á milli Islands og
Bandaríkjanna.
I fréttatilkynningu um málþingið
segir, að á undanfömum árum hafi
fjöldi íslendinga sem sækja háskóla-
nám til Bandaríkjanna stóraukist og
eru þar nú um 32% þeirra íslend-
inga, sem stunda nám við erlenda
háskóla. Á málþinginu verða fluttir
fyrirlestrar um málefni bandarískra
háskóla og ljallað verður um stöðu
tiltekinna fræðigreina.
Aðaræðumaður málþingsins verð-
ur Theodore M. Hesbrugh, heiðurs-
rekstor University of Notre Dame í
Indiana. Hann flytur fyrirlestur í sal
101 í Odda, Háskóla íslands, á mið-
vikudaginn, 2. október, og fjallar þar
um framhaldsmenntun í Bandasríkj-
unum. Hesburgh hefur verið sæmdur
122 heiðursgráðum, sem er meira
en nokkur annar maður hefur hlotið.
Aðrir fyrirlesarar eru Beverly To-
rok - Storb, Michael Hooker og Otto
Butz.
Berverly Torok-Storb er rann-
sóknarprófessor í læknisfræði við
University of Washington og stundar
rannsóknir við Fred Hutchinson
krabbameinsrannsóknarstöðina í Se-
attle, Washington. Sérsvið hennar
Listasafn íslands:
Tónverk eft-
ir Hafliða
Hallgiímsson
SEX tónverk eftir Hafliða Hall-
grímsson verða flutt í Listasafni
Islands sunnudaginn 29. septem-
ber kl. 20.30. Frumflutt verða
þijú verk, þar á meðal er Intras-
ia fyrir blásarakvintett sem Blás-
arakvintett Reykjavíkur flytur.
Einleikarar verða Pétur Jónsson
sem flytur Jakobsstigann fyrir gít-
ar, Kolbeinn Bjarnason Flug
íkarusar fyrir einleiksflautu á 3.
útgáfu og Helga Ingólfsdóttir
Strönd fyrir sembal. Eftir hlé frum-
flytur Guðný Guðmundsdóttir „Án
Titils“ fyrir einleiksfiðlu, en þetta
tónverk er samið í minningu Karls
Kvaran listmálara. Síðasta verkið á
tónleikunum er svo Intrasia sem
Blásarakvintett Reykjavíkur frum-
flytur.
Til styrktar þessum tónleikum
eru rannsóknir á æxlum og meðferð
þeirra og E. Donnel Thomas, leiðtogi
rannsóknarhópsins sem hún starfar
með, hlaut nýlega Nóbelsverðlunin
fyrir ígræðslu beinmergs. Beverly
Totok-Storb flytur fyrirlerstur um
fræðigrein sína á þriðjudaginn, 1.
oktober, í fundarsal Landspítalans.
Dr. Michael Hooker er rektor
University of Maryland, Baltimore
County. Hann er heimspekingur að
mennt. Hann átti heiðurinn af því
að koma á fyrsta sameiginlega rann-
sóknarverkefninu í líftækni milli há-
skóla og iðnfyrirtækis og samhlið
rektorstörfum er hann framkvæmda-
stjóri tveggja hátæknifyrirtækja.
Hann flytur fyrirlestur, sem hann
nefnir: Hvers vegna að ráða hugvís-
indamann? í sal 101 í Lögbergi á
fimmtudaginn, 3. október, klukkan
17:15.
Fjórði fyrirlesarinn, Otto Butz, er
rektor Golden Gate University í San
Francisco. Hann er með B.A. gráðu
í stjórnmálahagfræði frá University
of Toronto og doktorsgráðu í stjórn-
málafræði frá Princeton University.
Butz flytur fyrirlestur um bandaríska
viðskiptamenntun á þriðjudaginn, 1.
október, í sal 101 í Odda og hefst
fyrirlesturinn klukkan 17:15.
Laugardaginn 5. október, klukkan
13 - 16, fer fram í anddyri Odda
kynning á bandarískum háskólum á
vegum Menntastofnunar íslands og
Bandaríkjanna - Fulbright-stofnun-
ar. í fréttatilkynningunni segir, að
auk almennrar fræðslu um m.a. inn-
tökuskilyrði, nauðsynlegt próf,
kostnað verði kynntir sérstaklega um
tuttugu háskólar sem íslendingar
hafa mikið sótt síðustu ár.
Hafliði Hallgrímsson
er gefin út bók með sextíu teikning-
um eftir Hafliða Hallgrímsson og
verður hún seld á tónleikunum.
Veglegt prógramm með umsögn
um tónlist Hafliða eftir skoska tón-
listargagnrýnandann Neil Mackay
verður selt við innganginn og gildir
sem aðgöngumiði að tónleikunum.
(Fréttatilkynning)
RICOH er styrktaraðili
Olympíuleikanna 1992
Þetta er lúxusútgáfan
RIC0H FAX1200
Lasertæki í hæsta gceðaflokki
sem prentar á venjulegan papp
RICOH FAX 1200 er tæki
fyrir þá sem aðeins vilja það
allra besta. Það er fjölnota
faxtæki sem vinnur á
venjulegan pappír og hentar
sérstaklega stærri
fyrirtækjum og þeim sem
þurfa á mjög öflugu faxtæki
aðhalda. RICOH FAX 1200
er ekki bara hágæða faxtæki,
heldur einnig ljósritunarvél
sem kemur öllu skýru til
skila.
Helstu kostir:
• laserprentun á venjulegan pappír - pappír sem endist
• 10 sek sendihraði, pað besta sem gerist - spamaður
• hátækni laserprentun - 60% lægri rekstrarkostnaður
• fjöldasendingar á allt að 100 aðila - tímasparnaður
• 30 blaða sjálfvirkur matari - tímaspamaður
• 17 síðna minni - faxmóttökur tapast ekki
• stimplar hvert blað sem fer rétt í gegn - eykur öryggi
Traustari tengsl
SÍMI: 91-627333 FAX 91-628622